Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1995, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 1995
27
fþróttir
baráttunni við svissnesku varnarmennina og þetta er kannski dæmigerð mynd fyrir leikinn á Laugardalsvelli í gær.
DV-myndir Brynjar Gauti
ig í byrjun
tu 20 mínútimum var banabiti Islendinga í leiknum
vörmna en polski domarinn var ekki
á sama máli og hafði þar sennilega
rétt fyrir sér.
Síðari hálíleikurinn var ákaflega tíð-
indalítill og mjög bragðdaufur. Sviss-
lendingarnir lágu aftarlega á vellinum
og hugsuðu um það eitt að halda fengn-
um hlut og það gerðu þeir án nokkurra
stórátaka. Islendingar voru aldrei lík-
legir til að minnka muninn og ein-
beittu sér frekar að því að röfla í dóm-
araranum eða kítast við andstæðing-
ana.
Það verður að segjast eins og er að
leikur íslenska liðsins var langt frá því
að vera sannfærandi og olli vonbrigð-
um en fyrir leikinn gætti nokkurrar
bjartsýni í herbúðum liðsins eftir tvo
ágæta leiki, fyrst jafnteflisleikurinn
gegn Svíum og svo sigurinn gegn Ung-
veijum. Manni virtist íslenska liðið
alls ekki tilbúið fyrir átökin og alltof
margir leikmenn hðsins voru að leika
undir getu. Vörnin var hikandi og óör-
ugg í fyrri hálfleik og miðjuspilararnir
léku lengi vel of framarlega og skildu
þannig eftir stórar eyður fyrir aftan
sig. Það færðu hinir hreyfanlegu leik-
menn Sviss sér í nyt. Sóknarleikurinn
var frekar bitlaus enda mjög einhæfur.
Kantspil var varla til og áttu sviss-
nesku varnarmennirnir ekki í teljandi
vandræðum með að stöðva sóknir ís-
lands í leiknum. Eftir stendur að ís-
lenska landsliðið náði sér ekki á strik
og lék örugglega sinn lélegasta leik í
nokkurn tíma.
Þetta var fyrsti tapleikur íslands á
árinu og markmiðin, sem sett voru
fyrir keppnina, þaö er aö ná meira en
50% vinningshlutfall, eru fokin út í
veður og vind.
Ólafur Þórðarson á hér gott skot að marki Sviss í leiknum í gær.
Framndstaða leikmanna
Birkir Kristinsson
Fyrra markið verður aö skrifast á hann að ein-
hvetju leyti en hann var ekki langt frá þvi að
koma í veg fyrir hitt markið. Þurfti annars lítið
að beita sér á milli stanganna.
Guðni Bergsson
Hefur oftast leikið betur en í þessum leik og
náði ekki að stjórna vörninni eins og hann getur
best. Var nálægt því aö skora í fyrri hálfleik þeg-
ar markvörður Sviss varði þrumuskot hans í
horn.
Ólafur Adolfsson
Var sterkur í skallaeinvígjunum en var í vand-
ræðum þegar hann þurfti að koma boltanum frá
sér. Nýttist ekki sem skyldi í vítateignum þegar
íslendingar fengu hornspyrnur og aukaspyrnur.
Kristján Jónsson
Náði aldrei að komast i takt við leikinn og var
einn hlekkurinn í frekar slakri vörn íslands.
Spurning hvort hann eigi ekki að fá „frí“ í næsta
leik enda hefur hann ekki fundið sig í sumar.
Var skipt út af á 88. mínútu fyrir Daða Dervic.
Rúnar Kristinsson
Náði sér aldrei á strik og var óöruggur í bak-
varðarstöðunni. Hann var ólíkur sjálfum sér því
hann hefur oftast komist vel frá sínu hlutverki
í landsleikjum.
Sigurður Jónsson
Lék mjög vel í fyrri hálfleik og var þá yfirburða-
maður í íslenska liðinu. Hann lét þá boltann
ganga og var öryggið uppmálað í aðgerðum sín-
um. í síðari hálfleik lét hann dómarann fara í
skapið á sér sem kom niður á getu hans.
Ólafur Þórðarson
Alltaf er baráttan fyrir hendi hjá kappanum en
kapp er best með forsjá. Lenti oft í vandræðum
meö að koma boltanum frá sér.
Þorvaldur Örlygsson
Mjög sterkur í návígum og gaf þar aldrei þuml-
ung eftir. Sást lítið sem ekkert í síðari hálfleik,
hreinlega týndist í aðgerðaleysi liðsins.
Bjarki Gunnláugsson
Lék í fyrsta skipti í byijunarliði íslands í „al-
vörulandsleik“. Atti einstaka spretti en var í
heildina langt frá þvi að vera nógu ógnandi.
Amar Gunnlaugsson
Olli vonbrigðum í leiknum. Var ekki nógu ógn-
andi og svissnesku varnarmennimir áttu ekki í
teljandi vandræðum með að stöðva hann. Fékk
besta færi íslands í leiknum sem hann náði ekki
aö nýta.
Eyjólfur Sverrisson
Mjög slakur leikur hjá honum. Seinn og greini-
lega ekki í nógu góðrí leikæfingu. Honum var
réttilega skipt út af fyrir Harald Ingólfsson um
miðjan síöari hálfleik.