Þjóðviljinn - 20.01.1940, Blaðsíða 1
MINNINGARKVÖLD
um Lenin, Liebknecht og
Luxemburg heldur Æ. F. R,
að Hótel Skjaldbreið annað
kvöld,
V. ARGANGUR.
LAUGARDAGUR 20. JAN. 1940.
16. TÖLUBLAÐ.
Símavörður
vígstöðvunum
Finnlandi.
Hinn 17. jan. afhenti Losovski,
aðstoðarutanríldsþjóðfulltrúi Sov-
étríkjanna, von Euler, sendiherra
Svíþjóðar í Moskva, svar þjóðfull-
trúaráðsins við orðsendingu
sænsku stjórnarinnar frá 16. jan.
I orðsendingu þessari mótmælti
saenska stjómin því, að sovétflug-
véiar hefðu 14. jan. flogið yfir
sænsku eyjuna Kalaks, skammt
frá Luleá og varpað niður sprengj
um. Beiddist sænska stjórnin þess,
að ráðstafanir yrðu gerðar til að
slíkt kæmi ekki oftar fyrir.
1 svari sínu segir sovétstjórnin,
að samkvæmt rannsókn er farið
hafi fram, hafi tvær sovétflugvél-
ar lent yfir sænsku landamærin
vegna erfiðleika á nákvæmum mið
unum, en hvasst var og snjókoma.
Sovétstjórnin baðst afsökunar á
þessum atburði.
Sama dag var norska sendiráð-
inu í Moskva afhent svar sovét-
stjórnarinnar við orðsendingu
norsku stjórnarinnar frá 15. og
16. janúar, en í þeim hafði stjórn-
in mótmælt því að sovétflugvélar
hefðu 12. og 14. jan. flogið yfir
norsku landi í grend við Svanvik
og Baggetem.
Fyrír ftsk, sem úiflutníngsauðvaldið gefur bátunum 15
aura fyrir, fær það sjálft 60 aura minnsf fyrír að frá~
dre$num öllum kostnaðL — Sjómenn og smáútgerð~
armenn þurfa tafarlausf að gera samfök um að
hækka fískverðíð fíl fogaranna
Sovétflugvélar hafa þrisvar
vídzt ínn yfír sænskt o$
norskt land
Sovétstjórnín bíður stjórnír Svíþjóðar
og Noregs afsöhunar
SAMKVÆMT EINKASKEYTUM TIL ÞJÓÐVÍLJANS í GÆR.
Vertíðin er byrjuð. Mótorbátaflotinn selur nú mest af fiskinum
sem hann fær, í togarana til útflutnings. Aðalkaupendur fiskjarins
eru togarafélögin, sem. eins og kunnugt er, eru skattfrjáls af þeim
gróða, sem þau þannig ná.
Togarafélögin og nokkrir aðrir útflytjendur mynda nú raun-
verulegt útflutidngsauðvald, sem í krafti einokunar sinnar á þess-
um flutningstækjum rakar nú saman auð á kostnað sjómanna og
útgerðarmanna.
Útflutningsauðvald þetta — fiskkaupendurnir — gefa bátunum
nú 15 áura fyrir kílóið af þorski, 18—20 aura af ýsu og 7—8 aura
af löngu, steinbíti og öðrum slíkum fiski. Það sem sjómenn ag
útgerðarmenn hafa upp með þessu verði, gerir vart að mæta dýr-
tiðinni, sem á þeim hefur skollið. Þótt sagt sé að gengislækkunin
hafi verið gerð fyrir þá, t*l að bjarga smáútgerðinni, þá hefur á-
stand hennar að engu batnað. En útflutmngsauðvaldið stórgræðir á
gengislækkuninni og stríðinu, svo sem nú skal sýnt fram á:
1 svari sovétstjórnarinnar segir,
að rannsókn hafi leitt í ljós að
sovétflugvélar hafi þrisvar lent
Framhald á 4. siðu
Við skulum reikna með togara
sem kaupir 100 tonn af fiski á 16
aura að meðaltali og selur á f
4000 eða ca. 100.000 kr.
Kostnaður við þetta fyrir tog-
arafélagið í hverri ferð (ca. 3 vik-
ur) er í mesta lagi:
Kol (110 tonn) 3,500 kr.
Is (60 tonn) 1,500 —
Mannahald 8,800 —
Vátryggingar 12.000 —
Fæði 1,200 —
Vextir 2,500 —
Skifst.kostn., stjórn etc. 3,000 —
Afskriftir 2.000 —
Afgreiðsla, hafnargj. etc 1,50'i —
Erl kostnaður
36,000 kr
17,500 kr.
53,500 kx’.
En nú flytur togarinn 100 torn
af l'olum heim og reiknar sér 40
kr. fragt á tonn, svo þar keinur
4000 kr. gróði. Togarafélagið hef-
ur þá fengið 104,000 kr. upp úr
túrnum, greitt 53,500 kr. í kostn-
að, 16,000 kr. til bátanna, en grætt
sjálft 35,000 krónur.
