Þjóðviljinn - 21.01.1940, Blaðsíða 3
7JÓÐVILJINN
Sunnudagur 21. jan. 1940.
„Saman níðíngar sbríða
Fransha stH astlar að oturselja
Afgreiðsla hinna ,ábyrgu‘ á fjár-
hagsáætlun Reykjavíkur 1940
Eftír Björn Bjarní
Þó þjóðstjómarflökkana greini ef
til vill á um ýms atriði, sem þá
helzt varða skiptingu bitlinganna,
em þeir hjartanlega sammála, hvort
feeldur er í bæjarstjórn Reykjavíkur
eða á Alþingi, um að notfæra sér
svo sem frekast er kostur, veik-
leika verkalýðshreyfingarinnar, sem
ktofningserindrekar beirra hafa or-
sakað, til þess að svipta hana ýms-
um af þeim sjálfsögðu réttindum,
sem 'hún hefúr unnið sér inn með
áralangri baráttu. Allir eru þeir
sammála um að svipta verkalýðinn
réttinum til að ráða sjálfur verði
vinnu sinnar, allir sammála um að
skerða enn hinn takmarkaða rétt
styrkþeganna og allir í sameiningu
hindra þeir framkvæmd þeirra til
lagna, sem miða að því að draga
úr atvinnuleysinu eða á annan háti
að létta hlutskipti þeirra fátæku.
Þessir herrar tala um sig . sjálfa,
sem hina „ábyrgu“, en hvernig tregð
ast þe'r svo við því \ andræðaástandi
sem nú er franiundan hér i bæ af
völdúm atvinnuleysis og dýrtíðar.
Við bæjarfulltrúar Sósíalistaflokks
ins bánim fram allmargar tillögur
í sambandi við afgreiðslu fjárhags-
áætlunar bæjarins, sem flestar mið-
uðu að því að auka atvinnuna eða
að mæta á annan hátt þorn vandræð
um, sem nú eru í bænum. Helztu
tillagna okkar hefur verið getið
hér í blaðinu áður, svo sem tillaga
um að gera Effersey að arðbærri
eign fyrir hafnarsjóð, og leysa um
leið aðkallandi mál, eins og það
að færa Slyppinn úr þeim þrengsl
um, sem hann nú er í, sem algerlega
girða fyrir stækkun lians, nema þá
með þvi móti að rífa niður nokkur
íbúðarhús i námunda við hann og
gera síðan allstóran hluta af hverf-
inu neðan Vesturgötu óbyggilegan,
sökum þess hávaða, sem verða
myndi í námunda við fullkomna
skiþasmíðastöð. Að vísu kæmu þess-
ar framkvæmdir til að kosta mikið
fé, en langsamlega mestur hluti
þess fer í vinnulaun, og það sem
ekki er síður vert, fyrirtækið
myndi skila því aftur og verða í
framtíðinni undirstaða myndarlegs
atvinnureksturs- En peim „dbyrgu“
fannst ekki atuinnuástandid l bcvnam
gefa tilefni fil rannsóknar á pessu,
, bæjarfulltrúa
Björn Bjarnason.
lumo pá heldur til framkuœmda.
§uo fór og urn aðrar pœr tillögur
er vid bárum fram, varðandi aukna
atuinnu.
Þá var umhyggja þeirra fyrir
byggingariðnaðinum, sem algerlega
er að leggjast niður vegna vaxandi
dýrtiðar, ekki meiri en svo að peir
fellda tillögu okkar um ad rannsaka
huort tiltœkilegt vœri aö nota grá-
stein til húsager’ðar.
