Þjóðviljinn - 15.11.1938, Síða 2
Þriðjudagurinn 15. nóv. 1938.
PJOÐVILJINN
Björa Sígfússon,:
Vídsjá Þjóðvíljans 15« 11. '38
lenal Turbjabersip
tllðOVIUINN
Vtgefandi:
SameiniHgarflokkur alþýðu
— Sósíalistaflokkurinn —
Ritstjórar:
Einar Olgeirsson,
Sigfús A. Sigurhjartarson.
Ritstjórnarskrifstofur: Hverfis-
götu 4 (3. hæð), sími 2270.
Afgreiðslu- og auglýsingaskrif-
stofa Austurstræti 12 (1. hæð),
simi 2184.
Áskriftargjöld á mánuði:
Reykjavik og nágrenni kr. 2.00
Annarsstaðar á landinu kr. 1.50.
1 lausasöiu 10 aura eintakið.
Víkingsprent, Hverfisgötu 4,
Simi 2864.
Afvítmíleysíð.
Ekkert fyrirbrigði sannar bet-
ur hve ófært auðvaldsskipulag-
ið er orðið til að skapa fram-
farir og velmegun hjá mönnun-
um en atvinnuleysið. Það, að
þúsundum vinnufærra manna,
sem einskis óska frekar en að
fá að vinna, skuli vera neitað
um það, neitað að framfleyt*
sér og sínum, neitað að auðga
mannfélagið — það sýnir að
slíktskipulag, sem þessuveldur,
er óalandi og óferjandi, er
dauðadæmt. Orsakirnar liggja í
augum uppi: meðan atvinna er
aðeins rekin til þess að fámenn
auðmannastétt geti grætt' á at-
vinnurekstrinum, en ekki til
þess að auka heill fjöldans, þá
verða þúsundir að vera án at-
vinnu, ef auðmannastéttinni >
finnst það ekki borga sig að
reka atvinnuna og oft eykur
stjórnleysi hennar, skammsýni
eða getuleysi á það atvinnu-
leysi, sem er þannig eðlileg af-
leiðing auðvaldsskipulagsins.
Það hlýtur því að koma fram
hjá hverjum heilvita og velvilj-
uðum manni megnasta andúð
gegn annari eins óhæfuogat-
vinnuleysinu. Pað ætti ekki að-
eins að vera áhugamál þeirra
verkamanna, sem atvinnuleys-
ið bakar fátækt iog neyð, —
það ætti að vera skylda hvers
einasta manns að heyja með
þeim baráttuna gegn atvinnu-
leysinu. .
Þetta viðurkenna menn ogoft
í orði kveðnu. Fyrir síðustu
kosningar sagði Hermann Jóií-
asson forsætisráðherra í út-
varpsræðu: Það ætti ekki að
vera verkamannanna að biðja
um atvinnu, það er okkar að
kbma til þeirra og biðja þá
um að vinna. — Stjórnmála-
menn eru oft fljótir til að
gleyma því, sem þeir fegurst
mæla fyrir kosningar. — Verka-
menn koma nú daglega til rík-
isstjórnar Hermanns Jónasson-
ar og til bæjarstjórnar og biðja
um atvinnu — og fá nei.
En meðan verkamennirnir fá
nei, koma hálaunamennirnir til
ríkisstjórnarinnar og fá já. —
Dagsbrún fer fram á að ríkis-
stjórn 'Og bæjarstjórn bæti við
80—100 þús. kr. til að láta
vinna fyrir. Ríkisstjórnin bætir
sömu dagana 30—40 þús. kr.
í óþörf bankastjóralaun í Út-
vegsbankanum, svo ekki vantar
hana peningana. Ríkisstjórnin
hefur áreiðanlega sótt með
meira ofurkappi að koma tveim
mönnum á hálaun í óþörfum
embættum. en að útvega 1000
mönnum þarfa vinnu.
Ef bitlingamenn þurfa að
komast ,að jötunni, þá eru eng-
ar hótanir sparaðar, þá er unn-
ið af kappi, — en þó þúsundir
atvinnuleysingja líði neyð, þá
er ekkert gert.
Fornaldarharðstjóri er fallinn
í val, Kemal Tyrkjahersir er
dauður.
