Þjóðviljinn - 05.05.1937, Side 2
Miðvikudagínn 5. maí 1937.
í> JÖÐVILJINN
Karl Marx
1818 —
1 dag eru liðin 119 ár frá fæð-
ingu Karls Marx, þess manns,
sem meira en allir aðrir hefir
mótað sósíalismann og verklýðs-
hreyfinguna, þess manins,. sem
hefir á undanfornum árum ver-
ið mest umtalaður allra mianna,
mest hataður og einlægast virt-
ur og dáður. Hann hefir hlotið
það hlutskipti, sem aðeins fell-
ur í hfut mikilmenna að stækka
og vaxa eftir því sem tímar liðu,
Karl Marx var fæddur 5. maí
1818 í Trier í Rínarlöndum. Fað-
ir hans var Gyðingur, en snérist
til kristinnar trúar meðan son-
ur hans var á unga aldri.
Ungur hóf Marx nám við ýms-
ar af helstu, mentastofnunum
landsins og lagði einkum sturnl
á heimspeki og sögu. Námsár
hans voru umbrotatímar í þýsku
þjóðlífi. Hinir yngri menn gagn-
rýndu skarpt .hughyggju Hegels,
hina ahsolutu ríkishei.mspeki
Prússlandg, Marx skipaði sér
undir merki þessára ungu brauti-
ryðjenda, sem drógu, meira og
minna byltingarsinnaðar fræði-
kenningar út af heimspeki Heg-
els.
Marx hugðist að verða, próf-
essor að loknu námi,. en trúar-
bragðagagnrýni hinna yngri
manna átti litlum vinsældum a3
fagna hjá yfirvöldunum. Marx
réð það því af að gerast blaða-
maður. Störf hans við blað sitt
komu. honum í náin kynni við
hag og aðbúnað alþýðunnar. Rit-
aði Marx um þetta nokkrar á-
gætar greinar, þar sem hann
flettir miskunnarlaust ofan af
þeim órétti, sem alþýðan, eink-
um bændurnir eiga við að búa
í ríki junkaranna.
Greinar þessar vöktu athygli
yfirvaldanna.. Þau sáu í Marx
hættujegan byltingamann og
hann varð að hrekjast úr landi.
Marx settist nú að í París og
byrjaði að gefa út róttækt tíma-
rit. Hér kyntist hann hinum
ýmsu strarmum sósíalistískra
draumóra, sem þá voru u,ppi með
Frökkum Marx batt um fárra
á,ra skeið vináttu við hinn helsta
af forvígismönnum franska s '>sí-
alismans, Pierre Proudhon. Par
kyniisti .hann ennfremur hinu
heimsfræga skáldi Heinrich
Heine og fór hið besta á með
þeim, hvað st,órnmáiaskcðanir
snerti.
Dag nokkurn kom til Parísar
unguj* þýskur verksm'ðjueig-
endasonur. Hann hafði þá dval-
ist um hríð í Englandi og hafði
á prjónunum bók, u,m kjör enska
verkalýðsins. Pessi ungi verk-
smið'ue:gandasonur hét Fried-
rich Engels og frá þeim degi sero
fundum hans og Marx bar sa,m-
an í París verður saga þeirra
ekki rakin öðru vísi en á sama
blaði. 1 nærri 40'ár eða til dauða
Marx voru þeir órjúfandi vinir
og samverkamenn. Störf þeirra
urðu svo nátengd að hvorugur er
hugsanlegur án hins.
En þýsku yfirvöldin voru ekki
5. mai
búin að gleyma Karli Marx. Þau
fóru þess á leit að franska
stjórnin vísaði ýmsum Þjóðverj-
um úr. landi, sem þá dvöldu í
París. Meðal þeirra voru Kar!
Marx, Heinrich Heine og ýmsir
fleiri. Franska stjórnin vísaði
þeim flestum úr landi, en treysti
sér þó ekki til að verða við ósk
Prússa, hvað Heine snerti sakir
þess frægðarorðs, sem fór af
honum.
