Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1995, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1995, Qupperneq 10
10 FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1995 Afmæli Dagblaðsins Ein af nýjungunum sem Dagblaðið bryddaði upp á var Sjórallið: Það ævintýralegasta sem ég hef lent í Sjórall Dagblaösins var eitt þeirra verkefna sem staðið var að í tengsl- um við útgáfu blaðsins. Fyrsta rallið var haldið 1978 og voru samvinnuað- ilar Dagblaðsins Snarfari, félag sportbátaeigenda og FR-klúbburinn, Félag farstöðvaeigenda. Þrjú röll voru haldin; 1978, 1979 og 1980. „Á þessum tíma var verið að smíða fyrir mig bát hjá Flugfiski og Runólf- ur, sem átti Flugfisk, þekkti Hafstein Sveinsson, formann Snarfara. Þeir tóku báðir þátt í fyrsta Sjórallinu og ég var sjálfkrafa settur inn í þetta. Báturinn var ekki tilbúinn fyrr en daginn áður en rallið hófst og maður skellti sér í þetta af tómri ævintýra- mennsku. Ég man að það var brjálað veður fyrsta ralhð en þetta var rosa- lega gaman. Það voru engin sighnga- tæki á þessum tíma - það eina sem maður hafði var áttaviti og FR-tal- stöð. Menn hefðu ekki gefið okkur háa einkunn fyrir öryggistæki í dag og líklega fengjum við ekki að fara með þessi tæki nú,“ segir Gunnar „Þetta er það ævintýralegasta sem ég hef lent I og þetta vaktl mikla at- hygli um allt land,“ segir Gunnar Gunnarsson. DV-mynd GVA : ; DB-myndJR Gunnarsson sem tók þátt í tveimur fyrstu sjóröllunum. Gunnar starfar nú að auglýsingagerð. SjóralUð fólst í siglingu sportbáta umhverfis landið, oft í erfiðu veðri og misjöfnum sjó. Smábátaeign var að færast í aukana og því þótti tílval- ið að brydda upp á þessari nýjung. Feröimar tóku yfirleitt eina viku og þótti mörgum í mikið ráðist að ætla að sigla þessa erfiðu leið, tæplega tvö þúsund kílómetra, á Utlum fleytum. SjóralUð varð án efa lyftistöng fyrir siglingaíþróttina hér á landi. Ekki skorti áhuga almennings á því og Dagblaðið fjallaði um það ítarlega í máU og myndum. Viö brottför bát- anna frá Reykjavík og eins við komu þeirra til baka var samfelld bUaröð frá Reykjavíkurhöfn og alla Skúla- götuna aUt að Rauðarárvíkinni. Hvarvetna sem bátarnir höföu við- komu þyrptust heimamenn niöur að höfninni og fögnuðu sjóraUsköppum. „Það varð erfitt að fá menn til að taka þátt í þessu. Þetta var langt og óhemju kostnaðarsamt. Við, sem tókum þátt í þessu, reyndum þó að fá einhverja auglýsingastyrki út á bensínkostnaðinn en endar náðu aldrei saman og yfirleitt enduðu menn á því að bera mestan kostnað- inn sjálfir. Eg myndi hins vegar gera þetta aftur ef tækifæri byðist. Þetta er það ævintýralegasta sem ég hef lent í og þetta vakti mikla athygh um allt land. Fólk er enn að heUsa mér og spyrja hvort ég hafi ekki tekið þátt í SjóraUinu enda var maður aUt- af í blöðunum," segir Gunnar. Gunnar segir menn hafa verið farna að íhuga aö gera keppnina al- þjóðlega þegar henni var hætt. Um alþjóðlega keppnisgrein hafi verið að ræða og erfiðar sighngaleiðir að finna í kringum ísland. Ekki hafi hins vegar orðið úr þeim áformum. -PP SAM\ 1 Nú eru þeir allir a leiðinni iSambióin i Frumsýnd lau. 16. sept. ÓtWí’líWp Kynnir Hæfileik- inn til að banka Það voru ekki bara harðar fréttir sem birtust í Dagblaðinu f>Tir 20 árum. Þá mátti einnig lesa þessa frétt: „í stórverksmiðju nokkurri í Bandaríkjunum bilaði skyndi- lega vél sem þá stöðvaði aUa framleiðslu verksmiöjunnar um stundarsakir. Vélstjóramir stóðu ráðþrota hjá hinni bfiuðu vél og var því kaUað á sérfræð- ing frá framleiöendum til bjarg- ar. Hann leit á véUna, bankaði aðeins i hana með hamri og vélin rann af stað. Er sérfræðingurinn sendi inn reikning upp á 250 dollara þóttí forstjóra verksmiðjunnar það fullhá upphæð fyrir eitt iítið bank og krafðist sundurliðunar reikningsins. Sérfræöingurinn var ekki iengi að þvi og bætti ínn á reikninginn eftirfarandi: Bank á vélina með iíamri: 1$. Að vita hvar banka átti: 249$

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.