Þjóðviljinn - 29.03.1940, Qupperneq 1
V. ARGANGUR. FÖSTUDAGUR 29. MARZ 1940. 72. TÖLUBLAÐ.
890 mw uoru shráflir
atDiflDuiaosiF i m
Hífaveífan mun bæfa nokkudúrskák
Adeíns effíng framleíðsluafvtnnu^
veganna er úrlausnín
»
1 gær voru skráðir 741 atvinnuleysingjar á Vinnuiniðlunar-
skrifstofunni. 150 voru í atvinnubótavinnu, er því raunveruleg tala
atvinnuleysingja 891. Á sama tíma í fyrra var tala atvinnuleysingja
í Reykjavík 763.
Ekki verður annað sagt eií* að
þessar tölur séu mjög óglæsilegar,
en það er þó bót í máli, að vænta
má að hitaveituvinnan bæti mikið
úr skák. Fari svo að í þá vinnu
komist von bráðar um 500 manns,
er hægt að gera sér vonir um að
atvinnuástandið verði sæmilegt í
sumar. Þó er augljóst að bygginga
verkamenn verða mjög hart úti ef
ekki verða gerðar ráðstafanir til
þess að bygigngavinna geti haldið
áfram.
En illa væri það farið, ef þetta
yrði til þess að menn gleymdu
þeirri staðreynd, að atvinnulíf
bæjarins er ekkert nálægt því að
fullnægja atvinnuþörfinni.
Það er gott að þarfar og rétt-
mætar stórframkvæmdir eins og
Sogsvirkjunin og hitaveitan bæti
úr verstu neyðinni meðan verið er
að koma þeim í framkvæmd, en
öllum má vera ljóst að slíkt er
engin varanleg lausn á atvinnu-
vandræðunum. Hin eina varanlega
lausn er að efla grundvöll atvinnu
lífsins, sjálfa framleiðsluatvinn-
una, sjávarútveginn, landbúnaðinn
og iðnaðinn. Verkalýðsfélögin
verða að halda uppi stöðugri bar-
áttu fyrir slíkum úrbótum, vald-
hafar á þingi, í ríkisstjórn og í
bæjarstjórnum verða að líta það
sem sitt höfuðverkefni að finna
leiðir til slíkra úrbóta, því hvemig
fær það þjóðfélag staðizt sem læt-
ur vinnandi fullhrausta menn
ganga atvinnulausa dögum og ár-
um saman.
Framsókn æflar cnn á ný að skaflleggja Reyk~
víkinga fíl ad kaupa scr kjörfylgí annarsstadar
á landínu
Framsóknarmemi á þingi báru nýlega fram írumvarp tii laga
um rafveitulánasjóð, og skyldi afla honum tekna með því að skatt
leggja þær rafveitur, sem þegar eru til í landinu, sem raunveru-
lega þýddi að skattleggja skuidir þeirra. Þessi frumvarpsskapnað-
ur var felldur með atkvæðum Sósíalsta, Sjálfstæðismanna og Al-
þýðuflokksmanna. Nú liafa Sjálfstæðismenn borið fram nýtt frum-
varp um raforkuveitusjóð, og skal at'la honum tekna með því að
ríkið leggi til hans 50 Jms. kr. á ári. Fjárhagsnefnd fékk frum-
varpið til meðferðar, og tókst Framsóknarmönnum að smeygja
inn í það ýmsum liöfuðgöllum síns gamla frumvarps og fengu Jieir
eitthvað af Sjálfstæðismönnum til að fylgja þeim fram, og má
vel svo fara, að rafmagnsnotendur í Reykjavík og annarsstaðar
verði látnir gjalda nefskatt til þess að koma sjóði þessum á lagg
irnar.
Öll meðferð þessa máls á þing-
inu, er eitt gleggst dæmi þess
hvernig allt starf „hinna ábyrgu
flokka” miðar að því einu að
kaupa sér kjörfylgi og völd. Auð-
vitað hafa ofsóknarmennirnir og
málaliðsmennirnir, sem ennbá
leyfa sér að kalla sig Framsókn-
arflokk, forusíuna í þessu eins og
öllu því, sem til óþurftar og spill-
ingar horfir. Þeirra hugmynd var
að skattleggja skuldir Rafveitu
Reykjavíkur, Akureyrar og aun-
arra stærri bæja, sem auðvitað
hefði þýtt hækkað rafmagnsverð,
á þessum stöðum, til þess að geta
látið smáþorp og jafnvel sveitir
fá rafveitur í kosningamútur.
