Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1995, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1995, Page 15
MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 1995.. 15 Raska þarf ráðherraró Hveitibrauösdagar ríkisstjórnar- innar eru liönir. Flestum vefst tunga um tönn, þegar þeir eru spuröir um gjörðir hennar á þeim tíma. Þar situr helst eftir kappsemi hennar við aö koma í gegn breyt- ingum á fyrirkomulagi við inn- flutning og sölu á áfengi, þvergirð- ingsleg framkvæmd GATT-samn- ingsins og arfavitlausar breytingar á lögum um stjórn fiskveiða. Engar fréttir berast af metnaöarfullum tilraunum ráðherranna til að ráð- ast gegn atvinnuleysinu, og þaðan af síður virðist launamunur kynj- anna raska ró þeirra. En þótt flestum finnist ríkis- stjórnin aðgerðalítil og fæstir búist raunar við nokkru af henni, ríkir heldur ekki beinlínis óánægja meö hana. Enda standa að henni sterkir flokkar með lítt umdeilda foringja í stafni. Það verður ekkert auðvelt að veita þessari ríkisstjóm það að- hald, sem hún þarfnast og stjórnar- andstöðunni er skylt að veita. Það er því mikilvægt, aö þingflokkarnir fjórir í stjórnarandstöðu leggi sig fram um að vinna vel saman, þótt vitaskuld sé oft um áherslumun að ræða og ekki hægt að tala einni röddu í öllum málum. Samkeppni um frumkvæði Yfirlýsingar um samstarfs- og/eða samrunaviðræður á félags- hyggjuvæng hafa ratað inn í fjöl- miðla í gúrkutíð sumarsins, og virðist ríkja nokkur samkeppni milli foringjanna um frumkvæði í KjaUariim Kristín Halldórsdóttir þingkona Kvennalistans þeim efnum. Spurning er, .hvort hugur fylgi máli, því aðferðin ber fremur keim af auglýsinga- mennsku en raunverulegum áhuga. Ekkert er þó eðlilegra en að einmitt þau stjórnmálaöfl, sem nú mynda stjórnarandstöðuna, endurmeti stöðu sína og starfs- ramma hvert um sig. Öli fengu þau miklu lakari útkomu í síðustu kosningum en þau höfðu stefnt að og vænst, og nokkur tilvistar- kreppa hrjáir þau öll. Kvennalistinn hefur nokkra sér- stöðu í þessum efnum, eins og fyrri daginn. Áherslumál Kvennalistans fengu umtalsvert vægi í kosninga- baráttunni, og öll önnur framboð kepptust við að eigna sér þau. Kvennalistinn missti hins vegar fylgi í kosningunum, fjöldi kvenna á Alþingi stendur í stað, og áherslu- mál kvenna virðast eiga að bíða til næstu kosningabaráttu. Margir iðrast þess nú að hafa ekki stutt Kvennalistann, en úr því verður ekki bætt næstu 4 árin, og viö Kvennalistakonur ræðum að sjálf- sögðu stöðu okkar, hvað hefur brugðist og hvernig við getum best tryggt hugsjónum okkar farveg í framtíðinni. Málin í skúffum ráðuneyta Starf Kvennalistans og annarra í kvennabaráttu hefur skilað veru- legum árangri, einkum í auknum skilningi karla sem kvenna á rétt- mæti kvennabaráttunnar. Það sýna m.a. margvísleg viöbrögð við skýrslunni um launamun kynj- anna, svo og við niðurstöðum kosn- inganna og eftirmálum þeirra, þeg- ar konur og sjónarmið þeirra voru að litlu höfð við myndun ríkis- stjórnarinnar. Lítil líkindi eru þó til breytinga hjá núverandi vald- höfum, sem ekki bifast einu sinni við sendingar frá konum úr eigin