Þjóðviljinn - 29.03.1938, Síða 4

Þjóðviljinn - 29.03.1938, Síða 4
as IXÍý/ð rí>io ss Lloyds í London Söguleg stórmynd frá Fox- félaginu. — Aðalhlutverkin leika: MADELEINE CARROLL og TYRONE POVERS. Síðasta. sinn. Næturlæknir í nótt. er Sveinn Pébursson, Garðastræti 34, sími 1611. Næturvörður í Ingólfs- og Laugavegs apó- teki. Útvarpið í dag 8.45 Dönskukensla. 10.00 Veðurfregnir. 12,00 Hadegisútvarp. 15.00 Veðurfregnir. 18.45 Þýskukensla. 19.10 Veðurfregnir. 19.20 Þingfréttir. 19.40 Auglýsingar. 19.50 Fréttir. 20.15 Erindi: Berklaveiki og berklavarnir á heimilum, II. (Sigurður Magnússon prófes- sor). 20.40 Hljómplötur. Létt lög. 20.45 Húsmæðratími: Inniend- ar fæðutegundir, II (ungfrú Sigurborg Kristjánsdóttir). 21.05 Symfóníutónleikar: a) Tónleikar Tónlistarskólans b) (21.45) Tónverk, leikin undir stjórn frægra hljóm- sveitarstjóra (plötur). Ríkisskip Esja var væntanleg til Þórs- hafnar kl. 7 í gærkvöldi. þlÓÐVILIINN Hérmeð tilkynnist ættingjum og vinum, að ekkjan María Gisladóttir andaðist að heimili sínu Grjótagötu 14B laugardaginn 26. þessa mánaðar. Vilhelmína Jónsdóttir. Alfreð Þórðarson. Theodóra Eyjólfsdóttir. Skipafréttir Gullfoss er á leið til Leith frá Kaupmannahöfn, Goðafoss er í Reykjavík, fer tíl útlanda annað kvöld. Selfoss er á útleið, Lagar- foss er á útleið frá Seyðisfirði, Brúarfoss er í Kaupmannahöfn Dettifoss er í Reykjavík. Drotn- ing Alexandrine fór í gærkvöldi til útlanda. Verkakvennafél. ,Framsókn‘ heldur fund í kvöld (þriðjud.) kl. 8J í Alþýðuhúsinu við Hverf- isgötu. Verða þar m. a. kosnir fulltrúar á Alþýðusambands- þing. Prentarinn blað H. 1. P. er nýkomið út. Flytur blaðið minningargreinai um Jón Baldvinsson og eftir- mæli. Firðritinn mars-apríl 1938 er nýkominn út, og flytur að vanda margar fróðlegar greinar. Er í þessu hefti m. a. nákvæm skrá yfir allar útvarpsstöðvar í Evrópu, er senda á yfir 173 mtr., greinar umi símamálaráðstefnuna í Kairo, Sæbjörg og Öðinn, veð- urfréttir o. m. fl. Póstferðir á morgun Til Reykjavíkur: Mosfells- sveitar, Kjalarness, Kjósar, Reykjaness, ölfuss cg Flóapóst- ar. Hafnarfjörður. Seltjarnar- nes. Laxfoss frá Borgarnesi og Akranesi. Norðanpóstur. Aust- urrBarðastrandarpóstur. Búðar- dalspóstur. Snæfellsnesspóstur. Frá Reykjavík: MosfelLssveit- ar, Kjalarness, Kjósar, Reykja- ness, Ölfuss og Flóapóstar. Hafn arfjörður. Seltjarnarnes. Goða- foss til útlanda. >Bláa kápan« var leikin á sunnudaginn kl. 3 við húsfylli. Næst verður leikið annað kvöld kl. 8. Að- göngumiðar seldir í dag í Iðnó frá kl. 4—7. »Fornar dyggðir« verða leiknar í 16. sinn í kvöld kl. 8 stundvíslega. Aðgöngumið- ar seldir eftír kl. 1. Frá kl. 3 verða aðgöngumiðar seldir með venjulegu leikhússverði. Skóviðgerðir. Sækjum — sendum. Fljót afgreiðsla. Skóvinnustofa Jens Sveinssonar Njálsgötu 23, sími 3814. Schuschnigg verður dreginn lyrir dóm vegna þess að hann lét morðingja Dolfuss ekki sleppa LONDON 1 GÆR (FO). 