Þjóðviljinn - 13.12.1939, Blaðsíða 4
Næturlæknir: Eyþór Gunnars-
son, Laugaveg 98, sími 2111.
✓
Næturvörður er í Ingólfs- og
Laugavegs apótekum.
Næturakstur: B. S. R. Sími 1720
Þórarinn Guðnason stud. med.
les upp á kvöldvöku útvarpsins í
kvöld, kafla úr bókinni „Baráttan
gegn dauðanum” eftir Paul Kruif.
Eimskipafélag Islands tuttugu
og fimm ára, heitir bók, sem ný-
lega er komin út og Guðni Jónson
mag. art. hefur ritað í tilefni af
25 ára afmæli félagsins í sumar
Er hún fullar 300 blaðsíður í stóru
4 blaða broti. Eru fyrst raktar í
riti þessu siglingar erlendra skipa-
félaga hér við land, þvínæst er
rætt um stofnun og aðdraganda
Eimskipafélagsins, og síðar um
starfsemi þess í tuttugu og fimm
ár. Loks eru skýrslur um starf
félagsins ,myndir af forustumönn-
um þess og starfsliði og ýmislegt
smávegis, jafnvel tækifæriskvæði.
Þingvísa. Þegar „höggormurinn”
kom fram á Alþingi kvað verka-
maður einn vísu þessa:
Álpast stjórnin orkusmá
ýmsar leiðir grunnar,
„höggormarnir” hlykkjast á
hryggjum alþýðunnar.
ÍJtvarpið í dag:
10.00 Veðurfregnir.
12.00—13.00 Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfregnir.
18.15 Islenzkukennsla, 1. fl.
18.40 Þýzkukennstei, 2. fl.
19.10 Veðurfregnir.
19.20 Þingfréttir.
19.40 Auglýsingar.
19.50 Fréttir.
20.15 Spurningar og svör.
20.30 Kvöldvaka:
a) Einar Magnússon: Roald
Amundsson og ferðir hans, IV.
Erindi.
b) 21.05 Þórarinn Guðnason
stud. med.: „Baráttan gegn dauð
anum”. Upplestur.
c) 21.30 Tvísöngur með undir-
leik á gítar (frú Elísabet Einars-
dóttir og frú Nína Sveinsdóttir).
21.50 Fréttir.
Dagskrárlok.
Póstar á morgun:
Frá Reykjavík: Mosfellssveitar,
Kjalamess, Reykjaness, Kjósar
Ölfuss- og Flóapóstar, Hafnar-
fjörður, Þykkvabæjarpóstur, Akra-
nes.
Til Reykjavíkur: Mosfellssveitar
Kjalarness, Reykjaness, Kjósar
Ölfuss- og Flóapóstar, Laugarvatn,
Hafnarfjörður, Akranes.
' Sundkeppni skólanna. 1 fyrra-
kvöld fór fram keppni í boðsundi
milli skólanna hér í bænum. Bar
Háskólinn sigur frá borði og var
tími hans 17 mín. 5,3 sek. Iðnskól-
inn næstur á 18 mín. 28,4 sek. og
Verzlunarskólinn þriðji í röðinni á
18 mín. 29,3 sek.
Esja fer vestur um land í hring-
ferð á föstudaginn kemur kl. 9 sd.
Hjónaband. Nýlega voru gefln
saman í hjónaband ungfrú Guðrún
Olfarsdóttir og Bjöm Guðmunds-
son kaupmaður.
þjúpymiMM
Ný/abiö a§
Gulí hershöfdingínn j';
Y
Ensk kvikmynd er sýnir harð
vítuga baráttu enskra leyni- t*I
þjónustumanna i Kína gegn X
7
%
ofbeldi uppreisnarforingjans
Wu Ling.
Aðalhlutverkin leika:
Adrianne Kenn,
Griffith Jones
4
?
V
V
V
V
SX
og hinn heimsfrægi mongólski
,,karakter”leikari X
-x
?
X
Inkijinoff.
Aukamynd:
Hnefaleikur um heims-
meistaratign.
Joe Lois gegn Max Schmeling ^
sem er mest umræddi hnefa- V
l
leikur, sem háður hefur ver- y
ið í heiminum. y
Börn fá ekki aðgang.
jL Gömlablö %
Vinirnir.
:
±
*
1
I
I
I
V
y
|
y
t
Tilkomumikil og hrífandi
fögur kvikmynd um sanna
vináttu og fórnfúsa ást.
Aðalhlutverkin leika fjórir
heimsfrægir leikarar
Robert Taylor,
Francliot Tone,
Robert Young og
Margaret Sullivan,
hin glæsilega leikkona, sem
öllum mun ógleymanleg, er
sáu myndina — „Aðeins ein
X
Y
y
y
y
y
y
y
y
y
y
y
y
y
nótt”
y
y
Mjólkur- og lýsisgjafir. Sam-
þykkt var á síðasta bæjarráðsfundi
tillaga um að hefja lýsis- og mjólk
urgjafir í barnaskólunum á mánu-
daginn kemur.
