Þjóðviljinn - 13.12.1939, Page 1
IV. ÁRGANGUK.
MIÐVIKUDAGUR 13. DES. 193«
288. TÖLUBLAÐ
,Elnræðlsherrann‘ sýnlr
klærnar á Alþlngl.
Hcrmann Jónasson lýsfi þvi yfír í c, áA gær, ad hann
myndí cfekí fara cffír lö$um, cf samþyfefefar yrdu
brcyfíngar á rifeíslögreglunní, scm hann værí á mófí.
Meirí hlutí þíngmanna beygír sí$ I auðmýkt!
Finnlandsniálin rædd í
Pjðdabandamnfnu í fienf
Sovéfsfjórnín mófmælír fakmörkun
Brcfa á vöruflufníngum fif hluf~
lausra landa.
Ríkislögreglufrumvarpið var til 2. umræðu í gær í ed. AllsMerj-
arnefnd hafði klofnað um málið og meirihlutinn (Sigurjón og Ingvar
Pálma) gert breytingartillögur, sem áttu að takmarka kostnaðinn
við ríkislögregluna, þannig að hann mátti ekki fara fram úr meiru
en nemur y4 kostnaðar við hið regluiega lögreglulið. Átti þannig að
reyna að hafa ofurlítinn hemil á fjáraustri ,,hermálaráðherrans” og
halda að einhverju leyti fjárveitingavaldinu hjá Alþingi. Ennfremur
átti samkvæmt þessum breytingatillögum að fella burtu ákvæðið um
að ráðherrann mætti útbúa lögregluna og vopna eins og honum þókn-
aðist.
Þegar umræður liófust um þetta, gerðist sá atburður, sem enn
sem komið er, er einsdæmi í þingsögunni. HERMANN JÓNASSON
LÝSTI ÞVÍ YFIR AÐ HONUM VÆRI ALVEG SAMA, HVORT
ÞESSAR TILLÖGUR VÆRU SAMÞYKKTAR EÐA EKKI, HANN
FÆRI EKKERT EFTIR ÞEIM! Þrisvar sinnum tók ráðherrann
fram að hann myndi brjóta lögin ef þau yrðu samþykkt eins og
meirihluti nefndarinnar lagði til. I fyrsta lagi kvaðst hann myndi
brjóta ákvæðin um takmarkaða fjárveitingu, hann myndi eyða fé
eins og hann vildi. I öðru lagi kvaðst hann myndi br jóta ákvæðin um
„útbúnaðinn”, vojnia hana eins og hann vildi. Og í þriðja lagi Iýsti
hann því yfir, að nú þegar hefði hann brotið þau ákvæði, sem
væru í gildi, að fara yrði að tillögum bæjarstjórnar um lögreglu-
mennina, — hann hefði tekið sér valdið yfir ]»eim sjálfur, Jiegar
honum hefði þóknast.
FRÁ GENF.
SAMKVÆMT EINKASKEYTUM TIL ÞJÓÐVILJANS I GÆR.
Fundur Þjóðabandalagsins í Genf sendi í gær stjórnum Sovét-
ríkjanna og Ryti-stjórninni finnsku orðsendingu, og skoraði á þær
að hætta hernaðaraðgerðuin. Var stjórnunum gefinn 24 klst. frestur
til að svara spurningunni. Engin svör höfðu bori/.t frá sovétstjórn-
inni síðdegis í dag, enda hefur hún mótmælt réttmæti þess að fund-
ur Þjóðabandalagsins \æri kvaddpr sainan vegna Finnlandsmál-
anna.
Eftir þessar yfirlýsingar reis
Brynjólfur Bjarnason upp og sýndi
fram á hvað hér væri að gerast:
Ráðherrann hótaði að brjóta lögin,
«f þau væm ekki að hans skapi.
Skýrar gætu einræðistilhneygingar
ekki sýnt sig. Spurði Brynjólfur
hvort þingið ætlaði að láta bjóða
sér svona framferði. Spurði hann
sérstaklega allsherjarnefnd, hvað
hún segði um þessar yfirlýsingar
ráðherrans. Rakti hann svo hótan-
ir Hermanns, svo þær kæmu sem
skýrast fram í sögu þingsins.
Hermann stóð upp til þess eins
að lýsa þvi yfir að hann svaraði
engu. „Einræðisherrann” áleit sig
auðsjáanlega ekki ábyrgan gagn-
vart þinginu fyrir gerðum sínum.
Allsherjarnefnd þagði Auðmjúk-
ur beygði meirihluti þingmanna sig
og lét þessar hótanir framkvæmda-
valdsins gagnvart löggjafarvaldinu
óátaldar.
Síðan hófst atkvæðagreiðslan
Allar tillögur meirihluta allsherj-
arnefndar voru felldar. Flestar
með 9 gegn 6 atkvæðum. Voru
þeir Brynjólfur, Sigurjón, Erlend-
ur, Ingvar, Páll Zóf. og Bemharð
með breytingatillögunum, en aftur-
haldsliðið (íhald og hinir Fram-
sóknarmennirnir) drap þær allar
Síðan var ríkislögreglan samþykkt
til 3. umræðu gegn atkvæðum
Brynjólfs og Alþýðuflokksmann-
anna. Hafði Sigurjóni og Erlendi
ofboðið svo frekja Hermanns að
þeir greiddu atkvæði á móti öllum
igreinum frumvarpsins með Brynj-
ólfi og á móti því sjálfu, þó Al-
þýðublaðið hafi tekið eindregið af-
stöðu með þvi.
