Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1995, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1995, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 1995 Otgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JONSSON Fréttastjóri: JÖNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK, SlMI: 563 2700 FAX: Auglýsingar: 563 2727 - Aðrar deildir: 563 2999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@ismennt.is - Auglýsingar: dvaugl@ismennt.is. - Dreifing: dvdreif@ismennt.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1550 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk. Þegar vonin brestur Pantanir hjá skipafélögum um flutning búslóða til út- landa hafa verið óvenjulega miklar í sumar. Yfirvofandi landflótti í haust bendir ekki til mikfllar bjartsýni meðal þessa fólks um, að svokallaður efnahagsbati skili því bættum lífskjörum á næstu mánuðum og árum. Efnahagsbatinn hefur bætt rekstur fyrirtækja. Þau hafa hagrætt seglum eftir vindi og fundið sér nýtt jafn- vægi með færra starfsfólki, meira álagi á starfsfólki og lakari kjörum þess. Þetta hefur sumpart verið nauðsyn- leg áminning um aukinn og efldan starfsaga. Samt var reiknað með, að traustari grundvöllur fyrir- tækja mundi efla kjark ráðamanna þeirra og að þeir reyndu að færa út kvíarnar. Það hefði leitt til útþenslu atvinnulífsins og aukinnar atvinnu fólks. Þetta hefur ekki gerzt. Fyrirtækin eru ennþá afar varfærin, Ferðaþjónustan er eina bjartsýna atvinnugreinin. Flugleiðir hafa ákveðið að ráða 80 nýja starfsmenn vegna aukins Atlantshafsflugs á næsta ári. Þessi mikilvæga ákvörðun fyrirtækisins eflir vonandi bjartsýni annars staðar í ferðaþjónustunni og skyldum atvinnugreinum. Á öðrum sviðum ríkir stöðnun og vonleysi. Sjávarút- vegurinn reynir að halda sjó við árviss skilyrði minnk- andi afla og bættrar nýtingar afla. Þetta hefur jafnazt út. Með aukinni hagræðingu hefur batnað rekstur sjávar- útvegsfyrirtækja, en atvinna og tekjur munu ekki batna. Þeim fer fækkandi, sem líta á landbúnað sem atvinnu- grein. Af stjómvöldum er hann á báti með velferðarkerf- inu. Þrjár af hverjum íjómm krónum í tekjum landbún- aðarins koma beint eða óbeint frá ríkisvaldinu. Engum dettur í hug, að atvinnutækifærum fjölgi í landbúnaði. Timburmennimir frá íj árfestingarfylliríi allra síðustu áratuga koma nú fram í fækkun verkefna í byggingariðn- aði og engum horfum á neinum bata á því sviði í náinni framtíð. Enda er svartsýni iðnaðarmanna meiri en flestra annarra stétta og landflótti þeirra meiri. ísland er orðið svo staðnað land, að leitun er að há- skólagrein, þar sem útskrifaðir sérfræðingar geta verið nokkuð vissir um atvinnu að loknu námi. Atvinnuskort- urinn hvetur marga til framhaldsnáms í útlöndum, sem síðar leiðir til atvinnu og búsetu í útlöndum. Atgervisflóttinn er ógnvænleg afleiðing þess, að vonir hafa daprazt. Atvinnulífið er einhæft og þarf lítið af há- skólafólki. Opinberi geirinn hefur ekki ráð á fleira starfs- liði. Helzta undankomuleið menntaðs atgervisfólks er að reyna að selja þekkingu sína og hæfni erlendis. Hugbúnaðarvinna er gott dæmi um þetta. Hún er þess eðlis, að fólk getur fengið verkefni hvar sem er í heimin- um. Hér er hún heft af völdum einangrunar, sem stjórn- völd hafa magnað með því að láta undir höfuð leggjast að tryggja stafrænar samgönguæðar til útlanda. Þess vegna er nokkum veginn ljóst nú þegar, að svo- kölluð hraðbraut upplýsinga og hin gífurlega atvinnu- aukning Vesturlanda á því sviði mun fara að mestu leyti framhjá íslandi, sem er að einangrast sem eitt allsherjar Árbæjarsafn til minningar um landbúnað við Dumbshaf. Stuðningur kjósenda við mestu íhaldsflokka landsins og rammur íhaldsandinn yfir vötnum nýju ríkisstjómar- innar hefur sannfært marga um, að svokallaður efna- hagsbati muni alls ekki skila sér 1 auknum umsvifum atvinnulífsins og batnandi lífskjörum í landinu. Þegar vonin brestur, er nærtækt að leita á vit mennt- unar, tækifæra og ævintýra í útlöndum. Því hringir sím- inn oft hjá búslóðadeildum skipafélaga þessa dagana. Jónas Kristjánsson „Utivistarmál ungdomsins á Islandi eru allmjög frábrugöin þvi sem gerist hjá öðrum þjóðum Ragnar Ingi m.a. í greininni. segir Utivist og frelsishugsjón Eitt af því sem sagt er að veki athygli ferðamanna sem heim- sækja land okkar er undarleg af- staöa hins íslenska samfélags til útvistartíma barna og unglinga. Börn á íslandi eru gjarnan að leika sér út um holt og móa fram eftir kvöldum án þess að nokkrum þyki það tiltökumál og á það jafnt við um þéttbýlið og sveitirnar. Um helgar eru unglingar undir lögaldri í hópum saman að virða fyrir sér stórkostleg tilþrif þeirra sem bera uppi skemmtanalífiö, taka jafnvel þátt