Þjóðviljinn - 20.04.1938, Blaðsíða 2
Miövikudaginn '20. apríl 1938
t. . íLJINN
j Verkamannabréf |
Þræíalaga-
frumvörpin
Það sem ég vildi gera hér
að umtalseíni, er eitt ákvæði
þrælalagafrumvarpanna, sem sé
bann við skyndiverkföllum, eða
sjö sólarhringa fyrirvarinn, sem
í flestum eða öllum tilfellum
þýðir, að ekki er hægt að knýja
frami kröfuij4 verkamannanna
með verkfalli.
Mörg af þeim verkföllum,
sem háð hafa verið og unnizt
5 verkamannafélaginu Dags-
brún, hefðu tapazt, hefði átt
að tilkynna þau með sjö sólar-
hringa fyrirvara. Petta er hægt
að sanna með fjölda dæma, en
þess gerist ekki þörf, verka-
mönnum og öðrum eru þau
svo kunn.
Árið 1923 var borið fram á
Alþingi, af Bjarna frá Vogi,
frumvarp um gerðardóm í
vinnudeilum, og var þá uppi
totur og fit í verklýðsfélögum
bæjarins og víðar, um að mót-
mæla gerðardómsfrumvarpinu
með fundahöldum í félögunum
og skorað á þingménn að mæta
á fundunum, en það fór sem
oítar, þegar þingmenn ætla að
herða hungurólina að verka-
mönnum, og skorað er á þá að
standa fyrir máli sínu, að þeir
þora það ekki, enda fór svo í
þetta skipti, að enginn mætti,
utan þáverandi þingmaður
Mýramanna, við lítinn orðstír.
En tímarnir breytast og menn
irnir með, því að nú er kom-
inn nýr þrælalagahöfundur, sem
heitir Sigurjón Á. Ólafsson, for-
maður Sjómannafélagsins í
Reykjavík, og hefði það nú ein-
hverntíma þótt ótrúleg saga.
Þess vegna ætti nú Sigurjón
greyið Ólafsson að bjóða sjálf-
um sér, ásamt öðrum þrælalaga
höfundum á Sjómannafélags-
fund og ræða þar við félaga
sína um þessar nýju kjarabæt
ur, sem hann ætlar að berjast
fyrir, líklega eins og tíl nokk-
urskonar uppbótar á síldarprem
íu undanfarinna ára.
Ég býst nú við, að sjómenn
jafnt sem verkamenn, skoði þá
menn ekki sem sína íulltrúa,
sem eru viðriðnir slík þræla-
frumvörp, sem svifta verkalýð
jafnt til sjós og lands þeim eina
rétti, sem þeir hafa til að bæta
kjör sín.
Það er ekkert betra, þó að
maðurinn heiti Sigurjón Á. Óf-
afsson óg hafi nýverið hrökl-
ast út úr Alþýðuflokknum fyr-
ir þjónustu sína við atvinnurek-
endur, og mun enginn blessa
hans minningu þar, og sízt fyr-
ir afskipti hans af þrælalagafrv.
Það var alveg óhætt að lofa í-
haidinu að hafa heiðurinn af
þessu máli.
Enda mun verkalýður íslands
þegar fram líða stundir minnast
þeirra manna, sem viðriðnir
hafa verið þetta óþverramál,
hvort sem það eru íhaldsmenn,
framsóknarmenn, eða fyrver-
andi Alþýðuflokksmenn.
Enda þó að þetta frumvarp
yrði samþykkt, verður aldrei
hægt að framfylgja lögunum.
Það segir mín reynsla mér af
verklýðsmálum, öll þau ár, sem
ég er búinn að vera hé’t í verk-
lýðshreyfingunni, að þá fyrst
stæði nú verkalýðurinn samein-
aður, þegar framkvæma ætti
svona þrælalög. Eða óska at-
vinnurekendur og Sigurjón Á.
