Þjóðviljinn - 03.04.1937, Síða 4
SjB Ny/a Hj'io a§
Dóttir uppreisn-
armannsins
(The littlest Rebel)
hrífandi ajnerísk kvik-
mynd frá Fox félaginu.
Aðalhlutverkið leikur
*
undrabarnið
Shirley Temple.
Sýnd í kvöld kl. 6 og 9
BARNASÝNING kl. 6
Aðgöngumiðar seldir frá
kl. 4.
Orrboi*ginní
Næturlæknir
Kristín Ölafsdóttir, Ingólfs-
stræti 14, sími 2161.
Næturvörður
er í Ingólfs og Laugavegsapó-
teki.
Utvarpið
12,00 Hádegisútvarp. 19,20
Hljómplötur: Létt lög. 19,30
Pingfréttir. 20,00 Fréttir. 20,30
Kvöldvaka: a) Guðmundur Friö-
jónsson skáld: Kvæðalestur1 b)
ungfrú Rannveig Tómasdóttir:
Frá Rústum Pompei-borgar; c)
Frá Grímsey til Akureyrar,
Hrakningasaga eftir Björn Guð-
mundsson í Lóni (Björn Har-
aldsson); d) frú Anna Gu.ð-
mundsdóttir: Saga eftir Þ. P. P.
Ennfremur sönglög. 22,10 Dans-
lög (til kl. 24).
Skemtun
Núpverjar, Reykhyltingar og
Hvítbekkingar hafa, skemtifund
í Oddfellowhúsinu í. kvöld kl. 9.
Sjóðir prentarafélagsins.
Framhald af 3 síðu.
aura á viku hverri. Sjóður þessi
hefir nú starfað síðan 1924 og
voru eignir hans í árslok 1936
kr. 10 669,65.
Það hefir ríkt mjög mikill á-
hugi fyrir þessu máli hjá mörg-
um af framsýnustú mönnum fé-
lagsins, enda er starf H. 1. P.
orðið umfangsmikið og áhugi
vaknaður, einkum meðal yngri
manna, fyrir því að. a,uka það á
ýmsan hátt stéttinni til menn-
ingarlegra íramfara og ætti eig-
in bústaður að geta orðið hinn
traustasti hornsteinn þess.
EUistyrktarsj óður.
Með stofnun Ellistyrktarsjóðs-
ins er lagður grundvöllur að
Skipafréttir
Gullfoss fór frá Kaupmanna,-
höfn í gær, Goðafoss er í Hull.
Brúarfoss er fyrir norðan, Detti-
foss var i Hafnarfirði í, gær,
Lagarfoss er í Khöfn,
Sókn
heldur skemtun í Alþýðuhús-
inu við Hverfisgötu í kvöld kl.
9 e. h. Meðal annars segir Hall-
dór Kiljan Laxness ferðaminn-
ingar og Jóhannes úr Kötlum
les upp. Á eftir verður dansað
fram eftir nóttu. Aðgöngumiðar
kosta 2,50.
Sundfólk
það sem æft hefir hjá Ármann,
K. R. og Ægi að undanförnu, er
beðið að mæta á sundæfingu í
sundhöllinni n. k. mánudag kl.
9 síðd.
Sendisveinar
Aðalfundur Sendisveinafélags
Reykjavíkur verður haldinn á
mánudaginn 5. apríl kl. eítir
hádegi í Iðnó (uppi).
mjiög merkilegu starfi, sem eins
og nafnið bendir til hefir það að
markmiði að tryggja þeim, sem
sjitið ,ha,fa kröftum sínum í
þágu prentiðnarinnar, sæmilega
lífsafkomu, þegar heilsan dvín
og starfsþrekið fjarar út.
. Samkvæmt réttmætum kröf-
um verkalýðsins nú á, tímum er
það auðvitað hlutverk þjóðfé-
lagsins að veita vinnuþegnum1
sínum þessa tryggingu á efri ár-
um. Eh það hefir farið hér um
þessi miál, sem viðast annars-
staðar að sá tryggingarstofn,
sem verkalýðurinn með striti
sínu hefir skapað, liggur í
eyðslusjóðum yfirstéttarinnar,
sem varðir eru fyrir alþýðunni
með stáli og ströngum lagafyrir-
mæl.um.
Prenturum þótti ekki vænlegt
að bíða þess að úrlausn hins op-
inbera á ellistyrktarmálum al-
mennings yrði tekið til meðferð-
ar, enda er það nú komið á dag-
inn, að þær aðgerðir, sem, átó
hafa sér stað í: þessa átt, eru
iangt frá því að fullnægja þeim
áformum, sem prentarar hugð-
ust að framkvæma til. styrktar
meðlimum sínum.
