Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1995, Page 30
42
Afmæli
MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 1995
Guðrún Alexandersdóttir
Guörún Alexandersdóttir, starfs-
maður VÍS í Ólafsvík, Engihlíö 8,
Ólafsvík, er sextug í dag.
Fjölskylda
Guðrún er fædd á Hjarðarfelli í
Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi og
ólst upp þar og á Stakkhamri.
Guðrún giftíst 11.7.1959 Stefáni
Jóhanni Sigurðssyni, f. 17.9.1937,
svæðisstjóra VÍS í Ólafsvík. For-
eldrar hans: Sigurður E. Stefánsson
og Vilborg Sigurðardóttir.
Böm Guðrúnar og Stefáns Jó-
hanns: Kristjana, f. 11.8.1956, hús-
móðir á Hellissandi, maki Svanur
Aðalsteinsson, þau eiga tvö börn,
Stefán Jóhann, f. 25.4.1978, og Ag-
nesi, f. 25.2.1983; Magnús, f. 1.10.
1960, alþingismaður í Grundarfirði,
maki Sigrún Drífa Óttarsdóttir, þau
eiga tvö börn, Guðrúnu, f. 2.10.1987,
og Guðmund, f. 10.6.1991; Vilborg
Lilja, f. 2.3.1965, framkvæmdastjóri
HSH í Ólafsvík, maki Eiríkur Leifur
Gautason, þau eiga tvo syni, Hilm-
ar, f. 15.6.1988, og Jóhann, f. 20.7.
1983; Sigríður, f. 11.12.1968, nemi í
hjúkrunarfræði í Háskólanum á
Akureyri.
Systkini Guðrúnar: Guöbjartur, f.
16.8.1931, bóndi, Miklaholti; Bjami,
f. 24.11.1932, bóndi, Stakkhamri;
Hrafnkell, f. 12.2.1934, starfsmaður
við Sjúkrahúsiö Stykkishólmi; Auð-
ur, f. 19.4.1940, skrifstofumaöur Rifi;
Þorbjörg, f. 13.12.1941, útgerðar-
stjóri Rifi; Magndís, 24.3.1945, skrif-
stofumaðurhjáRARIK, Stykkis-
hólmi; Friðrik, f. 28.10.1947, raf-
magnstæknifræðingur í Reykjavík;
Helga, f. 3.7.1952, leikskólakennari
í Reykjavík.
Foreldrar Guðrúnar: Alexander
Guðbjartsson, f. 5.3.1906, d. 21.4.
1968, bóndi og kennari á Stakk-
hamri í Miklaholtshreppi, og Kristj-
anaBjarnadóttir, f. 10.11.1908, d.
25.11.1982, húsfreyja.
Ætt
Bróðir Alexanders er Gunnar,
fyrrv. formaöur Stéttarsambands
bænda. Alexander er sonur Gu,ð-
bjarts, hreppstjóra á Hjarðarfelli,
bróður Stefáns, föður Alexanders,
fyrrv. ráðherra. Guðbjartur var
sonur Kristjáns, b. í Straumljarðar-
tungu og á Hjarðarfelh, Guðmunds-
sonar, b. á Litlu-Þúfu og Gröf, Þórð-
arsonar, b. á Hjarðarfelli og ættföð-
ur HjarðarfeUsættarinnar, Jónsson-
ar. Móðir Krisjáns var Þóra Þórðar-
dóttir, b. í Borgarholti, Þórðarsonar.
Móðir Þóru var Oddfríður Halldórs-
dóttir, Árnasonar, Þorvarðarsonar,
bróður Ragnhildar, langömmu
Guðnýjar, ömmu Halldórs Laxness.
Móðir Guðbjarts var Sigríður Jóns-
dóttir, b. á Laxárbakka og síðar á
Eiðhúsum, Hreggviðssonar. Móðir
Jóns var Guðný Þórðardóttir, systir
Guðmundar í Gröf.
Móðir Alexanders var Guðbranda
Þorbjörg Guðbrandsdóttir, verslun-
armanns í Ólafsvík, Þorkelssonar,
prests á Staðastað, Eyjólfssonar,
prests í Garpsdal, Gíslasonar, prests
á Breiðabólstað á Skógarströnd, Ól-
afssonar, biskups í Skálholti, Gísla-
Guðrún Alexandersdóttir.
sonar. Móðir Guðbröndu var Guð-
björg Vigfúsdóttir, b. á Kálfárvöll-
um í Staðarsveit, Vigfússonar.
Kristjana var dóttir Bjarna, b. í
Miklaholtsseli, ívarssonar, og konu
hans, Magndísar Benediktsdóttur.
Guðrún er stödd í Algarve.
Til hamingju með
afmælið
90 ára
Halldóra Hansdóttir,
Þrándarholti 1, Gnúpverjahreppi
80 ára
Ingunn Gunnarsdóttir,
Miðvangi22, Egilsstöðum
Gísli Bjarnason,
Grænuvölluntl, Selfossi.
