Þjóðviljinn - 16.09.1942, Síða 4
þJÓÐVILJINN
■■I Tjarnarbíó ■■
Ævintjrl blaðamanns
(Foreign Correspondent)
Aðalhlutverk:
Joel McCrea — Laraíne Day
Albert Bassermann.
Sýning kl. 4, 6,30 og 9.
Börnum yngri en 16 ára
bannaður aðgangur.
Flokkurinn
KOOOOOO
>00000)
Sósíalistafélag Keykjavíkur heldur
fund í Baðstofu iðnaðarmanna
fimmtudaginn 17. sept. n. k. kl. 814
e. h.
Aðalmál fundarins verður framboð
Sósíalistaflokksins í Reykjavík, og
er félagsfólk eindregið hvatt til þess
að mæta vel og stundvíslega.
Skilið könnunarlistum og söfnun-
arfé á fundinum.
*
Sósíalistar á Grimsstaðaholti og í
Skerjafirði! Deildarfundur í kvöld
(miðvikudag) kl. 8V2 á Fálkagötu 1.
Frá kosninganefndinni
Hinar slæmu horfur fyrir
Sjálfstæðisflokkinn í komandi
kosningum hafa farið illa í taug-
arnar á Vísi. í gær kallar hann
kjósendur Sósíalistafiokksins aft
urgöngur í leiðara sínum.
Afturgöngur eru oft illar við-
ureignar og ættu kjósendur Sós-
ialistaflokksins að géra sitt til
þess að kafna ekki undir nafni og
láta íhaldið finna til þess að ein-.
hver veigur sé í afturgöngunum.
Munið að eini flokkurinn, sem
getur sigrað íhaldið í Reykjavík,
er Sósíalistaflokkurinn.
Herðið söfnunina í kosr inga-
sjóð! Skilið könnunarlistum
strax!
Kjósendur! Kosningaskrifstofa
Sósíalistaflokksins er á Skóla-
vörðustíg 19, 2. hæð. Gefið í
kosningasjóð. Kjörskrá liggur
frammi. Opið allan daginn.
Kosninganefndin.
Sósíalistafélag Reykjavíkur heldur
fund í Baðstofu iðnaðarmanna n. k.
fimmtudag kl. 8V2 s. d. Rætt verður
um framboð Sósíalistaflokksins í
Reykjavík.
Kaupdella Mmiierkanaiiiia
Framhald af 1. síðu.
Vinnuveitendafélagið, var gert
ráð fyrir því, að verkamenn, sem
fagvinnu stunda, fengju sömu laun
og sveinar í viðkomandi iðngrein.
Enda telur Dagsbrún það vera
beztu tryggingu fyrir því, að
verkamenn rými fyrir íðnlærðum
mönnum þegar vinna gengur sam
an. En vegna þess, að þetta at-
riði var gert að aðalágreinings-
atriði af hálfu vinnuveitenda, var
þessari grein breytt. Hinsvegar
lýsti stjóm Dagsbrúnar því yfir
þá þegar, að hún teldi ósamið
um kaupgjald verkamanna í fag-
vinnu, og að yfirlýsingar hennar
varðandi tryggingu vinnufriðs
gætu því ekki tekið til vinnu
Bœjarpósfturínn
Framhald af 2. síðu
Og við hverja ráðfærði Alþýðu-
blaðið sig áður en það tók afstöðu
á móti því að verkamenn á Akureyri
sameinuðust í eitt félag? Og hvað olli
því að Alþýðublaðið hefur hvorki
minnst á einingarstefnuskrá Dags-
brúnar né á kvartanir hennar um
að kalla saman ráðstefnu með stjórn-
um verklýðsfélaganna til að ræða
dýrtíðina?
Nei, Alþýðublaðinu er bezt að gera
sig ekki að neinum siðameistara
gagnvart Dagsbrún. Það treystir eng-
inn núverandi Alþýðusambands-
stjóm, og það er ekki hvað sízt áhrif-
um Alþýðublaðsins að kenna.
Allt í grænum sjó.
Erfiðlega ætlar borgaraflokkunum
að ganga að hnoða saman framboðs-
listum sínum.
í gærmorgun auglýsir Alþýðublað-
ið með miklum slætti fund sem halda
átti í gærkvöldi í Alþýðuflokksfélag-
inu til þess að ganga frá framboðs-
lista kratanna. — En aftast í blaðinu
er svo fundi þessum aflýst vegna
þess að síðast í nótt hafði ekki náðst
samkomulag meðal forustuklíkunn-
ar um uppstillinguna. — Hélt það
riflildi áfram í gærkvöldi.
Ekki gengur betur hjá íhaldinu.
Fundur uppstillingarnefndar, sem er
skipuð 15 mönnum, hélt 8 klukku-
stunda fund í fyrradag og annan
fund sem stóð í 7 tíma í gær. —
Hefur Thorsaraklíkan yfirráðin í
nefndinni undir forustu Bjarna Ben.
