Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1995, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1995, Page 27
MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 1995 39 Fréttir Úrskurður Samkeppnisstofnunar 1 Esso/Olís-mállnu: Fordæmisgefandi í sambærilegum málum - seglr Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Verslunarráðs „Þessi úrskuröur hlýtur að vera fordæmisgefandi. Samkeppnis- stofnun getur ekki fellt þennan úrskurð nú en svo einhvern allt annan ef sams konar mál kemur upp. Það er hins vegar spumingin hvort aðstæður sama eðlis koma upp,“ sagði Vilhjálmur Egilsson, formaður efnahags- og viðskipta- nefndar Alþingis og framkvæmda- stjóri Verslunarráðs, um úrskurð Samkeppnisstofnunar í Esso/Olís- máhnu fyrir helgi. Þar var úrskurðað á þá leið að eftir að Esso hefði keypt 45,5 pró- sent í Olís mættu stjórnarmenn Olís ekki vera of tengdir Esso. Vilhjálmur var spurður hvort hann teldi að þessi úrskurður Sam- keppnisstofnunar næði t.d. til þess aö forstjóri Eimskipafélags íslands er stjórnarformaöur Flugleiða hf. „Það er spurningin um það hversu mikil samkeppni er á milli þessara tveggja fyrirtækja. Ég fæ nú ekki séð að þau séu neitt nálægt því að vera keppinautar eins og olíufélögin í landinu," sagði Vil- hjálmur. Hann kvaðst ekki telja úrskurð- inn afturvirkan og bjóst við að kæra yrði í hverju einstöku tilviki til að fá úrskurð eins og þann sem Samkeppnisstofnun var að fella. í skýrslu Samkeppnisstofnunar um úttekt hennar á skipulags- og eignatengslum íslenskra fyrir- tækja kemur fram að stofnunin tel- ur ekki tilefni til sérstakra aðgerða í málum sem þessu. Kaup Esso á 45,5% hlut í Olís áttu sér staða eftir aö skýrsla Samkeppnisstofnunar kom út. Karlar áhyggjufuUir yfir auglýsingum eftir fólki í stjómunarstöður: Sýnir konum að um- sóknir þeirra verði teknar alvarlega - sá hæfasti verður ráðinn, segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri „Mér hefur borist til eyrna að ein- hveijir karlmenn telji að þeir eigi ekki möguleika á þessum stöðum af því að þær séu auglýstar með þessum hætti en það er auðvitað mikill mis- skilningur því að sá hæfasti veröur ráðinn hvort sem hann er kona eða karl. Þetta er aðallega hugsað sem yfirlýsing til kvenna um að þeim sé óhætt að sækja um störfin því að umsóknir þeirra veröi teknar alvar- lega sem er því miður ekki alltaf gert,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir borgarstjóri. Borgaryflrvöld hafa að undanfórnu auglýst eftir íjárreiðustjóra og fram- kvæmdastjóra menningar-, uppeldis- og félagsmála hjá borginni. Vakin hefur verið athygli á því neðanmáls í blaðaauglýsingum að það sé stefna borgaryfirvalda aö auka lúut kvenna í stjórnunar- og ábyrgðarstörfum á vegum borgarinnar, stofnana henn- ar og fyrirtækja og eru konur þannig hvattar sérstaklega til að sækja um störfin. „í einni grein jafnréttislaga segir að starf sem laust er skuli standa opið jafnt konum sem körlum og óheimilt sé að gefa í skyn að fremur sé óskaö starfsmanns af öðru kyninu en hinu. Ákvæðið gildir ekki ef til- gangur auglýsandans er að stuðla að jafnari kynjaskiptingu. Ef borgaryf- irvöld hafa komist að því að fleiri karlar en konur eru í stjómunar- og ábyrgðarstörfum hjá borginni geta þau óskað eftir því að konur sæki sérstaklega um,“ segir Stefanía Traustadóttir, starfandi fram- kvæmdastjóri Jafnréttisráðs. - Má þá ekki túlka þetta þannig að það sé verið að letja karlmenn til að sækja um? „Nei. Það er ekki þar með sagt að með þessu geti yfirmenn Reykjavík- urborgar ráðið til starfans konu ef áberandi hæfari karlar sækja um.