Þjóðviljinn - 28.01.1941, Blaðsíða 4
Borgfirdíngar gefa
PjódvíEjanum 180 kr.
Þjóðviljanum barst í gær
fjársöfnun frá Borgarnesi.
Voru það 180 kr., sem verka
menn í Borgarnesi og sveita
menn í Borgarfirði hafa
safnað saman, til þess aö
styrkja útkomu blaðsins.
Er þetta rausnarlega gert
og vel aö verki verið af
þeim Borgfirðingum. Þakk-
ar Þjóöviljinn fórnfýsi
þeirra og vonar aö hún
megi veröa mörgum til eft-
irbreytni.
Os*rboi*glnnl.
Nœturlæknir í nó.tt: Jónas Krist
jánsson, Grettisg. 81, sími 5204.
Nœturvördlir er pessa viku í
Rieykjavíkurapóteki og Lyfjabúð-
inni Iðunni.
Útvurpid í dag.
12,00 Hádegisútvarp.
15.30 Miðdegisútvarp.
18.30 Dönskukennsla, l. fl.
19,00 Enskukennsla, 2. fl.
19,25 Hijómplötur: Lög \ir óperett
um iog tónfilmum.
19,35 Erindi: Þegar lopinn kemur:
Frú Anna Ásmundsdóttir.
19.50 Auglýsingar.
20,00 Fréttir.
20.30 Viðskiptamálin 1940: Eyst.
Jónsson, viðskiptamálaráðh.
21,15 Tónleikar Tónlistarskólans:
a. La folia, eftir Corelli. Fiðla:
Bjöm Ölafsson. b. Tríó í G-dúr,
eftir Mozart.
21.50 Fréttir.
Dagskrárlok.
Trúlofnn. Nýlega hafa opinbur-
að trúlofun sína ungfrú Guðrún
Björnsdóttir, Brynjólfssonar frá
Eskifirði og hr. Bóas Emilsson
frá Stuðlum i Reyðarfirði.
Stjórnarhosníng í
Hlíf í Hafnarfírðí
Ad>ulfundur Verkamannafélags-
ins Hlíf í Hafnarfirði var haldinn
á sunnudag og fór stjórnarko^n-
ingin fram sem hér segir:
Formaður: Hermann Guðmunds
son með 142 atkv. Þórður Þórðar
son fékk 110.
Ritari: Siguröur T. Sigurðsson
124 atkv. Gísli Sigurgeirsson fékk
104.
Gjaldkeri: Ingvi Jónssion 113.
Kristján Steingrímsson fékk 91. _
Fjármálaritari: Sumarliði Andr
ésson 97. Guðm. Eggertsson 82.
Varaformaður: Isleifur Guð-
mundsson 85. Sigurður Guðnason
fékk 75.
I varastjórn eru Karl Auðunns-
son, Sigurbjðrn Guðmundsson og
Kristinn Helgason. Allír þeir er
k»3snir voru eru Sjálfstæðismen
Pcít scm gieymdust
Hérmeð tilkynnist vinum og vandamönnum, að Jón
Guðmundsson andaðist að Farsóttahúsinu í Reykjavík þ. 26.
jan. þ. á.
Guðrún Nikulásdóttir, Sigríður Jónsdóttir.
A. S. B.
heldur fund á Amtmannsstíg 4, í'immtud. 30. jan. kl. 8 e. h.
FUNDAREFNI:
Samningsumleitanirnar.
Uppsögn samnings A. S. B. frá 1. maí 1941.
Eftir fundinn hefst
ALLSIIERJARATKVÆÐAGRrEIÐSLA
um fullt umboó til samninganefndar félagsins um heimild
til vinnustöövunar ef samkomulag næst ekki viö atvinnurek-
endur.
Atkvæðagreiöslan fer l'ram í Þingholtsstræti 18 íundar-
kvöldið 30. jan. .frá kl. 10 e. h. til kl. 2 eftir miönætti og'
föstudag 31. jan. og laugardag 1. febr. kl. 1—11 e. h. báöa
dagana. Kjörskrá liggur frammi í Þingholtsstræti 18 þriðju-
dag og miðvikudag kl. 7—10 e. h.
Atkvæöisrétt hafa þær félagskonur einar, sem ekki
skulda fyrir 1939 og komnar eru á kjörskrá þegar kosning
hefst.
Félagsgjöldum veitt móttaka þriðjudag og miðvikudag
kl. 7—10 e. h.
Eggerf Claessen
Framh. af 1. síðu.
slíkum deilum af stað og við-
halda þeim, töldu þeir sig hafa
verið blekkta til að blanda s'ér í
deilur er þeim' kæmi ekki við og
lofuðu að gera hlð fyrsta enda á
þessa töf. Og næstu daga voru
allir vinnulausir múrarasveinar
kallaðir til vinnu.