í gleðinni. Þeir sem búið hafa erlendis og séð hvemig tekið er á slíkum málum meöal annarra þjóða eiga nokkuð gott með að skilja þennan áhuga erlendra ferðamanna. Útivistarmál ungdómsins á íslandi eru allmjög frábrugöin því sem gerist hjá öðr- um þjóðum, og er ekki seinna vænna að útlendingar kynnist af eigin raun framúrstefnulegum hugmyndum landans um frelsi ein- staklingsins. Frelsi og framfarir Öldin sem nú er senn liðin hefur einkennst af örum og afdrifaríkum breytingum. Við höfum stokkið út úr miðaldahugsunarhættinum og böðum okkur nú í ljósum þekking- ar og tækniframfara. Við lítum gjarnan til baka til forvera okkar með vorkunnlátt bros á vör og þökkum fyrir að við erum ekki eins og þeir, fastir í þekkingarskorti, fordómum og ófrelsi. Framfarirnar hafa leitt til svo miklu betri lífshátta, a.m.k. hvað varðar ytri hag, að nú er sú skoðun almennt ríkjandi að því meiri þekkingu sem við verðum okkur úti um, því meiri framfarir sem við lifum, því meira frelsi sem við bú- um við, - þeim mun betra verði líf okkar. Þetta síðasttalda, frelsið, er hjá mörgum nánast heilagt orð. Frelsi einstaklingsins má ekki skerða. Á þessari öld, einkum KjaUarinn Ragnar Ingi Aðalsteinsson kennari seinni hluta hennar hefur sú skoð- un eignast afar marga fylgjendur að hver þegn samfélagsins eigi rétt á að haga lífi sínu eftir eigin geð- þótta. Breytt uppeldi Þeir sem stunda barnauppeldi hafa sannarlega ekki farið varhluta af hugmyndum síðustu áratuga um frelsi einstaklingsins. Áður þótti sjálfsagt aö foreldrar réðu lífs- hlaupi barna sinna fyrstu tvo ára- tugina, jafnvel lengur, - veldu þeim maka, hvað þá annað. Eins og af- staðan er í dag mega uppalendur að vísu enn þá grípa litlu börnin ef þau ætla að stökkva út í umferð- ina en eftir að þau hafa fengið nógu mikiö vit til að hlaupa ekki fyrir bíla þá þykir sjálfsagt að þau meti sjálf hvað er þeim fyrir bestu. Bömin eiga rétt á að ráða sér sjálf. Við viljum frelsi í ljósi þeirra hugmynda um frelsi einstaklingsins sem fram komu hér að ofan er þá ekki að undra þó að börn og unglingar séu á litt skýran- legu flökti um holt og móa eða göt- ur þéttbýlisins eftir að kvölda tek- ur. Þau hafa gaman af þessu og að sjálfsögðu hafa þau rétt til að fara út ef þau vilja það sjálf. Að vísu falla alltaf sum þeirra fyrir dópsöl- um, ræningjum og nauðgurum. Sum þeirra koma heim stórsköðuð eftir 'ofbeldismenn sem fara um á nóttunum og berja fólk sér til ynd- isauka. Sum koma heim migandi full og liggur vel á þeim og ekki nema gott um það aö segja að litlu greyin skemmti sér. Þegar frá líður taka meðferðarstofnanirnar við þeim ef þau lifa nógu lengi. Við viljum frelsi. Hver nennir að hlusta á leiöinlega forræðishyggju- menn og úrtölurausara. Þó að ein- hverjir týnist úr hópnum, - þaö geta nú ekki allir orðið ofan á í líf- inu. Og við getum huggað okkur við það að meirihlutinn sleppur lif- andi og óskaddaður heim. Ragnar Ingi Aðalsteinsson „Aö vísu falla alltaf sum þeirra fyrir dópsölum, ræningjum og nauðgurum. Sum þeirra koma heim mígandi full og liggur vel á þeim og ekki nema gott um þaö að segj a að litlu greyin skemmti ser. Skoðanir armarra Hollvina neytenda leitað „Hvar eru nú blessaðir sjálfstæðismennirnir, sem í kosningabaráttu fyrir fimm mánuðum sögðu kjós- endum að þeir vildu fyrir alla muni stuðla að lægra vöruverði? Hvar eru nú riddarar hinnar frjálsu sam- keppni? Hvar eru nú hollvinir neytenda í Sjálfstæðis- flokknum? Hvar eru þeir sjálfstæðismenn sem kjörn- ir voru á þing fyrir Reykvíkinga og Reyknesinga." Úr forystugrein Alþbl. 16. ágúst. Samkeppnin einkavæðist „Samkeppni er skylda í öllum viðskiptum og á Samkeppnisstofnun að sjá um að henni sé hlýtt. En sá galli er á skipulaginu að stofnunin er ríkisrekin og er aðeins ein. Það er engin samkeppni um sam- keppnina. Garri leggur því til að samkeppnin verði einkavædd og að fleiri eigi þess kost að koma sam- keppnisstofnun á laggimar til að keppa við Sam- keppnisstofnun ríkisins. Þetta var gert við Bifreiða- skoðun og gefst vel. “ Garri í Tímanum 16. ágúst. Kerfisklúður á GATT-útfærslu „Framkvæmd stjórnvalda á GATT-samkomulag- inu hefur fram til þessa gefið of mörg tilefni til aö ætla, að verið sé að reyna að bregða fæti fyrir inn- flytjendur erlendra lanbúnaðarafurða, og skaða þannig hagsmuni neytenda. Það sýna þau dæmi, sem hér eru rakin, ásamt seinagangi og kerfisklúðri varð- andi innflutning Bónuss hf. á kalkúnakjöti og kjúkl- ingum. Þessi afstaða stjórnkerfisins er ekki til þess fallin að efla traust almennings á vilja stjórnvalda til að bæta vöruúrval og lækka verð í krafti erlendr- ar samkeppni og afnáms hafta.“ Úr forystugrein Mbl. 15. ágúst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.