Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1995, Blaðsíða 16
16
MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 1995
Fréttir
DV
Mj ólkursamlagið í Borgamesi:
Sárt að vera neyddur
tilaðflytja
segir Jón Guðmundsson framleiðslustjóri
„Þetta liggur mjög þungt á mönn-
um, öllum mjólkurfræðingunum
hefur verið sagt upp og hitt starfs-
fólkið fær uppsagnarbréfm í lok sept-
ember, 37 manns samanlagt. Einn
mjólkurfræðingur er farinn og annar
að fara. Margt af þessu fólki er héðan
úr Borgarnesi og það er sárt að vera
neyddur til að flytja.
Mjólkurvinnslan hættir um ára-
mót. Hún flyst burt, trúlega annað-
hvort í Búðardal eða á Selfoss. Það
er ekki vitað enn þá. Mjólkurdreif-
ingin verður áfram hérna. Mjólkin
verður flutt með tankbílum, hér þarf
aðeins aö forhita hana og geyma og
kannski verðum viö með þjónustu í
sveitunum.
Hér er þriðja stærsta mjólkursam-
lagið á landinu og við erum með 10%
af framleiðslunni. Við framleiðum
hérna þykkmjólk, engjaþykkni,
sýrðan ijóma, skyr og mysu, bæði til
drykkjar og súrsunar," sagði Jón
Guðmundsson, framleiðslustjóri hjá
Mjólkursamlaginu í Borgamesi.
Önnur matvælaframleiðsla
Þegar mjólkurvinnslan hættir
verður heilmikið ónýtt húsnæði þar
sem hún var en í húsinu er líka
vodkaframleiðsla, pitsugerð og
ávaxtagrautagerð sem allt veröur
áfram. Verslunin, sem rekin er á
staðnum, verður einnig áfram svo
og Rannsóknarstofa mjólkuriðnað-
Ámeskirkja:
Nýtt orgel vlgt
Regína Thorarensen, DV, Selfossi:
Séra Jóh ísleifsson messaði í hinni
nýju Ámeskirkju sl. sunnudag en
þar var fjölmenni enda svokölluð
hátíðarmessa og var vígt nýtt orgei
sem gefið var í minningu um Jensínu
Óladóttur, ljósmóður í Trékyllisvík.
Haukur Guðlaugsson, söngmála-
stjóri þjóðkirkjunnar, vígði hið
glæsilega orgel og Jensína Hjalta-
dóttir, barnabarn Jensínu ljósmóð-
ur, feöng einsöng sem gerði mikla
lukku hjá áheyrendum enda er hún
að læra söng.
Gunnsteinn Gíslason, oddviti Ár-
neshrepps, talaði nokkur orð og skírt
var barnabarn Gunnsteins og hans
mikilhæfu konu, Margrétar Jóns-
dóttur. Guömundur Valgeirsson, eig-
inmaður Jensínu ljósmóður, talaði
einnig nokkur orð þrátt fyrir háan
aldur en hann er á níræðisaldri.
Athöfnin var ákaflega hátíðleg og
séra Jón ísleifsson talaði af mikilli
tilfmningu og kom víða við um hið
jarðneska líf. Er fólk almennt sam-
mála um það að séra Jón hafi haldið
sína bestu ræðu þau tvö ár sem hann
hefur verið í Árnesi. Talaði hann af
mikilli rausn og áheyrilega, munur
en með marga presta sem tala of lágt
og áherslulaust svo fólk heyrir illa
til þeirra.
arins sem flutti að sunnan fyrir ári.
„Markmiðið hjá okkur er að ná í
aðra matvælaframleiðslu en það er
ekki tímabært að segja neitt um það
enn þá. Það eru mörg fyrirtæki til
sölu,“ sagði Jón Guðmundsson.
í Mjólkursamlaginu í Borgarnesi, frá vinstri Árni ívar Theodórsson, Berglind Gunnarsdóttir og Jón Guðmundsson
framleiðslustjóri. DV-mynd JAK
Er að hefja tilrauna-
veiðar á sandsíli
SKÓLAR ■ NÁMSKEID
VjrÆÆIÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆWÆÆÆÆlWÆÆl.
Aukablað
SKOLAR - NAMSKEIÐ
Miðvikudaginn 23. ágúst mun aukablað um
skóla og námskeið fylgja DV.
I blaðinu verða upplýsingar um námskeið og
sérskóla sem standa almenningi til boða í vetur.
Einnig verða viðtöl við fólk sem sótt hefur hin
ýmsu námskeið.
Þeir auglýsendur sem hafa áhuga á að auglýsa
í bessu bíaði hafi samband við Björk Brynjólfs-
dóttur, auglýsingadeild DV, hið fyrsta
í síma 563 2723.
Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur aug-
lýsinga er fimmtudagurinn 18. ágúst.
ATH.I Bréfasími auglýsingadeildar er 563 2727.
Umsjónarmaður efnis er
Hilmar Karlsson blaðamaður.
„Sandsíli er mjög gott í beitu en
ítalir borða þaö mikið. Best er að
veiða það snemma á vorin, í apríl eða
maí, þegar það er að koma upp úr
sandinum en svo veröur það svo
styggt að-erfltt er að eiga við það.
Sandsíli hefur verið veitt í troll við
suðurströndina. Svo hefur það verið
veitt með háf en ekki í miklum mæli.
Ég sótti um og fékk strax leyfi til
veiðanna. Reyndar ætlaði ég að byija
í fyrra og pantaði efni í nótina frá
Noregi en fékk bara helminginn af
því sem ég pantaði. Síðan lenti ég í
vélarbilun núna í vor þannig að ég
er að byija núna,“ sagði Einar Krist-
jánsson á Margréti AK 39 á Akranesi.
Eftirsótt beita
Einar er að fara vestur í Breiöa-
fjörð til að hefja tilraunaveiöar á
sandsíli. Við veiðarnar ætlar hann
að nota hringnót sem er auðvitað
sérlega smáriðin. Hann sagði að
hann væri ekki hræddur um að losna
ekki við aflann þar sem fiskur væri
sérlega gráðugur í þessa beitu. Menn
væru að fá 50 kg á bala venjulega en
ef beitt væri sandsíli væri veiðin frá
3-500 kg.
Þrenns konar síh eru af sandsíla-
ætt: marsíli, sandsíh og trönusíli.
Marsílin og sandsílin eru mjög lík
en trönusíhn þekkjast á framstæðum
neðri skolti.
„Hvalurinn splundrar sílatorfun-
um, það þarf aö drepa hann og selinn
hka. Þeir éta mun meira en við
mennimir veiðum,“ sagði Einar.
Að sögn hans er Margrét AK 39
minnsti hringnótarbátur í heimi, að-
eins 7,1 tonn.
Einar Kristjánsson sýnir hve smáriðin nótin er sem hann ætlar að nota við veiðarnar.
DV-mynd JAK