Þjóðviljinn - 04.02.1940, Side 3
''JðÐVILJINN
Sunnudagur 4. febr. 1940.
„Sagan cndurtcfcur síg
fflmi M í ISlHfl 1914-11 -10 ■
Frásögn Þorsteíns Gíslasonar úr síðasfa heímssfríðí
lslendin$ar fá að kynn
ast droffnun Brefa á
hafinu
„Heimsstyrjöldin skall yfir sum-
arið 1914. ...”
„Drottnun Breta á hafinu var
það sem Islendingar fengu nú fyrst
og fremst að kynnast. Bretar
drógu línu frá Skotlandi til Nor-
egs og tilkynntu, að öll skip, sem
yfir þá línu færu, yrðu tekin af
herskipum þeirra, flutt til hafnar í
Bretlandi og rannsökuð þar, bæði
farmur og póstur, og ef þau flyttu
vörur, sem ætlaðar væru Þjóðverj-
um, yrðu þær teknar. Skeytasehd-
ingar milli Islands og umheimsins
yrðu einnig háðar eftirliti á Eng-
landi. Þetta farbann og viðskipta-
bann hélzt allan þann tíma, sem
ófriðurinn stóð”. (Bls. 153).
Brefair skammfa íslend*
ingum sannleikann
„Eitt af þeim atriðum, sem mik-
il áherzla var lögð á af öllum að-
iljum ófriðarins, var fréttastríðið.
Hvorir um sig af ófriðaraðiljunum
ltenndu hinum um upptök stríðs-
ins og blöðin voru full af ósann-
indum og níði um óvinina. .. . Svo
var það ákveðið af stjóm Bret-
lands að Islendingum skyldi sagð-
ur sannleikurinn um ófriðinn af
þeim einum, en að þeir fengju ekk-
ert að heyra úr hinni áttinni”.
(Bls. 155).
Mr. Cable kemur
„Skömmu eftir að ófriðurinn
hófst kom hingað ungur maður,
enskur, á dönsku farþegaskipi,
sem kom frá Kaupmannahöfn og
rannsakað hafði verið í brezkri
laöfn. Hann hét Mr. Cable”....
„Þegar hann kom til Reykjavíkur
settist hann að hjá ræðismanni
Breta, Ásgeiri Sigurðssyni kaup-
manni, fékk sér kennara í íslenzku
og varð á örskömmum tíma svo
vel að sér í málinu, að hann tal-
aði það reiprennandi”....,Brátt
varð það alkunnugt, að þetta var
fulltrúi Bretastjómar, sem ætti að
verða hér einráður um öll viðskipti
landsmanna út á við meðan á ó-
friðnum stæði. Hann kom nú fram
eins og yfirmaður á skrifstofu
brezka ræðismannsins, réði ýmsa
menn í þjónustu sína og krafðist
eftirlits með öllum vörusendingum
og skeytasendingum frá símastöð
landsins”. (Bls. 155—156).
Ríkíssfjórnín samþykk-
ír efiírlífíd. Blödín kefl«
ud — eíns og nú
„Islenzlcu yfirvöldin treystu sér
ekki til að mótmæla þessari íhlut-
unarsemi hans, og kvartanir og á-
rur einstakra manna, sem þótt-
ust verða fyrir órétti, voru kæfð-
ar .niður. Blöðin voru aðvömð um
það, að ekki dygði að koma
fram með umvöndunargreinar út
-af ráðsföfunum þessa manns. Bret
ar réðu hér nú öllu, sem þeir vildu
ráða, og menn yrðu að sætta sig
við það. Mönnum fannst, að Mr.
Cable hlyti að hafa njósnara allt í
kringum sig, ekki aðeins hér í
bænum, heldur einnig úti um land,
Það væri hart, ef söguþjóð eins og Islendingar gætu ekkert
lært af sinni eigin sögu. Þjóðviljinn ætiar nú að birta hér orðrétt
nokkuð af þri, sem Þorsteinn Gíslason segir u myfirdrottnun Breta
hér á stríðsárunum síðast í riti sínu „Þættir úr stjómmálasögu
íslands 1896—1918”. — Er frásögn hans sett innan gæsalappa,
en millifyrirsagnir eru frá blaðinu.
svo undarlegt þótti mönnum, hve
margt hann vissi. Og þó vom það
nær eingöngu íslenzkir menn, sem
hann hafði í þjónustu sinni. En
hann skifti sér ekki af öðm en við-
skiptamálunum”. (Bls. 156).
