Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1995, Side 9
FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 1995
9
Norskir útgerðarmenn hættir við allar aðgerðir gegn veiðum í Smugunni:
Vantar heitara blóð
í norsku sjómennina
- segir Oddmund Bye, formaður Norges fiskarlag, og vill bíða næsta árs
Gísli Kristjánsson, DV, Ósló:
„Ég vildi óska að það væri meira
af heitu spænsku blóði í norskum
sjómönnum. Þaö er ekki vilji til að-
gerða gegn rányrkju íslendinga í
Smugunni og því sé ég ekki annað
en að íslendingarnir veiði óáreittir
það sem eftir er ársins,“ sagði Odd-
mund Bye, formaður Norges fiskar-
lag, heildarsamtaka í norskum sjáv-
arútvegi, í samtali viö DV.
Norges fiskarlag og fleiri samtök í
norskum sjávarútvegi boðuðu í sum-
ar aðfor að íslensku togurunum í
Smugunni og var hugmyndin að
leggja fiskilínur svo þétt um miðin
Oddmund Bye búinn að gefast upp.
að ómögulegt væri að toga þar. Fyrst
vildu útvegsmenn þó fá tryggingu frá
stjórnvöldum fyrir greiðslu bóta
vegna hugsanlegs tjóns á veiðarfær-
um. Sú trygging fæst ekki.
„Viö höfum fengið svar Jans Henr-
ys sjávarútvegsráðherra og það var
þvert nei. Úr því að svo fór verður
ekkert úr aðgerðum, í ár að minnsta
kosti. Það er blóðugt þvi íslendingar
virðast vera að auka sóknina í Smug-
una um allan helming," sagði Odd-
mund.
Oddmund staðfesti að Norðmenn
ætluðu að bjóða öllum þjóðunum,
sem veitt hadfa í Smugunni, sjö til
fimmtán þúsund tonna þorskkvóta.
Meira væri ekki til skiptanna. Hann
kvaðst enga skoðun hafa á því hvort
íslendingar sættu sig við svo lítinn
afla.
öddmund sagðist hafa gefið upp
alla von um að samningar tækjust
um Smuguveiðarnar í ár eftir að
engin niðurstaða varð af fundi sjáv-
arútvegsráðherra íslands, Noregs og
Rússlands í Pétursborg í fyrradag.
„Það er greinilegt að niðurstaða
úthafsveiðiráðstefnunnar í New
York breytir engu og það þótt íslend-
ingar hafi undirritað allt. Nú sitjum
við bara hér og horfum á rányrkjuna
vegna þess að það er enginn vilji til
aðgerða," sagði Oddmund Bye.
Lars Emil Johansen, formaður grænlensku landsstjórnarinnar, og Poul Nyrup Rasmussen, forsætisráöherra Dana,
á blaðamannafundi I llulissat á Grænlandi I gær. Norrænu leiðtogarnir samþykktu I gær að vera með I heim-
skautaráði ásamt Kanada, Rússlandi og Bandarikjunum. Símamynd Reuter
Poul Nyrup heimsótti þorpið Qaanaaq á Grænlandi:
Afsakaði nauðungar-
f lutningana frá Thule
Stuttar fréttir
Manntjónáfjalli
Fimm erlendir fjallgöngumenn
týndu lifi í snjóflóöum á Qallinu
K-2 í Pakistan sem er hið næst-
hæsta í heími.
Sneitt hjá vandræðum
Móönælendatrúarmenn á
Norður-írlandi hafa breytt leið
skrúðgöngu sinnar til aö komast
hjá átökum við kaþólikka.
Redwood hugsar
John Redwo-
od, sem tapaði
fyrir John Maj-
or í lciðtoga-
kosningunum í
íhaldsflokkn-
um breska, hef-
ur sett á iagg-
irnar stofnun
sem hefur það markmið að efla
veg og virðingu íhaldsskoðana.
TapáTívolí
Búist er við tapi, hinu fyrsta í
manna minnum, á rekstri Tívol-
ísins í Kaupmannahöfn vegna
vætutíðar í sumarbyijun.
Faraaðsamningi
Rússneskir hermenn og upp-
reisnarmenn i Tsjetsjenlu eru
byrjaðir að framfylgja skilmálum
samnings um endalok átakanna.
Áfram bresk nýienda
Yfirgnæfandi meirihlti kjós-
enda á Bermúdaeyjum vill að
landið verði áfram bresk ný-
lenda.
Seidaríánauð
Mannréttindasamtök segja að
kínverskar konur séu seldar í
ánauð, neyddar í fóstureyðingar
og vinni oft við slæm skilyrði.
Reuter
Mótmælaspjöld þar sem lesa mátti
kröfur um bætur fyrir nauöungar-
flutninga frá svæðinu við herstöðina
í Thule og kröfur um betri samgöng-
ur mættu Poul Nyrup Rasmussen,
forsætisráðherra Dana, þegar hann
heimsótti þorpiö Qaanaaq, 100 km
norður af Thule-stöðinni á Græn-
landi í gær. Mótmælaspjöldin
minntu Poul Nyrup óþyrmilega á
ástæðu heimsóknar hans til þorps-
ins. Hann sagðist þangað kominn til
aö hlusta og finna leiðir til að tryggja
byggðinni bjarta framtíð.
A 500 manna borgarafundi sagði
forsætisráðherrann að fyrirhugaðar
væru samningaviðræöur við Banda-
ríkjamenn um að breyta hluta Thule-
stöðvarinnar í almenna flughöfn.
Hann afsakaöi síðan nauðungar-
flutninga íbúanna frá Thule-svæðinu
í byrjun sjötta áratugarins með því
að taka undir afsökunarbeiðni
Grænlandsmálaráðherrans frá 1985.
Ritzau
Útlönd
Dönskum nas-
istum neitað um
svædisútvarp
Dönskum nýunasistum var í
gær meinað að senda út efiii frá
svæðisútvarpi sem reka átti í að-
alstöðvum nasista í Greve, sunn-
an Kaupmannahafnar. Sérstök
úthlutunarnefhd útvarpsleyfa
var samhljóða í afstöðu sinni.
Umsókn nasistanna var hafnað
þar sem yfirlýsingar þeirra í fiöl-
miölum var ekki í samræmi við
þau drög að dagskrá sem send
höfðu verið með umsókninni.
Jonni Hansen, leiðtogi danskra
nasista, sagði í blaðaviðtölum að
dagskráin tæki mið af hug-
myndafræöi nasista og hug-
myndum danskra nasista um
„hreina" Danmörku. Hann sagöi
að spiluð yrði tónlist þar sem
sungiö væri um baráttuna fyrir
hinn hvíta mann og aö gyðingar
fengju ekki aðgang að umræðu-
þáttum. Viöurkenndi Hansen að
haía puntað dagskrárdrögin til
að mýkja nefndina. Meðan hún
fundaði mótmæltu um 400 and-
fasistar utan við húsakynni
hennar. Ritzau
SUMARTILB0Ð
öll hreinlætistæki
í baðherbergið
aðeins kr. 19.900
Innifalið í tilboði:
1. Baðkar, 170x70 cm.
2. Handlaug.
3. WC með harðri WC-setu.
Vönduð vara.
Baðkar, handlaug,
og WC frá sama fram-
leiðanda sem tryggir
sama lit á öllu.
Síðumúla34-Fellsmúlamegin
Sími 588 7332
Opið: mánud.-föstud. kl. 9-18
Laugard. kl. 10-14.