Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1995, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1995, Side 2
2 MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 1995 Fréttir_________________________________________________________ Nægilegt heitt vatn til að leggja hltaveitu í Skógum: Kostnaðurinn innan við 30 milljónir getur lækkað orkukostnað Skóga um þriðjung, segir Grímur Bjömsson „Þetta er miklu meiri árangur en viö héldum aö hægt væri að ná á þessu svæöi. Holurnar þarna eru oft „þurrar", en menn hafa kannski ekki verið nógu þrjóskir og ekki örvað holurnar nægjanlega vel til dáöa," sagöi Grimur Björnsson, jarðeðlis- fræðingur hjá Orkustofnun, en um helgina skilaði loks árangri tveggja mánaða borun eftir heitu vatni að Skógum í A-Eyjafjallahreppi. Borholan, sem er rétt austan við skólahúsið að Skógum, getur skilað 10-18 lítrum á sekúndu sem mun duga allri byggðihni við Skóga og vel það. Hingað til hafa hús í þessum þéttbýliskjarna verið hituð með raf- magni og olíu sem, að sögn Gríms, er helmingi eöa þrefalt dýrara en með þessari nýju holu. í holunni eru tvær æðar, önnur á 530 metra dýpi og er hún tæplega 50° á Celsíus. Grímur segir að um þá æð hafi Orkustofnun vitað, en þegar borað var dýpra, á 1120 metra dýpi, fannst önnur æð sem gefur 96° heitt vatn þannig að upp úr holunni kem- ur rúmlega 60° heitt vatn sem að sögn Gríms er ágætur hiti til kyndingar. Heildarkostnaður við holuna, lagn- ir og hitaveituna mun líkast til verða um 20-30 milljónir. Með hliðsjón af því að hingað til hafa 4-5 milljónir farið í kyndingu á ári má reikna með að hin nýja hitaveita verði fljót að borga sig. Margrét Einarsdóttir, oddviti hreppsins, sagði að mikil ánægja ríkti meðal íbúa svæðisins. „Þetta var góður dagur í gær. Fólk hittist og menn brostu hreinlega hringinn. Við áttum alls ekki von á því að árangurinn yrði svona góður. Þetta breytir auðvitað mjög miklu fyrir hreppinn. Ég get til dæmis ímyndað mér að möguleikar í ferða- þjónustu aukist við þetta,“ sagði Margrét. Hingað til hefur svæöið undir Eyja- íjöllum verið talið eitt af „þurrari" svæðum landsins hvað varðar heitt vatn. Við þennan fund vakna því spurningar um það hvort vatn gæti fundist á fleiri stöðum sem taldir hafa verið „þurrir". Að sögn Gríms hefur þessi nýja hola að Skógum ekki þau áhrif að endurmeta þurfi þau svæði sem talin hafa verið rýr af heitu vatni. „Það sem breytist í hugum okkar sem vinnum við þetta er fyrst og fremst það að þær holur sem hingað til hafa verið taldar árangurslausar gætu með nokkrum viðbótarkostn- aöi orðið nægjanlega orkumiklar fyr- ir litla þéttbýliskjarna. Við erum að sjá það að með þvi að „totta“ þessar minni holur eins og hægt er er hægt að ná nægu vatni úr þeim til þess að hitaveita á staðnum borgi sig,“ sagði Grímur. -GMB DV Ólafsvlk: Gassprengja sprakká bryggjunni Sprengja sprakk á bryggjunni í Ólafsvík á laugardagskvöld, Eftir rannsókn lögreglunnar ályktaði hún að þetta heföi verið gassprengja sem gerð hefði verið með því aö setja gas af kút í plast- poka og honum hefði svo verið hent á bál. Tekur Guðlaugur Wíum, varðstjóri í Ólafsvík, fram að það séu aðeins getgátur. Segir hann að þær fréttir sem sagðar hafi verið af atburðinum séu stór- lega orðum auknar og að ekki hafi allt nötrað og skolfið í Ólafsvík, fólk á heimili hans hafi ekki einu sinniheyrtsprenginguna. -GJ Kópavogur: KveiktíLödu Kveikt var í númerslausri Ladabifreið við Auðbrekku 2 í Kópavogi á fóstudagskvöld. Var hún fast upp við húsið og sprungu þrjár rúöur við brunann. Greini- legt er aö þetta voru skemmdar- verk en ekki er vitað hver framdi verknaöinn. Rannsóknarlögregla ríkisins rannsakar nú málið. -GJ Þú getur svaraö þessari spurningu meö því aö hringja í síma 904-1600. 