Þjóðviljinn - 21.04.1943, Page 1

Þjóðviljinn - 21.04.1943, Page 1
 8. árgangur. Miðvikudagur 21. apríl 1943 91. tölublað. T’ramsóknairflokkumm æflar að hlaupasf frá afgreiðsfu skaffamálanna* fáfa Tarasjódshlunnindín haldasf og snaufa heím Ætla borgaraflokkarnir að slá afgreiðslu stjórnar- skrármálsins á frest, þegar lýðveldisstjómarskráin er að fullu undirbúin og afhent stjórninni? Sósíalistaflokkurinn vill afgreiða skatamálin og stjórn- arskrána á næstu 2—3 vikum og fresta síðan þingi. í gær var lögð fram á Alþingi svohljóðandi tillaga til þings- ályktunar: „Tillaga til þingsályktunar um samþykki tii frestunar á fund- um Alþingis samkvæmt 19. gr. stjómarskrárinnar. Frá forsætisráðherra. Sameinað Alþingi ályktar að veita samþykki sitt til þess, að fundum Alþingis verði frestað frá 20. apríl 1943 þar til síðar á árinu, þó eigi lengur en til 1. sept. s. á. Greinargerð: Sýnt þykir, að fjárlög fyrir 1944 verði eigi afgreidd á Al- þingi fyrr, en á síðari hluta þessa árs, og þykir því rétt að leita samþykkis þingsins til þess, að fundum þess verði frestað svo sem í tillögunni segir“. Þessi þingsályktunartillaga verður til umræðu í dag. Er þeg- ar auðséð af Tímanum að Framsóknarflokkurinn mimi standa með henni og almennt er talið, að Sjálfstæðisflokkurinn geri það líka. Með því að samþykkja þingfrestun nú er Framsóknarflokk- urinn að hlaupa frá öllu því, sem hann lofaði hátíðlega fyrir nokkrum dögum síðan að gera í skattamálunum, því að ef þingi er frestað í dag, þá er auðvitað útilokað að ætla að taka héðan af með skatti það fé, sem auðfélögin annars fá að leggja í vara- sjóði af tekjum sínum 1942. Og hvað eignaaukningaskattinn snertir er líka hættuleg frestun, ekki aðeins vegna líkindanna til þess að Framsókn svíki í því máli líka, heidur og vegna hins, að sum ákvæði frumvarpsins verða í reyndinni hálfeyðilögð með því að láta langan tíma líða frá því frumvarpi kemur fram, þar til það er samþykkt (t. d. ákvæðin um skráningu verðbréfa). STJÓRNARSKRÁRMÁLIÐ En það eru ekki aðeins skattamálin, sem þingið væri þann- ig að hlaupast frá, ef það ákvæði að fara heim í dag. Það mál, sem ætti að vera eitt stærsta mál þings og þjóðar, bíður líka afgreiðslu á þessu þingi. Það er lýðveldisstjórnarskráin. „Frumvarp til stjórnskipunarlaga um stjórnarskrá lýðveld- isins ísland“ er nú fullbúið af hálfu stjómarskrárnefndarinn- ar og þyrfti að afgreiðast á þingi áður en því er frestað og sam- þykkjast af þjóðinni í siunar. Sósíalistaflokkurinn hefur boðið hinum þingflokkunmn samstarf um skjóta afgreiðslu þessa mikla máls og samstarf að því að fá samþykkt þess við þjóðaratkvæðagreiðslu í sxunar. En nú lítur út fyrir, að allir flokkarnir þrír ætli að hlaupast frá þessu stórmáli þjóðarinnar og láta reka á reiðanum hvenær frá því verði gengið til fulls. Sósíalistaflokkurinn tekur af- stöðu á móti þessari þingsálykt unartillögu. Hann vill láta af- greiða skattamálin og stjórnar- skrármálið á næstu 2—3 vikum og fresta síðan þingi til hausts- ins, þó þannig, að það sé í hönd- um þingsins sjálfs, hvenær það kemur saman á ný. Það hafa engir kvartað eins mikið yfir því og þjóðstjórnar- flokkarnir gömlu, hve síðasta þing hafi verið afkastalítið. — Nú er tækifærið til þess að af- kasta miklu á skömmum tíma á þessu þingi, — samþykkja lýð veldisstjórnarskrá og hin merki- legustu nýmæli í skattalögum. —Ætla þessir flokkar þá að hlaupast á brott? Enginn hefur talað eins há- vært og Framsókn um nauðsyn tafarlausra skattaálagninga á stríðsgróðann. — Nú er tækifær ið til þeirra. — Þá ætlar Fram- sókn að hlaupa af hólmi! Sjálfstæðisflokkurinn gekk til kosninga síðasta ár undir kjör- orðinu: ísland lýðveldi 1942. — Ætlar hann nú ekki einu sinni að vilja beita sér fyrir því með Sósíalistaflokknum að sam- þykkja lýðveldisstjórnarskrá fyrir ísland sumarið 1943? Jón