Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1995, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1995, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 1995 Fréttir Stuttar fréttir Ungt par telur sig hafa verið numið brott af geimverum í Reykjavik: Stúlkan með rauða dfla á handleggnum - Geimveruvinafélagið óskar eftir vitnum að atburðinum og einnig dáleiðara „Viö vorum í bíltúr og ætluöum aö aka hring sem á ekki að taka nema 10 til 15 mínútur að keyra. Þegar viö vorum stödd á mótum Miklubrautar og Háaleitisbrautar þá stoppuðum viö á rauðu ljósi. Ég man að klukkan var þá hálftvö því við höfðum ein- mitt á orði að nú þyrftum við að drífa okkur heim því klukkan væri orðin það margt. Við vorum að tala saman þegar við sáum allt í einu svaka blossa og heyrðum einhvern dynk í bílnum. Við urðum rosalega hrædd og fórum yfir á rauðu ljósi og þegar við vorum búin að keyra nokkra metra varð mér litið aftur á klukk- una og þá var klukkan allt í einu orðin tvö. Það hafði því liðiö hálftími á nokkrum sekúndum eins undar- lega og það kann að hljóma. Eg varð aldrei vör við að hafa dottið út - klukkan varð bara allt í einu tvö,“ segir tæplega tvítug stúlka í samtali við DV en hún varð fyrir undarlegri lífsreynslu á fimmtudag í síðustu viku. Magnús H. Skarphéðinsson, for- maður Félags áhugamanna um fljúg- andi furðuhluti, FÁFFH, lýsir eftir vitnum að ljósagangi yfir Reykjavík á umræddum tíma. Stúlkan var á ferð með kærasta sínum og er frásögn hans samhljóða hennar. Þau segjast hafa orðið mjög hrædd á eftir og ekki þoráð heim til sín strax á eftir. Þegar atvikið hafi gerst hafi þau einmitt verið að ræða um það að enginn væri á ferli og öll ljós slökkt í nærliggjandi húsum. Erum forvitin „Ég veit ekkert hvað gerðist. Við töluðum bara við Magnús Skarphéð- insson fjórum dögum eftir að þetta gerðist og hann sagði að það væru líkur á að við hefðum verið numin brott af geimverum. Magnús bað okkur um að skoða hvort annað til að athuga hvort við bærum ein- hverja áverka eftir þetta. Það voru tveir rauðir blettir á hægri hand- leggnum á mér, rétt fyrir neðan oln- bogabótina, en ég veit ekkert hvort þeir voru eftir þetta atvik en ég hafði tekið eftir þeim áður en Magnús bað okkur að athuga þetta. Það sá hins vegar ekkert á bílnum," segir stúlkan viðDV. Stúlkan segist ekkert vita hverju hún eigi að trúa en Magnús segir í grein sinni að hinar meintu geimver- ur, sem hugsanlega hafi numið parið á brott, hafi þurrkað úr minni þeirra um hálftíma en ekki þurrkað nógu langt aftur til að þau hefðu ekki orð- ið atviksins vör. Til að fá fram skýr svör um hvaö átti sér stað umræddan hálftíma þyrftu þau á dáleiðslu hæfs dáleiðara að halda. „Við erum að hugsa um það hvort viö eigum að fara í dáleiðslu eða ekki. Við erum að sjálfsögðu forvitin að vita hvað gerðist," segir stúlkan. -pp Gætum opn- að í byrjun næstuviku - segir yfirverkfræöingur Höföabakkabrúin: „Frá því að við lokuðum brúnni hafa framkvæmdir gengið prýðilega. Einu vandræðin hafa skapast vegna veöurs því rigningin hefur hamlað að hægt sé að leggja efsta malbikslag- ið og að hægt sé að merkja örvar og akgreinalínur á göturnar. Eins og staöan er nú reikna ég með að mal- bikun ljúki í dag,“ segir Guðmundur Nikulásson, yfirverkfræðingur hjá gatnamálastjóra, viö DV. Hann sagði að ef tíðin yrði góð fram yfir helgi mætti búast við að brúin yrði opnuð í byrjun næstu viku. „í fyrstu var ekki gert ráð fyrir að umferð yrði hleypt á brúna fyrr en 4. september. Verktakarnir fá því svokallað ílýtifé," sagði Guömundur. „Vegna þess að verkið er u.