— Eru skoðanir sízt minna skiptar
en í sumar og sést bezt á leiðara
Vísis í fyrradag hvernig umhorfs
muni vera á þeim vígstöðvum.
þessara manna. fyrr en samið
hefði verið um kaup þeirra. Þessu
var ekki mótmælt af hálfu Vinnu
veitendaf élagsins.
Stjórn Dagsbrúnar álítur, að
ekki sé hægt að viðurkenna rétr
nokkurra óteiagsbundinna at-
vinnurekenda til þess að ákveoa
einhliða kaup vei'kajnanna, og þá
ekki he-klur kaup þeirra verka-
manna. :em fagvinm: stunda.
Þar af leiðandi telur stjórn
Dagsbtúmir, að eng’r,n meðlimur
Verka/!,i "nafélags'ny Dagsbrún
geti unnið að f.'v.-vinnu án þas.’,
að um kaup og kjör hafi vei.ð
samið uð íélagið.
Stjórn Dagsbiúnar mótmæ’ir
því e,:’< regið tyrrnefndri sarri-
þykkt ; ðar og ce'.iir hana á eng-
an hátt 1-indan.ii fyrir meðlimi
Dagsb' ,;:.ar”.
Stjórn Dagsbrúnar er hinsveg-
ar reiðubúin til þess að taka upp
samninga eða samkomulagsum-
leitanir við yður um þetta deilu-
mál, að því er viðkemur verka-
mönnum þeim, er s.tunda fag-
vinnu á yðar vegum.
Virðingarfyllst
(undirskrift)
Dagsbrún fékk það eitt svar
við þessu bréfi, að engu yrði um
þokað í þessu efni og öllum sam-
komulagstilboðum af hendi Dags
brúnar var hafnað.
Félagsfundur í Dagsbrún liald-
inn 7. september s. 1. samþykkti
þ/í einróma að auglýsa taxta fyr
■ir ófaglærða verkamenn, sem
vinna fagvinnu. Var grunnkaupið
þar ákveðið kr. 2,90 um klst.
Sama dag samþykkti trúnaðar-
mannaráðsfundur í Dagsbrún
heimild til vinnustöðvunar með
tilskyldum fyrirvara samkv. vinnu
löggjöfinni, frá og með 15 .sept.
Samkvæmt þessu hófst vinnu-
stöðvun í gær hjá öllum þeim
fyrirtækjum, er ekki höfðu geng-
ið að þeim kauptaxta, er Dags-
brún hafði auglýst fyrir ófag-
lærða verkamenn, er stunda smíð
ar. Er rétt að geta þess í þessu
sambandi, að stjórn Vinnuveit-
endafélagsins lýsti því yfir að
hún hefði engan áhuga á að samn
ingar næðust um kaupgjald verka
manna í fagvinnu.
Næturlæknir: Björgvin Finnsson,
Laufásveg 11, sími 5995.
Næturvörður er í Laugavegsapó-
teki.
Leiðrétting. Á forsíðu Þjóðviljans
í gær var dagsetning blaðsins 19.
sept, en átti að vera 15. sept.
Útvarpið í dag:
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
19.25 Hljómplötur: Lög úr tónfilm-
um.
20.00 Fréttir.
20.30 Tvíleikur á fiðlu (Þórarinn
Guðmundsson og Þórir Jónsson);
Tvíleikar eftir Godard.
20.45 Upplestur: Um Gandhi, eftir
John Gunther (Magnús Magnús-
son, ritstjóri).
21.15 Hljómplötur: íslenzkir söngv-
arar.
21.50 Fréttir.
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur
Hljómskálagarðinum í kvöld kl. 9, ef
veður leyfir. Stjórnandi Karl O. Run-
ólfsson.
Auglýsing
um hámarksverð
Dórnnefnd í verðlagsmálum hefur ákveðið eftirfarandi há-
marksverð:
Óbrennt kaffi í heildsölu kr. 3.38 pr. kg. í smás. kr. 4.22 pr. kg.
Brennt og malað ópakkað — 5.32 -- — — 6.65 ---
Brennt og malað pakkað — 5.52 --- — — 6.90 ---
Þó má álagning á kaffi ekki vera meiri en 6y2% í heildsölu
og 25% í smásölu.
Fiskbollur í heildsölu kr. 2.95 pr. kg. dós í smásölu kr. 3.70
do. - — — 1.60 — y2----- — —2.00
Reykjavík, 15. sept. 1942.
Dómnefnd í verðlagsmálum
■ooooooooooooooooooooooooooooooooooo.