1 dag var tilkynt í Berlín að dr. Schuschnigg myndi verða kærður um að hafa ætlaö sér að falsa þjóðaratkvæðagreiðsluna, sem fram átti að fara 13. mars, og ennfremur mundi hann verða talinn bera ábyrgð á dauða Otto Planetta, manns þess, sem tek- inn va,r af lífi fyrir morðið á Dolfuss, þar sem Schuschnigg var dójmsmálaráðherra um þær mundir. Mál Schuschniggs verð- ur látið koma fyrir Ríkisréttinn í Leipzig. Framsóknarmaður á Borðeyri grípur til hryðjuverka. 22. f. m. er Brúarfoss var að taka freðkjöt á Borðeyri bar það til að ölvaður framsóknarmaður, Bjarni Pétursscxn að nafni, vék sér að einum verkamann- anna Ólafi Þórðarsyni bónda í Hrefnudal og sló hann, vegna þess að hann hafði lýst því yfir að hann (Ölafur) væri lcomm- únisti. Ólafur fékk heilahrinst- ing við höggið og blæðingu inn í höfuðið. Sagði læknirinn að litlu hefði mátt muna að hann hefði dauðrotast. Hefir hann ekki náð sér enn og er nú kom- inn til bæjarins til þess að leita tsér lækninga. Æ. GambrSio % An (lóms og laga. Stórkostleg og mjög fræg mynd frá MetroGoldwyn Mayer, tekin undir stjórn kvikmyndatökusnillingsins Fritz Lang. Aðalhlutverkin leika af framúrskarandi snild Sylvia Sidney og Spencer Tracy. Börn fá ekki aðgang. RETKJAVfKUKANNÁLL H.F. Kevyan „Fnrnar lgir“ í kvöld kl. 8 atundvíslega í Iðnó. 16. SÝNING Aðgöngumiðar seldir frá kl. 1. Eftir kl. 3 venjulegt leikhúsverð. Frá kl. 3 daginn, sem leikið er verður venjulegt leikhús- verð. Hljómsveit Reykjavíkur. »Bláa lapai- (Tre smaa Piger). verður sýnd annað kvöld kl. í Iðnó. Aðgöngumiðar seldir í Iðnó kl. 4—7 í dag og eftír kl. 1 á morg- un, — Sími 3191. Vieky Baum. Helena Wiltfuer 81 Helena, hleypur upp á herbergi ,sitt, — hún er alveg frávita af gleði, hendir sér upp í rúmið, hlær og græt- ur. Rís upp og stendur fyrir framan spegilinn, greið- ir hárið niður á ennið, upp frá enninu — tekur einn kjólinn eftir annan fram úr fataskápnum og hendir þeim aftur inn. Loks stendur hún nakin fyrir fram- an spegilinn, starir á mynd sína, og kastar yfir sig baðkápu í skyndi, er Tinti'n kemur æðancli inn. Hún rýkur á Tintin, varnarlausan og undrandi, þrýstir honum fast upp að sér, kyssir hann á höfuð, háls og sólbrúna handleggina, er bera keim af sjó og seltu. »Því, læturðu svona Malí? Ertu orðin galin«, segir Tintín alvarlega, og ryðst burt úr faðmi móður sinn- *r. — »Nei. nei, Tintin —«, segir Malí með blossandi kinnar. Hún er þrjátíu og tveggja ára. Hún hefir alla S’ína æfi verið einsömul. Hún hefir enn ekki kynst ástinni, nema. í mynd hinnar fjarlægu og fálmandi æskuásta. Hamingjan hefir enn ekki orðið á leið hennar, en nú á hún í vændum' fjórtán langa daga, þrungna tak- markalausri hamingju. En Ambrosius? * * Það byrjaði þannig að Ambrosius varð óþarflega tíðlitíð á úrið sitt. Stundirnar sem þau Helena voru saman liðu svo fljótt, en þær stundir sem hún var hvergi nærri, ætluðu aldrei a.