Þjóðviljinn - 05.06.1938, Síða 3
ÞJÓÐVILJINN
Sunnudaginn 5. júní 1938.
' . , l: : ;.
framtfðlmil að ver
barðtlnd
IMÖOVI IINH
Málgagn Kommúnistaflokks
islands.
Ritstjóri: Einar Olgeirsson.
Ritstjóm: Hverfisgata 4, (3.
liœð). Sími 2270.
Afgreiðsla og auglýsingaskrif-
stofa: Laugaveg 38. Sími 2181.
Kemur út alla daga nema
mánudaga.
Askriftargjald á mánuði:
Reykjavík og nágrenni kr. 2,00.
Annarsstaðar á landinu kr. 1,25.
1 lausasölu 10 aura eintakiö.
Vikingsprent, Hverfisgötu 4,
Sími 2864.
flíð ðða saðvafd
Það þjóðskipulag, sem þarf
á styrjöldum að halda, er villi-
mennska. .Sú yfirstétt, sem fer
með völdin í slíku þjóðskipu-
lagi, er sögulega dæmd til ei-
lífrar glötunar. En auðvalds-
skipulagið og burgeisastéttin
eru óhugsandi án styrjalda. —
Með öðrum orðum: Styrjaldir
eru í senn óhjákvæmileg af-
leiðing og tilveruskilyrði auð-
valdsins og burgeisastéttarinn-
ar. Aðeins hið sósíalistiska þjóð
skipulags jafnréttis og bræðra-
lags um allan heim, geturbund
ið enda á styrjaldir og aðra
villimensku hins borgaralega
þjóðskipulags.
Þetta er á síðustu tímum orð
in svo augljós staðreynd, að
jafnvel blindir liljóta að sjá
hana.
Fram til þessa hefir hin
stríðsóða burgeisastétt settsinni
eigin vitfirringu nokkur tak-
mörk. I gildi hafa verið skráð
og óskráð alþjóðalög um, að
í styrjöldum bæri að hlífa ó-
vopnuðum borgurum. Morð á
varnarlausu fólki, konum og
börnum, hafa verið talin leif-
ar fornaldar villimennsku, sem
stæði langt neðan við virðingm
hinnar „vel menntu“ burgeisa-
stéttar nútímans, enda þótt milj-
ónamorð á vopnuðum mönn-
um væru öðru fremur talin
hetjudáð og drengskapur meðal
„menningarþjóða" nútímans.
Við sjáum að minsta kosti,
að um var að ræða nokkra tak-
mörkun á villimenskunni, þó
að fjarri færi því, að hún væri
afnumin.
En með uppkomu hins síð-
asta afkvæmis kapítalisma og
burgeisastéttar, fasismanum, eru
allar slíkar takmarkanir fyrir
borð bornar.
Auðvaldsfasismi vorra daga
brýtur hvert boðarð siðmenn-
ingarinnar, afnemur mannrétt-
indi, kúgar land sitt og þjóð,
rýfur samninga, skipuleggur
uppreisnir með framandi þjóð-
um, ræðst með vopnum áönn-
ur lönd, myrðir hlutlausa íbúa
þeirra í tugþúsundatali.
Og hryllingu hlýtur það að
vekja með hverri óspilltri mann
veru, að lesa um það og heyra,
er skósveinar þýzka, ítalska og
japanska auðvaldsins dreifa
dauðanum úr loftförum sínum
Sjómannadagurinn er á morg
un. Blöðin keppast um að láta
í ljósi samúð sína með þessari
viðleitni sjómanna, sém mak-
legt er. Jafnvel Mogginn og út-
gcrðarmannafélagið gefa gripi
til verðlauna þennan dag.
Sjómannastéttin er svo mikil-
vægur þáttur í fslensku þjóðlífi,
og hefir lagt svo stóran skerf til
framleiðsíu landsmanna, að það
geta ekki talist neinar firrur, þó
að einn dagur á ári sé helgaður
henni.
Öll þjóðin stendur í þakklætis
skuld við sjómannastéttina og
hún mun vissulega ekki telja
eftir sér að minnast hennar á
þessum hátíðisdegi.