flokki. Margir bíða spenntir eftir svari forsætisráðherra við opnu bréfi Þórunnar Gestsdóttur, formanns jafnréttis- og fjölskyldunefndar Sjálfstæðisflokksins, sem birtist í Morgunblaðinu 1. ágúst sl. Hún lýsir þar eftir viðhorfum formanns síns til jafnréttis! Eitthvað virðist því skorta á boðleiöir og samstarf í þessum flokki, sem svo margir íslendingar telja traustsins verðan. Nú má hvergi slaka á í mannrétt- indabaráttu kvenna. Best væri, ef konur fengjust til að vinna saman þvert á öll flokksbönd að framgangi þeirra mannréttinda- og kvenfrels- ismála, sem hátt bar í kosningabar- áttunni, en mega nú sæta skúffu- meðferð í ráðuneytunum. Það þarf að raska ró ráðherranna. Kristín Halldórsdóttir „Starf Kvennalistans og annarra hefur skilað verulegum árangri, einkum í auknum skilningi karla sem kvenna á réttmæti jafnréttisbaráttunnar,“ segir m.a. í grein Kristínar. „Margir bíða spenntir eftir svari for- sætisráðherra við opnu bréfi Þórunnar Gestsdóttur, formanns jafnréttis- og Q ölskyldunefndar Sj álfstæðisflokks- ins, sem birtist í Morgunblaðinu 1. ág- úst sl. Hún lýsir þar eftir viðhorfum formanns síns til jafnréttis!“ Síldin og skuldirnar Síld var ekki mannamatur á ís- landi. í bréfi sem Tryggvi Gunnars- son bankastjóri skrifaði í byrjun aldarinnar nefnir hann sem dæmi um harðindi að nú sé fólk farið að leggja sér síld til munns. Og enn í dag fæst varla ný síld eða fryst í verslunum. Þrátt fyrir þetta hefur síldin trú- lega haft meiri áhrif á hugsunar- hátt þjóðarinnar en flest annað á lýðveldistímanum. Því má segja við hæíi að sviðsetja síldarsöltun á Þingvöllum 17. júní í fyrra. Stjórntækið gengisfelling A stríðsárunum störfuðu margar síldarverksmiðjur og þeim fór fjölgandi, enda síldarafli þá um 200 þús. tonn þegar mest var. Mestöll síldin fór í bræðslu og sérstök áhersla lögð á magnið. Þetta bætt- ist við önnur uppgrip, ekki síst hervinnuna. Síldin er dyntótt skepna sem frægt er, en þegar veiði minnkaði um 1950 kom ný tækni til sögu. Asdik leitartæki fundu síld á djúp- slóð og kraítblökkin jók veiðina og létti störfin. Þannig gátu menn Kjallaiiim Jón Kjartansson frá Pálmholti form. Leigjendasamtakanna haldið áfram aö moka upp síld í bræðslu fram undir 1970 að allt var búið. Á þessum árum var ekki halli á ríkissjóði og skuldasöfnun ekki vandamál. Búin stækkuðu, togur- um fjölgaði og frystihús risu við hverja vík. Vöruframboö efldist sem aldrei fyrr, íbúðabyggingar jukust um 86% á árunum 1961-66 og bílaeign tvöfaldaðist á þrem árum. Pólitiskir ráðamenn úthlut- uðu peningum sem brunnu upp í verðbólgu og gengisfelling varð helsta stjórntækið. Niðurskurður réttlættur Verðtrygging var sett á lán árið 1979. Áratug síðar varð að skera niður þorskafla, leggja skipum, fækka búum og úrelda margt sem byggt hafði verið. Nú er mokað peningum í að rífa niður það sem áður var mokað peningum í að byggja upp. Þrátt fyrir þetta sáu menn ekki ástæðu til að breyta stefnu sinni, en héldu áfram að safna skuldum eins og ekkert hefði gerst. Nú þegar eyðsluskuldir hlaðast upp m.a. vegna vitiausrar hús- næðisstefnu, þá kemur ráðamönn- um ekkert í hug annað en að skera niður velferðarkerfiö. Niðurskurð- urinn er m.a. réttiættur með því að við séum að endurfjármagna mikið af íbúðarhúsnæðinu. Sem sagt, fremur skal loka barnageð- deildum en breyta húsnæðishugs- un síldartímans. Jón Kjartansson „Nú þegar eyðsluskuldir hlaðast upp, m.a. vegna vitlausrar húsnæðisstefnu, þá kemur ráðamönnum ekkert í hug annað en að skera niður velferðarkerf- ið.