Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1995, Síða 28
40
MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 1995
Hringiðan
Poxað til sigurs
Róbert Þorgeirsson náöi einstökum
árangri þegar hann sigraði í íslands-
mótinu í poxi á laugardaginn í Fjöl-
skyldugaröinum. Hann gerði sér lítið
fyrir og fékk 30 myndir af 30 mögu-
legum í þremur köstum og fór klyfj-
aður verðlaunum heim.
SANYL
Þakrennur fyrir
íslenska veðráttu
^AIFABO RGf
" KNARRARVOGI 4 • 8 568 6755
Fallen
Sterk
Re/fnheld
| Marf;ar stierðir
Tjaldleigan Skemmtilegt hf.
líldshöfða 8 -587 6777@
Wf
• Þvottamagn 1 til 5 kg.
• Regnúðakerfi
• 18 Þvottakerfi
• Ullarkerfi
• íslenskur leiðarvísir
• Dýpt frá 33 cm !
• Frí heimsending í Rvk.
og nágrenni
VISA - EURO - RAÐGREIÐSLUR
RAFVORUR
ARMULI 5 • 108 RVK • SÍMI 568 6411
Funkstrasse á Rykkrokki
Óttar Proppé átti lokaorðið ásamt
sveit sinni Funkstrasse á áttundu
Rykkrokk tónlistarhátíöinni sem
haldin var við Fellaskóla í Breiðholti
á laugardaginn. Tónleikarnir stóðu
frá klukkan fimm um daginn og fram
undir miðnætti og fjölmargar hljóm-
sveitir tróðu upp.
Nýjasta parið í bænum
Arnar, hárprúðari hluti Skagatvíburanna og ungfrú ísland, hún Hrafnhildur, voru saman á frumsýningu söngleiks-
ins Rocky Horror á föstudagskvöldið. DV-myndir TJ
Forsetinn á frumsýningu
Eftir frumsýningu Rocky Horror á föstudagskvöldiö fór
Vigdís Finnbogadóttir baksviös og óskaði leikurunum
til hamingju. Hún lét vel af verkinu og hér er hún að
ræða við stjörnu kvöldsins, Helga Björnsson, sem fer
með aðalhlutverkið í söngleiknum.
Keppni í að keyra strætó
Á laugardaginn fóru fram úrslit í ökuleikni strætisvagn-
stjóra á Norðurlöndunum. Keppnin var hörð en svo fór
að lokum að íslendingar misstu sigurinn í hendur Finn-
um. Hér gefur að lita þrjá efstu menn keppninnar, þá
Steindór Steindórsson sem hafnaði í 3. sæti, Þórarin
Söebech sem lenti í 2. sæti og loks Finnann Markku
Pohjolainen sem hirti gulliö.
Vilhjálmur Goði ásamt félögum sín-
um í söngleiknum Súperstar hóf upp
raust sína á laugardaginn þegar
Kringlan hélt upp á átta ára afmæli
sitt. Söngfólkið úr Súperstar tók þrjú
lög við mikinn fógnuð viðstaddra.
Margt á Rykkrokki
Áhorfendur fjölmenntu á Rykkrokkið á laugardaginn.
Mannmergðin jókst eftir því sem á leið kvöldið og fræg-
ari hljómsveitir stigu á svið. Þeir Ingi Björn úr hljóm-
sveitinni Fiff, Einar úr hljómsveitinni Pýþagórasi og
Siggi, en hann er ekki í hljómsveit, létu sig ekki muna
um það að horfa á alla tónleikana.
Fótboltahetjurnar Ásthildur Helgadóttir og Einar Þór
Daníelsson voru á Ingó um helgina að spá í boltann og
slaka á spennunni sem fylgir deildarbaráttunni.
Utiskákmót inni
Brynjólfur Sveinsson stóð sig vel á
útiskákmóti Skákfélags Hafnarfjarð-
ar sem var haldið inni í Miðbæ Hafn-
arijarðar vegna veðurs. Menn létu
það þó ekki aftra sér frá því að tefla
af krafti.
Soffía Arnardóttir, sjónvarpsmógúllinn Hemmi Gunn
og sjónvarpsþulan fagra Unnur Steinsson létu sig ekki
vanta á frumsýningu Rocky Horror í Loftkastalanum á
fóstudagskvöldið.
Ágústa og Habba voru á Ingólfscafé
um helgina. Stuðið á Ingó var í há-
marki, þær skemmtu sér vel og vildu
ólmar láta mynda sig saman.
Davíð, Hilmar, Helga og Karen voru í Perlunni á laugar-
dagskvöld í góðu stuði enda eru Davíð og Karen nýgift
og því tilvalið myndefni.
Ofurhetjumar úr Superstar mættu í Loftkastalann eftir
frumsýningu Rocky Horror svona rétt til að fylgjast með
keppinautunum. Hér bregða þeir á leik Davíð Þór gór-
illa og sögumaður í Rocky, Villi, Matti og Pétur „Jes-
ús“ örn.
Þær Birgitta Maria, Heiða í Unun meö kambinn niðri
og Sigrúnmættu snemma á Rykkrokkið og fylgdust með.
Heiða og félagar hennar í Unun tróðu svo upp seinna
um kvöldið.
Það vom ekki bara hljómsveitir sem
tróðu upp á Rykkrokki heldur var
Furðuleikhúsið með furðulega sýn-
ingu. Við og á sviðinu var allt fullt
af mannlegum taflmönnum og undir
lokin höfðu svartir betur enda mjög
vígalegir.