Manni finst þetta þó nærri
því furðuleg velvild frá þeim,
sem alla aðra daga ársins
standa öndverðir gegn hverju
hagsmunamáli sjómanna. Að-
standendur Morgunblaðsins,
sem á síðastliðnum vetri hikuðu
ekki við að stöðva togaraflot-
ann og svifta hundruð sjómanna
og fjölskyldna þeirra lífsbjörg
í þeim tilgangi, að koma fram
pólitískum og fjárhagslegum
klækibrögðum gegn ríkisstjórn-
\
yfir borgir 'Spánar og Kína,
sundra heilum borgarhverfum
tæta sundur þúsundir lifandi lík-
ama.
Hér er að verki æðisgengin
yfirstétt, sem er að ljúka hlut-
verki sínu á leiksviði sögunn-
ar — og finnur það sjálf, að
svo er. Hér er fasisminn að
verki. En fasisminn, það erekk-
ert 'einangrað fyrirbæri, ein-
skorðað við Þýzkaland eða It-
alíu. Fasisminn er auðvald á
ákveðnu þróunarstigi, hinn óði
kapítalismi,, sem örvæntir um
framtíð sína og tekur því upp
bardagaaðferðir villimannsins
og dýrsins. Fasisminn — það
er ekki aðeins Hitler, Musso-
lini og Míkadóinn, heldur líka
Halifax og Chamberlain, Ólaf-
ur Thors og Magnús Sigurðs-
son. Easisminn er alþjóðlegt
fyrirbæri, hann nýtur samúðar
og stuðnings hins alþjóðlega
afturhalds, livort sem er í Lond-
on eða París, Kaupmannahöfn
eða Reykjavík. Sameiginlega sið
ferðislega ábyrgð á hryðju-
verkum fasismans ber því þetta
alþjóðlega afturhald, hvort
sem það kemur fram sem
hreinræktaðir fasistaflokkar eða
í gerfi „lýðræðissinnaðra" í-
haldsflokka, eins og t. d. hér á
íslandi.
Þessu siðlausa afturhaldi,
þessu óða auðvaldí, verður sam
fylking allrar alþýðu að bægja
frá völdum og áhrifum í þjóð-
félaginu, ef menningu mann-
kynsins á að verða bjargað frá
glötun.
inn, erp nú allir eitt vinsemdar-
bros.
Atvinnumálaráðherrann, sem
í vetur átti þátt í því ásamt
flokksbræðrum sínum á Alþingi
að svifta sjómenn sjálfsagðasta
rétti sínum, réttinum til að ,á-
kveða sjálfir kaup sitt og kjör
cins og frjálsir menn, er nú
instur koppur í búri við þessi
hátíðahöld sjómannanna.
En vinsemd þessara manna
verður skiljanlegri þegar þess
er gætt, að ennþá er ekki Sjó-
mannadagurinn annað en hátíð-
iisdagur, að ennþá er hann ekki
orðinn baráttudagur, helgaður
baráttunni fyrir lífvænlegum
kjörum og auknu öryggi á sjón
um og við strendur landsins,
eins og hinn þarf að verða.
Á þessum degi er ekki fjarri
lagi að rif-ja upp aðbúnað vald-
hafanna að sjómannastéttinni og
meðferð trúnaðarmannasamtak-
\
anna á málefnum hennar.
Á síðasta þingi voru fyrir at-
beina Framsóknarflokksins og
þó einkum Jónasar frá Hriflu,
samþykt lög, sem heimila fækk
un kunnáttumanna á hverju
skipi og alveg sérstaklega á
smáskipum. Þessi fækkun hlýtur
að draga mjög úr öryggi skipa,
þar sem teflt er á tæpas a vaðið
með tölu þeirra manra erkunna
skil á skipstjórn og vélgæslu.