Ólafsson nreð þeim, eftir endur-
tekningu á margumtöluðum 9.
nóvember? En við hverjuværi
að búast, þegar lagasmiðirnir
eru svona vitibornir, að taka út
úr eina stétt, vinnandi stéttina
og ráðast á hana með þrælalög-
um, sem aldrei mundi af þess-
um mönnum verða beitt við
nokkra aðra stétt í þjóðfélag-
inu.
Gamall verkamaður.
Fyrirspurn
Það er senr kunnugt er ein að-
alánægja vissrar tegundar af
»fínum frúmK< hér í bænum aö
bera út allskonar slúðursögur og
óhróður um starfsstúlkur þeirra.
Kona eins hát.tsetts starfs-
manns hefur upp á síðkastið
lagt sérstaka stund á að rægja
starfestúlku, sem unnið hefur
hjá henni og er kommúnisti, cg
breiðir út upplognar sögur um
hana..
Hvernig eiga starfsstúlkur að
verjast ærumeiðandi rógi slíkra
»frúa« se.m þessarar, sem; auð-
sjáanlega iðka þá list í frístund-
um sínum. að reyna að svifta fá-
tækar st.úlkur atvinnu og æru?
Verkakona.
Svar.
Þjóðóljinn mun birta nafn
viðkomandi »frúar«, ef hún ekki
iætur af uppteknum hættí.
Ritstj.
Þvi fáum við ebki
að byggja hús
Við verkamennirnir búum. í
slæmum hýbýlum. Kjallararnir,
gömlu timburhúsiin, skuggalegu
bakhúsin eni dvalarstaðir okk-
ar. Kaldir, rakasamir hjallar —
það eru vistarverurnar, sem við
verðum að bjóða konumi okkar
og börnum.
Og nú erum við atvinnulausir.
Iíendur c.kkar eru reiðubúnar,
til að byggja ný hús, gpð hús yf-
ir fjölskyldur okkar og annara.
Því fáum. við það ekki? — Eru
það nokkrir húsabraskarar sem
eiga að ráða því, hvort bygt er
eða ekki? Eða. er það þörfin fyr-
ir húsnæði, sem á að ráða, —
húsnæði, sem frelsar 1000 börn
í Reykjavík úr heiísuspillandi
íbúöum?
Okkur vantar hús — lieilsu-
samleg hús! Olckur vantar
vinnu! Þvi fáwm vid ekki að
vinna rið að byggja■ hús fyrir
okkur og aðra? B.
Iðnnámsfrom-
varpið rætt í
neðrt deild.
IðnráðiS mótmælir frnm-
varpina einróma
Iðnnámsfrumvarp. Jörundar
Brynjólfssonar var til umræðu
í gær í neðri deild. Þjóðvilj-
imi hefir áður sagt frá aðalinni-
haldi þess: Því, að reyna að
svifta sveinafélögin því valdi,
er þau nú hafa til að takmarka
nemendafjölgun í iðngreinun-
um, — og flytja valdið frásam
tökum iðnaðarmanna og til iðn
aðarnefnda Alþingis og ríkis-
stjórnarinnar.
Einar Olgeirsson andmælti
frumvarpinu mjög skarplega og
sagði m. a. frá því, að íðnráð-
ið í Reykjavík, sem skipað er
bæði fulltrúum meistara og
sveinafélaganna hefði einróma
mótmælt þessu frumvarpi. Jör-
undur reyndi að bera í bæti-
fláka fyrir það, Jón Pálmason
hrósaði því mjög — íhaldið
fann s'trax lyktina^!!) — en Em-
il Jónsson tvísteig.
1. umr. var lokið í gær, en
atkvæðagreiðsla verður í dag.
Fer málið vafalaust til nefnd-
ar.
Aflafréttir
í vikunni sem leið var góður
afli. Mestan afla höfðu þá: Vél-
báturinn Von 112 smálestir,
sem er mesta veiði á bá(t í Eyj-
um á þessari vertíð — skip-
stjóri er Guðmundur Vigfússon.
