Þjóðviljinn - 29.03.1940, Side 3
f'JOÐVILJINN
Föstudagur 29. marz 1940.
Bílslrar neita hægri handar umterð
Mófmælasamþykkfír ásamf ýfair-
fcgrí grclnargerd afhenf Alþlngt
Hér fer á eftir mótmælasamþykkt og greinargerð bílstjóra:
„Fjölmennur fundur meðlima Vörubílastöðvarinnar „Þróttur”,
haldinn 19. marz 1940, mótmælir 6. gr. í frumvarpi til umíerðalaga,
sem nú liggur fyrir Alþingi, ásamt þeim ákvæðum frmnvarpsins,
sem byggist á nefndri grein; enda telur fundurinn þá breytingu á
umferðamálum, sem þar er gert ráð fyrir ástæðulausa og hættu-
lega, og leggur eindregið til að hún verði felld, en í staðinn komi
ákvæði um vinstri handar umferð”
Tillögunni fylgir eftirfarandi
greinargerð:
Greinargerð.
Vörubílastöðin „Þróttur”, Bif-
reiðastjórafélagið „Hreyfill” og
Bifreiðastjórafélag Hafnarfjarðar
vilja hér með vekja athygli hæst-
virts Alþingis á þeim rökum, er
liggja til grundvallar mótmælum
fyrrgreindra stéttarfélaga bif-
reiðastjóra, á frv. því til umferða-
laga ,er samgöngumálanefnd neðri
deildar flytur að tilhlutun dóms-
málaráðherra.
1. Bifreiðastjórar eru fyllilega
sammála hæstvirtri samgöngu-
málanefnd um það, að hægri
handar umferð hafi enga kosti
fram yfir vinstri umferð.
2. Rök þau, er nefndin færir
fyrir framkomnu frumvarpi virð-
ast í aðalatriðum vera þau, að Is-
lendingar fari til útlanda með bif-
reiðar sínar til aksturs og gagn-
kvæmt og beri því nauðsyn til að
samræma umferðalög okkar um-
ferðalögum annarra þjóða.
I því sambandi má benda á, að
bæði England og Svíþjóð hafa
vinstri akstur, og þar af leiðandi
má telja fullvíst, að nokkrir
þeirra útlendinga, er komi jtil
landsins með bifreiðar sínar séu
vanir vinstri umferð, og af þeim
ástæðum teljum við ekki nauðsyn
þeirra breytinga, er frumvarpið
felur í sér. Á sama hátt má búast
við að nokkrir þeirra Islendinga,
er kynnu að fara til útlanda með
bifreiðar sínar, færu fil þessara
landa. En hinsvegar benda allar
líkur til að utanfarir Islendinga
með bifreiðar sínar verði mjög fá-
ar á komandi árum.
3. Fumvarpið gerir aðeins ráð
fyrir breytingu á strætisvögnum
Reykjavíkur, en eins og kunnugt
er, eru allir almenningsvagnar og
stórar fólksflutningabifreiðar
(kassabifreiðar) þannig byggðar,
að út- og inngangur fyrir farþega-
er á vinstri hlið. I greinargerð
fyrir frumvarpinu er gert ráð fyr-
ir að þessum bílum þurfi ekki að
breyta, en hinsvegar ætlazt til að
þeir nemi staðar á vinstri brún.
Það má furðulegt heita, að nokkr-
um skuli detta það í hug, að
leggja það til, að bifreiðar þessar
nemi staðar öfugt við hinar nýju
umferðareglur. Með þessari ráð-
stöfun einni saman myndi slysa-
hætta aukast að miklum mun, svc
að innan skamms tíma yrði eig-
endum þessara bifreiða skipað að
breyta þeim. En eins og ver'lag
er á öllu nú er lítur að akstri bif-
reiða, er mjög ósanngjarnt að
fara fram á slíkt við bifreiðaeig-
endur.
4. Bifreiðastjórar eru þeirrar skoð
unar, að samfara breytingum auk-
ist slysahætta, bæði vegna gang-
andi og akandi umferðar. f því
sambandi viljum við benda á, að
undanfarin ár hefur lögregla Reykja
víkur og einstaklingar lagt sig
mjög fram um að leiðbeina fólki í
umferðareglum, er byggðar eru á
vinstri handar umferð, og náð i
því sambandi svo góðum árangri,
að umferöarslysum hefur stórlega
fækkað, en fyrirhuguð breyting
mun að sjálfsögðu gera þann árang-
ur mjög lítils virði.
5. Hættulegustu afleiðingar breyt
ingarinnar telja bifreiðastjórar vera
aukna slysahættu, aukin umferða-
slys hafa óhjákvæmilega' í för með
sér hækkandi tryggingariðgjöld. En
jafnframt má taka fram, að inn-
flutningur á varahlutum til viðhalds
bifreiða er mjög miklum erfiðleikum
iMlrtil tirtju
kiiúnieim
Hinn vinsæli kór, Karlakór
Reykjavíkur, efnir til mikilla
kirkjutónleika í kvöld. Kórinn hef-
ur æft af kappi undir þessa tón-
leika í vetur. Viðfangsefnin eru
mjög fjölbreytt og eru eftir Bach,
Hándel, Beethoven, Schubert,
Wagner, Godard, Björgvin Guð-
mundsson, Sigurð Þórðarson o. fl.
