Þjóðviljinn - 21.03.1943, Side 2
2
ÞffÖÐ VIL JIWH
Sunnudagur 21. marz 1943.
Eínnnnacfæjannn
Karlakórínn
Fóstbrædur
3V-
r\r
n
ii«■.
X3
heldur árshátíð sína föstu-
daginn 2. apríl með borð-
haldi að Hótel Borg.
Styrktarfélgum er boðið
að taka þátt í hófinu með-
an húsrúm leyfir.
Upplýsingar í síma 3190
(Sanitas).
Daglega
nýsodín svið. Ný egg,
soðín og hrá.
Kaffísafan
Hainarstræti 16.
Ármann
hleður á morgun <mánu-
dag) til Vestmannaeyja.
Vörumóttaka til hádegis.
aaaamnn
oa
Gullmunir
handunnir — vandaðir
Steinhringar, plötuhringer
o. m. fl.
Trúlofunarhringar
alltaf fyrirliggjandi.
Aðalbjöm Pétursson,
gullsm., Hverfisgötu 90.
Sími (fyrst um sinn) 4803.
TILKYNNING
frá loffvarnanefnd
Loftvarnaæfing verður haldin að tilhlutun
Loftvamanefndar Reykjavíkur og stjóm
setuliðsins einhvern daginn, frá 21.—27. marz,
að báðum dögunum meðtöldum, milli kl. 20
og 24.
Allir einstaklingar og stofnanir á svæð-
inu fyrir sunnan línu, sem dregin er frá vestri
til austurs miðja vegu milli Akraness og
Borgarness og fyrir vestan línu, sem dregin
frá norðri til suðurs skammt fyrir austan Vík
í Mýrdal, eru beðin að sýna fulla samvinnu
með því að taka þátt í æfingunni.
Menn eru varaðir við því, að loftvarna-
merki, sem kunna að verða gefin á hinu of-
angreinda tímabili, þurfa ekki nauðsynlega
að gefa það til kynna, að æfingin sé að hefj-
ast, heldur gæti verið um að ræða raunveru-
lega aðvörun um loftárás.
t LOFTVARNANEFND
SfiingaFshðllni HrUlustneti 12
verður til leigu frá 1. maí n.k. fyrir fundahöld og ým-
iskonar félagsstarfsemi. Nánari upplýsingar gefur Karl
Bjarnason brunavörður, Bjarkargötu 14, sími 3607.
Karlm. - Vorfrakkar
amerískir,
voru teknir upp í gær og verða seldir á mánudag.
H. Toff
Skólavörðustíg 5. — Sími 1035.
Niðurlag
Framsókn heí'ur verið þver
viö allar tillögur sérfræöing'-
anna í raforkumálunum og
fyrst og fremst hefur hún
stillt málunum á þann veg.
aö hún gæti gert sér póli-
tískan mat úr þeim.
Hún reynir stööugt í þess-
um málum aö setja sveit gegn
kaupstaö og kaupstaö gegn
sveit. Þeir, sem ekki vilja
ganga inn í hringavitleysu
Framsóknar í raforkumálun-
um, eru af henni dæmdir
fjendur sveitabyggja og þaö
básúnar hún út um allar
sveitir í blööum sínum.
Framsóknarmenn hafa gert
slíkan hamagang út af raf-
orkumálunum í þessa átt, að
ýmsir fulltrúar sveitanna í
Sjálfstæöisflokknum hafa
ekki þoraö annað en að
fylgja þeim, en undarlegast
er, þegar ýmsir fulltrúar Al-
þýöuflokksins ruglast í þess-
um pólitíska ofsagangi Fram-
sóknar. í öllum rafmagxismál-
unum markast stefna Fram-
sóknar af valdapólitíkinni;
eingöngu af því, hvernig hún
getur notaö þessi mál bezt
til aukinna valda fyrir sig.
Framsóknarmenn eru á
móti Lagarfosstillögunni
vegna þess að af henni geta
þeir ekki heft pólitískan á-
vinning, fyrst svo illa tókst
til, aö sósíalistar fluttu mál-
ið en ekki þeir.
