Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1995, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1995, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 1995 11 Fréttir Þýski háskólaneminn Hans-Martin Moser varð ástfanginn af íslandi: ; Lokaritgerð um miðbæinn Moser er áhugamaður um Ijós- myndun og á safn af myndum frá íslandi. DV-mynd S Líkamsárásarmál: Dráttur vegna búsetu ákærða erlendis - segir Öm Clausen „Ef litið er svo á að um minni hátt- ar líkamsáverka sé að ræða er ákært eftir 217. gr. hegningarlaga. Miðaö við það er raunhæft að telja að sökin geti fyrnst. í þessu tiltekna máli heföi ekki gengið að ákæra eftir 218. grein, sem tekur til alvarlegri líkamsmeið- inga, því að það þótti hvergi upplýst að meiningin hefði verið að valda aivarlegum áverkum heldur aðeins að hrekkja," segir Örn Clausen hæstaréttarlögmaður. Hann var verjandi ákærða í málinu sem DV greindi frá í blaöinu á fostu- daginn var. Þar var maöur sakfelldur fyrir að stinga mann með hnífi en var sýknaður vegna þess að málið fyrntist þar sem því var ekki hreyft í tvö og hálft ár. „Drátturinn var óhjákvæmilegur vegna þess að erfitt reyndist að ná í kæranda sem var búsettur erlendis. Dómarinn mat aðstæður svo aö sök- in væri fyrnd af því að ákært var fyrir minni háttar líkamsmeiðingu, réttilega að mínu mati þótt um hnífstungu væri að ræða,“ sagði Örn. í yfirlýsingu frá Hirti 0. Aðal- steinssyni héraösdómara, sem kvað upp dóminn, segir að hann hafi fyrst fengið málið tii meðferöar 7. sept- ember 1994. Hann beri því enga ábyrgð á áðurnefndum drætti. -sv Reykjanesbær: Óskaðeftiráliti umboðsmanns Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum; „Ég hugsa að ég lifi það nú af með nýja nafnið á sveitarfélaginu en það verður erfitt. Og þá er það mjög erf- itt að hafa svona Íítt greinda sveitar- stjórnarmenn í sveitarfélaginu. Ég mun bíða eftir niðurstööu umboðs- manns Alþingis og þá fyrst kemur í ljós hvað gert verður," sagði Einar Ingimundarson, íbúi í Keflavíkur- hverfi Reykjanesbæjar, sem óskað hefur eftir því að umboðsmaður Al- þingis fialli um niðurstöðu félags- málaráðuneytis frá því í júní. Ráðuneytið telur að bæjarstjórnin hafi staðið rétt að atkvæðagreiðsl- unni í aprfi, en Einar telur að bæjar- stjórnin hafi ekki staðiö rétt að mál- inu með því að láta aöeins kjósa milli tveggja nafna. Atkvæðagreiðslan hefur tvisvar verið kærð til félags- málaráðuneytis. Það var Einar Ingi- mundarson sem kærði í bæði skiptin. „Eg hef komið hingað tvisvar áður og fór að verða ástfanginn af ís- landi,“ segir Hans-Martin Moser, sem nú er aö vinna aö lokaritgerð sinni í landafræði um miðbæ Reykja- víkur, í viðtali við DV. Hann býr í Bruchsal en hefur lært landafræði í Heidelberg í fimm ár. „Þetta er lokaritgerð mín í landa- fræði og er um miðbæ Reykjavíkur. Dr. Werner Fricke í Heidelberg er umsjónarmaður ritgerðar minnar en hann veit ekki mikið um Reykjavík og því þurftum við aö finna annan mann í Þýskalandi sem þekkir borg- ina og ég fann Dr. Axel Priebs í Bremen sem er eini þýski landfræð- ingurinn sem hefur unnið eitthvað um Island. Þeir eru því báöir umsjón- armenn. Bjarni Reynarsson hjá Borgarskipulagi Reykjavíkur hefur svo aðstoðað mig. Ritgerðin er um miðbæinn og ber ég hann saman við hina hluta borg- arinnar. Hún er um þróun hans og ýmislegt landfræöilegt í því sam- hengi. Hún fiallar um þróun mann- fiölda sem jókst mjög í seinni heims- styrjöldinni, svo hægði á fiölguninni á áttunda áratugnum en nú eykst hann hraðar. Einnig er athyglisvert við miöbæinn að þar eru margar stofnanir ríkisins, bankar og trygg- ingafélög. Ritgerðin fiallar svo um framtíðarþróunina í borginni." Aðspurður hvers vegna hann skrif- ar lokaritgerð um Reykjavík segir Moser: „Það er erfitt að segja til um það en ég hef komið hingað tvisvar áður og fór að verða ástfanginn af íslandi og ég hef áhuga á þeim hluta iandafræðinnar sem er um þéttbýli. Dr. Werner Fricke, umsjónarmaður ritgerðarinnar, sagði mér að ég mætti skrifa um ísland. Þá varð irtér hugsað til Reykjavíkur og mjög áhugaverörar þróunar á henni á síð- ustu áratugum." íslenski fáninn á veggnum Moser er mikill áhugamaður um ísland og hefur komið hingað þrisvar sinnum: „Ég kom fyrst til íslands árið 1991, þá ’93 og síðan núna. Þann- ig að ég kem á tveggja ára fresti. Nú kem ég ekki sem ferðamaður. í Þýskalandi er allt svo þéttbýlt. Bæir og þorp eru þétt saman. Plássið er því mjög lítið. Hérna er aftur á móti hægt að njóta landslagsins. í Þýskalandi er hver spilda notuð und- ir landbúnað, byggingar og vegi. Hérna er svo meira pláss. Ég hef verið að lesa allt sem ég hef fundið um ísland, um söguna, nátt- úruna. Ég á stórt safn af myndum frá íslandi og er sjálfur áhugaljósmynd- ari. Ég safna alls kyns steinum, myntum og frímerkjum. í herberg- inu hjá mér heima er stór íslenskur fáni á veggnum. Ég kann líka mjög vel við tónlist Bjarkar." -GJ 18. ágúst afmæli Reykjavíkurborgar Velkomin í miðborgina! Vitatorg, bílahús með innkeyrslu frá Vitastíg og Skúlagötu. Njótið lífsins - notið húsin Vegna hátíðarhalda á afmælisdegi Reykjavíkur föstudaginn 18. ágúst, verður lokað fyrir bílaumferð um Laugaveg, Bankastræti, Austurstræti og neðsta hluta Skólavörðustígs frákl. 13:00- 18:00. • Fjölbreytt skemmtidagskrá mun setja svip sinn á miðborgina og ennfremur verða útimarkaðir ef veður leyfir. Kjörið tækifæri fyrir fjölskylduna að njóta lífsins í lifandi borg. • Á meðan þið röltið um miðborgina er tilvalið að geyma bílinn í einhverju af hinum sex glæsilegu bílahúsum borgarinnar. Þar þarf aldrei að hafa áhyggjur af því að tíminn renni út, þú borgar aðeins íyrir notaðan tíma. • Upplifið mannlíf og menningu í miðborginni og kynnið ykkur kosti bílahúsanna í leiðinni. m BILASTÆÐASJOÐUR Bílastœði fyrir alla

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.