Næstir urðu: Vélbátarnir Veiga
— skipstjóri Finnbogi Finnboga
son — og Ófeigur gamli —
skipstjóri Sigurður Sigurjóns-
son — hvor með 87 smálestir.
— Þessir þrír bátar fengu þenn
an afla[ í 6 róðrum.
í Húsavík byrjaði vertíð um
fyrri helgi. Allgóður þorskafli
var í vikunni þegar gaf á sjó
— mestur um 3000 kgr. á bát
í róðri.
í dag komu til Reykjavíkur
af veiðum Hafsteinn með 90
tunnur lifrar, Baldur með 107
tunnur, Max Pemberton með
161, Skallagrímurmeð 130 og
Hlaðafli var á marga báta úr
Brimir með 68 tunnur.
í vikunni sem leið var góður
Vestmannaeyjum í gær ogsum
ir tvísóttu í net sín.
(FO. í GÆR).
Ffokksfélaear
og aðrir lesendur!
Skiptið við þá, sem aug-
lýsa f pjóðviljanum, oglát-
ið blaðsins getið!
Á hverju liausti fara fram heræíingar í Danmörku, og hafaþær
færzt í aukana síðustu árin. Hér á myndinni sést einn af hin-
um léttu skriðdrekum danska hersins á ferðinni.
Danmörk að einangr-
asi frá Norðurlöndum?
Island veröur að athuga betur
utanríkismálastefnu sína
Stauning lætur ekkert tækifæri ónotað, til að lýsa andúð
sinni á hugmyndinni um varnarbandalag Norðurlanda. Það er
vitanlegt, að ástæðan til þessa er ótti dónsku stjórnarinnar við
pýzkaland. I stað þess að leita trausts sambands við þau ríki,
sem gætu verið Danmörku stoð gegn Hitlerríkinu, þá fylg-
ir Stauning pólitík undanhaldsins samkvæmt reglunni: heiðra
skaltu skálkinn svo hann skaði þig ekki.
Er þetta undanhald dönsku stjórnarinnar almennt um-
ræðu- og áhyggju-efni á Norðurlöndum. Nýlega ritar hið al-
kunna sænska borgarablað „Dagens Nyheter“ í ritstjórnar-
grein, að afstaða Danmerkur ásviði hervarnanna sé nú aug-
sýnilega uppgjöf. — Þannig sé Danmörk meir og meir að
fjarlægjast Norðurlöndin.
Stauning sér nú á kröfum Þjóðverja í Slésvík um sjálf-
stæði, hvert undanhaldið leiðir.
Fyrir ísland er nauðsynlegt að láta ei Danmörku draga
sig inn í samskonar aístöðugagnvart Þýzkalandi.
QKUNIÐ
efnasamsetningu tilbúna áþurðarins og hagið notkun hans eftir
því.
KALKSALTPÉTUR: 15°/o köfnunarefni og 28»/o kalk.
KALKAMMONSALTPÉTUR: 20.5<>/o köfnunarefni og um 33»/o
kolsúrt kalk.
BRENNISTEINSSÚRT AMMONÍAK: 20,6ob köfnunarefhi.
TRÖLLAMJÖL: 20,5% köfnunarefni og 60% kalk.
ODDAPERLUR: 20% köfnunarefni og 60% kalk.
TÚN-NITROPHOSKA: 14% köfnunarefni, 14% fosfórsýja,
18% kalí og 8—10% kalk.
GARÐA-NITROPHOSKA: 15% köfnunarefni, 15% fosfór-
sýra og 18% kalk.
STICKSTOFFKALKFOSFAT: 16o/0 köfnunarefni, 16% fosfór-
sýra og 35% kolsúrt kalk.
KALÍÁBURÐUR: 40% kalí.
BRENNISTEINSSÚRT KALÍ: 48— 50% kalí.
SUPERFOSFAT: 18% fosfórssýra.
BEINMJÖL:
HORNMJÖL:
ÁBURÐARKALK:
Aburðarsala ríkisins.