Þjóðviljinn - 02.04.1938, Side 1
* ifc
3. ÁRGANGUR
LAUGARD. 2. APRÍL 1938
77. TÖLUBLAÐ
Verkfall á flatniagaskipea-
nm rofir yfir nú á næstaisi.
Samninpt rnnnn ðt i gærog hda ehki náðst að nýjn.
Stjörnarlið- m
ið i sðkn ¥ið Lerida
Allt startsfólb skipanna stendir f deilinni
Eins og kunnugt er, sögðu
sjómenn, kyndarar, loftskeyta-
menn, stýrimenn, vélstjórar og
þjónar upp samningum þeim,
sem gilt höfðu við Eimskipafé-
lag íslands og Skipaútgerð rík-
isins. Samningar þessir runnu
út í gær og hefir ekki ennþá
tekist að semja milli deiluað-
ila. Má því búast við að verk-
fall hefjist á flutningaskipun-
um strax er þau koma til hafn-
ar hér í Reykjavík, ef samning-
ar takast ekki fyrir þann tíma.
Gullfoss er væntanlegur í
kvöld og Esja á morgun.
Samningaumleitanir hafa
undanfarna daga farið fram
milli deiluaðilanna, en þrátt
fyrir marga fundi og mikið þóf
hefir enn ekki náðst samkomu-
lag um málið. Eftir því sem
sáttasemjari ríkisins í vinnu-
deilum skýrði blaðinu frá í gær
hafði formaður samninga-
nefndar, þeirrar er hefir með
málið að gera af hálfu Eim-
skipafélagsins leitað til hans
um sættir milli stýrimanna og
útgerðarmanna.#
Um önnur atriði deilunnajr
kvaðst hann ekki hafa verið
beðinn um að koma með neina
málamiðlun.
Benda því allar líkur til þess,
að tæplega verði búið að semja
um mál allra deiluaðilanna fyr
en eftir nokkurn tíma, ef samn-
ingar nást á annað borð.
,Evrópa er hernaðarvél
sem er að því komin að
iaka til siarfa'
— segir Hoover fyrv. forseti.
LONDON í GÆRKV. FU.
Hoover, fyrverandi Banda-
ríkjaforseti, er kominn til New
York úr för sinni til Evrópu. í
dag flutti hann ræðu fyrir utan-
ríkismálanefnd Nevv York rík-
HOOVER
is og sagði þá m. a. að Evrópa
væri ekkert annað en hernaðar-
vél, sem að því væri komin að
taka til starfa. Hann sagði enn-
fremur, að það væri almenn
fekoðun í Evrópu, að Bandarík-
in hlytu að dragast inn í næstu
Evrópustyrjöld, en gagnvart
þessu sagðist hann vilja leggja
áherslu á það, að Bandaríkin
yrðu að halda frið við einræðis-
ríkin í Evrópu engu síður en
lýðræðisríkin.
Stjórnin i Mexiko
gerir ráðstafanir til
að losna við olíu-
hringana að fullu.
LONDON I GÆRKV. FU.
Mexikanska stjórnin hefir á-
kveðið að verja vissum liluta af
tekjum olíunámanna tii þess að
greiða hinum fyrverandi eig-
endum fyrir réttindi þau, sem
þeir hafa verið sviftir með
eignarnáminu.
Auk þessa hefir stjórnin á-
kveðið að taka innanríkislán til
Upprelsnarmenii reyndin að taka
borgina fi gser en mistékst pað alveg
EINKASKEYTI TIL ÞJÓÐVILJANS KHÖFN í QÆRKV.
STJÓRNIN I BARCELONA tilkynnir að lýðveldisherinn
hafi unnið mikinn sigur á hersveitum uppreisnarmanna
við Lerida.
I dag gerðu uppreisnarmenn örþrifatilraun til þess að ná
borginni á vald sitt. Studdu þeir sókn sína með flugvélum og
skriðdrekum, en urðu að hröklast undan fyrir hersveitum
stjórnarinnar, enda hafði þeim borist 15000 manna liðsauki.