Hverníg afvínnurekend-
ur fóru ad
Framhald af 1. síðu.
isverkamenn sjá ekki hvernig ver-
ið að ginna þá. Þeim hefur verið
talin trú um að flokkur þeirra
berðist fyrir að enginn atvinnu-
rekandi væri i Dagsbrún. en nú
er þeim ætlað að kjósa einn af
stærstu atvinnurekendum landsins
í formannssæti í félaginu.
En þá „mínir menn“, hinir „ó-
háðu verkamenn,sem ihaldsblöðin
kalla?
Hefur þeim ekki verið sagt að
þeir væru að berjast við „ihaldið"
og fyrir hag stéttar sinnar, og við
ióreiðuna í Dagsbrún?
Nú er þeim htðið að kjósa í-
haldið í meirihluta Dagsbrúnar-
stjórnarinnar, og þá menn, sem
bena ábyrgð á öllu því svindli,
sem fram fór í Dagfebrún síðasta
ár, og samkvæmt samningi eiga
þessir menn að vinna að kjarabót
um fyrir verkamenn eftir því sem
„samkiomulag næst um við atvinni
rekendur."
Sú var tíðin að Héðinn talaöi
öðruvísi.
Það getur enginn óbrjálaður
Daigsbrúnannaður kosið öðruvísi
en með stétt sinni.
Kjósið C-LISTANN!
St. Verðandi nr. 9.
Fundur í kvöld kl. 8.
1. Inntaka nýliöa.
2. Kosning embættismanna.
3. Erindi (Indriði Indriðason
frá Fjalli).
4. Einsöngur (E. S,).
5. Bindindisþáttur (P. Z.).
x
Með þes&ari gervivinnudeilu hef
ur Eggert Claessen reynt að koma
af stað deilum og ýfingum milli
enska setuliðsins og íslenzkra
verkamanna og reynt að beita fvr
ir sig brezka setuliðinu með rógi
og álygum til að kúga íslenzka
launþega. Hann notar lögfræðings
nafn sitt til að affæra merkingu
islenzkm laga og með þessari
])okkalegu bardaga aðferð tekst
honum að halda nær tveggja vikna
verkbanni á íslenzkri alþýðu.
Vilj-a ekki hin þjóðlega við-
kvæmtii stjórnarvöld rannsiaka I
hviort hér sé ekki um Irmdrád nri
rœart?
Bggert Claessen hefur með
þessu framferði rægt saman is-
lenzka þegna og erlent herlið í
því skyni að koma af stað ill-
indum og deilum þeirra á milli.
Hann hefur túlkað lög vor fyr
ir erlendum innrásarher á þann
veg, að missætti og deilur við
landsmenn gátu af því risið.
Hann hefur komið i veg fyrir
að íslenzkir launþegar gætu not-
ið þeirrar vinnu, sem brezka sietu
liðið var fúst að láta þá leysa
af hendi.
Fyrir svona athæfi hefði hver
óbreyttur alþýðumaður verið úr-
skurðaður undir lás meðan rann-
sókn færi fram.
Og slíkt athæfi þarf að rann
saka og dæma. Það er krafa allra
þeirra, sem ekki vilja bera land-
ráðanafnið með Claessen.
Framhald af 2. síðu.
á það sameiginlegt með æsku
kaupstaðanna að eiga svio sára
litla möguleika til að reisa sín
eigin bd.
Ástæðan til þess að þessi sífett
er höfö útundan og hennar hvergi
getið er ákaflega augljóst, þetta
fólk á engin samtök, enga for-
ustu né nokkurn hlut, sem henni
niegi að gagni koma í baráttu
sinní fyrir réttinum. Hún er dreifð
út um allt land og hvergi, á ein-
um stað, nægilega sterk til átaka,
auk þess, eins og allar aðrar stétt
ir, umsetin af sínnm eigin at-
vinnurekendum, sem vinna að
því sýknt og heilagt aci berja nið
ur allar hennar frjálsræðishugsan
ir.
Enn er svo eitt, og það einna
veigamest, að allur sá fjöldi
manna, er stundar lausamennsku
í sveit er ráðinn yfir svo og svo
langan tíma, segjurn yfir vetur-
inn, sumarið eða allt árið, fyrir
fast kaúp, svo að hvað sem kaup-
lagið á öðrum stöðunx breytist á
þeim tíma geta þeir ekki sagt
uþp samningum fyrr en ráðn-
ingartími þeirra er úti oig tapa því
hálfu eða heilu ári.