Framkvæmd stórvirkjunar
fyrir Austurland, sem aö ein-
hverju leyti mætti þakka sós-
íalistum væri jafnvel stór-
hættuleg fyrir valdastöðu
flokksins eystra. Því hlýtur
flokkurinn a'ö vera á móti
málinu, samkvæmt sinni
grundvallarafstööu í þessu
málum. Tillögur Framsóknar-
manna um „landsplaniö“
fræga í raforkumálunum, er
framsett meö þaö í huga, að
hér sé máliö, sem afgerandi
skipti kaupstaöabúum og
sveitafólki í tvo hópa og því
sé máliö tilvaliö til kosninga
og mætti þá kannske með
því höggva frá íhaldinu þá
sveitafulltrúa er þaö nú hef-
ur.
Framsókn veit aö enn er
hægt, þrátt fyrir sí'öustu
breytingu á kjördæmaskipun-
inni, fyrir flokk, er aöeins
nýtur trausts lítils hluta
þjóöarinnar, aö ná meirihluta
valdi. á Alþingi meö því aö
ná öllum sveitakjördæmum
landsins. Þetta dreymir Fram
sóknarforkólfana um.
Noregssiffnun
Norræna félagsins
Herra ritstjóri!
Þar eð því hefur, hvað eftir ann-
að verið haldið fram í blaði yðar,
Þjóðviljanum, að ég hafi ákveðið og
ráðið því að það fé, sem safnaðist í
Noregssöfnunina yrði geymt og af-
hent fyrst eftir stríð og stórspillt
þannig fyrir söfnuninni, vildi ég
biðja yður fyrir eftirfarandi kiðrétt-
ingu.
Áður en Norræna félagið hóf Nor-
egssöfnunina ræddi ég allítarlega við
sendiherra Norðmanna hér, fulltrúa
norsku stjórnarinnar í Löndon, um
það hvernig því fé skyldi varið, sem
væntanlega safnaðist. Eg taldi og tel
að Norðmenn viti það bezt sjálfir,
hvað komi þeim bezt og þessvegna
leitaði ég að sjálfsögðu til fulltrúa
Norðmanna til þess að fá um það
vitneskju og geta farið eftir óskum
þeirra. Það var ákveðin skoðun sendi
herrans að bezt væri að geyma féð
til stríðsloka og nota það þá til hjálp
ar og uppbyggingar í Norcgi, því
eins og sendiherrann sagði, að Norð-
menn vantaði ekki peninga, af þeim
hefðu þeir meira en þeir gætu fengið
vörur fyrir, en að stríði loknu myndi
mikil þörf á fé. í samræmi við þessa
skoðun Norðmanna sjálfra lagði ég
til að féð skyldi geymt og afhent,
er Norðmenn heíðu fengið land sitt
og frelsi.
í haust bárust um það fregnir að
mjög mikill skortur væri í Noregi á
mat, lagði ég þá til, þrátt fyrir íram-
angreinda ákvörðun, að minnsta
kosti nokkur hluti þess fjár, sem
safnazt hafði, yrði notaður til kaupa
á mat fyrir Norðmenn og þeim sent
ef kostur væri og nægileg trygging
væri fyrir því, að það sem sent yrði
kæmis.t ekki i hendur fjandmanna
þeirra. Framkvæmdanefnd Noregs-
söfnunarinnar gerði allt sem í henn-
ar valdi stóð lil þess að rannsaka
möguleikana á að koma hjálp héðan
til Noregs, en þær rannsóknir leiddu
það eitt í ljós, að slík hjálp er ófram-
kvæmanleg, eins og sakir standa.
Þetta vildi ég biðja yður að gjöra
svo vel og birta í blaði yðar, til þess
að lesendur blaðsins fái vitneskju
um það sanna í þessu máli, en ósann
indi og óþarfur misskilningur spilli
ekki fyrir góðu málefni.
Reykjavík, 11. marz 1943.
Guðl. Rósenkranz.
Aths. ritstjóra.
Það var áþarfi að spyrja nokkra
að því hvort Norðmenn þyrftu á
þessu fé að halda strax. Þeir eru
sjálfir að safna fé, til þess að nota
strax, — og vér íslendingar heíðum
aðeins sýnt hug vorn til frelsisstríðs
þeirra með því að fá þeim féð til
þeirrar notkunar nú þegar, er þeir
sjálfir vildu helzt. Með því að á-
kveða að afhenda þeim það ekki fyrr
en eftír stríð, var verið að láta und-
an röngum hlutleysishugmyndum og
það þarf ekki nema að sjá þau mót-
mæli, er Nordahl Grieg framdi í
verki — og hafa síðan fleiri fetað í
þau fótspor —, til þess að gera sér
grein fyrir hve slæm áhrif þessi á-
kvörðun stjórn Norræna félagsins
hafði.