“ Meðog ámóti Bjarní Jóhannsson, þjálfari Breiðabliks. Er knattspyrnan í sumar iakarien áður? Fótboltinn er á uppleið „Knatt- spyrnan er ekkert lakari en áður en hún er heldur ekkert betri. Mér fmnst leikmenn í betri líkam- legu ástandi heldur en oft áður og leik- skipulag fleiri liða en áður er í miklu betri lagi. Ég tel að við sé- um að ganga í gegnum tímabii þar sem við eigum eftir að taka skref fram á við, annað hvort næsta eða þar næsta ár. Ég vil meina að þetta sé ákveðið milli- bilsástand, liðin eru farin að æfa meira en áður og ég tek undir þá skoðun manna aö það vanti kannski smá leikgleði í menn þegar menn eru búnir að ganga í gengum langt og erfitt undir- búningstímabil. Þaðeru ákveðnir þættir, bæði í þjálfun og leik lið- anna, sem eru betri en áður og ég tel til dæmis að við séum með lið í dag sem eiga meiri möguleika í Evrópukeppni en oft áður. Góð- ur árangur Skagamanna og sá leikstíll sem þeír eru að sýna í dag segir mér að það hafi aldrei verið til betra félagslið á íslandi. Þar af leiðandi tel ég fótboltann á uppleið og að hann eigi eftir að verða betri og ég vísa því algjör- lega á bug að hann sé lakari en áður.“ Betri leikmenn hafa brugðist „Þaöermín skoðun eins og ég hef áöur sagt aö knatt- spyrnan sé slakari en áð- ur. Mótið er að vísu ekki búið og von- andi að það verði breyt- ing til batnað- ar í þeira umferöum sem eftir eru. Rök mín fyrir þessu eru í fyrsta lagi þau sem ég hef áður nefnt: að sterk líö eins og Fram, FH og Valur hafa ekki gert eins góða hluti og undanfarin ár. í þessum liðum eins og mörgum öðrum í deildinni hafa lykilmenn veriö að leika langt undir getu. Efþrír lykilmenn liðs eru að leika illa kemur það niður á öllu liðinu og auðvitað gengi þess. Það er alveg ljóst að betri leikmenn lið- anna hafa margir hverjir alveg brugðist í sumar og það hefur komið niður á heildargæðum knattspyrnunnar. Ég hef enga skýringu á þessu enda ekki í nógu góðri aðstöðu til að meta það og það verða menn tengdir liðunum að gera. Það sýnir sig greinilega að Skagamenn hafa yfirburði í deildinni af því þeir eru langstöö- ugastir. í þrem síðustu leikjum áður en tviburarnir komu var Skagaliðið hins vegar að leika undir getu en síðan koma þeir Arnar og Bjarki til leiks og hvað gerist, Jú, þar koma tveir góðir leikmenn inn og drífa liðiö upp og það vinnur stórsigur á Keflavik, 8-2. Ömiur rök í sambandi við slakt gengi liðanna er það að 3 liðhafa þegar sagt þjálfiirum upp störfum. Það hlýtur að sýna að jiessi lið eru ékki ánægð með knattspyrnu og gengi sitt. Þetta eru fleiri brott- rekstrar en áður á sama tíma“. Magnús Jónatansson, fyrrum knattspymuþjálf- arl,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.