75 ára
Ragnar F. Jónsson,
Stigahlíð 2, Reykjavík.
Guðríður Jóna Indriðadóttir,
Borgarhrauni 15, Hveragerði.
Þorgerður Jónsdóttir,
Kirkjulundi 8, Garðabæ.
70 ára
Hrönn Kristjánsdóttir,
Lindasíöu2, Akureyri.
Bergsteinn Garðarsson,
Langholti 14, Akureyri.
60 ára
Grétar Ólafsson,
Glerárgötu 3, Akureyri.
Sigriður Fanney Guðnadóttir,
Ásgarði 75, Reykjavík.
Þórður örn Sigurðsson,
14. ágúst
Hábæ la, Djúpárhreppi.
Ingibjörg Hafberg,
Borgarholtsbraut 9, Kópavogi.
Erla Björgheim Pálsdóttir,
Vallarbraut 17, Akranesi.
50ára
Jónína Einarsdóttir,
Dalskógum 3b, Egilsstöðum.
Signý Hauksdóttir,
Víðiteigi 34, Mosfellsbæ.
Jóhanna Valgeirsdóttir,
Torfufelli 1, Reykjavík.
Jónína Auðunsdóttir,
Funafold 20, Reykjavík.
40ára
Kári Karlsson,
Nípá 2, Ljósavatnshreppi.
Helga Garðarsdóttir
landvörður,
Laugarnesvegi 76, Reykjavík.
Hún er í Kollumúlaskála á afmæl-
isdaginn.
Hörður Þórarinsson,
Raftahhð 12, Sauðárkróki.
Hólmgeir Jónsson,
Hvassaleiti 157, Reykjavík.
Tord Peter Walderhaug,
Vikurbraut 13, Grindavík.
Inga Barhara Arthur,
Heiðarásill,Reykjavík. v
Guðbjörg Lilja Pétursdóttir,
Hagalandi2, Mosfellsbæ.
Jóhann Sigurðsson,
Seilugranda 4, Reykjavík.
Á NÆSTA SÖLUSTAÐ
EÐA í ÁSKRIFT í
SÍMA 563 2700
Sæmundur Pétursson
Sæmundur Pétursson rafmagns-
eftirlitsmaöur, Hólmgarði 2, Kefla-
vík, veröur fimmtugur nk. miðviku-
dag.
Starfsferill
Sæmundur er fæddur í Keflavík
og ólst þar upp. Hann lauk sveins-
prófi í rafvirkjun 1970 en lærði hjá
Rafveitu Keflavíkur og var Kári
Þórðarson meistari hans.
Eftir sveinspróf starfaði Sæmund-
ur hjá Rafiðn hf. og síöan í tæpan
áratug hjá Slökkviliðinu á Keflavík-
urflugvelli. Hann hóf aftur störf hjá
Rafveitu Keflavíkur 1983 og síðan
Hitaveitu Suöurnesju, fyrst sem raf-
virki, þá verkstjóri en sem raf-
magnseftirlitsmaður síðustu árin.
Sæmunduf var formaður Félags
ungra jafnaðarmanna í Keflavík, í
stjórn Sambands ungra jafnaðar-
manna og varaformaður þess um
tíma. Hann var formaður Alþýðu-
flokksfélags Keflavíkur um árabil
og sat í flokksstjórn Alþýðuflokks-
ins í mörg ár. Sæmundur, sem hefur
tekið virkan þátt í störfum verka-
lýðshreyfingarinnar, var formaður
Iðnnemafélags Suðurnesja og sat í
stjórn Iönnemasambands íslands.
Hann var formaður stjómar Rafiðn-
aöarfélags Suðumesja og er nú
formaður Félags eftirlitsmanna með
raforkuvirkjum. Sæmundur er rit-
ari í stjórn Starfsmannafélags Suð-
urnesjabyggða og situr í stjórn
Þroskahjálpar á Suðurnesjum.
Fjölskylda
Sæmundur kvæntist 15.6.1968
Valgerði Hönnu Þorsteinsdóttur, f.
18.3.1947, verslunarmanni. Foreldr-
ar hennar: Þorsteinn Þórðarson vél-
stjóri og Björg Ásta Hannesdóttir
húsmóðir. Þau bjuggu í Keflavík
lengst af en eru nú búsett í Hafnar-
firði.
Börn Sæmundar og Valgerðar
Hönnu: Guðrún Ósk, f. 5.10.1968,
skrifstofumaður, búsett í Keflavík;
Helgi, f. 25.4.1971, starfsmaður
Bókasafns Keflavíkur-Njarðvíkur-
Hafna, búsettur í Njarðvík.
Systkini Sæmundar: Jóhannes, f.