Auk karlakórssöngsins syngur
tríó á hljómleikum þessum og
Björn Ólafsson og Páll Isólfsson
leika á fiðlu og orgel.
Ennfremur syngur drengjakór
með karlakórnum, er það nýjung
í íslenzku tónlistalífi. Forráða-
menn kórsins telja að hér sé um
tilraun að ræða, en vænta þess að
hún geti verið upphaf að skemmti
legri nýjung í tónlistalífi okkar.
Allir aðgöngumiðar æru þegar
seldir á hljómleikana í kvöld, en
þeir verða endurteknir á sunnu-
daginn.
háður, en bifreiðastjórar eru þes?
fullvissir, að með breytingu á nú-
gildandi umferðarreglum aukist að
miklum mun þöri fyrir notkun vara
hluta, vegna aukinnar árekstrar-
hættu.
6. Stéttarfélög bifreiðastjóra, er
standa að mótmælum á fyrr greind
um ákvæðum frumvarpsins
válja vekja athygli hátt-
virts Alþingis á því, að meðan fjár-
hagsafkoma þjóðarinnar ei* jafn bág
borin sem raun ber vitni, þá sjá
þau ekki neina ástæðu fyrir rikis-
sjóð eða einstaklinga að eyða tug'
um þúsund’a í brieytingu, sem viður-
kennt er að hefur enga kosti fram
yfir það, sem nú gildir.
7. Að síðustu viljum við taka fram
að það eru bifreiðastjórar, sem
mesta ábyrgð hafa á umferðinni, og
þar af leiðandi hefur það vakið
furðu þeirra, að stéttarfélögum
þeirra hefur ekki verið gefinn kost
ur> á að segja álit sitt á breytingu,
er ‘orsakar jafn mikla byltingu í
umferðarmálum þjóðarinnar, sem
áðurnefnt fremvarp stefnir að.
Vínarblaðið „Völkischer Beob-
achter” hefur undanfarið birt all-
margar greinar til andsvara skoð-
unum, er blaðið segir að séu út-
breiddar meðal almenniugs í Aust-
urríki, en skoðanir þessar lýsa
greinilega andúð almennings á
styrjöldinni. I einni greininni er
sérstaklega ráðizt að húsmæðrun-
um, er kenni styrjöldinni um erf-
iðleika og vandræði íbúanna í vet-
ur, sem blaðið vill kenna kuldum
og snjóum!
Blaðið ræðst harðlega á „nöldr-
unarseggina”, sem alltaf séu að
finna að ráðstöfunum stjórnar-
valdanna, og kaupmönnum, er
svari viðskiptamönnum sýnkt og
heilagt með því, að styrjöldin sé
sök í vöruskortinum, sem oft sé
aðeins vantandi skipulagningu að
kenna.
Safníð áskfifendoni
. Eígnízt eitthvert glaesíle$asta skáld*
rifíð, sem tíl er á íslenzku:
Halldór Kíljan Laxncss:
(Ljós heímsins, Höll sumarlandsínn
og Hús skáldsins), fæst á 15 kr. ó-
bundín og 20 kr. í bandí séu öll
bíndín keypt í einu.
Notið þessi einstöku kjör, meðan þau standa.
Sent gegn póstkröfu hvert á land sem tr.
OúHaKrzlui OeinshrliilD h.l.
Laugaveg 38. — Sími 505;"í.
KarlaHop Reuhia
Skíðamótí I.S.L á Akureyrí
lauk með sígrí Stglfírðinga
Jónas Ásgeírsson skíðakóngur Islands
í annað sínn
Landsmót þetta fór fram dag-
ana 21. þ. m. til 24 og var það
fjölmennasta, sem hingað til hef-
ur verið haldið. Þátttakandi félög
voru frá fleiri stöðum á landinu
en áður, eða 9 alls. Þá er þetta
mót sérstakt fyrir það hve margir
af hinum yngri voru með í ýms-
um greinum. Veðurskilyrði voru
yfirleitt góð og aðsókn áhorfenda
mikil. Sýnir það hinn almenna á-
huga, sem fyrir þessari íþrótt er
orðinn.
Mótið hófst á keppni drengja í
svigi 13—15 ára: Jón Gíslason,
Sameining Ólafsfirði, varð fyrstur
í þessum flokki.
10—12 ára varð Ari Guðmunds-
son, Skíðafélag Siglufjarðar undir
10 ára varð fyrstur Friðjón Ey-
þórsson, Iþróttafélagi Akureyrar.
Brun drengja:
10—12 ára, nr. 1 Gottskálk
Rögnvaldsson, Skf. Siglufjarðar.
13—15 ára, nr. 1 Guðm Ölafs-
son, Sameining, Ölafsf.
