Þjóðviljinn - 30.04.1940, Side 1
V. ARGANGUR. ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 1940 98. TÖLUBLAÐ
i. nai shal oerða eiiimariaoir
uephalllsins - trítt tgrlr allt!
i. jnaí-ncfnd vctrblýdsfélaganna gengst fyrír sameíg-
inlcgrí stéttarkrðfugöngu i. mai
Mssamland Islenslra silamiaga Slgdar lassa eiaingarlrHngu
1. maí-ávarp verkalýdsfélaganna.
Geirum L maí ad voldugu herópí
um afvínnu, frelsí og launabaefur
Láfum ekkí fakasf að sundra líðínu
011 alþýða í eínlngarkröfu$ön$u
t undír merkfum Dagsbrunar og
annarra verkalýðsfélaga og fyríir
kröfum þeirra
Alþýða Keykjavikur.
Dagur bins vinnandi fólks, 1. maí, fer í hönd. Þenna dag hefur
það að undanförnu sett svip sinn á borgina, þennan dag hafa hin-
ir fátæku og undirokuðu gert að sínum degi, lagt niður viiuiu og
fylkt liði á aðalgötum bæjarins, sett fram nauðsynlegustu kröfur
sínar til lífsins og sýnt hinni iámennu valdastétt, scm orðin er f jáð
á kostnað almennings, að alþýðan ætlar sér ekki að eilífu að vera
hornreka mannfélagsins, heldur krefst réttar síns, réttarins til að
lifa eins og mönnum sæmir. Þennan dag liefur verkamaðurinn fund-
ið styrk sinn og mátt, þann mátt sem skapast við það eitt að taka
höndum saman við stéttarbróður sinn og systur, við það eitt, að
hefja upp merki frelsisins í sameiginlegu átaki, kreppa hinn mikla
hnefa þúsundanna í einhuga kröfu um rétt sinn.
Enri á ný stendur kröfu- og liátíðisdagur vor fyrir dyrum. Og
að þessu sinni er útlitið svartaia fyrir dyrum alþýðunnar en um
margra ára skeið. Heimsvaldastyrjöldin . hefur orsakað óbærilega
dýrtíð og jafnvel vöruþurrð. Valdamenn þjóðfélagsins hafa með
lögum meinað verkalýðnum að bera hönd fyrir höfuð sér, með því
að banna honum launaliækkun í hlutfalli við dýrtíðina og þar að
auki dregið saman atvinnulífið í veigamestu greinum þess (saltfisk
framleiðsla, byggingavinna o. fl.) án þess að nokkuð komi í stað
inn nema neikvæðar aðgerðir og niðurskurður verklegra fram-
kvæmda. Samtímis því, sem neyðin þannig er að halda innreið sína
á hundruð alþýðuheimila, fá stórútgerðarmenn að raka saman
milljóna stríðsgróða, sem í þokkabót er skatt- og útsvarsfrjáls.
Hvaða hugsandi maður getur sætt sig við þetta ástand?
Á síðasta fundi Dagsbrúnar voru samþykktar ýtarlegar og
gagngerðar kröfur í brýnustu hagsmunamálunum. • Aðalatriði lieirra
voru eftirfarandi:
Krafizt ráðstafana til atvinnuaukningar.
(Þar er bent á móvinnslu, þjóðvegavinnu, byggingu íþrótta-
svæðis og flugvallar, vinnslu brúnkola, surtarbrands og þangs, fram
ræsu í Ölfusi, garðyrkju o. fl.). Bent á þá möguleika að taka inn-
anlandslán og skattleggja stríðsgróða til fjáröflunar. Ennfremur
mótmælt niðurskurði opinberra framkvæmda og krafizt áframhalds
hitaveitunnar ef- kostur er og að leyfður verði innflutningur 10
vélbáta.
Krafizt mánaðarlegrar kaup hækkunar í hlutfalli við vöxt dýr-
tíðarinnar og samnings- og verkfallafrelsis fyrir verkalýðsfélögin.
Krafizt þess að kolakraninn taki ekki vinnu frá verkamönnum.
Krafizt áframlialds atvinnubótavinnunnar meðan ekki rætist úr.
• Um allt þetta var fundurinn einhuga, og til þess að fylgja mál-
unum eftir var því nær einhuga samþykkt að Dagsbrún gengist
fyrir 1. maí kröfugöngu og byði öðrum félögum þátttöku. 9 mánna
Avarp Landssambands
. -yr »
stéftarfélaganna
Landsambandið telur það .skyldu sína að vinna að því, að allur
verkalýður standi einhuga um hagsmunamál sín.
Verkamannafélagið Dagsbrún hefur á fundi síiiuin á mánudag-
inn 22. apríl s.l. samþykkt þær kröfur, sem allur verkalýður skoð
ar sem sínar kröfur.
Til þess a,ð bera þær kröfur fram til sigurs, þarf allt verka-
fólk að fylkja sér einhuga um þær.
Þessvegna skorar Landsamband ísíenzkra stéttarfélaga á all-
an verkalýð Reykjavikur, bæði meðlimi sambandsins og aðra, að
skipa sér í fyUdngu um kröfur Dagsbrúnar á degi verkalýðsins 1.
maí n.k.