ð snigíast áfrarn. Stund- um er þau sátu saman og hún var á kafi í einhverj- um hávísindalegum skýringum1, tók hún eftir því að hánn starði á andlit hennar eins og í leiðslu, — þá þagnaði hún og roði færðist yfir sólbrenda. andlitið. og hjartað sló hraðar. Ambrosiusi þótti vænt um að hann skyldi þekkja.. í svip drengsins helstu drættina úr svip móðurinnar, Tintin átti sömu skapfestuna, sama hláturinn, sama frjálsmannlega fasið. Þegar Helena fanst ekki, voru þeir Tintin saman, og Ambrosi.us varð altaf glaður og rólegur þegar hann hélt litlu barnshendinni i stóru hendinni sinni. En brátt varð það svo, að þau Helena skiidu vart, allan daginn, en auðvitað var Tin- tin altaf með þeim, auðvitað g'átu þau ekki. koanið orðum að því, sem þau vildu sagt hafa, en með hverj- um degi. bundust þau traustari og innilegri vináttu- böndum. Dýrðlegir dagar! Þau fóru saman í sjóinn, lágu tímum saman í sólbaði á heitum kletiunum, borö- uðu saman, og fóru öll saman í akemtisiglingar með Allesandro, Þau gengu upp til kapellunnar á hæðinni, en þaðan sást yfir alla borgina og út á hafið, og störöu í leiðslu á heiðbláma liimins og hafs--- Ambrosius tók í hönd Heler.u, — þau sátu þarna Þau gengu þegjandi heim. Tintin fór í rúmið, og Ambrosius borðaói einn þetta, kvöld. Eftir kvöldverð sat hann lengi á steinbekknum sín.u,m og horfði út til stapans, en þar var enginn í, kvöld. Hann fór heim í herbergi sitt, út á svalirnar og hlustaði árangurs- laúst eftir rödd hennar. Það var dauðaþögn og dimt í herberginu hennar, og Ambrosius reyndi að hugga sig við góðan vindil. 1 dimma herberginu sat Helena með hendurnar spentar um hnén, og þorði varla að anda. Henni fanst rem á hverri stundu gæti eitthvað stórkostlegt gerst, eitthvað óvænt, eitthvað-----. Daginn eftir hittust þau aftur við morgunverðarborö- ið, og spjölluðu saman um aðferðir við blóöflokkaá- kvarðanir, en um það efni hafði'verið skrifað í s,íð- asta hefti »Læknablaðsins«. Þannig fóru þau kringum það sem aðalatriðið var, en vísindakeimurinn að viðræðum þeirra fór þó óð- um þverrandi. Hálfur mánuður er langur tími, ef vel er m'eð hann farið. Tvær manneskjur geta sýnt hvor annari alla sína æfi á fjórtán dögum, ■— upphafið, leiðina, takmarkið, alt. Þau höfðu frá mörgu að segja, og skildu nú fyrst hvort annað. En öðru hvoru komu þagnirnar, er samtal þeirra spannst, í bláþræði og eyddist, og þau gátu nærri heyrt hin hröðu hjarta- slög sín, er dæla blóðinu svo fast um líkamann, að maður finnur til þeirra í hverri æð---- uppi á hæðinni, en í augnabliks hra:ðslu við það er verða kynni. kallaði Helena á Tintón, — hann var að' tína sér fjólur skamt frá.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.