Málaliðsdóti þessa ofsóknarflokks
er fullljóst, að í Reykjavík aflar
það sér aldrei kjörfylgis, og því
telur það óhætt að láta Reykvík-
inga borga kostnað þeirra við að
vinna kjördæmi út um landið.
Sjálfstæðismenn sáu glöggt til
hvers refirnir voru skornir og
beittu sér fast á móti þessari að-
ferð. En þeim var einnig ljóst, að
það mætti verða þeim óþægilegt
við kosningar í ýmsum þorpum,
Það vakti mikla athygli er það fréttist fyrir skömmu að brezku hafskipin, Mauretania og
Queen Mary hefðu lagt úr höfn í New York. Fyrir nokkrum dögum fréttist að Mauretania hefði
farið um Panamaskurðinn, og eru uppi getgátur um að nota eigi skipin til hermannaflutninga frá
Ástralíu og Nýja Sjálandi til Vestur-Asíu og Evrópu. Myndin er af Mauretaniu á fyrstu ferðinni.
Reyna Brefar aö híndra allar síglíngar Þfóðverja meö-
fram Noregssfröndum og um dönsku sundín ?
SAMKV. EINKASKEYTI TIL 1> JÓÐVILJANS 1 GÆR.
Norska stjórnin hefur opinberlega mótmælt við brezku stjórn-
ina margendurteknum ágangi brezkra herskipa í norskri landhelgi.
Segir í mótmælunum að s.I. laugardag hafi deild brezkra tund
urspilla verið á verði út af Jaðri í Noregi, og hafi lierskip elt þýzk
vöruflutningaskip langt inn í Tosfjord, milli Lindesnæs og Far-
sund, en snúið við aftur, er J»au áttu skannnt eftir inn í fjarðar-
botninn.
Þá er einnig tekið fram að s.l. föstudag hafi brezkt herskip
skotið fyrir framan þýzkt flutningaskip undan Övrestad og hafi
kúlan komið niður uppi á landi.
Þýzk blöð ræða mjög þessa at-
burði, og setja þá í samband við
það, að þýzkir kafbátar hafa und-
anfarið sökkt brezkum skipum
skammt frá Danmerkurströndum.
ef hægt væri að benda á að þeir
hefðu hindrað byggingu rafveitu
á staðnum. Þeir komu því fram
með frumvarp, sem fól í sér kosti
framsóknarfrumvarpsins en
sneiddi hjá göllum þess, og ga;tti
þar þess að Sjálfstæðisflokkurinn
á hagsmuna að gæta bæði í hinum
stærri bæjum og kauptimum. Sjálf
stæðismennirnir fóru sem sé fram
á að beint framlag kæmi úr ríkis-
sjóði til rafveitusjóðs.
En ofsóknarmálaliðið var el;ki
á því að sleppa sínu taki, og kom
það því inn í frumvarpið að skait-
leggja skyldi rafstöðvarnar eftir
orkumagni þeirra. Skúli Guð-
mundsson sagði í sambandi við
þessa tillögu: „það bara hækkar
FRAMHALD Á 4. SIÐU
Segja þýzku blöðin að Bretar
hugsi sér að hindra með öllu sigl-
ingar þýzkra skipa inn í Eystra-
salt, og muni í þeim tilgangi ekki
liika við að ráðast inn í landhelgi
Noregs og Danmerkur.
Ensk blöð halda áfram að skrifa
um nauðsyn þess, að hindra flutn-
ing járnmálms til Þýzkalands frá.
Svíþjóð um Narvik í Noregi, og
er jafnframt gefið í skyn að
norska stjórnin liafi sýnt sigling-
um Þjóðverja velvild, sem ósam-
rýmanleg sé hlutleysi. Noregs, og
verði brezka stjórnin að haga ráð-
stöfunum sínum samkvæmt því.
Þýzkui kafbátur kyrr-
sctfur í Noregí
Þýzkur kafbátur hefur verið
kyrrsettur í Noregi, þrátt fyrir
! mótmæli þýzka sendiherrans í
i Osló, er heldur því fram, að kaf-
báturinn hafi leitað til lands
vegna óveðurs.
Kristinn E. Andrésson.
Hlff tlDIFlt fek
iflnai 5íib
„Mál og menning” hefur hafið
útgáfu á nýju tímariti, er koma á
í stað ársritsins „Rauðra penna”,
er átt hefur miklum vinsældum að
fagna, og litla tímaritsins, sem
fylgt hefur bókum félagsins. Nafn
nýja tímaritsins er „Tímarit Máls
og menningar”, og er fyrsta heft-
ið nýkomið út. Ritstjóri Tímarits-
Framhald á 4. síðu.