Samníngur vid Brefa
um allar íslenzkar vörur
„Það var ekki lítið fjármagn,
sem rann inn í landið á þessum
árum. Bretar höfðu þörf fyrir
framleiðsluvörur landsmanna og
borguðu þær vel, enda var það lífs-
háski að koma þeim til þeirra,
einkum eftir að kafbátahemaður
Þjóðverja magnaðist og höfin í
kringum England voru lýst ófrið-
arsvæði”... „Síðar komust þó á
samningar milli landstjómarinn-
ar og Breta um það að allar ís-
lenzkar vörur færu til þeirra, en
þeir lofuðu á móti, að birgja Is-
land að ýmsum vörum öðram en
matvömm”. (Bls. 159).
Valdadfaumar Þjóð~
verja víðvíkjandí Norð-
urlöndum og íslandi
„Um tíma leit svo út sem Þjóð-
verjar myndu verða ofan á í stríð-
inu, og hér vom menn, sem trúðu
því að svo mundi fara. Voru nokkr
ir íslenzkir menn erlendis í þjón-
ustu Þjóðverja, einkum fyrir milli-
göngu þýzkrar stöðvar í Kaup-
mannahöfn. Það hefur verið upp-
lýst, ekki alls fyrir löngu, eftir
skjölum, sem fundust í Helsing-
fors í Finnlandi að þær ráðagerð-
ir hafi um eitt skeið verið uppi hjá
Þjóðverjum á stríðsámnum, að
gera Norðurlönd að keisaradæmi í
vináttutengslum við Þýzkaland og
Gustav Svíakonung að keisara.
Hér hefur það heyrzt að þeir ís-
lenzkir menn, sem sambönd höfðu
við Þjóðverja, hafi haft tilboð um
ýmisleg fríðindi Islandi til handa,
ef Þjóðverjar ynnu stríðið. Skyldi
þá Island verða sambandsland
Þýzkalands og þýzkur prins fara
hér með æðstu völdin.’ Engar sönn-
ur veit ég þó á þessum málum. Og
hér heima gátu erindrekar Þjóð-
verja engu til leiðar komið, þar
sem allt var hér á valdi Breta, og
þeir líka miklu fleiri, sem drógu
þeirra taum og álitu að sigurinn
yrði þeirra megin”. (Bls. 161—
162).
Togaraflotínn seldur —
effír skípun Brefa
„Skortur á matvörum og skipa-
kosti fór sívaxandi meðal banda-
þjóðanna, því kafbátafloti Þjóð-
verja eyddi skipum þeirra miklu
meira, en uppi var látið á þeim
tímum”.... „öll viðskipti héðan
austur á bóginn urðu meiri og
meiri erfiðleikum háð. Fyrir lok ó-
friðarins var íslenzki togaraflotinn
seldur bandamönnum. Sú sala var
þó aðeins að yfirvarpi, því iands-
stjórninni var tilkynnt, að ef hann
fengist ekki keyptur með góðu
samkomulagi, yrði hann tekinn
með valdi. Svo mjög skorti banda-
menn þá skip til aðflutninga. Verð
ið ákváðu kaupendurnir. (Bls. 162
Leturbreytingar vorar).
Svo segist Þorstein Gíslasyni frá
því, sem gerðist í viðskiptum
Breta og Islendinga í' síðasta
stríði.
Athuga þú nú lesandi góður:
Hvað gerir ríkisstjórn íslands til
að reyna að hindra að það fari
eins nú?
Fnllkomnasta
GÚMMÍVIÐGERÐARSTOFA
BÆJARINS.
Sími 5113.
Sækjum. Sendum.
Gummískógerðin
LAUGAVEG 68.
Allir peir,
sem ætla sér að skrá ný fyrirtæki í viðskiptaskrána 1940, eða
breyta eldri skráningu, og hafa enn ekki lokið því, gjöri svo vel að
tilkynna það nú þegar í Steindórsprent h.f., Aðalstræti 4, sími 1174.