19.1.1941, sjómaður í Sandgerði;
Hrefna, f. 7.1.1943, húsmóðir í
Njarövík; Fanney, f. 25.6.1947, hús-
móðir í Svíþjóð; Júlíana, f. 20.2.1949,
verkakona í Keflavík; Pétur Gunn-
ar, f. 26.6.1952, bifreiðarstjóri í
Reykjavík; Valgarður, f. 18.11.1963,
Sæmundur Pétursson.
rafvirkiíSvíþjóð.
Foreldrar Sæmundar: Pétur Pét-
ursson, f. 22.2.1921, bifreiðarstjóri,
og Guðrún Ósk Sæmundsdóttir, f.
22.7.1924, d. 13.12.1993, húsmóðir,
þau bjuggu lengst af á Faxabraut 4
í Keflavík, Pétur er nú búsettur á
Aðalgötu 5 í Keflavík.
Sæmundur og Valgerður taka á
móti gestum á afmælisdaginn, mið-
vikudaginn 16. ágúst, í sal Kiwanis-
manna að Iðavöllum 3 í Keflavík frá
kl. 19.30-22.
Guðmundur G. Pétursson
Guðmundur G. Pétursson, öku-
kennari og leigubifreiðarstjóri,
Lindargötu 61, Reykjavík, varö sjö-
tugur á laugardaginn.
Starfsferill
Guðmundur er fæddur í Ólafsvík
og ólst þar upp til 10 ára aldurs en
fluttist þá til Reykjavíkur með afa
sínum og ömmu og hefur búið þar
síðan. Hann lauk námi í kennslu-
og uppeldisfræðum frá Kennarahá-
skóla íslands.
Guðmundur var erindreki Slysa-
varnafélags íslands í tæp 15 ár og
framkvæmdastjóri Umferðarnefnd-
ar Reykjavíkurborgar og Stöðu-
mælasjóðs í rúm 5 ár. Hann hefur
kennt skyndihjálp i 40 ár fyrir Slysa-
varnafélagíslands, Rauða kross ís-
lands, Iðnskólann í Reykjavík og
Fjölbrautaskólann í Breiðholti en
samhliða skyndihjálpinni hefur
Guðmundur kennt björgun úr sjáv-
arháska um allt land. Hann hefur
stundað ökukennslu í rúm 40 ár og
leigubifreiðaakstur sl. áratug.
Guðmundur starfaði innan skáta-
hreyfingarinnar til fjölda ára, fyrst
sem ylfingaforingi og síðan skáta-
foringi. Hann hefur verið í stjórn
Skátafélags Reykjavíkur og starfaði
í stjórn Bandalags íslenskra skáta í
nokkur ár og gegndi ýmsum nefnd-
arstörfum á vegum hreyfingarinn-
ar. Guðmundur átti sæti í stjórn
Ökukennarafélags íslands í nokkur
ár, lengst af sem formaður. Hann
er formaður Andvara, sem er nýtt
félaga leigubifreiðastjóra.
Fjölskylda
Guðmundur kvæntist 20.3.1948
Báru Siguröardóttur, f. 1.5.1928, d.
31.5.1982. Foreldrar hennar: Sigurð-
ur Guðbjartsson bryti og Esther H.
Ólafsdóttir húsfrú. Seinni eiginkona
Guðmundar er Kristjana Gunnars-
dóttir. Foreldrar hennar: Gunnar
Leó Þorsteinsson málarameistari og
Guðmunda Sveinsdóttir húsmóöir.
Börn Guðmundar og Báru: Esther,
f. 10.7.1948, framkvæmdastjóri
Slysavarnafélags íslands, gift Björg-
vini Jónssyni tannlækni, þau eign-
uðust þrjár dætur, Báru, f. 24.4.1969,
d. 5.12.1991, Helgu Dögg, f. 9.4.1974,
og Ragnheiði, f. 13.3.1980; Sigríður,
f. 14.2.1954, skrifstofustjóri Alþjóða-
deildar Rauða krossins, gift Kristj-
áni Eysteinssyni ráðgjafa; Pétur
Steinn, f. 13.5.1958, kvæntur Önnu
Toher förðunarfræðingi, þau eiga
einn son, Róbert Orra, f. 31.3.1992.
Systkini Guðmundar: Ásbjörn,
prentari; Guðrún, látin, húsmóðir.
Guðmundur G. Pétursson.
Hálfsystkini Guðmundar, sam-
mæðra: Haraldur, verkstjóri; Theo-
dóra, látin; Gunnleifur, rannsókn-
arlögreglumaður; Pétur, kaupmað-
ur.
Foreldrar Guðmundar: Pétur Ás-
björnsson og Ingibjörg Ólafsdóttir.
Ætt
Pétur er sonur Ásbjörns Eggerts-
sonar og Ragnheiðar Eyjólfsdóttur.
Ingibjörg er dóttir Ólafs Árna
Bjarnasonar og Katrínar Hjálmars-
dóttur.
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA
VALDA ÞÉR SKABA!