Þjóðviljinn - 13.12.1939, Síða 3
ÞJÖÐVTLJINN
Miðvikudagurinn 13. desemb. 1939
Sex-menningnnnm svarað.
FRAMH. AF 2. SIÐU.
arinnar mundi réttlæta afskipti
erlendrar þjóðar af högum okkar,
sízt af öllu hernaðarleg afskipti.
Alveg er augljóst að þessi orð
verða notuð >sem vopn í höndum
þeirra manna, sem banna vilja
Sósíalistaflokkinn og er það alveg
furðulegt athugaleysi eða barna-
skapur, ef þeim Arnóri og félög-
um hefur ekki verið það ljóst.
Afsfaðan fíl Fínnlands-
málanna.
Vegna þessara getsaka sex-
menninganna er nauðsynlegt að
gera nokkra grein fyrir afstöðu
þeirra manna í miðstjórninni, sem
með engu móti treystu sér til að
verða við þeirri kröfu að taka und
ir með kórsöng þjóðstjórnarflokk-
anna út af Finnlandi. Þeir álíta að
Sovét-Rússland eigi ekki í Styrj-
öld við finnsku þjóðina, heldur við
finnska valdhafa, sem með blóð-
ugu ofbeldi hafa haldið þjóðinni í
áþján í 20 ár. — 1918 tók finnska
alþýðan völdin á fullkomlega lýð-
ræðislegan hátt. Þá kallaði
finnska yfirstéttin, .þýzkan, fransk
an og enskan her inn í landið til
þess að kæfa hið finnska alþýðu-
lýðveldi í blóði, og naut þó alveg
sérstaklega amerísks fjármagns
til þessa verks. Síðan'hefur land-
inu verið stjórnað með blóðugu
ofbeldi, og þótt um stund hafi ver-
ið slakað á klónni, hefur jafnan
verið hert að aftur. 1 tugþúsunda-
tali hafa beztu menn finnsku verk
lýðshreyfingarinnar verið drepnir
og fangelsin yfirfull. Það hefur
verið lífshætta að gera tilraunir
til sósíalistiskrar starfsemi.
En þessi styrjöld er ekki háð til
þess að hlutast til um innri mál
Finnlands, enda þótt afleiðing
henni verði að finnska alþýðan
tekur völdin og stofnar lýðveldi
sem verður miklu sjálfstæðara en
Finnland hefur nokkru sinni ver-
ið, er það hefur rekið leppa er-
lends auðvalds af höndum sér.
Það eru blindir menn, sem ekki
sjá, að síðan Múnchen-samningur-
inn var gerður i fyrra, hefur ver-
ið stöðugur undirbúningur undir
að sameina auðvaldsríki heimsins
í allsherjarherferð gegn Sovétlýð-
veldunum. Styrjöldin sem nú er
háð gegn Þýzkalandi af Vestur-
veldunum hefur af hálfu valdhaf-
anna fyrst og fremst þann tilgang
að ýta þeim stjórnmálamönnum
til hliðar, sem ekki vilja fara
þessa leið, en ná samningum við
hina, sem vilja beita geiri sínum
gegn Sovétríkjunum. Á þessum
grundvelli hefur Chamberlain-
stjórnin líka jafnan verið reiðu-
bundin að semja við Hitler. Allir
viðurkenna, að einn þýðingarmesti
stökkpallurinn í þessari herferð
yrði Finnland. 1 þessum tilgangi
hafa finnsku valdhafamir her-
væðst í samráði við þýzka og
enska hernaðarsérfræðinga um
langt skeið og með hjálp amerísks
fjármagns. Þessvegna vildu þeir
víggirða Álandseyjar. Þessvegna
eru 10 sinnum stærri flugvellir í
landinu, en Finnar sjálfir geta
notað. Þessvegna vildu þeir ekki
semja við Sovétstjórnina, enda
þótt svo megi að orði kveða að
Leningrad sé í skotfæri við fall-
byssukjafta af finnskri grund
Það er vel hugsanlegt, að Sovét-
lýðveldin hefðu mátt búast við !
allsherjarárás af hálfu auðvalds-
ríkja Evrópu að örstuttum tíma
liðnum. Sovétlýðveldin eiga því í j
varnarstríði. „Þeir sem stríði vilja j
verjast, verða stundum fyrst að j
berjast”. j
Þegar stjórn Sovétlýðveldanna
stendur frammi fyrir því að verja
tilveru hins sósíalistiska ríkis fyr-
ir allsherjarárás auðvaldsheims-
ins, þá var það skylda hennar að
grípa til nauðsynlegra varnarráð-
stafana. Það var skylda hennar
gagnvart ýlovétlýðveldunum, gagn
vart sósíalismanum og verkalýð
alheims. Allt annað hefði verið
glapræði, sem hefði getað teflt til-
veru sósíalismans í tvísýnu. —
Sovétríkin gera skyldu sína, —
enda þó slíkar aðgerðir séu ill
nauðsyn — hryllileg nauðsyn.