48
nniaDiaDnianiaianníaninianasniianiian
D
U
U
u
u
u
u
u
u
u
u
u
u
U
u
g
æ
u
DREKAKYN
Eftir Pearl Buck
U
U
D
u
u
u
n
u
u
u
u
u
ö
u
u
u
u
u
u
u
u
u
u
u
r
u
u
u
u
u
u
. u
gera Það vel sem fyrir hann væri lagt, en ef enginn væn
til að segja honum fyrir verkum, mundi hann vera ráða-
laus, og Ling Tan fann alla ábyrgðina hvíla á sínum herð-
um. Nú sá hann að yngri sonur hans var maður sem gat
tekið sínar eigin ákvarðanir, þó.ungur væri, rétt eins og
kona sem eiei þurfti að láta segja sér fyrir
u
u
n
a
u
u
u
u
u
a
D
d
Jada var
verkum.
Jafnvel Ling Sao saknaði Jadu meira en hún vildi viður-
kenna, en af því hún var ráðvönd kona, sem ekki vildi
leyna mann sinn neinu, sagði hun honum það hlæjandi
nokkrum dögum síðar.
Eg mundi hafa sagt að engirm triður yrói a heimniuu fyrr
en Jada væri farin, og ég segi ekki að ég viiji uð nún komi
aftur, ef það væri ekki vegna sonar okkar En mer leiðist
Orkída, sem getur ekkert gert nema eg segi henm tyrir
verkum, og eldri dóttir okkar, sem kallar á mig frá morgm
til kvölds: Mamma, hvað á ég að gera næst? Eg segi henm
að líta í kringum sig og athuga hvort gólfið sé nreint eða
hvort sópa þurfi húsagarðinn eða hvort nóg eldsneyti sé
til, eða hvort fötin þurfi þvottar með eða hvort snúa þarl
fiskinum sem verið er að þurrka, eða ef ekkert annað þarf
að gera, þá að skera niður gulrófur til að setja í salt fyrir
veturinn, en þá spyr hún: Hvað á ég að gera fyrst, mamma?
Glettnisglampa brá fyrir í augum Ling Tans. Hún er
dóttir þín, sagði hann, og hún spyr þig enn hvað hún eigi
að gera, Því þú hefur alltaf sagt henni fyrir verkum. Jada
óx ekki upp undir þinni handleiðslu, og því er húr vön að D
sjá með sínum eigin augum, en ekki þínum.
Er það mér að kenna? sagði hún. Hún hafði veriö j
kemba hár sitt áður en þau legðust til svefns, en nú hætti
hún því. Margra ára sambúð hafði fært þau svo nálægt
hvort öðru, að hún mátti ekki heyra hann
D
mæla neitt
'Qaaaaaúxaaaaaaanaaauiaaaaaa
um kaup og kjör bifreiðastjóraj Reykjavik
Á fundi í bifreiðastjórafélaginu „Hreyfill“, er haldinn var
14. sept. 1942 var samþykkt að kaup og kjör bifreiðastjóra í
( Reykjavik frá 1. sept. 1942 skyldi vera sem hér segir:
i Lágmarkskaup bifreiðastjóra skal vera kr. 550.00 á mánuði.
Vinnutími bifreiðstjóra skal vera 10 stundir á dag, en þar
1 dregst frá 1 klukkustund til matar og tveir l/4 klst. til kaffi-
I drykkju.
Bifreiðastjórar allir skulu hafa 4 heila daga frí í mánuði
hverjum.
Þar að auki skulu þeir sem hafa unnið lieilt ár eða lengur
hjá sama atvinnurekanda fá 12 daga sumarleyfi, en þeir sem
1 unnið hafa skemur, skulu fá einn dag fyrir hvern unninn mánuð.
Á tímabilinu 15. maí til 30. sept.
Dagfrí skulu veitt með sólarlirings fyrirvara og sumarfrí með
7 daga fyrirvara.
Öll frí skulu veitt án frádráttar á kaupi.
Vinni bifreiðastjóri fram yfir Þann tíma sem um getur í ann-
arri málsgrein taxtans, skal honum greitt kr. 2.00 fyrir hverja
byrjaða hálfa klukkustund.
Bifreiðastjórar sem aka á langleiðum skulu hafa uppihald sér
að kostnaðarlausu.
Nái bifreiðastjórar ekki til heimila sinna að kveldi, skal gist-
ing þeim að kostnaðarlausu.
Ef bifreiðastjóri veikist eða verður fyrir slysi, skal hann
einskis í missa í kaupi allt að 30 dögum á ári.
| Bifreiðaeigendum er aðeins heimilt að taka til vinnu þá bif-
reiðastjóra, sem eru fullgildir meðlimir í bifreiðastjórafélaginu
„Hreyfill“, eða einhverju öðru félagi innan Alþýðusambands
Islands.
Grunntaxti þessi greiðist með fullri dýrtíðarupp»bót máanðar-
lega samkvæmt dýrtíðarvísitölu kauplagsnefndar, og skal greitt
í hverjum mánuði samkvæmt vísitölu næsta mánaðar á imJan
Taxti þessi gildir þar til annað verður ákveðið og áskilur
félagið sér rétt til þess að segja upp taxtanum hvenær sem er,
með tveggja vikna fyrirvara.
Reykjavík 15. sept. 1942.
STJÓRNIN.