Alvaskur hersir er þýðingin
á Kemal pasha. Það er nafn,
sem hann ávann sér ungur og
bar um manndómsævi sína til
1934, þegar stórmennskugeggj-
un, sem snemma fenginn sjúk-
dómur og sonleysi áttu þátt í,
kom honum til að lögjeiða sér
nafnið Kemal Atatyrk, — Al-
vaskur Tyrkjafaðir. Sagan mun
synja honum þess naftis. En
sjálfur hafði Mustafa beðið ör-
lög sín annarrar bænar, þegar
hann stofnaði tyrkneska lýð-
veldið 1923 og afnam að fullu
soldáns- iog kalífa-nafn af æðsta
manni lands síns: Pashar hafa
verið frændur mínir, og vil ég
ekki bera hærra nafn en þeir.
Hitt vil ég þiggja, að þú látir
mig mestan með því nafni. —
Qæfa fylgir bæn Erlings Skjálgs-
sonar. Sagan hefur þegar veitt
Mustafa þá bæn.
II.
Hann fæddist 1881 og kembdi
ekki hærurnar. Tyrkir eru flest-
ir dökkeygir og svarthærðir.
Mustafa var Ijóshærður, augun
blá, skýr og köld, en maðurinn
í mikilúðlegra lagi.
í stað þess að verða prestur
Islains eins og móðir hansvildi,
fór hann í herinn og komst þar
vel áfram til valda sakir gáfna
og atorku. Hann fylgdi hreyf-
ingu „Ungtyrkja“, en var meiri
uppreisnarmaður en þeir flest-
ir. Hann samdi byltingarsinn-
aðar greinar og flugrit, jafnvel
fékkst við að yrkja, þótti hættu-
leguir valdhöfunum og var
varpað í fangelsi. En brátt
þurfti herinn á nýtum liðsfor-
ingja að halda, og hann fékk
frelsi. í styrjöldinni miklu var
hann sá, sem lagði á flest ráðin
um vörn Dardanellasunds fyr-
ir Bretum og barðist síðan á
Sýrlandi. Tyrkir komust í al-
gert þrot. Árið 1919 þóttust
Grikkir hafa ráð þeirra í hendi
sér og hófu ákaft stríð til land-
vinninga, brutu undir sig alla
vesturströnd Litlu-Asíu ogkom-
ust næstum til Ankara (Angora)
sem þá var að verða höfuðstað-
ur hins tyrkneska kotríkis. En
Kemal pasha hóf gagnsókn og
Og svo ætlar Framsóknar-
flokkurinn að telja fólki trú um
að með þessu framferði sé hann
að vernda álit lýðræðisi|ns í
landinu!
En verkalýðurinn hefur feng-
ið nógar sannanir fyrir Jrví, að
nægjr peningar eru til, til að
bæta úr atvinnuþörf hans. Bar-
áttan stendur um hvort yfir-
völdin vilja nota þá í skynsöm-
um, nauðsynlegum tilgangi eða
$em eyðálufé í bitlinga og þess-
háttar. Það er undir vilja ríkts-
stjórnar og bæjarstjórnar
komið, hvað gert verður nú í
atvinnuleysismálunum, — get-
an er auðsjáanlega fyrir hendi.
Verklýðssamtökin geta knúið
þann vilja fram, ef þau fylkja
liði sínu, skapa nógu sterksam-
tök á milli allra þei’rra verk-
lýðsfélaga, sem berjast vilja fyr-
ir atvinnu og brauði handa al-
þýðunni. E. O.
hrakti andstæðingana á haf út.
Síðan stofnaði hann tyrkneska
Iýðveldið og gerði úr því það,
sem það er.
Slik er í fám orðum saga
hans. Ekkert sambærilegt ligg-
ur eftir nokkurn samtíðarmann.
Því að Tyrkir 1919 voru ekki
sambærilegir við nokkra aðra
nútíðarþjóð. Þeir voru ekki rís-
andi menningarþjóð á tímamót-
um eins og Rússar til dæmis.
Þeir voru úrættuð stórþjóð, er
öldum saman hafði verið að
búa sig undir að deyja. „Sjúki
maðurinn“ var lengi uppnefni
Tyrkjaveldis á Vesturlöndum.
Og 1919 hefðu Tyrkir sætt sig
við það með góðu geðiað lúta
brezkri „vernd“. En 1922 var
Tyrkjaveldi eina óvinaríki
Bandamanna, sem var svo
sterkt, að það gat sjálft ráðið
friðarskilmálum sínum.