39,90 kr. mínútan. r ö d d Jj NeiÍ2J 904-1600 Eiga stjórnmálamenn að þiggja laxveiðiboð stórfyrirtækja? Alllr 1 aUtrmna karflnu meft tðnvalssíma gata nýtt sér þessa þ)6nustu. Stuttar fréttir Vöruflutningabifreið fór út af veginum við Hvammsá fyrir utan Vík í Mýrdal á hádegi á laugardag og lenti á hvolfi. Bifreiðin lenti i lausamöl í beygju og valt. Engin teljandi slys urðu á fólki en bifreiðin er mikið skemmd. Farmurinn, sem var fiskur, skemmdist ekki. DV-mynd Friðrik Elduríhlööu: Af ættarmóti í slökk vistarf Eldur kom upp í gamalli hlöðu við Þórormstungu í Vatnsdal á laugar- dag. Fólk sem statt var þar á ættar- ' móti tilkynnti um brunann og hélt honum í skefjum með vatnsslöngu uns slökkvilið kom á vettvang. Jörð- ineríeyði. -GJ Bæj arráðsfundur á þriðjudag: Loks naf n á naf n- laust sveitarfélag - þrátt fyrir andstöðu forseta bæjarstjómarinnar Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum; „Ég tel sátt ríkja um þetta nafn í bæjarstjórn. Sumir bæjarbúar verða kannski ekki alveg sáttir í byrjun en síðar á fólk eftir að venj- ast því og sættast við nafnið. Reykjanes er fallegt og rismikið nafn. Það vísar til þess hvar á land- inu þetta nýja sameinaða sveitarfé- lag er,“ sagði Jónína Sanders, formaður bæjarráðs Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna, sem telur öruggt að bæjarstjóm muni sam- þykkja nafnið Reykjanesbær á sameinaða sveitarfélagið á fundi sínum á þriðjudaginn. Forseti bæjarstjórnarinnar, Drífa Sigfúsdóttir, sagði í viðtali við Rík- isútvarpið í gærkvöldi að hún myndi leggja til á fundinum að sveitarfélagið fengi nafnið Kefla- vík-Njarðvík. Bæjarráð Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna hefur samþykkt að leggja fyrir bæjarstjómarfund á þriðju- daginn að niöurstaða úr almennri atkvæðagreiðslu um nýtt nafn fyrir bæjarfélagið gildi. Reykjanesbær fékk þar flest lögleg atkvæði. „Það mun líða stuttur tími frá þvi bæjarstjórn staðfestir nafnið þar til þaö tekur formlega gildi. Samein- ing þessara þriggja sveitarfélaga hefur gengið mjög vel. Þetta er það eina sem er eftir. Þegar því er lokið er þessi sameining endanlega kom- in í gegn. Reykjanesbær verður sameiginlegt nafn yfir sameinaða sveitarfélagiö en nöfnin Keflavík, Njarðvík og Hafnir verða alltaf til,“ sagði Jónína. Amarsigraði Amar Þorsteinsson sigraði á Helgarskákmóti Taflfélags Reykjavíkur. Amar fékk 6 'Á v. af 7 mögulegum. Ásókn í Smuguna 47 íslensk skip eru í Smugunni eða á leið þangaö. í fyrra stund- uðu 30-35 skip veiðar í Smugunni þegar mest var. Mbl. skýröi frá þessu. Hátiverðálýsi Lýsisverð er hærra á heims- markaðnum en nokkm sinni fyrr og verð á fiskmjöli er lika með því hæsta sem þekkst hefur len&. RÚV greindi frá þessu. TapáHerjólfi Nú bendir allt til þess að Útgerð Herjólfs verði gjaldþrota, Rekst- urinn gekk illa á síöasta ári og nam tapið 155 milljónum, að sögn Sjónvarpsins. Deiliskipulagi hafnað Guömuridur Bjamason um- hverfisráðherra hafnaði deili- skipulagi skipulagsstjóra ríkisins fyrir Bessastaðahrepp eftir stjórnvaldskæm íbúa i hreppn- um. RÚV greindi frá þessu. Loðnufiotinniiand Loðnuflotinn er á leið í land eftir ítarlega en árangurslausa loðnuleit á öllum loðnumiöum fyrir norðan land. Mbl. skýrði frá þessu. Orkuverðtiláivers Iðnaðarráðherra segir umræð- ur um orkuverð til stækkaðs ál- vers Iangt á veg komnar. Tíminn greindi frá þessu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.