Marx fór nú-til Brussel og á.tti
þar heima næstu á,rin. Hélt hann
nú áfram ritstörfum sínum og
fékkst einkum við hina heim-
spekilegu hlið efnishyggjunnar
og hina efnalegu söguskoðun,
sem nú var að mótast í huga
hans fyrir langvinnar rannsókn-
ir. Hér byrjaði Marx ennfremur
að skipuleggja hin róttæku, fé-
lagsöfl til baráttu gegn aftur-
haldi og kúgun.
1846 gekkst Marx fyrir stofn-
pn verklýðgfélags meðal þýskra
manna sém vöru búsettír í
Brussel. Árið eftir 1847 var
stofnaður í London hinn fyrsti
vísir til alþjóðlegra verklýðssam-
taka. Nefndist félagsskapur
þessi » Kommúnistaband alagið«
(Bund der Kommunisten). Sá
maðuir sem átti mestan þátt í
stofnun þessa bandalags var
Karl Marx, enda var honum og
Engels falið að rita stefnur
skrána,. Stet'nuskrá þessi,
»Kom.múnist,aávarpið« kom svo
út í ársbyrjun 1848. Með þessari
bók kemur sósíalisminn fyrst
fram á sjónársviðið, sem hei!-
steypt og þrapthrgsað fræði-
kerfi. Bók þessi markar tímamót
í sögu sósíalismans. Með henni
var búið að vinna úr .þeirri
deiglu og baugabrotum sem, fyrir
hendi var 1 félags- og fram-
leiðsluháttum þjóðfélagsins. —
Vopnið í frelsisbaráttu updir-
stéttanna var fujlsmíðað og feng-
ið alþýðu allra landa til baráttu
gegn auðvaldi og áþján.
1 ársbyrjun 1848 braust út
bylting í Parísarborg og bárust
öldur hennar með ótrúlegum
hraða út yfir Evrópu,. Marx
grípur tækifærið og fer heim til
Þýsklands, til þess að berjast
fyrir málstað byltingarinnar. En
verklýðsstéttin var enn ekki vax-
in svo úr grasi, að hún gæti orðið
hið afgerandi afl, sem knúði
fram sigur hinna undirokuðu.
Borgarastéttin var innbyrð’is
sundurþykk og deig til fram-
kvæmda. Byltingin hlaut því að
renna út í sandinn og kafna í
blóði updirstéttanna,.
Marx varð því að hverfa úr
landi í annað sinn. Einn var för-
inni heitið til Parísar. Nú á.tti
Marx ekki framar afturkvæmt
til Þýskalands og frönsku yfir-
völdin þorðu ekki að ,hýsa hann
fyrir ofríki Prússa. Var því ekki
um annað að ræða en að fara til
Lundúnaborgar, þar sem Marx
dvaldi tíl æfijoka.
Koman til London var Marx
erfið, hann var landfl.ótta og fé-
— 1937
laus. Skorturinn þjáði heimili
hans svo að börn þau; er Marx
og konu hans fæddust um þær
mundir dóu ÖIL En brá.tt gafst
Engels færi á þvá að rétta vini
sínum hjálparhönd svo að hann
gæti haldið störfum sínum
áfram.
VerklýðsJireyfingin var í rúst-
um eftir blóðtöku byjtingarinnar
og undan járnhæl og byssu-
stingjum afturhaldsius, sern
hafði öðlast óskorað vald eftir
sigurinn 1848—9. Um beinlínis
verklýðshreyfingu var því v aum-
ast að ræða fyrstu árin eftir
1850.
Eú þá var það sem Marx gafst
færi á að rita hið mikla verk sitt,
um hagfræði og þjóðskipulag
kapitalismans. 1859 komu út
fyrstu drög þessa ritjs u,ndir
nafninu »Zur Kritik der polití
ischen ökonomie«. Fáumi árum
síðar 1867 kom út fyrsta bind-
jð af höfuðriti hans »Das Kapi-
tal« (Auðmagnið), þar sem
Marx gagnrýnir og sundurliðar
félagsform kapitalismans. Bók
þessi hefir ráðið aldahvörfum í
sögu félags- og .hagfræðinnar á
sama hátt og rit Darwins, sem
kom út um sömu mundir hefir
gert, á sviði náttúrufræðinnar.