Á þessum þrem árum hafði
Kemal pasha afrekað þetta: 1)
rekið soldáninn úr sessi, 2) af-
numið „kalífadæmið“, 3) gert
Qrikki landræka (talsvert á 2.
milljón Qrikkja rak hann síðan
úr Litlu-Asíu, en fékk í stað-
inn nokkur hundruð þús. Tyrkja
sem búið höfðu á Grikklandi),
4) leikið á Englendinga, svo að
þeir stöðvuðu ófrið sinn á tyrk-
neskum svæðum, 5) náð friðar-
samningi (í Lausanne), sem var
hagstæðari en áköfustu þjóð-
ernissinnar Tyrkja höfðu haft
von um, 6) skipulagt lýðveldið
og þjóðþingi í Ankara, 7) orðið
forseti lýðveldisins. (Síðar varð
vald hans einræði).
Náttúrlega áttu fleiri menn
þátt í þessu. Stefnan var mörk-
uð af Ungtyrkjum áður. Vest-
urlandamenningin var kappsmál
þeirra samfara þjóðeflingunni.
Ósigur Qrikkja stafaði af flani
þeirra sjálfra og brigðmælgi
Bandamanna. Öfundsýki Banda-
manna innbyrðis gerði það
mögulegt, fyrir Ismet pasha,
hinn slungna erindreka Kemals
í Lausanne, nú forseta Tyrkja,
að halda Konstantínópel ásamt
öðrum þýðingarmiklum stöðum
Tyrkja í Evrópu og hindra, að
Grikkir fengju þumlung jarðar
á meginlandi Asíu. En án for-
ystu Kemals hefði varla orðið
um neina viðreisn að ræða í
svo skjótri svipan.
Því næst hóf hann siðaskipt-
in. Tyrkneska var stafsett ná-
kvæmlega eftir framburði og
latneskt stafróf tekjð Upp í stað
tyrknesks. Fezhúfan var bönn-
uð. Moskurnar voru margar
gerðar að kornhlöðum. Hvert
hús var sótthreinsað í Istam-
bul — hinni óþrifalegu, gullnu
stórborg, sem þangað til hafði
borið gríska nafnið Konstantín-
ópel. — Ankara var endurreist
sem glæsileg höfuðborg. Verzl-
un landsins var komið í tyrk-
neskar hendur að mestu (frá
Armenum og Grikkjum). Metra-
kerfi, vesturlenzkt tímatal og
|meira að segja vesturlenzk
kvenréttindi voru leidd í lög
og skapað yfirleitt nýtt laga-
kerfi og siðakerfi. Prestum og
helgidögum var fækkað, galdra-
bækur og töfrar forboðin, tekið
fyrsta reglulega manntalið í
Tyrkjasögu, fjölkvænið (kvenua
búrin) afnumið harðri hendi og
læknisrannsókn fyrirskipuð á
öllum, sem byrja hjúskap.
Af stórræðum Kemals í
seinni tíð er það frægast, að
versta kreppuárið, 1932, fékk
liann lán bæði hjá Rússum og
ítölum. Hvorugir hafa verið út-
falir á lán, þó að betur áraði.
En Kemal tefldi þeim hvonjm
gegn öðrum og ánetjaði báða.
Italir sækjast eftir hjálp Tyrkja
um austanvert Miðjarðarhaf, en
Rússar eiga útsigling sína úi
Svartahafi undir Tyrkjum. Á-
rás Mussolini á Abessiniu gerði
Kemal að óvini hans. Með
Rússum og Tyrkjum tókst sam-
vinna á Þjóðabandalagsfundum
og gott nábjdi við Svartahafið.
Víggirðingar Kemals síðan 1936
við Dardanellasund fyrirbyggja
innrás annarra þjóða í Svarta-
haf og voru taldar rússnesk-.
tyrkneskur stjórnkænskusigur
gagnvart Ítölum.
Balkanpólitík Þýzkalands síð-
asta árið nær að sjálfsögðu til
Tyrklands. Enn verður ekki séð,
hver árangur nazista verður
þar.
Seinustu árin dró Mustafa
Kemal sig meir og meir frá
störfum og bjó á stórbýli sínu,
þar sem flest var sniðið eftir
duttlungum hans í Btórmennsku
geggjuninni. Vatnsgeymir býl-
isins var t. d. náin eftirlíking
Marmarahafsins. Sagnaritun lét
hann hefja, er á að sanna, að
Tyrkland sé vagga allrar menn-
ingar. Kringum sig hafði hann
flokk hermanna og gamalla fé-
laga, spilaði póker, vann að
sjálfsögðu ævinlega, en heimt-
;aði að fá að skila vinningnum
aftur. Drykkjumaður var hann
lengst ævinnar og hófsmaður í
engu.
