Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1995, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 1995
3
Fréttir
Stefnt var að 20% fækkun alvarlegra umferðarslysa til ársins 2000:
Höf uðborgin hef ur verið
látin sitja á hakanum
- segir Margrét Sæmundsdóttir, formaður umferðarnefndar
I kjölfar mikillar umræöu um
umferðarslys á landinu hafa menn
orðið til þess að minna á og kalla
eftir fjárhags- og framkvæmdaáætl-
unum R-listans og stefnumótun í
umferðaröryggismálum sem sam-'
þykkt var í tíð síðustu ríkisstjórnar.
I báðum tilvikum er stefnt að aðgerð-
um sem stuðlað geti að fækkun um-
ferðarslysa um 20 prósent fram til
aldamóta. Bent hefur verið á góðan
árangur annarra þjóða á Norður-
löndum, t.a.m. Dana, og þótt menn
greini á um tölur eru menn sammála
um að árangurinn er mjög mikill.
Talað hefur verið um að stefnt sé um
fækkun umferðarslysa í Danmörku
frá 20% og upp í allt að 45 prósentum
á ákveðnu tímabili.
„Við erum að vinna að því að bæta
umferðarumhverflð. Það sem mest
er talað um eru hraöalækkandi að-
gerðir. í borginni er 51 þúsund öku-
tæki og fólk er þrúgað af mikilli
umferð og miklum hraða. í liðnum
aprílmánuði var samþykkt hvað ætti
að gera í borginni. Nú er verið að
vinna að umferðaröryggisáætlun og
við teljum að svo kölluð 30 kílómetra
svæði muni verða mest til bóta fyrir
Reykvíkinga. Þau tvö svæði sem við
erum aö skoða núna eru Hlíðarnar
og Lækirnir. Umferðin á að vera
greið á aðalleiðum en koma á í veg
fyrir gegnumakstur um íbúða-
hverfi,“ segir Margrét Sæmundsdótt-
ir, formaður umferðarnefndar borg-
arinnar.
Margrét segir að vinna þurfi mun
meira í vegamálum en hingað til og
að höfuðborgarsvæðið hafi verið lát-
ið sitja á hakanum á meðan milljarð-
ar hafi verið settir í jarðgöng úti á
landi. Hún segir að því hafa verið
haldið fram að í borginni sé miklu
meiri umferð en hún þoli og því þurfl
að miða að því að minnka notkun
einkabílsins.
Mikið hefur verið fjallað um
myndavélar á liðnum árum sem eiga
að mynda þá sem aka hratt og á
móti rauðu ljósi. Margrét segir borg-
ina vera búna að kaupa allan búnað
sem til þurfi en nú vanti fjármagn
til lögreglunnar svo að hún geti rekið
hann. Engir fjármunir fáist til þess
að vinna úr upplýsingunum sem þær
afla.
„Tveir þriðju hlutar umferðarslysa
verða á aðalgatnakerfmu og þvf þurf-
um við að einbeita okkur að því. Það
er ljóst aö meira fjármagn þarf til
þessara mála.“
-sv
Ami Sigfússon borgarfulltrúi um skuldabréfaútboö borgarinnar:
Hefði verið eðlilegra að endurskoða fjárhagsáætlun
„Lántökur til að greiða niður yflr-
drátt eða skuldbreyta lánum geta
verið skynsamlegar en maður lítur
þær öðrum augum þegar þær eru til
að greiða umframkeyrslu á fjár-
hagsáætlun. Ef menn meintu eitt-
hvað með tali sínu um að tími væri
kominn til að rifa seglin hefði verið
eðlilegra að endurskoða fjárhagsá-
ætlun þessa árs með tilliti til of mik-
illa útgjalda, draga saman og hag-
ræða í rekstri," segir Árni Sigfússon,
oddviti sjálfstæðismanna í Reykja-
vík.
Borgarráð hefur samþykkt lán-
tökuheimild í formi skuldabréfaút-
boðs fyrir allt að 700 milljónir króna
og verður farið í þetta útboð á næstu
dögum eða vikum. Svo virðist sem
umframeyösla borgarsjóðs stefni í
550 milljónir króna umfram íjár-
hagsáætlun þessa árs.
„Það er verið að endurskoða fjár-
hagsáætlunina og búið að biðja for-
stöðumenn allra borgarstofnana um
að meta útkomu ársins og grípa til
viðeigandi ráðstafana ef þeir stefna
fram úr. Sömu hðir ár eftir ár eru
háðir mikilli óvissu og í sjálfu sér
væri hægt að mæta þeim með yfir-
drætti eða taka lán hjá borgarfyrir-
tækjum en við teljum eðlilegra og
ódýrara að fara í skuldabréfaútboð,"
segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri.
„Við gagnrýnum auðvitað að um-
framkeyrslu sé mætt með útboði. Viö
höfum horft á 26 prósenta hækkun
fasteignagjalda og nú eru borgarbúar
einmitt að greiða síðustu greiðsluna.
Við höfum haft áhyggjur af því að
breyttar reglur um ijárhagsaðstoð
hjá Félagsmálastofnun þýði aukna
þenslu. A þessu stigi er ekkert hægt
að fullyrða um það en það er vissu-
lega áhyggjuefni," segir Árni.
Borgaryfirvöld hafa farið 180 millj-
ónir fram úr fjárhagsáætlun vegna
sumarverkefna skólafólks, 100 millj-
ónir vegna kjarasamninga, 100 millj-
ónir vegna fjárhagsaöstoðar Félags-
málastofnunar og 100 milljónir vegna
viðhalds gatna og átaksverkefna auk
ýmissa aukafjárveitinga.
-GHS
umar í París
Hin árlega skoöunarferð um borgina
glaöværu viá Signu. Dvalið verður á hinu
frábæra búðahóteli HOME PLAZZA.
Upplýsingar á herbergjum hótelsins
og matseðill í veitingasal eru á íslensku.
Verð aðeins 52.920 kr.
A 10 mánaða raögreiáslur!
Innifalið: Flug, gisting meS morgunveröi,
flugvallaskattar, skoðunarferð, flutningur til
og frá flugvelli og íslensk fararstjórn.
E.s. Ekki gleyma öllu hinu: Signubökkum,
Eiffelturninum og heimsins bestu verslunum,
listamönnum götunnar, kaffihúsunum og heillandi
mannlífinu, ásamt næturlífinu og rómantíkinni.
Nokkur sæti iaus
Bókanir á söluskrifstofu
Fiugleióa Laugavegi 7,
símar 50 50 534 og 50 50 486.
Sigríóur eóa Linda.
FLUGLEIÐIR
Traustur í s / e n s ku r fe r Ö afé l a gi
Fararstjórn: Laufey Helgadóttir/Kolbrún Sigurðardóttir
Nánari upplýsingar:
FARKLÚBBUR VISA
UPPLÝSINGA- OG ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
Álfabakka 16, 109 Reykjavík
Sími: 567-1700, fax: 567-8349