Þessi atburður í efri deild —
Framh. á 4. síðu.
Búnaðarfélag Jökuldalshrepps
samþykkti á fundi sínum 28. okt
eftirfarandi tillögu:
„Fundurinn skorar á Alþingi
það, er nú kemur samaii, að sam-
þykkja frumvarp það, um breyt-
Brezka sendiherranum í Moskva
var 10. þ. m. afhent mótmæli sov-
étstjórnarinnar gegn þeirri ákvörð-
un Breta að gera upptækar vörur
af þýzkum uppruna, hvar sem þær
kunna að finnast. Segir í mótmæla-
ingu á jarðræktarlögunum, er
Brynjólfur Bjarnason bar fram á
síðasta þingi”.
Formaður Búnaðarfélagsins er
Þorkell Björnsson á Skjöldólfsstöð-
Framliald á 4. síðu.
skjalinu, að þessi ákvörðun Breta
skerði réttindi og hagsmuni hlut-
lausu þjóðanna og muni sovét-
stjórnin hafa að engu fyrirmæli
brezku stjórnarinnar um eftirlit
með vöruflutningum hlutlausra
þjóða, og kveðst mun krefjast
skaðabóta fyrir hvert það sovét-
skip, sem tekið kunni að verða og
flutt til hafna í Bretlandi vegna
þessara ákvæða.
Síðasta hernaðartilkynning for-
ingjaráðs Leningrad-hemaðarsvæð
is er svohljóðandi:
„Sovéthermenn héldu áfram
sókn á vígstöðvunum í Finnlandi
11. des. Náði herinn á vald sitt
borginni Pitkiaranda á norður-
strönd Ladogvatns (aðalstöðvarbæ
járnbrautarinnar til Serdobol) og
þorpunum Siprola og Muurila .á
Viborg-leiðinni. Vegna skýjaþykkn
is hafði loftflotinn sig ekki í
frammi”.
I íinnskum fregnum er því inót-
mælt að Rauði herinn sæki fram,
og liafi finnski lierinn á nokkrmn
stöðum gert gagnárásir með góð-
um árangri.
Fréttastofan „United Press”
hefur sent út frétt um að fundizt
hafi á sovéthermönnum í Finnlandi
skjöl og kort, er sýni að Sovétrík-
in hyggi á „landvinninga allt að
Atlantshafsströndum”. Sovétfrétta
Framhald á 4. síðu.
Þormódur víll að
rífeísverfcsmíðj~
urnar feaupí
Rauðfeu,
EINKASKEYTI TIL ÞJÓÐVILJ
, SIGLUFIRÐI 1 GÆRKVELDI
Síðasta miðvikudag bar Þormóð
ur Eyjólfsson fram á bæjarstjórn-
arfundi tillögu um að bjóða Ríkis-
verksmiðjunmn Rauðku til kaups
fyrir 220 þúsmid krónur.
Svohljóðandi dagskrártillaga var
samþykkt með átta atkvæðum
gegn einu:
„Þar sem bæjarstjórn hefur ekki
áhuga fyrir að selja Rauðku og
ekkert kauptilboð liggur fyrir, sér
hún ekki ástæðu til að ræða það
mál og tekur fyrir næsta mál
dagskrá”.
Strax að loknum bæjarstjómar-
fundi hélt Þormóður fund og flutti
langa ræðu um Rauðkumálið fulla
i af ósannindum. Allir hinir flokk-
i amir lýstu yfir að þeir svöruðu
engu á fundinum, en almennur
borgarafundur vel auglýstur yrði
'haldinn næstu daga.
1 gærkvöldi var svo afar fjöl-
mennur borgarafundur í Bíó, Þor-
móður Eyjólfsson stóð einn gegn
öllum hinum flokkunum og fór
hina háðulegustu hrakför fyrir
svik sín við bæjarfélagið í Rauðku-
málinu.
Svohljqðandi tillaga var sam-
þykkt útaf atferli Þormóðs:
„Fundurinn skorar á stjórn
Rauðku og bæjarstjórn að láta
Framhald á 4. síðu
24 komnír í sfað 25, scmfóru, auk
miðsfjórnarmcðlímanna.
Samkvæmt upplýsingum frá skrifstoi'u Sósíalistafélagsins, höfðu
25 meim sagt sig úr félaginu í gærkvöldi, auk miðstjórnarmeðlim-
anna sex. Auk þessa hafa 10 menn sent fclaginu úrsagnir, sem ann-
aðhvort hafa aldrei gengið í félagið, eða búið var að strika út vegna
skulda.
Á sama tíma höfðu 24 menn sótt mn inntöku í félagið.
Þannig er sannleikuriim um hundraðaúi-sagnir Alþýðublaðsins,
sem þó voru ekki nema byrjun enn ákafari úrsagna, að frásögn blaðs
ins.
Búnadarfélag (ökuldals skorar á Alþinýí ad sam-
þykkja breyfíngafíllögu Sóslalisfaflokksíns víð
íardrækfarlögín.