Þjóðviljinn - 06.10.1937, Page 3
í> JOÐ VIL JINN
Mióvikudaginn 6. október 1937.
pJÓOVIlJINN
IffilBBva Kemm«Mlat»(Iakkr
Iilutdi.
KItlt]6rl: Einar Olgeirsaon.
Bitttjfnu BorgBtaðastrsetl 30
■Imi 2270.
i.f«rrel<*i« og a»|{lýiIns;*sKr5fs»
LangavaK S8, *Imi 2184.
Cemor fit alla áaga, nema
mfinadaga.
Xikrlftarirjald 6 miDnðl:
Reykjavlk og nágrenni kr. 2.0!
Annarsitaiar á landina kr. 1,25
1 lanaasðla 10 aura eintakii.
PrantamlSja Jðn* Helganonar,
BargitaSaatraeti 27, slml 4200.
Alpýðublaðið glím-
ir við sinn eigin
draug.
Ögæfu Alþýðublaðsins verður
alt að vopni, afleitur málstaður,
óþokki fólksins og ritstjórar, sem
ekki vita sitt rjúkandi ráð, og
krafsa eins og sauðir í kviksyndi.
öll yfirvegun er lögð á flótta, en
eftir situr ráðaleysið, fálmið og
skelfingin í aJmætti sínu. Þeir
hafa að vísu óljósa hugmynd um
að með framkomu sinni og skrif-
um, séu, þeir að vekja upp þann
draug sem, getur orðið flokkn-
um, en þó einkurn þeim sjáJfum
óþægur í framtíðinni. Alt er því
gert, til þess að losa sig við
draugsia, og senda okkutr komm-
únistum hann til kvalræða og
plögunar. En ritstjórunum ferst.
eins og fáráðlingum fyrri alda,
að þeir hafa ekki tök á draugn-
um og verða því að sitja uppi
með hann hve miklum spjöllum,
sem hann kann að valda á heim-
ili Alþýðuflokksins og hve
marga, sem1 h.ann, kann að æra
burtu af bænum.
1 ráða- og .rökjeysi sín,u grípa
ritstjórarnir aftutr til Sovétgrýl-
unnar, sem þeir lögðu til hliðar
all mikið þvælda og notaða eftir
kosningarnar. En það verður að
tjalda því sem til er, en fátt ger-
ist nú orðið um. spjarir á því
heimili að vonum.
Alþýðublaðið og Morgunblaðið
hrópuðu, í einum talkór: »rau.ða
hætt,an,« fyrir kosningar. Þann-
ig ætluðu þeir að sundra fylking-
um, kommúnista í kosningunum,
og reyna að grípa liðið á flóttan-
um.. En margt fer öðru vísi en
ætlað er. Draugurinn, sem átti
að senda kommúnjstum komst
ekki í áfangastað, en lagði hins,-
vegar fylgjendur Alþýðuflokks-
ins í einelti og banaði mörgum í
kosningahríðinni en aðrir flýðu
óværð þessa yfir til kommúnista.
Ritstjórar Alþýðublaðsins vita
prýð'ilega hvernig samningaum-
leitanir milli Alþýðuflokksins og
kommúnista hófust,. Þeir vita
líka hvernig þær gengu og með
hvaða hug sumir af nefndar-
mönnum Alþýðuflokksins gengu
að samjningaborðinu, Þeir vita
líka að allar þeirra tillögur voru
annað hvort. stefnuskrá Alþýðu,-
flokksins óbreytt eða seilst var
til hægri eftir nýjum »ágreinings
atriðum,«. Þeir vita., að Alþýðu-
flokkurinn gekk ekki í neinu
máli neitt til móts við kröfur
kommúnista, en að þeir slökuðu,
til um hvert atriðið á fætur öðru.
En þeir vita líka, að fólkið má
ekki vita þetta. Það verður að
halda að Alþýðuflokksnefndin
Kommúnistaí lokknri nn vill ad
samningnnnm verdi lialditl átram
Yfirlýsing frá íVamkvænidaráði líoiisiiiúnistaflokksiiis.
a FUNDI framkvæmdaráðs
Kommúnistaflokksins í
gærkvöldi var eftirfarandi
ályktun samþykt í tilefni af
samningsslitum Alþýðusam-
bandsstj órnar innar.
»Framkvæmdaráð Komrnún-
istaflokksins harmar það, að
stjórn Alþýðuflokksins hefir al-
gerlega, án tilefnis slitið siamn-
ingum við Kommúnistaflokkinn
um sameiningu íslenska verka-
lýðsins í einn flokk, og lýsir því
enn einu sinni yfir að Kommún-
istaflokkurinn er hvenær sem. er
reiðubúinn til að halda samn-
ingunum áfram.