Sijórnin sigror við GuGdalajara og eruel ,
Stjórnin tilkynnir ennfremur að hersveitir hennar vinni
á I grennd við Teruel og hafi þær sótt fram um 6 kmi. í dag
í áttina til Abarracia. Áþessari leið vann stjórnarherinn ýmsa
bæi sem hann hefir ekki áðurhaft á valdi sínu síðan styrj-
öldin hófst. Þá tilkynnirstjórnin einnig sigurvinninga á
Guadalajara-vígstöðvunum.
„E! við getom varfð
Leiída f dag getim
vii varlð hana
eidalaut'
LONDON í GÆRKV. FU.
Yfirforingi stjórnarliðsins í
Lerida sagði við fréttamann frá
Reutcn-fréttastofunni í dag:
„Ef vér getum ;haldið uppi
vörninni þangað til á morgun,
þá getum vér haldið henni á-
fram endalaust, því að oss hef-
ir verið lofað hjálp, sem á að
komö í kvöld“. En þegar þessi
orð voru töluð, sást ekki til
neinna hjálparsveita, segir tjð-
indamaður Reuters.
Fimm þúsund stjórnarliðar
hafa nú flúið yfir landamærin
til Frakklands. Peir segjasthafa
neyðst til að flýja vegna skorts
á skotfærum, en þeir muni
hverfa aftur og verða þeir sem
það vilja, sendir aftur til Barcc-
lona.
/----------------------------
þess að gr-eiða hinum fyrri eig-
endum fyrir réttindi þeirra..
Svo er að sjá, sem Banda-
ríkjastjórn ætli að gera sér að
góðu að þetta eignarnám fari
fram þar sem þegnum hennar
er boðin greiðsla í stað rétt-
inda sem þeir hafa mist.
FRÉTTARITARI.
COMPENYS
forseti Kataloníu..
Hlutleysisnefndin
þœfir Spánarmálin.
LONDON í GÆRICV. FU.
Á fundi hlutleysisnefndarinn-
ar, sem haldinn var í London í
gær, var samþykt með meiri
hluta atkvæða, að veita báðum
stríðsaðilum á Spáni hernaðar-
réttindi þegar 10 þúsund sjálf-
boðaliðar hefðu verið fluttir á
brott frá Spáni úr liði hvors
um sig. Bretar, Frakkar, Pjóð-
verjar og ítalir hafa fallist á
þessa tölu, en Rússuin finsthún
of lág.
Þá var einnig rætt um gæslu-
starf við landamæri Spánar og
þeirra landa, sem að því liggja.
Plymouth lávarður skýrði frá
masesm^ssaBBmamBammmtam
I Haraldur Guð-
\mundsson kos-
inn forseti sam-
einaðs þings.
Fundur í sameinuðu þingi
í gær hófst með forsetakosn-
ingu.
Var Haraldur Guðmunds-
son, þingmaður Seyðfirðinga,
kosinn forseti Sameinaðs
þings með 26 atkvæðum, 17
seðlar voru auðir.
Rússneskur
flugmaður
reynir að finna
Levanevski.
EINKASK. TIL ÞJÓÐV.
MOSKVA í GÆRKV.
I gær flaug heimskautsflug-
maðurinn Mosjkoffski frá
Rudolíseyju til þess að leita að
leiðangri Levanevskis, sem
týndist í Norðurvegi í fyrra
sumar.
Mosjkoffski flaug í áttina til
norð-austur-odda Grænlands,
þar sem talið er líklegt að ísrek
kunni að hafa borið flugvélina
á þær slóðir.
Moskoffski flaug nokkuð yfir
ísnum á þessum slóðum og lenti
aftur í Rudolfseyju eftir 9
stunda flug, án þess að hafa
orðið nokkurs var um Levan-
evski.
FRÉTTARITARI.
því, að innan skams yrði að
leg'gj3 niður alt gæslustarf
neina eitthvað breyttist. All-
margir meðlimir hlutleysis-
nefndarinnar hafa ekki greitttil-
lag sitt til viðhalds gæslustarf-
inu, þar á meðal Bretland.