Þettia og annað þvi um líkt þurf
um við að athuga, hversu vel sem
verklýðsfélög kaupstaðanna semja
— hversu glæsilegur, sem sigur
þeirra er, er hann aldnei nema
hálfur meðan til er sú stétt laun-
þega, sem algerlega er höfð út-
undan.
Ingvar Björnsson
Reykjavik.
Gömlu Da$sbrúnar~
sfjórninní sfeípf
Framhald af 3. síðu.
Peirra þrár, óskir og vonir eru þæ
sömu og ykkar, þeirra sigrar ykk-
ar sigrar, sömu hagsmunir tengja
ykkur saman. Þessvegna er C-list
inn listi verkamana og engra ann-
arra.
Verkamenn, mætið kúgunar- og
ofbeldisráðstöfunum atvinnurek -
enda með því að þoka ykkur enn
fastara saman í tjaráttunni fyrir
frelsi ykkar, fyrir bættum kjörum
og síðast en ekki sízt gegn hvers
konar flugumönnum og sendlum
atvinnurekenda innan Dagsbrún-
ar.
Gerið skyldu ykkar gagnvart
stéttarfélagi ykkar og ykkur sjálf
um.
Fram til orustu gegn ofbeldinu
og rangsleitninni í hvaða mynd
sem það birtist.
Til baráttu fyrir bættum kjör-
uim og bjartara lifi.
Mætum allir sem einn maður
O'g kjósum verkamannalistann, C
listann.
Zóphonias Jónsso'n.
Daglega nýsoðin
S VID
Kaffistofan-
Hafnarstræti 16.
Hvers er að vænia
Framhald af 3. síðu.
þýðublaðsmanna, — sem nú er
kastað fyrir borð vegna fylgisleys
is — og leikiö ]xað svo, að félag-
ið hefur orðið féþúfa ófyrirleit-
inna manna og máttlaiust vopn
í stéttarbaráttunni, sem hefur stað
ið ver i * kaupgjaldsmálum en
smæstu verklýðsfélög úti á landi.
Og munurn það verkamenn, að
öll þessi vetlingatök fráfarandi
stjórnar — sem nú er endurnýjuð
á A- og B-listununx — og þjónk-
un við atvinnurekendur hefur
kostað okkur um 300 þúsiund kr.
samkvæmt upplýsingum þeirra
sjálfra.
— Verkamenn ! Nú gerum
við bragarbót, gerum félag okkar
að hreinu verkamannafélagi og
kjósum verkamannastjórn, sem
starfar á stéttarlegum grundvelh
fyrir kjarabótum okkar án undan
látssemi við atvinnurekendur og
afneitum öllum afskiptúm yfir- og
utanstéttarmanna af hag.-munamál
um okkar, því að þeir hafa verið
og verða dragbitar á allri fram
sókn verkalýðsins. Þeir hafa með
ofbeldi og lögleysum bannað okk
ur að bera fram lista við stjórn-
arkosningarnar, sem bæri okkar
nafn: verkamannalisti, og reyna
að koma þeirri skoðun inn i hðf-
uð félagsmanna, að þeir, sem
styðja C-listann séu ekki eiginleg
ir verkamenn, heldur kommúnist
ar austan frá Moskva og launaðir
af Stalín. Þetta eru þeirra einu rök
gegn því að við verkamenn meg-
um bera fram þann lista í okkar
eigin félagi öðruvísi en í nafni
Stalins, sem er á máli þeirra
samnefnari allra réttindamála
verkalýðsins. Félagar! Við kjós
um þvi hvorki A- eða B-listann
sem hafa á oddinum pólitiska
spekúlanta og sem gera sér leik
að því að draga okkur í pólitíska
dilka, er tefla skal fram eins og
peðum á hinu pólitiska skákborði
þeirra, þar sem svo og svo mikið
fylgi þýðir vellaunað embættieða
þingsæti. Við kjósium allir C-list
ann, lista allra stríðandi, stéttvisra
verkamanna, því að með því einu
erum við okkur sjálfum trúir og
sýnum það að við berum meira
traust til okkar sjálfra til þess
að stjórna félaginu og leiða það
á sigursæla braut, heldur en bug-
sjónalaus lolíukonungs eða út-
dregins ráðherra. — C-listinn er
trygging fyrir sameiningu Dags-
,brúnar á grundvelli jafnréttis allra
verkamanna. Verkamenn! Látum
ekki blekkjast af hinurn pólitísku
broddum! Verndum einingu félags
ins og kjósum okkar lista C-list
ann!
Verkamaður.
KAUPUM FLÖSKUR
stórar og smáar, viskípela glös
og bóndósir. FlöskubúðinBerg-
staðastræti 10. 5395.