Norðmenn eru sjálfir menn til þess
að ákveða hvernig þeir verji fénu
bezt. Þeir þurfa hvorki sænsk né ís-
lenzk fyrirmæli um slíkt. Þessvegna
fá heldur engar afsakanir hjálpað
stjórn Norræna félagsins í þessu
máli. Hvatir þær, sem leitt hafa þá,
er stjórnuðu Finrfagaldrinum, til
þessara ákvarðana, haía verið skil-
greindar hér í blaðinu fyrr, og þarf
ekki að endurtaka þá skýringu.
Vegna valdastööunnar, sem
allt byggist á, er leikurinn
geröur og „landsplaniö“ lagt.
Framsókn telur, að íhald-
iö gæti ekki haldizt heilt í
nægilega skörpum átökum á
milli sveita og kaupstaöa og
því stefnir hún hiklaust í þá
átt, sem raun ber vitni um, í
raf orkumálunum.
En Framsókn misreiknar í
þessum málum öllum. Hún
misskilur aö hægt sé aö æsa
upp á þennan hátt sveita-
fólk gegn bæjarbúum. Og
hún mun á sama hátt finna,
aö allir Austfiröingar hafa
glöggt séö, kjánalegan klaufa
skap þeirra í Lagarfossmál-
inu og láta ekki gabbast til
þess aö þakka þeim fram-
gang málsins, sem beinlínis
geröu allt málinu til tafar.
Þess skal getið, aö einn Fram-
sóknarmannanna,, Páll Her-
mannsson, tók þó engan þátt,
í því framferöi flokksmanna
sinna aö reyna að drepa
Lagarfossmáliö. Hann lýsti
því afdráttarlaust yfir, aö
hann teldi rétt og nauösyn-
legt, vegna sérstööu Austur-
lands, aö fá skýlausa sam-
þykkt um aö virkjun þessi
yröi rannsökuö á undan öör-
um og það strax í sumar. En
afstaöa Páls afsakar aö engu
skemmdarstarfsemi Fram-
sóknarflokksins í þessu máli
og hún bætir ekki heldur úr
framkomu Eysteins viö af-
greiöslu þessa almenna áhuga
máls allra Austfiröinga.
Lúövík Jósepsson.
Ný fegund af-
vínnureksfrar
A fundi í félagi bifreiöa-
stjóra iekki alls fyrir löngu,
var eins og oftar rætt um
alla þá rangsleitni, sem höfð
var í frammi viö úthlutun
bifreiöanna á síöastliönu ári.
Upplýstist á fundi þessum,
aö ýmsir menn, er fengiö
höföu einkabifreiöar, á sama
tíma, sem atvinnubílstjórum
var neitaö um bíla, höföu
rakleitt sent bíla sína á bif-
reiöarstöðvar hér í bænum.
RáÖa þeir síöan á þessar bif-
reiöar sínar atvinnubílstjóra
og reka þá í gróöaskyni.
Voru talin upp nöfn nokk-
urra þeirra manna er þann-
ig höfðu fariö aö ráði sínu.
Einn hafði bílinn undir því
yfirskyni, að hann þyrfti
nauösynlega á honum að
halda í sambandi við starf
sitt. Þannig haföi og þekktur
íhaldsmaöur, sýslumaöur norð
ur ó landi farið aö ráöi sínu.
Höföu bílar þessara manna
aldrei svo mikiö sem komið
í heimkynni eigendanna.
Nokkrir helztu forsprakkar
íhaldsins og kratanna hér í
bænum, reka epn samskonar
iöju.
Sé liér rétt með fariö, sem
víst lítill vafi leikur á, þá
hafa þessir menn beinlinis
svikiö út þessa bíla sína und-
ir því yfirskyni að þeir þyrftu
sjálfir nauösynlega á þeim aö
halda.
Framhald á 4. síðu.