Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1995, Síða 19
MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 1995
31
Menning
Verkin á sýningunni varpa skýru Ijósi á norræna list í kringum síðustu aldamót.
DV-mynd JAK
Ljósúrnordri
- í Listasafni íslands
Sýningin Ljós úr norðri, sem var opnuð um helgina
í Listasafni íslands, varpar skýru ljósi á norræna list
í kringum síðustu aldamót. Þar koma hvort tveggja
fram þær áherslur sem sameinuðu Norðurlöndin á
þessum tíma og eins þeir þættir sem aðskildu þau og
sýndu sérstöðu hverrar þjóðar fyrir sig. Sýningin er
sannarlega hvalreki, því mörg verkanna eru lykilverk
af söfnum víðs vegar um Norðurlöndin og má þar
nefna tvö verk eftir Munch, nokkur eftir Gallen Kall-
ela, Vilhelm Hammershöi, Anders Zorn o.íl. Fulltrúar
íslands á sýningunni eru þeir.Þórarinn B. Þorláksson
og Ásgrímur Jónsson, sem hljóta að teljast frumkvöðl-
ar íslensks málverks þó menn á borð við Sigurð mál-
ara hafi rutt brautina á nítjándu öldinni.
Myndlist
Ólafur J. Engilbertsson
Raunsæislegar þjóðlífsmyndir
Það sem strax vekur athygli á sýningunni er að
myndunum er skipt upp eftir viðfangsefnum. í neðsta
salnum eru áberandi þjóðlífsmyndir þar sem hörð lífs-
barátta er sem rauður þráður. Athygli vekur að ekk-
ert íslenskt verk er í þessum sal þó svo að því megi
slá fóstu að lífsbaráttan hafi ekki síður verið hörð hér
á landi og þess virði að festa á léreft. Hér eru sterk
og eftirminnileg verk eftir Finnana Eero Jamefelt (í
nauðungarvinnu), Hugo Simberg (Stúlka að skræla
kartöflur) og Albert Edelfelt (Jarðarför barns). Danir
eiga einnig verðuga fulltrúa raunsæislegrar þjóðlífs-
lýsingar í salnum, þau Niels Bjerre og Önnu Ancher.
Raunsæisbylgja Skagen-málaranna var tvímælalaust
með því markverðasta í listalífi álfunnar á síðustu
árum nítjándu aldarinnar og á fyrstu árum þeirrar
tuttugustu, en Finnarnir voru fullkomlega samstiga
við það sem þar var að gerast og sýningin varpar
skemmtilegu ljósi á þau tengsl.
íslenskt logn og útlend harðneskja
í salnum á fyrstu hæð eru portrett og byggingar
meginviðfangsefni. Tvær myndir eftir Munch, Kossinn
og Stúlkurnar á brúnni, vekja hér hvað mesta at-
hygli, enda sérstaklega kraftmikil verk. Enn fremur
era myndir Vilhelms Hammershöi athyglisverðar. Þar
má næstum ætla að nútímamálari sé á ferð samanber
efnistökin og einföldun myndefnisins. Mynd Ásgríms
af Esjunni úr Vinaminni nýtur sín hér sérstaklega vel
og í nábýli við landslagsverk hinna norrænu kollega
er einkum áberandi tær og óumdeilanlega íslensk
miðsumarbirtan í mynd Ásgríms. Annars eru verkin
í þessum sal flest í eðli sínu uppstillingar og ekki í
átakameiri kantinum.
Á annarri hæð gefur að líta hreinræktuð landslags-
verk og þar njóta íslendingarnir sín loks, enda var
landslagið meginviðfangsefni Þórarins og Ásgríms
framan af, líkt og svo margra íslenskra málara allt til
þessa dags. í verkum þeirra er eins og skíni í gegn
þörf til að sýna að landið sé þrátt fyrir harða veðráttu
búsældarlegt og byggilegt. Það stingur óneitanlega í
stúf að á meðan Gallen Kallela á hér harðneskjulega
og sterka vetrarmynd af Imatrafossum í snjó, eru ein-
ungis logntærar sumarmyndir frá ísakalda landinu.
Athyghsvert er að bera hér saman Þingvallamyndir
þeirra Ásgríms og Þórarins, báðar málaðar 1905 en
eins og frá tveimur ólíkum stöðum. í efsta sal vekja
myndir Anders Zom og Peders Severins Kröyers af
stúlkum og drengjum að lauga sig hvað mesta at-
hygli. Þar er logntær sumardagur hkt og í myndum
íslendinganna, en öhu meira sýnt af mannlega þættin-
um. Sýningarskrá er afar vönduð með fjölda greina
og htprentuðum myndum af öllum verkum.
Sýningin í Listasafni íslands stendur th 24. sept.
GLÆSILEGT TILBOÐ Á
Creda autodrv þurrkau
Tekur 5 kg. af þvotti.
Tvö hitastig.
Véltir tromlunni í aðra óttina.
Hæg kæling sfðustu 10 mín.
Barkinn fylgir með.
Umboðsmenn
um land allt
VISA
RflFTffKJflPERZLÖN I5L9ND5 If
Skútuvogi 1 b, 104 Reykjavík. Sími 568 8660
EIN MEB OLLU
FYRIR FYRIRTÆKIÐ OG HEIMILIÐ
btlinn
fyrirtækið
húsið &
garðinn
Mjög auðveld og
þægileg í notkun
KEW X-tra 3600 er mjög öflug og ein-
staklega þægilega útbúin háþrýstidæla með
öllum búnaði og fyigihlutum til þrifa utanhúss.
Ekkert risparlakkið meira á bilnum en drullugir og tjargaðir þvottakústar.
Fylgihlutir: Tomando spúlrör, sjálfvirkt start/stopp, vatnsslanga í kasettu, hreinsinál,
froðustútur, 1 brúsi af bílhreinsiefni, 1 brúsi af hobbyhreinsiefni, 1 blöndunarbrúsi,
25 cm þvottabursti, hraðtengi fyrir vatnsinngang og vagn. Hámarks-
þrýstingur 140 bör, vatnsmagn á min. 8,2/7, 5 I, þyngd 15,5 kg.
Rekstrarvörur . Réttarhálsi 2-110 Reykjavík • Sími: 587 5554 . Fax: 587 7116
Hringiðan
Kringlan hélt upp á átta ára afmæh sitt um helgina meö ýmsum uppákom-
um. Meðal annárs var hoppkastah fyrir börnin og naut hann mikiha vin-
sælda. Ármann Óskarsson og Ásbjörg Einarsdóttir voru á fuhu í hoppkast-
alanum þegar DV bar að garði og þau virtust skemmta sér hið besta.
DV-mynd TJ
Bændur sem panta
núna fá traktorana
afhenta fyrir
áramót á þessu
frábæra verði
kr. 1.980.000.-
■dgse-'v Ingvar
1 i ! Heigason hf.
~ ? Sœvarhöfða2
Sími 525 8000