Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1995, Side 24
Bill Clinton þungt hugsi yfir
vandræðum Patreksfjarðar.
Patró treystir
á Clinton
„Við treystum því aö Clinton
Bandaríkjaforseti nái að rífa upp
efnahagslífiö..."
Sigurdur Viggósson, framkvæmda-
stjóri Odda hf. á Patreksfirði sem flyt-
ur mikið út til Bandarikjanna, í DV.
Ummæli
Grænt hár
„Við höfum að sjálfsögöu greitt
allan kostnað sem hlotist hefur
af lagfæringu á hári sundlaugar-
gestanna en enginn hefur farið
fram á skaðabætur."
Ingimar Sigurösson, forstöðumaður
íþróttamannvirkja á Laugum, en
sundalaugagestir þar fengu ókeypis
hárlitun, i DV.
Gift í sátt og samlyndi
„Prestar eru að jarða, gifta og
skíra þvert á sóknir en gera það
yfirleitt í fullum friði hver við
annan.“
Baldur Kristjánsson biskupsritari um
deilur i Möðruvallaklausturspresta-
kalli, i DV.
Margir halda því fram að stökk-
breytingin mikilvæga fyrir 50.000
árum hafi farið framhjá Sylvester
Stallone.
Fyrsta
tungumálið
Talið er að stökkbreyting fyrir
um 50.000 árum hafi valdið því
að menn fóru almennt að geta
gert sig skiljanlega í máli, mörg-
um til mikillar armæðu en öðrum
til ómældrar gleði. Fyrstir til þess
að geta bablað eitthvað voru
Blessuð veröldin
veiðimenn sem lifðu á því svæði
sem nú heitir íran.
Elsta ritmál
Elstu merki um ritmál sem fund-
ist hafa eru á leirmunum frá
Yangshao-menningarskeiöinu í
Kína. Á leirinn, sem er um þaö
bil sjö þúsund ára gamall, eru
ristar tölumar fimm, sjö og átta.
Kínverska er því elsta ritmál sem
þekkt er og saga hennar nær frá
Yangshao-skeiðinu til dagsins í
dag.
Útbreiddast
Á jörðinni eru töluð um 5000
tungumál, þar af ein 845 á Ind-
landi. Það tungumál sem flestir
hafa að móðurmáli er norður-
kínverska. Árið 1988 var talið að
um 715 milljónir manna töluðu
það mál.
36
FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 1995
v
Súld vestanlands
í dag verður suðvestanátt á landinu,
víðast kaldi vestanlands en gola aust-
Veðriðídag
an til. Lengst af léttskýjað á Austur-
og Suðausturlandi en annars skýjað
að mestu og súld vestanlands og á
annesjum norðanlands. Hiti 8 til 20
stig, hlýjast austanlands.
Sólarlag í Reykjavik: 21.38
Sólarupprás á morgun: 5.26
Síðdegisflóð í Reykjavík: 23.11
Árdegisflóð á morgun: 11.44
Heimild: Almanak Háskólans
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri skýjað 12
Akurnes skýjað 8
Bergsstaðir skýjað 10
Bolungarvík rign/súld 8
Keílavíkurflugvöllur alskýjað 8
Kirkjubæjarkla ustur alskýjaö 8
Raufarhöfn þokumóða 9
Reykjavík úrkoma 9
Stórhöfði alskýjað 9
Bergen skýjað 15
Helsinki léttskýjað 19
Kaupmannahöfn léttskýjað 19
ÓslO léttskýjað 19
Stokkhólmur léttskýjað 21
Þórshöfn rigning 14
Amsterdam skýjað 20
Barcelona léttskýjaö 23
Berlín skýjaö 16
Chicago þrumuveð- ur 23
Feneyjar skýjað 19
Frankfurt léttskýjað 14
Glasgow þokumðn. 10
Hamborg léttskýjað 14
London mistur 19
LosAngeles hálfskýjað 17
Lúxemborg heiðskírt 15
Madríd heiðskírt 20
Malaga léttskýjað 21
Mallorca léttskýjað 19
Montreal heiðskírt 21
New York þokumóða 26
Nice skýjað 23
Nuuk skýjað 2
Orlando alskýjað 26
París léttskýjað 18
Gunnar Þór Gíslason framkvæmdastjóri:
Þetta er mjög
Gunnar Þór Gíslason, fram-
kvæmdastjóri hjá Mata hf„ hefur
veriö í fréttunum að undanfömu
vegna andstöðu við tolla á ínnflutt
grænmeti en Mata hf. hefur ein-
mitt flutt inn ávexti og grænmeti í
áratugi.
Maður dagsins
„Ég er framkvæmdastjóri hjá
Mata. Við flytjum inn ávexti og
grænmeti sem heildsalar og seljum
í búðir. Stundum þurfum við að
berjast við yfirvöld í sambandi við
grænmetismál.
Þetta er mjög líflegt starf, Þessi
vara geymist stutt og þarf aö mæt-
ast framboö og eftirspurn.
Þetta er því mjög fjölbreytt starf,
það er alltaf eitthvaö nýtt að gerast
í hverri viku.
