Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1995, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1995, Síða 36
SIMATORG DV 904 1700 ■ TW 562*2525 Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. RITSTJÓRN - AUGLYSINGAR - ÁSKRIFT - DREIFING: 563*2700 SLAÐAAFGREIÐSLA OG ÁSKRIFT ER OPIN: Laugardaga: 6-14 Sunnudaga: lokaö Mánudaga: 6-20 Þriðjudaga - föstudaga: 9-20 BEINN SÍMI BLAÐA- AFGREIÐSLU: 563 2777 KL S8 LAUGARDAGS OG MÁNUDAGSMORGNA Frjálst,óháð dagblað MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 1995 Jólatré: Leyfum inn- flutning á óbreyttum kjörum - segir ráðuneytisstjóri „Þaö er ekki von á hækkun á jóla- trjám af völdum GATT-samningsins. Okkur er samkvæmt honum skylt aö gefa innflutningsleyfi fyrir sama magni og flutt var inn til landsins 1988, á sömu kjörum og verið hafa. Viö höfum auk þess heimild til þess að gefa leyfi fyrir meiri innflutningi á sömu kjörum og munum gera þaö ef með þarf,“ sagöi Guðmundur Sig- þórsson, ráðuneytisstjóri í landbún- aöarráðuneytinu, um fréttir þess efnis að nýr tollur muni leggjast á innflutt jólatré í kjölfar GATT- samningsins. Grétar Bjamason, framkvæmda- stjóri Flugbjörgunarsveitar íslands, sem hefur flutt inn mikið af jóla- trjám, hafði fengið þær upplýsingar hjá Tollgæslunni að 650 kr. tollur myndi leggjast á hvert innflutt jóla- tré og sagði hann að ef af því yröi væri fótunum kippt undan öllum innflutningi. Guðmundur sagði að ástæðan fyrir þessum misskilningi væri sú að í toll- skrá frá 1. júlí sl. væru þeir tollar sem Grétar talar um gefnir upp. ,,Land- búnaðarráðuneytið hefur hins vegar leyfl til þess að lækka þessa tolla nið- ur í það sem verið hefur og það mun- um við gera,“ sagði Guðmundur. -GMB Eltingarleikur: Tveir lögreglumenn á lögreglubfl óku á ljósastaur er þeir voru að elta ölvaðan og réttindalausan pilt í Hafnarfirði um helgina. Sluppu þeir án þess að illa færi þótt bíllinn skemmdist. Réttindalausi ökumaðurinn sveigði fyrir lögreglubflinn sem neyddist til að fara út í kant og lenti svo á ljósastaurnum. Lögreglan hafði elt ökumanninn frá Reykjavík þar sem hann sást við Hringbraut í vest- urbæ og ansaði ekki stöðvunar- merkjum lögreglu. Var hann eltur af lögreglubílum úr Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði uns hann náðist í Hafnarfirði. Hafði pilturinn tekið hfl traustataki, en faðir hans hafði aögang að bílnum. Er ökumað- urinn því ekki kærður fyrir stuld heldur fyrir að aka réttindalaus, ölv- unarakstur og vítaverðan akstur. -GJ LOKI Það hlýtur að vera munur aðfá aðdansa í kringum GATT-tré! Mikil harka hlaupin í kjaradeiluna á Keflavíkurflugvelli: Tími til kominn aðsýnaklæmar - segir Guðmundur Gunnarsson, „Það er afskaplega mikill hiti kominn í íslensku starfsmennina á Keflavíkurflugvelli vegna fram- komu launadeildar hersins í okkar garð. Það eru ekki bara rafiðnaðar- menn sem eru heitir, það eru aflir starfsmennirnir á Keflavíkurflug- velli reiðir vegna þessa. Menn tala nú um að það sé tími til kominn aö sýna þeim klærnar en það hefur aldrei átt sér stað á Keflavíkurflug- velli að verkalýösfélögin hafi farið i aðgerðir. Það sem við getum gert er að halda starfsmannafundi þeg- ar okkur hentar og ég ætla að láta reyna á það núna hvort ég fæ passa til að fara inn á Keflavíkurflugvöll til að halda fund með minum mönnum,“ sagði Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnað- arsambandsins, í samtali við DV vegna kjaradciíunnar sem nú er á Keflavíkurflugvelli. Vegna þess að bandaríski herinn er aldrei beinn aðili að kjaramálum í þeim löndum þar sem hann hefur herstöðvar er farin sú leið að hafa kaupskrárnefnd sem ákveður laun starfsmanna hersins. Nefndin hef- ur viðmiðunarhópa í þjóðfélaginu til að miða laun starfsmanna hers- ins við. Guðmundur Gunnarsson segir að herinn hafi alltaf verið ánægður meö úrskurð kaupskrárnefndar- innar en starfsmennirnir oftast misánægðir. Nú hafl nefndin aftur á móti úrskurðað starfsmönnum heldur í hag. Þá um leið hafi launa- deild hersins snúist öndverð gegn úrskurðinum, neíti að fara eftir honum og heimti aðra kaupskrár- nefnd. „Við erum ákveðnir í að fara í mál út af þessu ef launadeildin neit- ar áfram að greiða okkur það sem kaupskrárnefnd hefur ákveðið. Það er bara réttarhlé sem stendur en verði kauphækkunin ekki kom- in þegar því lýkur förum við í mál,“ sagði Guðmundur Gunnars- son. í morgun stóð til að formenn þeirra verkalýðsfélaga, sem eiga félaga starfandi á Keflavikurflug- velli, ættu fund með Halldóri Ás- grímssyni utanríkisráðherra um þetta mál. Guðmundur sagði að kæmi ekkert út úr þeim fundi færi að styttast i aðgerðir. Halldór Ásgrímsson: M jög alvar- legt mál „Þetta er auðvitað mjög alvarlegt mál. Kaupskrárnefnd er úrskurðar- aðili í máli sem þessu en varnarliðið neitar að viðurkenna þann úrskurð. Við erum að vinna í málinu en ég get ekki áttað mig á því á þessari stundu hvað ég get gert til að leysa það,“ sagði Halldór Ásgrímsson ut- anríkisráðherra um kjaradeiluna á Keflavíkurflugvelli. Halldór sagðist ætla að-eiga fund með verkalýðsforingjunum í dag. Víöihlíð: Ráðistáhljómsveit Lögreglubíllinn á Ijósastaurnum. Ekki urðu slys á mönnum en lögreglubifreiðin skemmdist eins og sjá má. DV-mynd S Ráðist var á meðlimi hljómsveitar- innar Byltingar frá Akureyri í Víði- hlíð í Víðidal í gærmorgun. Þeir höfðu spilað á halli í Víðihlíð á laugardagskvöld og voru að búast til brottferðar er ungir menn frá Hvammstanga réðust á þá og urðu þar mikil slagsmál, samkvæmt upp- lýsingum frá lögreglunni á Blöndu- ósi. Náðu hljómsveitarmenn að reka árásarmennina af höndum sér. -G J Veðrið á morgun: Súldeða rigninð Á morgun veröur fremur hæg suðvestlæg átt, dálítil súld eða rigning víða um landið sunnan- og vestanvert en skýjað með köfl- um norðaustan til. Hiti 9-16 stig, hlýjast í innsveitum norðaustan- lands. Veðrið í dag er á bls. 44 10 * * 'mWFILL/ 4 - 8 farþega og hjólastólabílar 5 88 55 22 WTT* alltaf á Miövikudögum 9 í í t t t t t t t t t t t t t t t t t t t t t t t t i i t t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.