Það er fyrst árið 1926, sem
Jón Þórðarson vekur máls á
sjcðmyndun þessari, en það er
ekki fyr en 1929, sem fyrir at-
beina Magnúsar H. Jónssonar er
gengið endanlega frá stofnun
sjóðsins. Svo sem: fyrr getur eru
þá veittar 10 000,00 kr. úr at-
vinnuleysisstyrktarsjóði auk
rúmrai 1400,00 kr. úr deildar-
sjóði Reykjavíkurdeildar H. I.
P., um, leið og deildarfyrirkomu-
lag félagsins var afnumið í
þeirri mynd, sem: það hafði verið
umi skeið. Tilgangur sjóðsins er
að. styrkja félagsmenn, sem
orðnir eru sextíu ára, svo þeir
geti hætt störf um að nokkru eða
cllu. Ennfremur. hefir sjóðurinn
heimild til að styrkja yngri fé-
laga ef nauðlsyn krefur og ó-
vinnufærir eru, sömiuleiðis ekkj-
ur félagsmanna ef þær eiga fyr-
ir börnum að. sjá innan 15 ára
aldurs, svo og aldraðar ekkjur,
Ixitt barnlausar séu__Hver fé-
lagi greiðir 50 aura á viku til
sjócfeins. 1 reglugerð hans var
það ákveðið að. hann tæki til
starfa, er hann væri orðinn
50 000,00 krónur og var því
horfið að því ráði 1934 að veita
sjóðnum úr Atvinnuleysisstyrkt-
arsjóði það fé, sem á vantaði að
hann gæti hafið starf sitt. Sjóð-
urinn styrkir nú 5 félaga og
greiðir kvæntum kr. 30 á viku, i
en einhleypum kr. 25.
Frá 1929 að sjóðurinn var
stofnaður hefir iðgjaldagreiðsla
til hans numið um 18 000,00 kr.
Styrkir, frá 1934, nema 8 125,00
kr. og eignir sjóðsins í. árslok
1936 nemia, kr. 59 833,33.
Þótt Ellistyrktarsjcður H. I.
P. hafi enn sem komið er ekki
náð því marki að fullnægja
styrkþörf þeirra meðlima sinna,
er sakir elli eða annars verða að
hverfa frá vinnu, er árangurinn
af starfi hans furðulegur á jafn-
skömimumi tíma. Og sá eindregni
áhugi, sem nú ríkir í félaginu
fyrir eflingu þessarar mikil-
vægu stpðar, m;un áreiðanlega
tryggja vöxt hans og fullkominn
árangur í nánustu framtí.ð.
Þetta stutta yfirlit um sjóði
H. 1. P. er enganveginn full-
nægjandi þeim, sem kynnast
vilja til nokkurrar hlýtar þessu
umfangsmikla starfi, þetta eru
aðeins veigamestu atriðin og
ætti að. geta orðið þeim hvatn-
ing, sem rekja vilja og hagnýta
árangra djörfustu sporanna,
sem stigin hafa verið í þessa átt
af íslenskum verkalýð.
Stefán ögmundsson.
Orárándóttur Conklin-sjálf-
blekungur tapaðist í Útvegs-
bankanum. Skilist til Ölafs Fríð-
ríkssonar.
& Gamlar5ió Æ.
Romeo og Júlfa
eftir William Shakespeare
Aðalhlutverk:
NORMA SHEARER
og LESLIE HOWARD.
Leikfélag lleykjavíkur
„Madur og kona“
SÝNING Á MORGUN
KL. 8.
Lækkað verð.
Aðgöngumiðar seldir frá kL 4—7
í dag og eftir kl. 1 á morgun.
SIMI 3191
Hvítkál,
Rauðkál,
Rauðbeður,
Gulrætur,
Selleri,
Rófur,
Kartöfiur.
Yersl. Kjöt & Fiskur
Símar 3828 og 4764.
Ungherjar.
YNGRI DEILDIN heldur
skemtifund á sunnudag kl. 1.
' Kakaodrykkja. Mætið öll, hafið
10 aura með.
STJÖRNIN
NOIRÁINI.
Kyrrahafsœfintýri eftir Frank Norris.
I.
Mamnrán.
Þetta er saga um bardaga, að. minsta kosti eitt
morð, og þó nokkra vqfveiflega dauðdaga. Það samir
því vel, að hún byrji í teveislu, þar sem loftið er
þrungið angan af dýrum ilmvötnum og ferskum Caro-
line-Testiout-rósum'.