Þegar svo þessir félagar í mið-
stjórninni eru krafðir þess, að for-
dæma Sovétlýðveldin, eins og
Morgunblaðið, fyrir að gera það,
sem þeir álíta skyldu við sósíal-
ismann, þá vita allir að þeir geta
ekki orðið við þeirri kröfu; það
vita líka þeir sem bera kröfuna
fram.
Hér hefur verið gerð grein fyrir
skoðun þessara félaga. Öðrum fé-
lögum flokksins er frjálst að hafa
aðrar skoðanir, innan ramma
stefnuskrár flokksins. Við stönd-
um sameinaðir í Sósíalistaflokkn-
um fyrst og fremst um innanlands
málin, og viljum ekki láta mismun
andi skoðanir á erlendum málum
sundra röðum okkar. En sex menn
ingarnir hlaupa brott vegna skoð-
ana um ,,fjarlæga erlenda at-
burði”, þvert ofan í allar sínar
fyrri yfirlýsingar. Þeir neituðu að
hlýta úrskurði meirihluta flokks-
stjórnarinnar og neituðu að
leggja málin undir flokksþing,
þvert ofan í allar fyrri yfirlýsing-
ar sínar um lýðræðið og hollustu
sína við vilja íslenzkrar alþýðu.
Innlend mál ogerlend-
ír vídburðír.
0
Þá hefur Þjóðviljinn verið sak-
aður um að eyða of miklu af rúmi
um erlend mál. Sjálfsagt hefur
ekkert sósialistiskt blað i heimin-
um eytt tiltölulega jafnlitlu rúmi
um alþjóðleg mál og Þjóðviljinn á
þessu tímabili. En hitt er rétt að
um skeið birtust allt of langar
greinar um þessi mál, frá einstök-
um mönnum.Þetta stafar af því að
ákveðið var að taka upp slíkar um-
ræður í blaðinu samkvæmt kröfu
Héðins Valdimarssonar og Arnórs
Sigurjónssonar.
Niðurlag.
Undirritaðir settu sig á móti
þessu, að undanskildum Sigfúsi
Sigurhjartarsyni, sem vildi reyna
þessa leið til samkomulags. Um
Finnlandsmálin hefur ekkert birzt
nema nokkur skeyti fi’á báðum að-
ilum.
Það þykir ekki- ástæða til að
fara fleiri orðum um brotthlaup
þeirra sexmenninganna, enda
stendur flokkurinn heill og óskift
ur eftir. Við sem eftir sitjum í
miðstjórn flokksins og varamenn-
irnir, sem tekið hafa sæti, eru
staðráðnir í því að vinna fyrir
flokkinn á þeim grundvelli, sem
hann var stofnaður, sem sé þeim
að vera sameiningarflokkur al-
þýðu, flokkur sem er engum háð-
ur, nema meðlimum sínum ís-
lenzkri alþýðu, flokkur sem vinn-
ur að því að sameina alla íslenzka
launþega í stéttabaráttunni án til-
lits til stjórnmálaskoðana og að
' því að sameina alla íslenzka sósí-
alista í einum ílokki. Við væntum
þess að þeir 'Verði fáir, sem vilji
hlaupa á brott frá þvi merki, sem
flokkurinn reisti síðastliðið haust,
þó það hafi hent þessa sex menn
og væntum þess að þeir, og þeir,
sem þeim kunna að fylgja beri
gæfu til að endurskoða afstöðu
sína hið allra bráðasta. Áfram til
starfa félagar, berjumst gegn í-
haldi og auðvaldi, sem einn maður
fyrir frelsi og jafnrétti, fyrir
bættum hag alþýðunnar, fyrir
sigri sósíalismans.
Ársæll Sigurðsson,
Brynjólfur Bjarnason,
Einar Olgeirsson,
Guðbrandur Guðmundsson.
Sigfús Sigurlijartarson.
MIPAUTCERÐ
iii'i^i.'n
Esja
vestur um í hringferð föstudag 15.
þ. m. kl. 9 sd.
Flutningi óskast skilað fyrir há-
degi á fimmtudag, og pantaðir far-
seðlar óskast sóttir fyrir lokunar-
tíma sama dag.
Nýsodín
Sríð
da$Ie$a
Kaffísalan
Hafnatrslrsetí 16
Happdrætti Háskólans. Hæsti
vinningur í 10. flokki kom á hálf-
miða í Norðfjarðarumboði.
t x
*
Æ* F • R-
I
Sainnaklúbburinn heldur fund í
Hafnarstræti 21, kl. 8,30, í kvöld
Mætið allar!