Marx sannar að þjóðfélagsforxn-
in séu háð sífeldri breytingu og
þróun eins og allir aðrir hjutir á
þessari jörð og hann skilgreinir
þessa þróun og sýnir fram á. það
að hún hljóti éhjákvæmilega að
leiða af sér sósíalismann, sem fé-
lagsform, framtíðarinnar.
En Marx gleymdi því ekki, að
það var ekki nóg að vita þetta.
Það þurfti að skapa félagsþró-
un framtíðarinnar og það var
hið sögujega hlutverk verkalýðs-
ins. Vegna þess þurffci að skipu-
Ieggja verkalýðinn til baráttu
gegn hinu úrelta og staðnaða.
Árið 1864 var Alþjóðasam-
band verkamanna stofnað und-
ir forustu, Karls Marx og átti
það þrátt fyrir ýmsa örðugleika
mikinn þátt í því að móta bar-
áttusamtök alþýðunnar og gefa
þeim alþjóðlegan hlæ.
Eftir þýsk-franska stríðið
J870—71 greip ParísarverkaJýð-
urinn tækifærið og tók völd
borgarinnar í sínar hendur.
Marx fagnaði þessari fyrstu
valdatöku, verkalýð.úns, en þess
var skamt að bíða, að hann varð
að harma ósigur hennar. Eftir
rúma 2 mánuði tókst burgeisum
Frakklands að sigra verkalýðinn
mieð .hjálp Bismarcks, sigurveg-
arans frá Sedan.
örlög Parísairkommúnunnar
lögðust þungt á Marx. Alþjóða-
samband verkamanna liðaðist r
sundur og leið undir lok litlu
síðar. Heilsan var þrotin og
starfsdagurinn kominn að
kveldi. Síðustu æfiárunum varði
hann til þess að Ijúka við rit
sitt »Das Kapital«, en sá þó
fram á það, að hann fengi ekki
lokið því verki. Ástvinamissir
bættist ofan á þrotna krafta og
margskonar vonbrigði. Alt þetta
hjálpaðist til þess að leggja Marx
í gröfina 14. mars 1883 tæplega
hálfsjötugan að aldri.
Einum fremsta hugsuði ver-
aldarinnar var svipt með honum
af baráttúvelli lífsins. Fáeinir
vinir og samherjar, sem söfnuð-
ust við gröf útlagans í Highgate
vissu, að einn af brautryðjend-
um menningarinnar og framtíð-
arinnar var hniginn í valinn.
Síðan eru liðin meira en 50 ár
og dómur sögunnar hefir sann-
að réttmæti þess. Við, sem nú
lifujmi sjáum störf hans í bjart-
ara og skýrara ljósi en samtíð
hans var unt. Við sjáum nú að
Marx var einn þeirra örfáu
manna sem mannkynið hlýtur að
standa í þakklætisskuld við um
allar ókomnar aldir.
Við, sem nú lifum sjáum verk
hans rísa ,á traustum grundvelli,
mótuð í stál og stein í ríki verka-
lýðsins, Sovétríkjunum. Og ekki
aðeins í stál og stein, heldu,r
einnig í hugsana og vitundarjíf
þeirra manna og kvenna, sem
nú era að mótast og þroskast í
því landi.
Um allan heim er nú barist,
undir merkjum marxismans
gegn hverskonar kúgun, aftur-
haldi og heimsku.
En baráttan stendur ekki að-
eins á stjórnmáJa- og atvinnu-
sviðinu,, heldur einnig á sviði vís-
inda, bókmenta og lista. All-
staðar sækja hin steinrunnu
nátttröll afturhajdsins og fas^
ismans fram. Þau vilja kippa
öllu um aldir aftur í tímann.
Skæðasta vopnið í baráttunni
gegn þessum váboðúm er marx-
isminn og svo muji verða, uns
hann sigrar, og heitasta hugsjón
Marx er orðin veruleiki í fram-
tíðarríki sósíaJismans.