Tillögur Kommúnistaflokksins
voru frá upphafi þannig, að í
þeim voru aðeins tekin fram þau,
grundvallarskilyrði er hann
taldi nauðsynleg til þess að hægt
væri að skapa, einn verkalýðs-
flokk á Islandi, er væri raun-
verulega sósíalistískur og verka-
lýðurinn, gæti treyst,. — Þassi
skilyrði voru að flokkurinn geröi
sér far um, að byggja á vísind-
um og reynslui verkalýðshreyf-
ingar 19. og 20. aldarinnar,
en tæki ekki á stefnuskrá
sína bábyljur þær, sem
burgeisastéttin hefir lætt inn í
verkalýðshreyfinguna og leitt
hafa til, ósigurs, verkalýðsins í
hverju landinu á fætur öðru,
að flokkurinn takmarkaði
ekki lýðræðishugsjón sína við
hafi ger.t, alt sem í hennar valdi
stóð til þess að koma á samning-
um. Til þess að finna einhverja
leið út, úr klípunni þreyta rit-
stjórarnir nú sín ringluðu nöfuð
og finna ekkert vænlegra en
gamla banabitann sinn frá því
í vor.
Nú er það Alþjóðasamband
kommúnista sem hefir orðið þess
valdandi að samningar gengu
ekki saman. Þetta verður auð-
vitað ekki skilið öðru vísi en sv,o,
að það hafi verið eftir fyrirskip-
u,n, Alþjóðasambands kommún-
ista, sem Ingimar Jónsson flutti
sína frægu ræðu. á Jafnaðar-
mannafélagsfundinum,. Væntan-
lega hefir ræða Stefáns Jóhanns
á sama fundi verið af sömu, rót-
um runnin, enda var maðurinn
nýkominn frá útlöndum, eins og
Brynjólfur Bjarnason.
Nú eigum við að trúa því, aö
skipun Alþjóðasambands komm-
únista hafi ráðið því að Alþýðu,-
flokksnefndin vildi hvergi slaka
til og að lokum má væntanlega
rekja samþykt sambandsstjórn-
arfundar til sömíu róta,.
Um afstöðu. Alþjóðsambands
kommúnista til sameiningar og
samfylkingarmálanna hefir svo
mikið verið ritað hér áður, að
þess gerist ekki frekari þörf.
En Alþýðublaðið ætti í fram-
tíðinni að fást við annað en. ax-
arskaftasmíði og uppvakningar
á draugum.
þessar bábyljur, heldur viður-
kendi eindregið lýðræði verka-
lýðsins, sem hið fullkomnasta
form lýðræðisins, og trygði enn-
fremur fullkomlið lýðræði í
flokknum. sjálfum. Að tekin
væri vinsamleg afstaða til sós-
’íalismans, þar sem verið er að
skaþa hann, og því enginn
fjandskapur leyfður við Sov-
ét-lýðveldin og að málsvarar
fasistiskra flugumanna og spell-
virkja, eins og trotskistanna,
fengju ekki rúm í blöðum flokks
ins. — Án þessara skilyrða taldi
Kommúnistaflokkurinn, að engin
trygging væri fyrir því að flokk-
urinn yrði raumverulega sósíal-
istiskur flokkur, semi gætti hags-
muna verkalýðsins í hvívetna —
án þessara skilyrða taldi mið-
stjórnin að andstæðingum sósíal-
ismans og beinum f jandmönnum
verkalýðsins væri gefinn að-
gangur að flokknum og ábyrgð-
arstöðum h.a,ns. Það væri því
ekki hægt, að falla. frá þessum
grundvallarskilyrðum án þess að
bregðast verkalýðnum.
Framkvæmdarráðið harmar
það, að meirihluti núverandi mið
stjórnar Alþýðuflokksins skuli
reyna að verja samningsslit sín
með rangfærslum.
1) Til dæmis er sagt í álykt-
un miðstj. Alþfl. að Kommún-
istafl. hafi krafist þess,, að
»skipulagi Alþýðusambandsins
verði sundrað, það rifið úr tengsl
um við hinn pólitíska flokk al-
þýðunnar og gert, að vettvangi
pólitískrar togstreitu, sem. and-
stæðingum alþýðusamtakanna
einum getur orðió til gagns«.
Þessi furðúlegi málafluitningUJ:•
er borin fram eftir að Kommún-
istaflokkurinn er búinn að lýsa
því yfir að hann vill tryggja
sem nánust tengsl milli Alþýðu-
sambandsins og hins sameinaða
flokks, með þeim hætti að lýð-
ræðið innan sambandsins sé
jafnframt trygt, og hefir lagt
fram tillögur um þessi skipu-
lagslegu, tengsl, jafnframt því
sem óskað var eftir tillögum fra
Alþýðuflokknum.. 1 þessu máli
virtist allur ágreiningur vera
horfinn, þar til sambandsstjórn-
in birti hina óvæntu yfirlýsingu,
sína.