Handrit af auglýsingum þarf einnig að senda þangað sem fyrst.
VIÐSKIPTASKRÁIN
Karlakór Iðnaðarmanna,
tilefni af 200 ára afmæli skáldsins í Gamla Bíó í dag, sunnud.
4. þ. m. kl. 2,30 e. h.
SÖNGSTJÓRI: PÁLL HALLDÓRSSON.
Píanóundirleikur: Carl Billich.
Ræða: Aðalræðismaður Ottó Johansson.
Aðgöngumiðar seldir í Gamla Bíó frá kl. 11 f. h. í dag.
Sú hefur verið trú manna að
til væm þeir dagar á ýmsum tím-
um ársins, sem fylgdi svo rammar
álögur að ekki mætti á þeim byrja
nein fyrirtæki, svo sem ferðalög á
landi og sjó. Allir þekkja ótrúna
á mánudeginum. Fyr á öldum hef-
ur þessi hjátrú verið öllu meiri.
Vita menn með vissu að álitið var
að minnst 2 dagar hvers mánaðar
væri sérstakir óheilladagar, svo
sem Janúar 1 og 25, febrúar 4. og
20, marz 1 og 30, apríl 10. og 20.
maí 3. og 25, júní 8. og 16., júlí 13.
og 22., Ágúst 5., 30., sept. 3. og 21.
okt. 3. og 23., nóv. 5. og 28., des.
8. og 22.
Af þessum 23 dögum mun éú
skoðun hafa verið nokkuð algeng
lengi vel, að 1. janúar væri verst-
ur þeirra allra.
•X-*5ý
Forfaðir Brímsættarinnar var
Sigurður Snorrason prestur á
Brjánslæk (d. 1767). Hann var tal
inn svo andheitur prédikari að
rekið gæti hann út illa anda af
fólki, sem var djöfulótt (geðveikt).
1 sóknum Sr. Sigurðar var ung
stúlka, sem Katrín hét og þjáðist
mjög af illum anda. Skipaði klerk-
ur svo fyrir að komið skyldi með
Katrínu til kirkju ákveðinn messu-
dag og setið með hana undir pré-
dikunarstóli og gætt þar af 4
mönnum meðan særingin færi
fram. Tók svo prestur til lesturs-
ins yfir stúlkunni og ókyrrðist hún
5 sætinu og vildi fara út, en gæzlu-
mennirnir 4 hömluðu því, en prest-
ur herti á ræðunni unz andinn
byrjaði að mæla við prest. Spyr
klerkur andann, hvað heiti ég? Þú
heitir Urður svaraði andinn. Herti
prestur þá enn á ræðunni og féll
svo Katrín í dá, en prestur herti
enn tneir á særingunni og hélt
kirkjufólkið að stúlkan væri dáin,
en sáu sem þokuflyksu svífa fram
kirkjugólfið og út úr kirkjunni.
Hafði prestur skipað svo fyrir að
kirkjan stæði opin og harðbannaði
fólki að standa á miðju gólfi, eftir
að særingin byrjaði. Katrínu batn-
aði heilsan að fullu, varð hún göm
ul kona, og líst í hárri elli, og eft-
irlét marga og hrausta afkomend-
ur.
KAUPUM FLÖSKUR
stórar og smáar, viskípela,
glös og bóndósir. Flöskubúðin
Bergstaðastræti 10. Sími 5395
■
I
1.0.61
Sfórkosileg hlufavelfa í Vardarhúsínu í dag hefsf kh 5 e- h., híé míllí 7—8,
Dráffurínn 50 aura. Fjöldí elgulegra muna, medal annars í elnum dræftí,
nýtízku svefnherbergíssett, rafmagnskam-
ína, málverk eftír |óh. Kjarval, Benedíkt
o. fl. o$ fjölda margt annað, auk þess
500 kr. i peníngum.
Siver hefur efní á að sleppa slíkum fæklfaerum? Enginn, — Lífið I
sýníngarglugga Sílva sfál- og fréhúsgögn, Laugaveg ll — og sannfaerisf.