Trúir sfefnu þjóðstjórnarinnar að
þrengja á allan hátt kost styrkþeg
anna, felldu peir tillögu okkar um
hœkkain á fceðispeningum styrkpega
rír pvi, sem nú num vera almennast,
iSO aurum til 1 kr. á dag. Það er
öllum vitanlegt að þessir 80 aurar
fyrir fjölskyldunieðlim á dag til
fæðis, ljósa og hita, voru ærið naum
ur skammfur, meðan verðlag vai
ekki hækkað af völdum striðs og
gengislækkimar, hvað þá nú þegar
allir hlutir hafa hækkað jafn gífur
lega og raun er á. Að synja sfyrk-
þegunj þessarar hækkunar virðist
nærri óskiljanlegt mannúðarleysi.
Sömu meðferð hlaut einnig tillaga
okkar um hækkun á ellistyrk.
Að þeir gætu fallist á tillögu
okkar um að atvinnubótafé sé varið
til atvinnuaukningar, sem skapi fullt
verðmæti fyrir bæinn, eða heppi-
legra fyrirkomulagi komið á inn-
heimtu bæjargjalda, kom vitanlega
ekki til mála, heldur ekki athugun
á því á hvern hátt bærinn gæti
stuðlað að byggingu smærri vél-
báta.
Sú eina viðleitni, sem méirihlut-
inn sýndi tii að bæta úr ástandinu
var tillaga bæjarráðs um kaup á
fiskiskipum og hraðfrystistöð, en
mcorerö hans a öðrum málum, eins
og þeim, er ég nú hef talið gefa
manni grun um að samþykkt þess-
arar tillögu sé aðeins blekking, að
hún hafi veriö sampykkt i pvi
trausti að skipin reyndust ófáanleg.
Þetta er þá úrræði þeirra ábyrgu.
Sjáandi fram á aukið atvinnuleysi
og versnandi lífskjör allrar alpýðu
hreyfa þeir hvorki hönd né fót, til
annars en drepa þær tillögur, sem
miða að pvi að mœta pessu ástandi
opnuin augum, og gera með pvi
sitt til að hörmungar pœr, sem fard
í kjölfar atvínnuleysis og dýrtíðar
skelli með öllum punga á fátœkri u)
pýðu pessa bœjar.
En jafnframt því að þeir bregðast
svona gersamlega skyldu sinni gagn
Vart alþýðu bæjarins, og sýna ekki
minnstu viðleitni til raunhæfra út-
böta, samþykkja þeir eftirgjafir, er
nema tugum þúsunda króna, til
togaraeigenda. Þar fannst þeim
þörfin vera mest aðkallandi nú,
þegar togaraeigendur græða hundr
uð þúsunda á mánuði. Pá fyrst
fundu hinir „ábyrgu“ til ábyrgðar-
iniiar.
Björn Bjarnason.
Nýsoðin
S YÍð
Kaffistofan
Hafnarstræti 16.
Gammívmnn-
stofao
Aðalstræti 16
framkvæmir allar gúmmmðgerðir
vandaðast og ódýrast.
Franm m Hsund lanlffla SnMa
Ameríska rifhöfundasambandíd
sendir úf áskorun um aö híndra þeffa
Stjórn Sambands amerískra rit-
höfunda (The League of American
Writers) hefur sent blöðum í
Bandaríkjunum eftirfarandi ávarp
’ „Dauðadómur hefur verið kveð-
inn upp í París. Það á að flytja
spönsku flóttamennina, sem nú
eru í fangabúðum í Frakklandi, til
Spánar. Við höfum þetta frá áreið
anlegum heimildum og biðjum yð-
ur að vekja eftirtekt á því. Vér
sendum þetta ávarp til allra blaða
og útvarpsstöðva í Bandaríkjun-
um.
Hjálpaxnefnd spánskra flótta-
manna hefur fengið skeyti frá Par
ís að lögreglan hafi ráðizt á ,,Mið-
stöð spánskra útflytjenda”, sem
leiðtogar spánska lýðveldisins
höfðu sett á stofn þar í borg, gert
upptæk öll skjöl stofnunarinnar
og sjóði, og loks lokað henni. Þar
með er viðleitnin til að koma
spönskum flóttamönnum fyrir í
hlutlausum löndum að miklu leyti
lömuð.