Þetta á,r höfðu óvenju margar unga,r stúlkur gerst
þátttakar í veislulífi San Fransiscóborgar, og það
gekk ekki á öðru en stöðugum teveislum og samkvæm-
um hjá heldra fólkinu, Teveisla sú er hér um ræðir,
var haldin til heiður.s Josie Herrick, í tilefni þess
að hún hafði náð því, þnoskastigi, að. hér eftir mátti
hún ganga með uppsett hár og í síðum kjólum, og
hafa sinn gestadag alveg út af fyrir sig, óháðan gesta-
degi móðujr sinnar.
Þenna dag sem teveisla Josie Herricks átti að. verða,
kom Ross Wilbur heim til hennar seinni part dagsins.
Þegar inn í anddyrið kom, sá hann sér til skelfingar,
að fataherbergið var fult af kvenhöttum og yfirhöfn-
um, og aðeins einn einasti pípuhattur var sjáanlegur.
' — Ég hefði átt að geta sagt mér það sjálfur, að
hér yrði ekki annað en kvenfólk, altaf, til klukkan
sex, huigsaði hann meðan hann var að fara úr frakk-
anum. Og líklega þekki ég ekki helminginn af gest-
unum, þa,rna eru auðvitað vinkonur móður .hennar,
allar ógiftu frænkumar, allar kenslukonurnar frá
því fyrsta, og svo framvegie.
Og þegar inn kom, þá, var alt eins og hann hafði
.búist við. Fyrst gekk hann til ungfrú Herrick, sem
var önnum kafin að taka á móti 'gestunum, ásamt
móður sinni, og þær fóru strax að sttíða honum á
því, hverau, einma,nalegur hann væri.
— Mér er sama hvort þið trúið því-, sagði Ross Wil-
bur, en ég er dauðfeiminn, og forða mér undir eins
og ég sé mér færi. Líklegast færi ég strax, ef ég
ætti ekki von á einhverjum, matarbita.
— Auminginn, sagði ungfrú Herrick. Það hljóta
að vera einir tveir tímar síðan þú borðaðir. En komdu,
hérna með mér, ég skal. reyna að finna þér súkku-
la,ði, og ef þú ert sérstaklega þægur og góöuir, skaltu
fá fyltar ólífur. Ég fékk mér þær af því ég vissi
að þér þóttu þær sælgæti. Auðvitað ætti ég að standa
í, stöðu minni og taka á móti gestunum, en ég held
að ég steli nokkrum mínútum handa þér.
Það var ekki greiðuir gangur yfir að borðunum, þar
sem hressingarnar voru á boðstólum, en þegar þang-
að kom fékk Wilbur bæði súkuklajði og fyltar ólífur
eins og hann langaði í. Svo settust þau út í glugga-
skot og spjölluðui svolítið saman, Wilbur hafði disk
með. ávöxtum á hnjánum.
— Eg hélt að þú ætlaðir að fá, þér segltúr méð
Ridgeway-fjölskyldunni í dag, sagði ungfrú Herrick.
Frú Ridgeway sagði mér að. þú mundir fara með.
Þau verða- á »Petrel«.
— Þar hafa þau reiknað skakt, svaraði Wilbur.
Þú varðst á undan, og þó að svo hefði ekki verið,
held ég að ég hefði slept sjóferðinni. Og hann leit
brosandi til hennar.
— Þú ert laglegur karl, sagði hún, en bætti svo
strax við: En nú verð ég að fara, Ross.
— Eins og þú getir ekki beðið þangað til ég er
búinn með súkkulaðið mitt«, sagð.i Wilbur og lést vera
gramur. Annars, Josie, — hann hrærði va,n,dlega í
bollanum, — ætlar þú á, báUið í, kvöld?«
— Ballið í: klúbbnum? Já, ég ætla þangað.
— Viltu lofa mér fyrsta og síðasta dansinum,?
— Ég skal lofa þér þeim fyrsta, seinna getum við
talað um þann síðasta.
— Lof mér að skrifa það strax, annars gleymir
þú því, sagði Wilbur, og tók tvö kort úi* veski sínu.
— Það er orðið ómóðins að nota ballkort, sagði ung-
frú Herrick.
— Þó er það enn meira gamaldags að gleyma lof-
uðum dapsi.
— Ha,nn skrifaði á kortin. Á þvíi sem hann hélt
eftir, stóð: »Fyrsti vals, Josie«.
— En nú verð ég að fara og hugsa um hina gest-
ina, sagði ungfrú Herrick, og stóð á fætiur.
— Þá læðist ég út. Ég er .hrædduir við kvenfólk.
— Æ, auminginn þinn!
—,Já„ það er satt. Ég er óhræddur við eina og
eina. En þegar þær eru komnar saman í, hóp, eins
og hér, hann benti yfir að. stofunum, sem fullar voru
af gestum; þá er mér öllum lokið.
/