Eyþórsson fer úr útvarpsráði og engínn saknar hans Jón Eyþórsson móögaðist af því, að vera ekki skipaður formaður útvai’psráðs og sendi kennslumálaráðheiTa uppsögn sína á starfinu, a. m. k. fyrst um sinn. Skrifaði hann allmikið mál í Tímann 1 gger, sem hefur e. t. v. átt iað skoöast sem greinargerð fyrir ,brotthlaupi‘ hans úr útvarpsráði. — En það saknar hans enginn. „Sólsbín" Sumargjafabók barn- anna „Sólskin“ 1943 verður selt á götunum í dag. Barnavinafélagið Sumargjöf hefur nú í 14 ár gefið Sólskin — sumargjafabók bamanna — út á sumardaginn fyrsta. Hefur ritið verið mjög vin- sælt og eftirsótt af bömun- um. í „Sólskini“ þessa árs, sem er 64 bls., eru 9 sögur, frum- samdar og þýddar og enn- fremur nokkur ljóöarerindi. Þessar sögur eru frumsamd- ar: Reikningur og skautaferðir, eftir Jakob Jónsson frá Hrauni; Lítill „köttur“, eftir Jón N. Jónasson; Viðtækið og síminn, eftir Huldu og Rjúp- an eftir Gunnar Sigurðsson. Þá eru sögur er þýtt hafa ísak Jónsson, Sigurður Helga- son og Friðrik Hallgrímsson. Tryggvi Magnússon hefur prýtt heftið með nokkrumí teikníngum. Sigurður Helgason sá um útgáfuna. Kaupið Sólskin í dag og gefið börnunum í sumargjöf. Það reynir á kappana, sem hæst hafa talað í þessum mál- um, þegar á hólminn kemur í dag. Við skulum sjá hvað þeir gera. Kvisling og Hitler hittast. Xvisling og Terboveh, þýzki landstjórinn í Noregi, hafa far- ið á fund Hitlers, og segir í til- kynningu um fundinn að full- komin eining hafi ríkt um nauð- syn baráttunnar gegn bolsé- vismanum, SÓSÍALISTAFLOKK- URINN KREFST ÚT- VARPSUMRÆÐNA UM ÞIN GFRESTUNIN A Sósíalistaflokkurinn hef- ur krafizt útvarp sumræðna um þingsályktunartillögu þá, sem rætt er um á öðr- um stað hér í blaðinu. Munu útvarpsumræður um þingfrestunina iara fram á Alþingi í dag kl. i y». Talid adúrslifaáfökín um Túnís séu að hefjasL « Brefar og Tyrfcír semja Áttundi brezki herinn hóf seint í fyrrakvöld sókn með árás- um á aðalvarnarlínu fasistaherjanna við Enfidaville í Túnis. Hófst árásin með harðri stórskotahríð og áhlaupum öflugs fótgönguliðs. Tókst Bretum að ryðja sér braut inn á vamar- svæði fasista, en miklir bardagar halda áfram. Flugher Bandamanna í Túnis hafði undirbúið sóknina með hörðum árásum á herstöðvar Þjóðverja og Italá við Ertfidaville og flughafnir, sem enn eru á valdi þeirra í Túnis. Er talið líklegt aö með sókn þessai’i sé hinn sigursæli her þeirra Montgomerys og Alex- anders að hefja úrslitaorust- umar um Túnis, og þar meö síðustu yfirráð fasistaherj- anna á meginlandi Afríku. Viðræður hershöfðingja Breta 1 Egyptalandi, Maitland Wilsons og tyrkneska hei’for- ingja ráösins hafa styrkt gmninn um fyrirhugaða inn- rás á Balkanskaga. Maitland- Wilson er kominn til Kairo og hefur lýst yfir því, að fullt samkomulag hafi ríkt á fund- inum við tyrknesku herfor- ingjana. Hitllr alMir oænlanleilp i i niel segir (van Majskí, sendiherra Sovétríkj- anna í London Miklir atburðir eru væntanlegir víðsvegar í Evrópu í ná- inni framtíð, sagði ívan Majskí, sendiherra Sovétríkjanna í London, í ræðu sem hann flutti í gær. Næstu sex—sjö mánuðimir verða mjög þýðingarmiklir fyr- ir gang styrjaldarinnar, sagði sendiherrann. Þjóðverjar væm meir og meir að komast í varnaraðstöðu. Þeir töluðu nú sýknt og heilagt um varnandrki sín, og segðust ömggir innan þeirra. En þaö er nákvæmlega sama hugarfarið og kom Fi’ökkum í koll, Maginothug- arfai’ið. Það hefur sýnt sig í þessari styrjöld að varn;arj( virkjahnur hafa ekki þau úr- slitaáhrif sem álitið var áður fyrr. Majski lauk miklu lofsorði á brezka sjómenn. Þakkaöi hann sjómönnum og sjóliðum Breta þá mikilvægu hjálp, er þeír höfðu veitt með sighng- unum til norðurhafna Sovét- ríkjanna, er heföu átt mik- inn þátt í þeim breytingum er undanfariö hefðu orðið á austui’vígstöövunum.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.