Allir þeir sem hafa að gera með
mál spönsku flóttamannanna hér
í Bandaríkjunum eru sammála
um, að þetta geti aðeins þýtt eitt:
200 000 Spánverjar, þar á meðal
konur og börn, verða rekin aftur
til Spánar. Og telja má fullvíst að
30 000—40 000 af þessum mönn-
um verði skotnir niður tafarlaust
er þeir koma til Spánar.
Þessi tala er svo gríðarhá, að
hún gæti virzt ótrúleg. En heimild
ir sem Spánarnefndin hefur lágt
fram, hefur sannfært oss um að
þetta muni rétt. Þessir menn ei’u
blöndun af andstöðuflokkum Fran
cos, fyrirliðar, liðsforingjar og
liðsmenn, sem vörðu Kataloníu, —
læknar, rithöfundar, listamenn,
vísindamenn og stjói’nmálamenn,
er ekki vildu gefast upp í barátt-
unni gegn fasismanum. Þetta er
kjarni þess liðs, er varðist Franco,
Hitler og Mussolini yfir tvö ár.
Stjórnandi fjöldamorðanna í Bad-
ajoz, Guernica-eyðileggingarinn-
ar, stjói’nari hinnar blóðugu land-
ráðauppreisnar mun ekki láta nein
mannúðartillit ráða meðferðinni á
þessum andstæðingum. Ef franska
stjórnin framkvæmir brottrekstur
flóttamannanna, er allt þetta fólk
! sent í opinn dauðann. Ekki eitt.
hundrað, ekki eitt þúsund, heldur
I tíu, tuttugu, þrjátíu þúsund verð-
ur stillt upp við vegg og myrt
Imeð vélbyssum.
Framhald á 4, síða.
IDiPáOll í Reylijaoib
Nýkosið iðnráð er hérmeð avatt saman til íyrsta fundar
sunnúdaginn 28 þ. m. Fundurinn verður á Fríkirkjuveg 11 (Bind-
índishöllin) og hefst kl. 2 e. h. Fulltrúar hafi með sér kjörbréf.
Á fundinum verður kosin framkvæmdarstjórn. flutt skýrsla um
starfsemi fráfarandi iðnráðs og önnur mál rædd eftir því, sem tíl-
efni gefast tll.
Reykjavík 20. jan. 1940.
Pétur G. Guðmundsson. Einar Gíslason.
Sósíalistafélag ReYbjavíbur:
nialtunlir
félagsins verður haldinn í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu, þriðjudí'g-
inn 23. þ. m., og hefst kl. Xy2.
Fundai-efni: Venjuleg aðalfundarstöx’f.
Sf jórnín
Mikki f\ús í nýlum ævintýrum. 244
Það var mikið að þú skyldir vilja eyða einum degi með
mér. Eg er dauðhrædd um að þið Jan séuð að bi'ugga
nýjar ævintýraferðir. — En við höfum látið vagninn bíða
of lengi, hann hefur stöðvað alla umferð.
O, ég held að það geri ekki mik-
ið. Við skulum skreppa eitthvað
út úr borginni og vera tvö ein í
næði í allan dag. Við erum alltof
sjaldan í næði.
Ö, elsku Mikki minn. Hvað þú
getur verið vænn og góð.ur þegai’
þú vilt það við hafa. Ætlarðu að
lofa mér að þið Jan farið ekki að
fitja upp á nýju ferðalagi?
//l\\
Æ F R
Minningarkvöld um Lenin, Lieb-
knecht og Luxemburg heldur
Æskulýðsfylkingin að Hótel
Skjaldbreið kl. 8,30 í'kvöld.
Erindi, Hendrik Ottósson og
Hallgrímur Hallgrímsson,
Skuggamyndir,
Söngur o. fl.
Félagar, vitjið aðgöngumiða fyr
ir ykkur og gesti ykkar á skrif-
stofu Æ. F. R. frá kl. 4—7 í dag.