7
fV5fC>^
Jónas frá Hriflu hefur gefið sér
nýtt lieilbrigðisvottorð. Hann hefur
flutt nokkrar breytingaiillögnr við
,,höggorminn“ alrœmda, um „styrj
aldarráðstafanir“ og er ein peirnt
svo hljóðandi: „Hver sá maður
Itarl eða kona, sem beiðist innr
göngii i menntastofnanir, er starf-
rœktar eru af rikinu eða styrktar,
af pví, skal sanna með vottorði frá
fo/'manni búnaðarfélags peirrar
sveitar, sem lmnn dvelur í, að umf
sœkjandi hafi starfað að minnsta
kosti eitt ár samfleytt að algenguni
heimilisstarfuni í sveit eftir l.‘i ára
aldur og hlotið par góðan vitnis-
burð“.
Ákvceði sem petta munu vera ab
ger nýung í uppeldisfrœðiim. Hefur
víst aldrei heyzt að neiniim „forj
göngumanni skól,imála“ hafi komið
til hugar að setja sem inntökuskilf
yrði i alla rikisskóla vottorð frá
formanni búnaðarfélags um natni
við sveitavinnu. Það sem Jónás hef
ur hingað til haldið mest á loftl
um „forgön.gu“ sina i skólamáíum,
hefur yfirleitt verið annarra verkl
En pessa tillöýíi á hann sjálfur,
pessi hugmynd ein er .pess verð að
nafn lians verði frœgt meðal is-
lenzkra skólamanna - að endemt
um.
I AUG AVEG 2 f>
iiMi 2303
RAf-TAKJAVtR JIUN - R A£VIRKJUH -VI0GEROASTOFA __
zSelur allskonar rafmagnsiæki,
vjelar og raflagningaefni. • • *
Annasi raflagnir og vidgerðir
a lögnúm og rafmagnsiækjum.
Dugíegir rafvirkjar. Fljói afgreiðsla
Prestur, sem var að spyrja börn
í kirkju, spyr eilt barnaima hver
hafi skapað það. Barnið þagði. Kerl
ing ein er þar var nærstödd sagði:
„Það er nú ekki svo unga fólkið
núna, að það viti það‘‘. Þá sagði
presturinn: „fig veit þá að þú veizt
það‘‘. Kerling svaraði: „Ég hef nú
munað það, en það vaflast fyrir
mér núna“.
Prestur nokkur, sem var að messa
á föstudiaginn. langa, hélt svo við-
kvæma ræðu, að margir táruðust
undir henni. Þegar klerkur sér það
skiptir liann um tón og segir: „Samt
ætla ég að biðja ykkur elsku guðs
börn að gráta ckki, þvi ekki er að
vita að nokkurt orð af þessu só
featt,, því það er logið á styttri leið
en frá Jerúsalem og hingað, þegar
logið er nú á milli búrs og eldhúss”
Séra. Hannes Bjarnason í Rij)
(f 1776, d. 1838) var eins og kunn-
ugí er ágætt rímnaskáld, og að sama
skapi orðhvass og fljótur til svars.
Samtímis var uppi með presti Sig-
riður Gunnlaiigsdóttir skálda, hún
var e'innig köliuð þar nyrðra Sigga
„skamna“. Hún var orðhákur mik-
ill og að mörgu því, er til skáld-
skai:ar kom, ekki ólík Látra-Björgu.
Eitt sinn, er Hannes prestur var
á ferð ásamt fleiri mönnum, sáu
þeir, hvar Sigga sat skammt frá
veginum og er ber að ofanverðu,
og tínir liún lýs úr skyrtu sinni
þvi lúsug var hún sem fleira fólk
þess tima Þegar prestur kom auga
á Siggu inælti hann:
Viljið þið piltar skoða skass,
sem skömmum #up]> er troðið.
Sigga greip óðara fram, í og botn-
aði fyrár-presti:
Kondu hérna og kysstu á rass,
kumpánlega er boðið.
Esja kom til Reykjavíkur í nótt
úr strandferð að vestan.
Grámana
•5*
1
!
?
?
t
1 . . .. • . .-v.
cr bófe barnanna
og bczta jólagjöfin
k.
/Aikki Mús lendir í æYintvrum.
............
Við getum aldrei þakkað ykk-
ur hjálpina eins og þið ætt-
uð skilið.
,, O, okkur þó'tti
verulega gaman
að þessu öllu sam
an.
Meðan hann lifir, æ,
hvað á ég að gera)
Hvað þú átt að gera
Músíus) Hvað áttu við)
-ögin fyrirskipa að hver sá ótíg-
inn maður sem sezt, í liásætið, skuli
liflátast. Og þú hefur oft sezt í
hásætið.