Þjóðviljinn - 21.04.1943, Side 1
8. árgangur.
Miðvikudagur 21. apríl 1943
91. tölublað.
T’ramsóknairflokkumm æflar að hlaupasf frá afgreiðsfu skaffamálanna*
fáfa Tarasjódshlunnindín haldasf og snaufa heím
Ætla borgaraflokkarnir að slá afgreiðslu stjórnar-
skrármálsins á frest, þegar lýðveldisstjómarskráin
er að fullu undirbúin og afhent stjórninni?
Sósíalistaflokkurinn vill afgreiða skatamálin og stjórn-
arskrána á næstu 2—3 vikum og fresta síðan þingi.
í gær var lögð fram á Alþingi svohljóðandi tillaga til þings-
ályktunar:
„Tillaga til þingsályktunar um samþykki tii frestunar á fund-
um Alþingis samkvæmt 19. gr. stjómarskrárinnar.
Frá forsætisráðherra.
Sameinað Alþingi ályktar að veita samþykki sitt til þess,
að fundum Alþingis verði frestað frá 20. apríl 1943 þar til síðar
á árinu, þó eigi lengur en til 1. sept. s. á.
Greinargerð:
Sýnt þykir, að fjárlög fyrir 1944 verði eigi afgreidd á Al-
þingi fyrr, en á síðari hluta þessa árs, og þykir því rétt að leita
samþykkis þingsins til þess, að fundum þess verði frestað svo
sem í tillögunni segir“.
Þessi þingsályktunartillaga verður til umræðu í dag. Er þeg-
ar auðséð af Tímanum að Framsóknarflokkurinn mimi standa
með henni og almennt er talið, að Sjálfstæðisflokkurinn geri
það líka.
Með því að samþykkja þingfrestun nú er Framsóknarflokk-
urinn að hlaupa frá öllu því, sem hann lofaði hátíðlega fyrir
nokkrum dögum síðan að gera í skattamálunum, því að ef þingi
er frestað í dag, þá er auðvitað útilokað að ætla að taka héðan
af með skatti það fé, sem auðfélögin annars fá að leggja í vara-
sjóði af tekjum sínum 1942. Og hvað eignaaukningaskattinn
snertir er líka hættuleg frestun, ekki aðeins vegna líkindanna
til þess að Framsókn svíki í því máli líka, heidur og vegna hins,
að sum ákvæði frumvarpsins verða í reyndinni hálfeyðilögð
með því að láta langan tíma líða frá því frumvarpi kemur fram,
þar til það er samþykkt (t. d. ákvæðin um skráningu verðbréfa).
STJÓRNARSKRÁRMÁLIÐ
En það eru ekki aðeins skattamálin, sem þingið væri þann-
ig að hlaupast frá, ef það ákvæði að fara heim í dag.
Það mál, sem ætti að vera eitt stærsta mál þings og þjóðar,
bíður líka afgreiðslu á þessu þingi.
Það er lýðveldisstjórnarskráin.
„Frumvarp til stjórnskipunarlaga um stjórnarskrá lýðveld-
isins ísland“ er nú fullbúið af hálfu stjómarskrárnefndarinn-
ar og þyrfti að afgreiðast á þingi áður en því er frestað og sam-
þykkjast af þjóðinni í siunar.
Sósíalistaflokkurinn hefur boðið hinum þingflokkunmn
samstarf um skjóta afgreiðslu þessa mikla máls og samstarf að
því að fá samþykkt þess við þjóðaratkvæðagreiðslu í sxunar.
En nú lítur út fyrir, að allir flokkarnir þrír ætli að hlaupast
frá þessu stórmáli þjóðarinnar og láta reka á reiðanum
hvenær frá því verði gengið til fulls.
Sósíalistaflokkurinn tekur af-
stöðu á móti þessari þingsálykt
unartillögu. Hann vill láta af-
greiða skattamálin og stjórnar-
skrármálið á næstu 2—3 vikum
og fresta síðan þingi til hausts-
ins, þó þannig, að það sé í hönd-
um þingsins sjálfs, hvenær það
kemur saman á ný.
Það hafa engir kvartað eins
mikið yfir því og þjóðstjórnar-
flokkarnir gömlu, hve síðasta
þing hafi verið afkastalítið. —
Nú er tækifærið til þess að af-
kasta miklu á skömmum tíma
á þessu þingi, — samþykkja lýð
veldisstjórnarskrá og hin merki-
legustu nýmæli í skattalögum.
—Ætla þessir flokkar þá að
hlaupast á brott?
Enginn hefur talað eins há-
vært og Framsókn um nauðsyn
tafarlausra skattaálagninga á
stríðsgróðann. — Nú er tækifær
ið til þeirra. — Þá ætlar Fram-
sókn að hlaupa af hólmi!
Sjálfstæðisflokkurinn gekk til
kosninga síðasta ár undir kjör-
orðinu: ísland lýðveldi 1942. —
Ætlar hann nú ekki einu sinni
að vilja beita sér fyrir því með
Sósíalistaflokknum að sam-
þykkja lýðveldisstjórnarskrá
fyrir ísland sumarið 1943?
Jón Eyþórsson fer úr
útvarpsráði
og engínn saknar hans
Jón Eyþórsson móögaðist
af því, að vera ekki skipaður
formaður útvai’psráðs og
sendi kennslumálaráðheiTa
uppsögn sína á starfinu, a.
m. k. fyrst um sinn.