Gunnar Þór Gíslason.
Ég er viðskiptafræðingur, út-
skriíaöist úr Háskólanum árið
1989. Síðan er ég með rekstrarhag-
fræðings- eða MBA-gráðu frá Lon-
don Business School. Ég útskrifað-
ist þaöan árið 1994 þannig að ég er
tiltölulega nýkominn heim. •
Þetta var mjög fræðandi nám og
mikil lifsreynsla að fara út og
kynnast fólkinu þar. Þótt þetta hafi
verið framhaldsnám í viðskipta-
fræöinni þá voru þama nýir hlutir,
til dæmis í sambandi viö fjármála-
markaöinn sem voru mjög heill-
andi.
Þetta var það mikil vinna að
maöur kynntist eiginlega ekki Lon-
don. Maður hafði varla tima til að
líta upp úr skólabókunum þótt
maður væri þama i tvö ár.
Konan mín heitir Sólveig Ingólfs-
dóttir, hún er menntuð sem kerfis-
fræðingur en er núna húsmóöir.
Ég á tvo stráka. Þeir heita Ingólfur
Ámi, 4ra ára, og Einar Páll, eins
árs.“
-ÚHE
Myndgátan
Lausn gátu nr. 1292:
Myndgátan hér að ofan lýsir hvorugkynsorði.
íslands-
mót í
tennis
Nú stendur yfir íslandsmótið í
tennis. Mótið hófst síðastliðinn
mánudag og þvi lýkur á laugar-
daginn meö úrslitaleikjum í ein-
liðaleik meistaraílokks karla og
íþróttir
kvenna.
Mótið fer fram á þremur stöð-
um. Á tennisvöllum Þróttar er
keppt i öðlingaflokkum, á tennis-
völlum Víkings í barna- og ungl-
ingaflokkum og í meisíaraflokki
er keppt á tennisvöllum TFK við
hliðina á Tennishölhnni að Dal-
smára.
Skák
Bent Larsen, sem er væntanlegur hing-
að á Friðriksmótið, deildi efsta sæti á
North Bay alþjóðamótinu i Kanada fyrr
í mánuðinum ásamt Hergott og Lesiege.
Þeir fengu 6 v. af 8 mögulegum en Sofía
Polgar, sem einnig kemur á Friðriksmót-
ið, kom næst ásamt Yermolinski og Och-
koos með 5,5 v. Keppendur voru 286 tals-
ins.
í þessari stöðu frá mótinu hafði Allan
hvítt og átti leik gegn G. Benjamin:
16. Ba7! Ha8 17. Bxb7! Hxa7 Engu betra
er 17. - Bxb7 18. Hxd7 + o.s.frv. 18. Bxc8
KÍ8 19. Ra5! og svartur kaus að gefast
upp því að hann tapar meira liði.
Jón L. Árnason
Bridge
Bretar hafa aUtaf verið taldir til sterk-
ustu þjóða í bridgeheiminum en einhvem
veginn hefur þá oftast nær þrotiö örendið
áður en þeir náðu alla leið. En nú gætu
bjartari tímar verið framundan hjá Tjall-
anum. Yngri kynslóðin heldur merki
þeirra hátt á lofti og öruggur sigur lands-
Uðs yngri spilara þeirra á HM í síðasta
mánuði gefur góð fyrirheit. Sigur þeirra
var svo öruggur að þeir unnu undanúr-
slitaleikinn gegn Kanada 243-95 og úr-
slitaleikinn gegn _ Ný-Sjálendingum
256-152 í 80 spUum. Úrslitaleikurinn var
96 spU en Ný-Sjálendingar gáfu leikinn
eftir 80 spil. Hér er eitt spU úr leik þeirra
gegn Nýja-Sjálandi þar sem gætin vörn
skUaði þeim 10 impa gróða. Sagnir gengu
eins á báðum borðum, suður gjafari og
AV á hættu:
♦ 7543
V 9743
♦ Á6
+ ÁK9
♦ KD962
V KG10
♦ D
+ G1083
♦ ÁG8
V Á865
♦ 2
+ D7654
* 10
V D2
♦ KG10987543
+ 2
Suður Vestur Norður Austur
54 Pass Pass Pass
Með Ný-Sjálendingana í vöminni kóm
spaðakóngurinn út í upphafi og austur
setti áttima Ul þess að sýna oddatölu spila
í litnum. Þá skipti vestur yfir í hjarta-
gosa, austur ýrap á ás og Bretinn setti
drottninguna. Austur var í megnustu
vandræðum og ákvað síðan að reyna að
spUa spaðaásnum. Meira þurfti sagnhafí
ekki og fékk sína upplögðu 11 slagi. Bret-
inn Jason Hackett sat í vestursætinu á
hinu borðinu. Hann spUaði einnig út
spaðakóngi, fékk áttuna frá félaga og þá
lét hann út hjartakónginn! Austur setti
áttuna tU að sýna jafna tölu spUa í litnum-
og þá var einfalt mál að halda áfram í
hjarta.
ísak Örn Sigurðsson