Allir sjómenn þekkja fram-
kvæmd laganna um eít'rlit meö
skipum. Dæmin um lélega og
jafnvel sviksamlega skoðun
skipa eru því miður alt cf mör^,
og alt of mörg þau sorglegu
slys, sem telja má að s^andi í
sambandi við slælegt eftirlit á
því sviði, tregðu valdhafanna
við því að framkvæma nægi-
legar öryggisráðstafanir við
strendur landsins, þarf ekki að
lýsa. J
Þá er öllum kunnug afskifti
Jónasar frá Hriflu af málum
síldveiðisjómanna, . sem munu
ef hann fær vilja sinn, rýra
tekjur sjómannastéttarinnar um
tugi og jafnvel hundruð þús-
undir króna.
Ennfremur mætti minna hér 1
á tilraun tveggja Framsóknar-
manna á síðasta Alþingi til að
draga nokkra daga af kaupi
livers sjómanns, með því að
afnema kaupgreiðslur eftir 30
daga mánuði.
Þessi dæmi, sem hér hafa
verið nefnd, nægja til þess að
sýna hversu gersamlega vald-
hafarnir eru skeytingarlausir um
kjör sjómannastéttarinnar, og
stundum er það ekki aðeins
| skeytingarleysi, heldur beinn
fjandskapur við hagsmunamál
þeirra, eins og gerðardómslög-
iin illræmdu frá síðasta Alþingi.
Að endingu nokkur orð um
samtökin.
Sjómannafélag Reykjavíkur,
sem fyrir nokkrum árum var
sá múr, sem allar Iaunaárásir
atvinnurekenda strönduðu á og
alltaf stóð í fylkingarbrjósti í
hagsmunabaráttu stéttarinnar,
er nú, undir forustu þeirra
manna, sem þar fara með völd
in, að verða sjómönnum vita-
gagnslaust.
Aumingjaskapur og úrræða-
leysi Sigurjóns Á. Ólafssonar
hefir þó aldrei komið jafnber-
lega fram og í deilunni síðast
liðinn vetur, þegar enginnfund
ur er haldinn í félaginu, fyren
flestallir sjómenn eru farnir úr
landi, og þá er settur hinn,
taxti, sem allir vissu að var
algerlega úl í loftið, og síðan
haldið að sér höndum og ekk-
ert aðhafst, engar nýjar leiðir
reyndar, þar til „hetjurnar“ fara
fram á það við Alþingi, að á-
kveða kaup sjómanna meðlög-
um.
Sama endurtekur sig nú.
Flestir sjómenn í landi, en eng-
inn fundur haldinn, þrátt fyr-
ir áskoranir fjölda sjómanna.
Sjómenn, er ekki kominn
tími til þess að sverfa þennan
dragbít af samtökum ykkar,
tími tii að gera félag ykkar að
því, sem það á að vera, og get-
ur verið, voldugustu samtök ís-
lenzka verkalýðsins?
Sjómannadagurinn er á morg
un. Þá sendir hver einlægur
verklýðsvinur ykkur hugheilar
kveðjur, með ósk um, að sjó-
mannadagurinn verði í framtíð-
inni baráítudagur framsækinn-
ar og sameinaðrar sjómanna
stéttar.
Björn Bjarnason.
HegfaismBaiiafélagfjfl Fáknr,
Kappreiðarnar 2. hvítasoimadag
verða áreiðanlega bezta og merkilegasta skemíun dagsins.
Hestakostur er í þetta sinn óvenjulega mikill og
glæsilegur. Fjöldi nýrra úrvalsgæðinga keppa,
auk landskunnra snillinga og hlaupagarpa. —
Kappreiðarnar hefjast kl. 3 stundvíslega. Tryggið
ykkur far í tíma.
STJÓRNIN.
Verkamannafélagið
Dagskrún
heldur fund í Iðnó þriðjudaginn 7. þ. m. kl. 8y2 e. h.
FUNDAREFNI:
1. Lagabreytingar.
2. Félagsinál.
Mætið stundvíslega og sýnið félagsskírteini við innganginn. 1
STJÓRNIN.
Upplestrarkvöld
P CI ■
mst
W
En Iilessllst”
leikrit eftir Kaj Munk.
Fimtudaginn þ. 9. júní kl. óy2 í Gamla Bíó..
\
Aðgöngumiðasala hefst á þriðjudag kl. 1 hjá K. Viðar.
Verð kr. 3.00. í
Aðeins þetta elna slnn.