Fyrir kílóið af fiski fær togara-
félagið þá 51 eyri að frádregnum
kostnaði, en borgar smáútgerðar-
manninum og sjómanninum aðeins
15—16 aura.
Og hér er reiknað með lægstu
sölunni í siðustu ferðunum. Þegar
salan fer upp í 5000 f, þá verður
gróði útflutningsauðvaldsins um
50 þús. krónur, eða um 50 aurar á
hverju kílói, — þá gefur kílóið af
fiskinum 66 aura, sem framleið-
andinn aðeins fær 16 aura fyrir,
en milliliðurinn, útflutningsauð-
valdið, gleypir hitt.
1396 manns greiddu atkvæði í
Dagsbrúnarkosningunum
Atkvæðín verða talín í dag. Úrslítín verða bírt á aðal-
fundí félagsíns á morgun
Dagsbrúnarkosningunni lauk kl. 11 í gærkvöld. Þá höfðu greitt
atkvæði 1396 af 1730, sem voru á kjörskrá
Talning atkvæða fer lram í dag, en úrslit verða ckki birt fyrr
en á aðalfundi Dagsbrúnar á sunnudaginn.
fekk 408 atkvæði.
Við stjórnarkosningarnar í Dags
brún 1939 voru 1783 á kjörskrá,
af þeim neyttu 1495 atkvæðisrétt-
ar. Atkvæði féllu þá þannig: A-Iist
inn, sem var borinn fram af trún-
aðarráði og studdur af Samein-
ingarflokki alþýðu fekk 659 atkv.
B-listinn, listi Alþýðuflokksins,
C-listinn, listi
Sjálfstæðisflokksins, fekk 428 at-
kvæði. Þeir flokkar sem nú stóðu ,
að B-listanum liöfðu því samtals
836 atkvæði eða 177 atkv. frain
yfir lista trúnaðarmannaráðsins.
Niðurstaða þessara kosninga
verður því mælikvarði á hvort
þjóðstjórnarflokkunum hefur tek-
izt að halda fylgi sínu í þessu
stærsta verklýðsfélagi landsins,
engum dettur í hug að þeir vinni
á.
Um kosningarnar er það annars
að segja, að þær voru sóttar af
meira kappi en dæmi eru til, eink-
um af hálfu afturhaldsflokkanna,
sem stóðu að B-listanum.
Öll dagblöð afturhaldsins Morg-
unblaðið, Alþýðublaðið og Vísir,
Og þegar sölurnar komast upp
í 6000 £ og togararnir taka meir
en 100 tonn, svo hlutfallslegur
kostnaður verður minna, — þá
geta menn reiknað út sjálfir hvern
ig það útflutningsauðvald græðir,
sem auk allra fríðinda nýtur skatt
frelsis gagnvart ríki og bæ.
Þetta ástand er alveg óþolandi
fyrir sjómenn og smáútgerðar-*
menn. Þa'ð er sjálfsögð krafa
þeirra að fá andvirði framleiðsl-
unnar greitt, en að milliliðir, skatt
frjálsir gæðingar ríkisvaldsins, fái
ekki að hirða arðinn af striti
þeirra.
Sjómenn og smáútgerðarmenii
við Faxaflóa og annarsstaðar!
Gerið samtök með ykkur um að
knýja fram hækkað verð fyrir ís-
fiskinn. Þið sjáið hvernig útflutn-
ingsauðvaldið græðir á vinnu ykk-
ar Hrindið þessu arðráni.
Madur svipfur
ökuleyfi ævílangf
í gær var í hæstarétti kveðinn
upp dómur í málinu Valdstjónun
igegn Þorsteini Guðmundssy i bif-
reiðastjóra, með þeim úrslit' m, að
hann var sviptur ökuskírteiri æfi-
langt og dæmdur til þess að greiða
kr. 600.00 í sekt til ríkissj >ðs. En
með dómi hæstaréttar 15 þ. m.
var þessi sami maður sviptur öku-
skírteini í sex mánuði.
Sannað var með játningu kseróa
að hann var ölvaður við akstur
24. júlí 1938. 1 bifreið hans voru
nær 30 farþegar. Kærður <*k bif-
reiðinni út af veginum og féll han
niður í skurð. Flestir farþc garnir
lentu undir bifreiðinni og meidd-
ust fjórir þeirra nokkuð.
Sækjandi málsins var Pétur
Magnússon, en verjandi Fggert
Claessen.
hafa undanfarna daga verið helg-
uð þessum kosningum. Ekki þótti
þeim þó einsýnt að það mundi
duga, lieldur sendu þeir út flug-
miða í gær, þar sem skorað er
heitt og innilega á alla „sanna Is-
lendinga” að útrýma „valdi hinna
rússnesku ofbeldismanna” „með
öllu úr samtökum verkamanna”
Fyrir lista sinn, B-listann, höfðu
atvinnurekendur starfandi tvær
skrifstofur, var önnur í Alþýðu-
húsinu við Hverfisgötu, og tákn-
Framhald á 4. síðu.