Framboð
FRAMHALD AF 1. SIÐU
í Borgarfjarðarsýslu Guðjón B.
Baldvinsson, í Árnessýslu Ingi-
mar Jónsson skólastjóri og Jón
Guðlaugsson bifreiðastjóri.
ÖJI framboð þau sem í gær
voru tilkynt eru vita vonlaus
fyrir flokkinn, en hinsvegar geta
sum þeirra hæglega valdið því
að íhaldið og Bændaflokkurinn
fái þingsæti, eins og í Vest-
mannaeyjum, í Eyjafjarðarsýslu,
og Árnessýslu.
»Breiðfylkingin« hefir tilkynt
eftirfar. framboð: I N.-Múla-
sýslu Árni Jónsson frá Múla,
Bændafjckkurinn býður Svein, á
Egijstöðum frami við hlið Árna.
I Vestur-Skaftafellssýslu Gísli
Sveinsson, í Borgarl'jarðarsýslui
Pétur Ottesen, í Austur-Húna-
vatnssýslu Jón Pálmason og í
Rangárvallasýsjú Pétur Magnús-
son og Jón Ölafsson.
if Yflr 100.000 írskir bygginga-
verkamenn hafa nú lagt niður vinnu
í höfuðborg landsins. Nær verkfall
þetta til allra þeirra manna, sem
vinna að byggingum einkahúsa í borg-
inni. Gera verkamennirnir þá kröfur
að 40 stunda vinnuvikan verði viðux-
kend.
ir ítalska nefndlo, sem hefir með
að gera hjálp tij lýðveldismanna á
Spáni hefir nú fengið allmikla fjár-
upphæð frá ítölskum stúdentum.
Sending þessi var frá stúdentum við
háskólann í Feneyjum,
★ Pólsku blöðin flytja stöðugt nýj-
ar fregnir um fjöldahandtökur í
Varsjá, Lodz, Lemberg og fleiri pólsk-
um bæjum. Handtökum þessum er
eingöngu beint gegn andfasistum.
Búist er við að þungir dómar biði
þessara manna allra.
Frá Spáni
FRAMHALD AF 1. SIÐU
uppreisnarmannav að engin loft-
árás hafi átt sér stað á orustu-
skipið »Espana« og það hafi
sokkið aí' völdum tundurdufls.
Hann lýsir því yfir, að loft-
árás hafi verið gerð, og skotíð úr
loftvarnarbyssum skipsins á
fluigvélamar, sem köstuðu 8
sprengjumi í áttina til, skipsias.
Fjórar þeirra, fóm í sjóinn en.
fjórar hæfðu skipið. Ein þeirra,
segir hann, olli sprengingu, og
gerir hann ráð fyrir að hún hafi
hæft skotfærageymslu, skipsins..
örstúttri stundu, síðar hafi skip-
ið tekið að sökkva. Hann segír,
að enginn vatnsstrókúr hafi sést,
né nokurt; rask á yí'irborði sjáv-
arins,, eins og vænta hefði mátt,
ef um sprengingu tundurdufls
hefði verið að' ræða. (F.U.)
Von IVeurath
semur í Róm
FRAMHALD AF 1. SIÐU
stundar viðræður við MussolinL
Einnig hefir hann átt tal við
Ciano utanríkisráðherra.
Von Neurath, utanríkisráð-
herra ÞýskaJands og Mussojini
hafa haldið áfram viðræðum
sínum í Róm í dag, Því var lýst,
yfir í gærkvöldi, í hálfopinberrí
tilkynningu, að ekki þyrfti að
óttast, að viðræður þeirra leiddu
til nokkurra þeirra ákvarðana,
sem hefðu alvarlegar afleiðing-
ar. (F.G.)
Verkföll í Hollywooft
og San Francisco
Verkfall starfsmanna við kvik-
myndastofurnar í Hollywood
nær nú til 6000 manna. Þrá,tt
fyrir þetta, halda kvikmynda-
tökur ennþá áfram.
Þá hefir starfsfólk við öll
stærstu gistihúsin í San Francis-
co gert verkfall. (F.U.)