III.
Mustafa Kemal var óhemja í
eðli og sem einræðisherra lif-
andi komin tvrannos-týpan, sem
fyrst varð fræg, í strandbæjum
Litlu-Asíu fyrir rúmlega hálfu
þriðja þúsundi ára. Asía og
Norðurálfa mætast við Grikk-
landshaf nú eins og þá. Þróun
atvinnulífs er á ný á sömu
brautum og þá. Menningarbar-
áttan helzt með sömu þjóðum
og stéttum — síbreytileg, en
sama eðlis þó. Andstæður
skapa óhemjur, og þarna hafa
þær skapað harðstjórana fornu
og Kemal Atatyrk — ekki að-
eins þessa einstaklinga, heldur
þjóðlífsástæðurnar, sem hófu
þá til drottinvalda.
Fyrirbrigðið er auðvitað ekki
bundið við þessar slóðir einar.
Pétur mikli var t. d. samskon-
ar afkvæmi Austurálfu og Vest-
urlanda, sem mættust á byrj-
unarstigi byltingar í atvinnu-
háttum og menningu. Annars
eðlis eru foringjar fasista, af-
kvæmi helsjúks kapitalisma og
í þjónustu hans.
Ætt og uppvöxtur Mustafa
vitna um sumar andstæðurnar.
Hann fæddist í Saloniki, mestu
borg Grikkja, bláeygt Evrópu-
barn, en bastarður lítt skyldra
þjóðmenninga. Faðirinn var
tollþjónn, talinn albanskrar ætt-
ar, en móðirin, Zubeida, dóttir
makedónskrar konu og tyrk-
nesks bónda. Það er því ekki
rétt, að Mustafa væri tyrkneskr-
ar ættar nema að litlu leyti. En
hann varð alger Tyrki, því að
Zubeida ól hann upp, mikilhæf
kona eins og mæður flestra
stórmenna og varð snemma
ekkja. Mustafa fékk stjúpföður,
hataði hann og var síðan alla
ævi klofinn bæði af hatri og ást
til móður sinnar. Hún er eina
konan ,sem hann var trúr á
sinn hátt. Hann giftist 1923
Latifé Hanum, þekktri konu, en
skildi brátt við hana. Tvisvar á
yngri árum fékk hann móður
sína til að búa hjá sér, flýði
svo frá henni í bæði skiptin, en
þó dó hún seinast hjá honum.
Af hatri unglingsins leiddi
hatur Kemals pasha á öllu, sem
var að deyja í móðurþjóð hans, f
og flótta frá því, og enn heit-
ara hatur á Grikkjum og öllu,
sem skylt átti við stjúpföður-
heimilið. (Ödiposkomplex). Ást
hans til móðurinnar varð að
þeirri ást til móðurþjóðarinnar,
sem sameinaði óvenju klofna
orku þessa heljarmennis og ent-
ist honum eins og sagan sýnir.
Önnur orsök til ástríðna
Kemals var hinn ólæknandi
sjúkdómur, lönguin kvalafullur.
Margir hafa fyrir satt, að af
honum stafi ekki aðeins refs-
ingaköstin, eins og þegar hann
lúbarði (drukkinn) egipzka
sendiherrann í gestaboði sínu
fyrir það, að mæta með hina
forboðnu fezhúfu, — heldur
einnig umbótaköstin. Hann var
þá ekki aðeins að refsa öðrum
vegna æskuléttúðar sinnar,
heldur að hreinsa til með þjóð
sinni í stað beirrar sjúkdóms-
hreinsunar, sem ha;nn hefði
þráð að geta, gert í þjáðum lík-
ama sínum.
Það er táknandi fyrir harð-
stjórahlutverk Kemals, hve
mörg af verkum hans eru í
senn glæpur og óumflýjanleg
örlög. Tvennt skal nefnt. í
byrju.n vopnahlés 1918 þurfti
Tyrkjastjórn að kúga uppreisn
í Kúrdistan, austast í ríkinu.