þ.b. þremur vikum á undan áætlun munu allir starfsmenn fyrirtækj- anna, sem að því hafa starfað, og makar þeirra, fá haustferð í október eða nóvember. Ekki er alveg búið að ákveða hvert verður farið en allar líkur eru á að þaö verði til Amster- dam,“ sagði Guðni Eiríksson bygg- ingastjóri. Innbrot í nótt Fimm menn brutust inn í Botns- skála í Hvalfirði í nótt. Þrjár stúlkur sem sváfu á staðnum vöknuðu við að stóru grjóti var hent í gegnum rúðu. Þær hlupu til og læstu að sér og biðu þess að mennirnir færu. Þá létu þær vita og lögreglan í Reykja- vík tók mennina síðan í Kollaíirði. Þeir virðast ekki hafa vitaö um stelp- urnar og uggðu því ekki að sér. Þeir tóku með sér nokkurt magn af tóbaki ogpeningum. -sv Stefnt er að því að malbikunarframkvæmdum við Höfðabakkabrúna Ijúki i dag. Ef vel viðrar fram yfir helgi má reikna með að umferð verði hleypt á í byrjun næstu viku. DV-mynd JAK Skeljungur segir upp umboðsmönnum á landsbyggðinni: Stef nt að sparnaði' birgðum og dreif ingu - óformlegar samstarfsviðræður við Irving Oil hafa átt sér stað „Við stefnum að því að efla mark- aðsstöðu fyrirtækisins og ná fram hagræðingu og sparnaði í rekstri til að bregðast við breyttum aðstæöum í viðskiptaumhverfi hér á landi. Ég geri ráð fyrir að við kynnum tillögur okkar fyrir stjórn félagsins í sept- ember og að þær taki gildi í fram- haldi af því þannig að við verðum betur undir samkeppnina búnir en ella. Ég get ekki nefnt neinar tölur en við stefnum að umtalsverðri hag- ræðingu, fyrst og fremst í birgða- haldi, dreifingarkostnaði og rekstri bensín- og olíustöðva," segir Kristinn Björnsson, forstjóri Skeljungs. Öllum umboðsmönnum Skeljungs var sagt upp um síðustu mánaðamót og taka uppsagnimar gildi á næstu mánuðum. Verið er að endurskipu- leggja rekstur Skeljungs, fjölga mönnum í ábyrgðarstöðum, færa til starfsmenn og endurskoða samninga við umboðsmenn þannig að veruleg hagræðing og spamaður náist. Ekki er búist við að starfsmönnum fækki vegna þessara breytinga og verður endursamið við langflesta umboðs- menn fyrirtækisins á landsbyggð- inni. „Þetta er bara eðhleg endurskoðun á samningsákvæðum. Samningarnir eru þannig að þeir þarfnast endur- skoðunar eins og öll önnur mann- anna verk. Áður voru í gildi ákvæði um að sama verð skyldi vera á þess- ari vöru í öllu landinu. Nú hefur því verið breytt og við erum að leita fyr- ir okkur með það hvar við ætlum að halda áfram starfsemi og hvar ekki,“ segir Kristinn. Viðræður hafa átt sér stað milli forstjóra Skeljungs og Arthurs Ir- ving jr., eins af eigendum Irving olíu- félagsins í Kanada, undanfarið um hugsanlegt samstarf milli fyrirtækj- anna og hafa fulltrúar kanadíska fé- lagsins sótt Skeljung heim og öfugt. Samkvæmt heimildum DV eru við- ræðumar mjög skammt á veg komn- ar og óljóst hvort þær bera árangur en Irving-feðgar hafa einnig rætt við hinolíufélögin. -GHS Útf lutningur margfaidast Þrjú íyrirtæki kanna mögu- leika á að reisa verksmiðj u í sam- vinnu við þýskt fyrirtæki sem vinnur vikur í milliveggjaplötur. Útílutningur á vikri hefur marg- faldast, segir Sjónvarpið. Staðgreiðslu frestað? ASÍ krefst þess að fjármála- ráðuneytið íresti til áramóta að taka staðgreiðslu skatta af at- vinnuleysisbótum, skv. RÖV. Samningumrift Skiptastjóri þrotabús Miklalax ætlar að rifta samningum vegna vanskila norskra kaupenda, að sögn Útvarps. Rússafiskurkemur Erlend flutningaskip landa rússafiski á Þórshöfn og Húsavík í næstu viku. Útvarpiðgreindifrá þessu. ASÍræðirGATT Hagfræðingur ASÍ segir aö GATT-samnmgurinn veiti ekki innlendum framleiðendum nóg aðhald og hvetji ekki nægilega til hagræðingar og verðlækkunar, að sögn RÚV. Kæra til umboðsmanns Mæður í Garðabæ ætla að vísa stjómsýslukæru til umboðs- manns Alþingis eftir að Mennta- málaráðuneytið hafhaði henni á þeirri forsendu að nám 1 MR og FG sé sambærilegt, aö sögn Út- varps. Softiseykurhlutafé Softis hefur varið tæplega 160 milljónum á þróun á hugbúnað- inum Louis en skuldir nema 42 milljónum. Óskað verður eftir hlutafjáraukningu í næstu viku, aö sögn Stöðvar 2. HM stendur undir sér? HM ’95 getur staöið undir sér ef næst að innheimta allar úti- standandi skuldir og tryggingar, aö sögn Sjónvarps. Meðalverðgildi Úrskurðarnefnd sjómanna og útgerðarmanna segir að meðai- verð skuli gilda um fiskverð til sjómanna, skv. Útvarpi. Malartaka stöðvuð Lögregla stöðvaði malartöku í landi kirkjunnar á Möðruvöllum í Hörgárdal í gærmorgun. -GHS Þú getur svaraö þessari spurningu meö því aö hringja í síma 904-1600. 39,90 kr. mínútan. Já Neí 2 I j ö d d 904-1600 Þarf aö auka þátttöku kvenna í stjórnmálum? Alllr 1 stafrana kerllnu me6 tÆnvalssima fi»ta nýtt sér þessa þjénustu. I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.