“ „Það er stefna borgaryfirvalda aö auka hlut kvenna í stjórnunarstörf- um, hún hefur vei ið mörkuð í jafn- réttisáætlun Reykjavíkurborgar og því finnst okkur eðhlegt að hún komi fram í auglýsingunum. Þetta þýðir ekki að við séum búin að ákveða að ráða konu og það gæti farið svo að karlar verið ráðnir í báðar þessar stöður," segir Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir. -GHS Norðursfld í gagnið á ný Jóhann Jáharmsscm, DV, Seyöisfiröi: Fyrir nokkru keypti SR-nýöl á Seyðisfirði eignir Norðursíldar viö Strandarveg af Landsbanka. Þar hefur engin starfsemi verið lengi. Jafnframt samdi SR-mjöl við verktakafyrirtækið Samleið um framkvæmdir á frystihúsinu sem miðast við að uppfylla ýtrustu kröf- ur sem Fiskistofa gerir til að leyfi faist til frystingar og vinnslu á síld og loðnu. Því á að vera lokið á næstu tveimur mánuöum og yrði þá hægt að nýta þarna afla á kom- andi vertíö í haust. Hjá Norðursíld var um langt ára- bil mikill atvinnurekstur á vegum Valtýs Þorsteinssonar og seinna Hreiðars sonar hans. Þarna er mik- ill húsakostur og ærið svigrúm til margs konar vinnslu. Vatnsþéttum þök svalir, tröppur og áveðursveggi með Aquafin-2K. Aquafin-2K er 2ja þátta sveigjanlegt múrefni, ætlað til vatnsþéttingar á steyptum flötum. Vatnsþétting á útitröppum var áður vandamál, en Aquafin-2K gjörbreytti dæminu. Við veitum 3ja ára ábyrgð á efni og vinnu. 4 ára reynsla af Aquafin-2K sannar okkur, að þar er komið efni sem ekki flagnar af, þrátt fyrir regn, frost og umgang. Húsahlynning hf. Alhliða húsaviðgerðir 567 3730 894 3324 567 0766 Veitingahúsið í Haukadalsskógi. DV-myndir Jón Ben. Haukadalsskógur opinn almenningi Jón Benediktsson, DV, Hvolsvelli: Skógardagur Skógræktar ríkisins og Skeljungs var haldinn í Hauka- dalsskógi nýverið. Þann dag var skógurinn jafnframt opnaður al- menningi og nýr og skemmtilegur áningarstaður tekinn í notkun. Miklar umbætur hafa verið gerðar á skógarsvæðinu til að fólk geti notið þess sem best. Göngustígar hafa ver- ið lagðir og leiðsöguskilti sett upp með ýmsum fróðleik. Haukadals- skógur er 1600 hektarar - þar af 1350 girtir. Um 30 tegundir skógarplanta eru þar. Danskur maður, Kristian Kirk, átti Haukadal aö hluta um tíma og gerði kirkjuna, sem nú stendur ein húsa á hinunj foma bæjarhól skógarins, sein nýja. 1939 gaf hann Skógrækt ríkisins hvort tveggja, jörö og kirkju. Vegna hagstæðra innkaupa bjóðum við: ' Wiz Wiz Wiz skólatösku og pennaveski | áaðeinsj^ ^ 995 venjulegt verð te^344S* Mikið úrval af skólatöskum Í2 O to og pennaveskjum fyrir alla aldurshópa RÁI/a. KÍffanrra_ rriafaifAmiMwlun Bóka-, ritfanga- og gjafavöruverslun Miðbæ við Háaleitisbraut 58-60 • Sími 553 5230

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.