Kemal var sendur, átti að upp-
götva frumkvöðlana og sveifla
þar sverði laganna. Hann fór
sér hægt að því, skipulagði og
útbreiddi í staðinn uppreisnina
og leiddi hana til sigurs eftir
tvö ár. Sagt er, að enginn hafi
oftar gerzt drottinsviki en
Mustafa Kemal, en ætíð í sam-
bandi við þjóðbaráttu sína. Eft-
ir banatilræði, sem honum var
sýnt 1926, lét hann handtaka
,alla helztu menn stjórnarand-
stæðinga. í því tilefni hélt hann
kampavínsveizlu á hinu ein-
manalega höfuðbóli sínu og
bauð öllum erlendum sendi-
I Ameríku er farið að tengja
graminófón við hraðamæli bíla.
Pegar hraðinn er orðinn 50 km.
heyrist þaðan:
Of hart í bænum. Erlu koininn
iupp, í sveit?‘‘
Við 75 km. er sagt:
Enn hefuröu valtl á bílnum. En
varaðu þig. Eru hemlarnir í lagi?“
Við 90 km. er sagt:
„Lífshætta. Hafðu augun hjá þért
Við 100 km. heyrist:
„Er slysatryggingargjaldið þi'tt
greitt?"
Loks segir við 120 km.:
„Hver er seinasta kveðjan, seni
við eigum að bera fólkinu þínu?**
**
Rússneski yngingalæknirinn frægí
Serge Voronoff er kominn nær sjö-
tugu, en vinnur stöðugt að heilsu-
verndarrannsóknum. Með yngingum
vill hann gera sem flesta 150 ára.
gamla.
Vanproska barna, andlegan sem
líkamlegan, telur hann stafa oft frá
ónógri skjaldkirtilsstarfsemi. Úr pví
bætir hann með pví að sprauta í
pau „heilaolíu“, sem hann kallar.
Það er skjaldkirtilsvökvi úr dýruni-
**
Amerikumaður stóð á gígbarmí
Vesúvíusar. ltalski fylgdarmaðurinn
hélt hann gæti nú loksins vakið
undrun hans og sagði
„Annað eins hafið pið pó aldrei
í Ameríku!“
„Nei, en slökkviliðið okka/ í New
York væri fyrir löngu búið að
slökkva pessa óveru og hefði ekki
purft riema 5 mín. til pess“.
*•
Sara Hyslop var nafntoguð kona
á sinni tíð. Hún pótti helduf en
ekki ásjáleg og tók sér pað hlut-
,'verk í líf'inu að trúlofast karlmönn-
um ,en sagði peim ætíð upp daginn
fyrir brúðkaupið. Petta var hefnd á
karlkynið, sem hún hataði til dauða,.
af pví að maður hafðii í fyrstu sagt
henni sjálfri upp.
Fyrir nokkru stytti hún sér aldur
í Nizza, 80 ára göinul. Kringum sig;
hafði hún þá breitt út fimmtíu
brúðarskrúða, sem hún hafði fengið-
um dagana, og engan notað.
**
Á Eistlandi andaðist fyrir stuttu
gildasta kona í heimi, Alvina Pad-
riks. Hún vó 708 pund. Lífi hennar
gátu læknar ekki bjargað, af því
að engin tök voru á að flytja hana
til sjúkrahússins né láta hana fá par
nógu breitt rúm. Banameinið var
nýrnaspik og of feitt gollurshús-
•*
Alvina var 49 ára og hafði verið
grönn á sinni tíð. Hún var veitinga-
kona, fékk taugaáfall um fertugt og,
fitnaði upp frá pví, unz hún liætti
að geta sinnt starfi sínu. Pá tók hún
að lifa af pví að sýna sig, löngum
erlendis, og fékk allt að 400 kr. á
dag. En dýrir urðu þá kjólarnir
hennar, pví að ekki veitti af 12 metr
H ' Þá.
**
í Kalíforníu er svo trúuð stúlka,
26 ára gömul, að hún hefur stungið
úr sér hægra augað og höggvið
vinstri höndina af sér.
Hún hafði nefnilega lesið skipun
biblíunnar, að ef hægra auga pitt
hneykslar pig o. s. frv. Nú hafði
hún sannfærzt um að auga sitt og
hönd hefðu syndgað, og pá var ekki
um að villast, hvers drottinn krafð-
ist.
herrum. í birtingu um rnorgun-
inn reikuðu þeir á heimleið yí-
ir hallartorgið eftir svallið. Þar
sáu þeir fangana dinglandi í
gálgaröð, meðal þeirra Djavid
Bey, bezta fjármálahöfuð
Tyrkja, og Arif ofursta, náinn
félaga Mustafa Kemals úr stríð-
inu við Grikki.