Stækkun Sundhallarinnar. Fyrir
siðasta bæjarráðsfund voru lagðar
áætlanir og teikningar um stækk-
un Sundhallarinnar til þess að unt
verði að koma þar fyrir gufuböð-
um og kerlaugum. Engin ákvörð-
un var gerð á fundinum um fram-
kvæmd verksins.
Jólin nálgast. Eins og að undan-
förnu tekur Mæðrastyrksnefndin á
móti gjöfum til jólaglaðnings
handa fátækum mæðrum og börn-
um þeirra. Skrifstofa nefndarinn-
ar í Þingholtsstræti 18, er opin
daglega frá kl. 4—7. Þeir, sem
vilja styrkja þessá starfsemi nefnd
arinnar eru vinsamlega beðnir að
beina gjöfum sínum þangað. Oft er
þörf, en nú er nauðsyn.
Skinfaxi, 2. hefti þessa árgangs
er nýlega komið út. Birtist þar
meðal annars eftirfarandi: Sam-
vizkufrelsi eftir Halldór Kristjáns-
s r, Samband Islands og Dan-
merkur eftir ýmsa, Lýðræði — fé-
lagsskapur, eftir Jón Konráðsson,
Eg sendi kveðju, kvæði eftir Jó-
hannes úr Kötfum, Frá félags-
starfinu eftir Daníel Ágústínusson
Aðalsteinn Sigmimdsson ritstjóri
tímaritsins ritar um félagsmál
ungmennafélaganna grein frá Fær
eyjum og ýmislegt fleira.
Símastaur stolið. I gær var lög-
reglunni tilkynnt að símastaur
hefði verið stolið vestur á Fram-
nesvegi. Lá staurinn þar og átti
að setja hann þar upp. Ekki er
vitað hver valdur er að þjófnaði
þessum.
Fínnar og Rússar.
Framhaid af 1. siðu
stofan „Tass” lýsir yfir því, að
fregn þessi sé uppspuni frá rótum
og sé henni dreift. út í blekkinga-
skyni.
larðrækfarlögín.
FRH. AF 1. SIÐU
um og hefur hann sent Alþingi á-
lyktun þessa.
Breytingatillögur Brynjólfs
miða að því að hækka jarðabóta-
styrkinn um helming til smá-
bænda, en hætta að greiða hann,
þegar ræktað land verður yfir 10
ha. að stærð. Eiga þessar tillögur
miklum vinsældum að fagna meðal
smábænda.
Samníngar í deílu
hárgreíðslukventia".
Samningar hafa tekizt milli Al-
þýðusamsambandsins og Vinnu-
veitendafélags Islands í deiiu jieirri
er Sveinafélag li.árgrejðslukvenna
hefur átt í að undanfömu við eig-
endur hárgreiðslustofanna.
Samkvæmt samningi þessum fá
hárgreiðslukonur 150 króna lág
markslaun á mánuði og kaup fyrir
eflirvinnu, sem áður hefur ekki
tiðkast. Er það 75 aurar fyrir
J.verja byrjaða klukkustund. Vinnu
tími er og ákveðinn í samningun-
um, svo og ákvæði um kaffitíma
en hv(<rugi þessara ákvæða var til
áður. Sumarleyfi er ákveðið 12
virkir dagar og meistarar skuld-
binda sig til þess að láta ekki aðra
starfa í iðninni en þá, sem eru fé-
lagar í Sveinafélagi hárgreiðslu-
kvenna. Nemendataka er takmörk-
uð og uppsagnarfrestur ákveðinn.
Samningur þessi gildir til 1. nóv
1940.
Rikislögreglan*
FRAMH. AF 1. SÍÐU.
hótanir Hermanns um að fótum-
troða lögin — er tákn um hvert
stefnir nú á Islandi. Gegn þessum
fasisma, sem hér er að rísa upp.
verður alþýðan að sameinast. Með
hverjum mánuðinum sem líður, er
hún rænd fleiri og fleiri réttindum
og kjör hennar gerð verri og verri.
Og valdaklíkan gerist því frekari
og yfirgangssamari, því meira, sem
hún finnur að henni helzt uppi.
Þessvegna dugar enginn dráttur.
Einingu alþýðunnar gegn einræði
valdaklíkunnar verður að skapa —
,og það sem allra fyrst.
Síglufjörður,
FRAMH. AF x. SIÐTJ.
engum takast að ná Rauðku úr
eigu bæjarins fyrir lítið verð”.
Hér er talið að söluverð Rauðku
væri sanngjamt 350 þúsund krón-
ur. Foringjar allra flokka lýstu
því yfir, að þeir myndu aldrei hér
eftir hafa neina samvinnu við
Þormóð Eyjólfsson.
EDNA FERBER:
38.
SYONA STOR ,..!