2) Þá er sagt að Kommúnista-
flokkurinn setji »túlkun sína í
einstökum fræðilegum atriðum
ofar vilja alþýðunnar til sam-
einingar«. En það er einmitt
stjórn Alþýðuflokksins, sem hef-
ir krafist, þess að ákveðin fræði-
leg túlkun á lýðræðinu yrði sett
inn í stefnuskrána, þó henni
væri kunnugt um fyrir fram að
slíka túlkun gat Kommúnista-
flokkurinn ekki fallist á, þar
sem þessi kenning hefir orðið til
að granda lýðræðinu í hverju
landinu á fætur öðru. Kommún-
istaflokkurinn setti einmiitt ein-
inguna öllu ofar, og lagði til að
þessari fræðilegu túlkun, yrði
slept, í trausti þess að viljinn
væri fyrir hendi hjá báðum að-
ilum, til að finna. hina réttu,
lausn í sameiginlegu uppeldis-
starfi hins. sameinaða flokks.
Það er einnig- alrangt hjá
stjórn Alþýðusambandsins að
Kommúnistaflokkurinn hafi neit
að að starfa, á grundvelli laga
og þingræðis. Það gerir hann
nú þegar, eins og allir vita. Hins-
vegar neitaði nefnd Kommún-
istaflokksins að takmarka starfs
aðferðir hins sameinaða flokks
við það, sem borgaraleg lög og
þingræði kunna að fyrirskipa á
hverjum tíma, jafnvel þótt lög-
uinum og þingræðinu sé beitt
gegn meirihluta þjóðarinnar og
til að takmarka lýðræðið og u,nd-
irbúa afnám þess.
3) Þá er því haldið fra,m að
kommúnistar hafi krafist þess,
»að flokkur íslenskrar alþýðu
beiti skoðana,kúgu.n að fordæmi
ríkjandi flokka í einræðislönd-
um«, þó ein af kröfuim. Komm-
únistaflokksins væri: Skoðana-
frelsi innan ramma stefnuyfir-
lýsingar hins sameinaða flokks.
— Hinsvegar gefur að skilja að
sósíalistískur flokkur getur ekki
leyft skoóanafrelsi innan flokks-
ins fyrir májsvara spellvirkja,
fyrir andstæðinga sósíalismans
og afturhaldsmienn, jafnvel þó
þeim finnist hagkvæmt að kalla
sig sósíaJista,. — Þegar litið er
á aðrar kröfur af hálfu stjórn-
ar Alþýðuflokksins verður því
útkoman þessi: Innan hins sam-
einaða flokks mega ekki vera
menn með kommúnistískar skoð-
anir, hinsvegar mega vera þar
f jandmenn komimúnismans.
Kommúnistaflokkurinn mun
nú leggja, enn meiri áherslu á að
sameina raðir yerkalýósins en
nokkru sinni fyr. Framkvæmda-
ráðið vill enn einu sinni endur-
taka ósk sína um að verkalýðs-
flokkarnir taki upp samstarf
utan þings og innan, til að leysa
hin mest aðkallandi mál verka-
lýðsstéttarinnar, tij að sameina
hin klofnu verkalýðsfélög og tii
að tryggja sameiginlegan sigur
verkalýðsins í bæjarstjórnar-
kosningunum, sem fyrir dyrum
standa. — Hann er ennfremur
á hverri stnndu reiðubúinn til
að halda áfram. saminingum um
sameiningu flokkanna, og mun í
þeim samningum ta,ka. fult tillit
til allra heilbrigóra tillagna og
óska, af Alþýðuflokksins hálfu, —
eins og hann hefir reynt af
fremsta, megni að koma' til móts
við Alþýðuflokkinn í þessum
samningum. — Þrátt fyrir hina
sorglegu afstöðu núverandí
meirihluta sambandsstjórnar Al-
þýðuflokksins, veit Kommúnista-
flokkurinn að mikill meirihluti
Alþýðuflokksins vill eininguna.
Framkvæmdaráðið óskar þess af
alhug, að þing Alþýðusambands-
ins, sem kvatt hefir verið sam-
an í þessum mánuói, megi bera
gæfu, til að ryðja ölluiin. hindr-
unurn fyrir einingunni úr vegi«.
Útbreiðið
Þjóðivljann!
Kommúnistaflokkttr íslands;
Kynningarkvöld.
Reykjavíkurdeild K. F. I. efnir til kynningarkvölds
í K. R.-húsinu uppi í kvöld, klukkan 8,30
Þangað hefir verið boðið ýmsum stuðningsmönnum
flokksins auk flokksfélaga, sem mæta þar.
Dagskrá:
1. Upplestur: Jóhannes úr Kötium.
2. Erindi: Stefna og hlutverk Kommúnista-
flokksins. — Umræður.
Félagar! Komið og takið með ykkur gesti.
Deildarstjórniii.
f— ------—%
Sími 1195 Sími 1195
Hringið í
eí yður vantar bifreið
BIFREIÐASTÖÐUX .IIRINUI
við Óðinstorg
Sími 1195 Sími 1195
------------------------------J