Stökk drengja A-flokkur.
13—15 ára, Sigtryggur Stefáns-
son, Skb. 18,5 metra.
B-flokkur:
10—12 ára, Ari Guðmundsson
Skf. Siglufjarðar, 13,5 metra.
Það vekur athygli að margir af
þeim beztu eru frá Sameining í Öl-
afsfirði, og frá Akureyri og bendir
til þess að Siglfirðingar tai þar
hættulega keppinauta þegar fram
líða stundir.
Þá kemur svig kvenna: vora í
því 11 þátttakendur.
1. Emma Árnadóttir, Sameiniog
78,3 sek.
2. Martha Árnadóttir, Iþr. Ves!-.
fjarða 80,1 sek.
3. Ingibjörg Hallgrímsd., Iþrf.
Akureyrar 94,4 sek.
15 km. Skíðaganga 17—19 ára
23 þáttt.:
1. Haraldur Pálsson, Skf. Sigl.
50 mín. 25 selc.
2. Einar Ölafsson Skf. Siglufj.
51 mín. 42 sek.
3. Jón Jónsson, Iþróttafél. Þing.
52 mín. 55 sek.
18 km. ganga Afl. 12 þáttt.:
1 Magnús Kristjánsson Iþrótta-
félag Vestfjarða 1,0,17 sek.
2. Guðm. Guðmundsson, Skfél.
Sigl. 1,1,20 sek.
3. Jónas Ásgeirsson, Skíðaborg
11,36 sek.
Einar Olgcirsson
Valdakerfið á
Islandi 1927--3g
Bókaverzl.
Heimskringlu
Laugaveg 38. —Sími 5055.
Kaupum tómar
ilösknr
Flestar tegundir.
Kaffistofan.
Hafnarstræti 16.
Jónas Ásgeirsson.
18 km. B-flokkur. 19 þáttt.:
1. Sigurður Jónssori, Iþróttafél.
Vestfjarða 1,6,55 sek.
2—3 Ásgrímur Stefánsson, Skf.
Sigl. 1,7,47 sek.
2—3 Guðm. Sigurgeirsson, Iþrf.
Þing 1,7,47 sek.
Svig karla A-fl. 25 þáttt.:
1. Ketill Ölafsson, Skíðaborg 2
mín. 0,3 sek.
2. Jón Þorsteinsson, Skf. Sigl. 2
mín. 10 sek.
3. Ásgrímur Stefánsson. Skí'.
Sigl. 2 mín. 10,2 sek.
B-flokkur, 25 þáttt.:
1. Páll Lindberg, Iþr. Akureyri
1 mín. 39 sek.
2. Sigurður Þórðarson, Samein-
ing 1 mín. 40,9 sek.
3. Björn MagnúSson, Skíðaborg
1 mín. 46,8 sek.
Svigkeppnin í A og B-flokki var
sveitakeppni. Tími fjögra beztu
manna í hverri sveit var:
1. Skíðafél. Siglufj. 9,04,2.
2. Iþróttaráð Akuréyrar 9,28,2.
3. Skíðaborg, Sigluf. 9,45,1.
B-f lokkur:
1. Iþróttaráð Akureyrar 708,3.
2. Skíðaborg, Sigluf. 8,5S,7.
C-flokkur.
1. Stefán Stefánss., Rvík 1,42,5.
2. Hjörtur Jónsson, Rvík 1,46,5.
Z. Sveinn ólafsson, Iþróttar. Ak.
147,5.
Stökk. A-flokkur:
1. Jón Þorsteinsson, Skf. Sigluf.
226,1 st. Stökk 30,0 og 29.5 m.
2. Alfreð Jónsson, Skíðaborg
222.5 st. Stökk 30,0 og 30,0 m.
3. Jónas Ásgeirsson, Skíðaborg
218,8 st. Stökk 27,5 og 28,0 m.
B-flokkur:
1. Sigurður Þórðarson. Samein-
ing, 217,7 st. Stökk 23,0 og 23,5 m.
2. Einar Ölafsson, Skf. Siglufj.
217.6 st. Stökk 240—240 m.
3. Magnús Árnason, Iþróttar.
Ak. 214,8 st. Stökk 23,5—25 m.
1 samanlögðu göngu og stökk-
um varð Jónas Ásgeirsson, Skíða-
borg, beztur og hlaut 448,3 stig,
er það í annað skiptið, sem hann
verður skíðakóngur Islands. Næst-
ur varð Guðmundur Guðmundsson
Skf. Siglufjarðar með 431,9 st. og
þriðji Ásgrímur Stefánsson, Skf.
Skf. Siglufj. með 396,2 st. Allir
frá Siglufirði. Til að keppa um i
móti þessu gaf Kaupfélag Eyfirð-
inga þrjá bikara. Ennfremur gaf
Aðalbjöm Pétursson gullsmiður
frá Siglufirði fagurlega gerða
fánastöng fyrir bezta afrek í svigi
drengja innan 10 ára og er það
farandgripur.