Skrifaði hann allmikið mál
í Tímann 1 gger, sem hefur
e. t. v. átt iað skoöast sem
greinargerð fyrir ,brotthlaupi‘
hans úr útvarpsráði. — En
það saknar hans enginn.
„Sólsbín"
Sumargjafabók barn-
anna
„Sólskin“ 1943 verður selt
á götunum í dag.
Barnavinafélagið Sumargjöf
hefur nú í 14 ár gefið Sólskin
— sumargjafabók bamanna
— út á sumardaginn fyrsta.
Hefur ritið verið mjög vin-
sælt og eftirsótt af bömun-
um.
í „Sólskini“ þessa árs, sem
er 64 bls., eru 9 sögur, frum-
samdar og þýddar og enn-
fremur nokkur ljóöarerindi.
Þessar sögur eru frumsamd-
ar:
Reikningur og skautaferðir,
eftir Jakob Jónsson frá
Hrauni; Lítill „köttur“, eftir
Jón N. Jónasson; Viðtækið og
síminn, eftir Huldu og Rjúp-
an eftir Gunnar Sigurðsson.
Þá eru sögur er þýtt hafa
ísak Jónsson, Sigurður Helga-
son og Friðrik Hallgrímsson.
Tryggvi Magnússon hefur
prýtt heftið með nokkrumí
teikníngum.
Sigurður Helgason sá um
útgáfuna.
Kaupið Sólskin í dag og
gefið börnunum í sumargjöf.
Það reynir á kappana, sem
hæst hafa talað í þessum mál-
um, þegar á hólminn kemur í
dag. Við skulum sjá hvað þeir
gera.
Kvisling og Hitler hittast.
Xvisling og Terboveh, þýzki
landstjórinn í Noregi, hafa far-
ið á fund Hitlers, og segir í til-
kynningu um fundinn að full-
komin eining hafi ríkt um nauð-
syn baráttunnar gegn bolsé-
vismanum,
SÓSÍALISTAFLOKK-
URINN KREFST ÚT-
VARPSUMRÆÐNA UM
ÞIN GFRESTUNIN A
Sósíalistaflokkurinn hef-
ur krafizt útvarp sumræðna
um þingsályktunartillögu
þá, sem rætt er um á öðr-
um stað hér í blaðinu.
Munu útvarpsumræður
um þingfrestunina iara
fram á Alþingi í dag kl.
i y».
Talid adúrslifaáfökín um Túnís séu
að hefjasL « Brefar og Tyrfcír semja
Áttundi brezki herinn hóf seint í fyrrakvöld sókn með árás-
um á aðalvarnarlínu fasistaherjanna við Enfidaville í Túnis.
Hófst árásin með harðri stórskotahríð og áhlaupum öflugs
fótgönguliðs. Tókst Bretum að ryðja sér braut inn á vamar-
svæði fasista, en miklir bardagar halda áfram.
Flugher Bandamanna í Túnis hafði undirbúið sóknina með
hörðum árásum á herstöðvar Þjóðverja og Italá við Ertfidaville
og flughafnir, sem enn eru á valdi þeirra í Túnis.
Er talið líklegt aö með sókn
þessai’i sé hinn sigursæli her
þeirra Montgomerys og Alex-
anders að hefja úrslitaorust-
umar um Túnis, og þar meö
síðustu yfirráð fasistaherj-
anna á meginlandi Afríku.
Viðræður hershöfðingja
Breta 1 Egyptalandi, Maitland
Wilsons og tyrkneska hei’for-
ingja ráösins hafa styrkt
gmninn um fyrirhugaða inn-
rás á Balkanskaga. Maitland-
Wilson er kominn til Kairo
og hefur lýst yfir því, að fullt
samkomulag hafi ríkt á fund-
inum við tyrknesku herfor-
ingjana.
Hitllr alMir oænlanleilp i
i niel
segir (van Majskí, sendiherra Sovétríkj-
anna í London
Miklir atburðir eru væntanlegir víðsvegar í Evrópu í ná-
inni framtíð, sagði ívan Majskí, sendiherra Sovétríkjanna í
London, í ræðu sem hann flutti í gær.
Næstu sex—sjö mánuðimir verða mjög þýðingarmiklir fyr-
ir gang styrjaldarinnar, sagði sendiherrann. Þjóðverjar væm
meir og meir að komast í varnaraðstöðu. Þeir töluðu nú sýknt
og heilagt um varnandrki sín, og segðust ömggir innan þeirra.
En þaö er nákvæmlega
sama hugarfarið og kom
Fi’ökkum í koll, Maginothug-
arfai’ið. Það hefur sýnt sig í
þessari styrjöld að varn;arj(
virkjahnur hafa ekki þau úr-
slitaáhrif sem álitið var áður
fyrr.
Majski lauk miklu lofsorði
á brezka sjómenn. Þakkaöi
hann sjómönnum og sjóliðum
Breta þá mikilvægu hjálp, er
þeír höfðu veitt með sighng-
unum til norðurhafna Sovét-
ríkjanna, er heföu átt mik-
inn þátt í þeim breytingum
er undanfariö hefðu orðið á
austui’vígstöövunum.