Hún hugsaði sig um. Hverju átli hún að svara. Það sem
lá næst að segja mundi Roelf ekki skilja- Henni kom í
hug setning úr skáldsögu, sem þau höfðu lesið saman,
og svaraði með henni: „Til að þjóna honum og fylgja>
honum á heimsenda”. Henni fannsl þetta hljóma fallega,
en Roelf lét sér ekki segjast.
„Petta er engin ástæða. Þetta er setning úr bók. Og
það er bará vitleysa að tala um að fylgja honum á
lieimsenda. Hann hreyfir sig víst ekki af High Prairie
alla sína ævi.
„Hvað veizl þú um það’, svaraði Selína, höstug. En
þetta stakk hana.
„O, ætli eg viti það eitki. Hann verður kyrr”.
En han'n slóðsl hána ekki lengi. Hann hjálpaði henni
til að stinga upp lilla garðinn við hús Pervusar, og búa
lil nokkur blómbeð. Pað var orðið of seint að sá til túlíp-
ana. Pervus færði Selínu blómafræ úr horginni. Hún
hafði ekki mikið vit á slíku, en var fastráðin i því að
hafa blómagarð við húsið sitl. Hús Pervusar var svo ljóll
að það skar sig úr, þó að annað væri l'rekar hægl að
segja bændabýlunum í High Prairie til jiróss en að þau
væru falleg. Pað vantaði þann snyrtibiæ, er hvildi yfir
hinum húsunum, og gérði þau viðkunnanlegri. En hús-
ið var þrjátíu ára gámalt, grár og veðurskekinn hús-
skrokkur. Pað hefði ekki verið vanþörf á að mála það.
Dyraumbúnaður var af sér genginn, gluggatjöldin óhirðu-
leg og slofan saggasöm og kuldaleg. Gamla konan, sem
geröi húsverkin fyrir Pervus, var alltaf á þveitingi með
vatnsskjólu og gólfskrúbb. Pað var alltaí hlaði af ó-
hreinum diskuni og bollum á eldhúsborðinu, tíminn milli
máltíðanna virtist aldrei endast lil uppþvottsins. Heim-
ilið bar þess vott að það var engin umhyggjusöm hús-
móðir er tók lil* hendinni.
Selina sagði við sjálla sig (og raunar Pervus líka) að
hún skyldi breyla þessu öllu saman. Hún sá sig í anda
ganga um húsið með bursta og kollu með hvítu máli, og
breytti öllú í fegurð og hreinlæti.
Heimanmundur hennar gal varla verið fátæklegri. Hjá
Pervus var til fyrir það sem þurftt af rúmfatnaði og
slíku. Hún var í vandræðum með brúðarkjól, — þangað
til Maartje stakk upp á að hún gifti sig í gamla hollenzka
brúðarlcjólnum sem geymdur var í kistunni á herbergi
Selínu.
„Pú verður þá álveg eins og hollenzk brúöur”, sagði
Maartje. „Ég er viss um að manninum þínum þykir
vænt um það”. Pervus varð himinlifandi. Selína baðaði
sig í geislum ástar hans eins og kettlingur í sólskini.
Hún var svo einmana, álti enga að nema myndirnar
tvær á hillunni í sv'efnherberginu. Gamli hollenzki brúð-
arkjóllinn var alltof stór á hana. Pað varð að þrengja
hann um mittið og stytta pilsið, saml vantaði mikið á að
hún fyllti út í þennan mikla kjól. Húfan fór einkenni-
lega vel við fölt andlit hennar og stóru dökku augun.
Selína reyndi meira að segja að vera á útskornu brúð-
arskónum, en varð að hætta við það. Peir gleyptu alveg
litlu fæturnar hennar. Hún átli í mesta stríði við hnappa
og bönd, — það var engu líkara en að hollenzku brúð-
irnar, er notað liefðu kjólinn á undan henni, væru að
vara hana við þessu skrefi.
Pau voru gift heima hjá Pool. Klaas og Maartje vildu
endilega kosta veizluna, og gerðu það rausnarlega. Sira
Dekker gifti, og Selína gat ekki að sér gert meðan á
athöfninni stóð að horfa á hvernig hökuskegg klerksins
fylgdi nákvæmlega 'hverri hreyfingu kjálkanna, er hann
lalaði. Pervus kunni ekki við sig í svörtu giftingarfötun-
um, honum stökk ekki bros, og var nú allt annar mað-
ur en fallegi risinn í vinnufötunum, sem Selina þekkti
bezt. Þegar athöfnin stóð sem hæst varð Selína gripin
skelfingu, snöggvasl sá hún í anda hvernig hún lagði á
flótta, æpandi og hrópandi á hjálp, — burl frá þessum
félagsskap, þessum manni, þessu húsi, — og hún hljóp
niður veginn, áfram, en hvert? Pessi hugsun varð svo
sterk, að þaö vakti furðu hennar, að hún skyldi standa
þarna grafkyrr og segja „já” við spurningum prestsins,
án þess að fipast hið minnsta.
I