Stjórn Landsambands íslenzkra stéttarfélaga.
nefnd var falið að annast framkvæmd þessarar mikilvægu sam-
þykktar.
Mörg félög tilkynntu þátttöku sína. Allt hneig í þá átt að nú
I fyrsta ‘skipti í mörg ár færu fram hátiðahöld verkamanna á grund
velli fullkominuar einingar og án nokkurs flokksáróðurs.
En þá gerðust þau undur, að nokkrir af fulltrúum Dagsbrún-
ar neituðu að starfa að því, sem félagið fól þeim, sviku þannig um-
bjóðendur sína, og lilupu brott frá skyldu sinni til þess eins að
kljúfa raðir verkamanna í samræmi við flokkspólitíska klíkuliags-
muni manna, sem ekki hafa áhuga fyrir saineiningu alþýðuimar um
einn málstað.
Alþýða Keykjavíkur. Látum cngum liðhlaupum takast að
sundra okkur. Þeir mega gjarna lofsyngja hinar ýmsu flokksldíkur
stjórnarvaldanna. Við skulum þrátt fyrir það gera 1. maj að degi
alþýðunnar, eins og vera ber.
Þeir nefndarmenn Dagsbrúnar, sem ekki hlupu brott, héldu á-
fram undirbúningssstarfinu ásamt fulltrúum annarra félaga. Enginn
nema Dagsbrúnarfundur getur svipt þá umboði sínu, en fund vilja
liðhlauparnir ekki halda af skiljanlegum ástæðum, þó þeim væri
boðið hús til þess.
Einingar-hátíðahöld verkalýðpfélaganna og allra verkalýðssinna
og unnenda einingar alþýðusamtakanna fara því fram eins og til
stóð. Safnazt verður saman í Lækjargötu fyrir framan Menntaskól-
ann kl. 1% e. h. og síðan farin kröfrfganga undir merkjum fél-
aganna og íslenzkum fánum.
Svörutii sundrungarfiltraunum með þvi að gera
eíníngarkröfu verkalýðsíns að voldugu herópí
fyrír afvínnu, frelsi og launabófum
Lofum sundrungarmönnunum að lofsyngja gerðir hátekju- og
hálaunamannanna, lofum þeim að leggja blessun sína yfir núver-
andi ástand. Við munum bera fram mál alþýðunnar á þessum
degi hennar.
Mæfum öll i einingarkröfugöngu verkalýðsins
i. maí í Lækjargöfu
Fullfrúar i 1. mai^nefnd verkafýðsfélaganna
Brezh go fpnnsh
11 drðleo It
af ganoi M-
lis I Hipegi
I blöðum í Bretlaudi og Frakk-
landi kemur fram nokkur óró-
leiki yfir gangi styrjaldarinnar í
Noregi. Hernaðarsérfræðingur
stórblaðsins „Times” segir að fyr-
irætlun Bandamanna mn skjóta
töku á borginni Þrandheimi hafi
mistekizt og geti farið svo að þeir
verði að epdm’skoða alla hemaðar
fyrirætlun sína í Suður- og Mið-
Noregi. Frönsk blöð livetja til þol
inmæði, þó að Bandamenn nái
ekki úrslitasigrum í Noregi á næst
unni, þar sem við gífurlega erfið-
leika sé að etja.
Æðsta herráð Bandamanna kom
saman á fund í London í fyrradag
og hafði ráðið þó komið saman
nokkrum dögum áður í París. Tal-
ið er að Noregsstyrjöldin hafi
verið aðalumræðuefnið á báðum
fundunum, og er beðið með áhuga
eftir tilkynningu Chamberlains
Framhald á 4. síðu.
V erkalýðsf undur
lýsír yfir ánægju
sínní með eíníng-
arkröfugönguna
Sósíalistafélag Reykjavíkur hélt
opinn verkalýðsfund í gærkvöld,
og var rætt þar um 1. maí.
Fundurinn samþykkti einróma
eftirfarandi tillögu:
„Opinn verkalýðsfundur haldinu
að tilhlutun Sósíalistafélagsins 29.
apríl 1940, lýsir ánægju sinni yfir
framkomu minnihluta Dagsbrún-
arnefndarinnar í baiáttu hans fyr-
ir einingu verkalýðsins 1. maí.
Fundurinn skorar á allan verka-
lýð þessa bæjar að fylkja sér ein-
huga um kröfur Dagsbrúnar í
kröfugöngu eiuingarinnar 1. maí.
Sorglcgf slys
Það hörmulega slys varð um
tíuleytið í gærmorgun er fjögra
ára drengur slasaðist á höfði svq
að hann beið bana af.
Drengurinn var Már Nikulásson
sonur Nikulásar Steingrímssonar,
bifreiðaviðgerðamanns, Bergstaða-
stræti 53.
Varð slysið með þeim hætti, að
verið var að flytja steypuhrærivél
norður Bergst.stræti, og var hún
aftan í bil. Drengurinn stökk upp
á vélina, en féll af henni aftur og
rakst á járnskúffu á vélinni og
skarst mikið á höfði. Lézt hann á
leiðinni til spítalans.