Þjóðviljinn - 28.05.1943, Síða 2
2
Þ £J VIL JI Jí I
Föstudagur 28. maí 1943.
TILKYNNING
frá ríkissfíórnínní.
Brezka flotastjómin hefur tilkynnt íslenzku rík-
isstjóminni að nauðsynlegt sé að öll íslenzk skip, 10
til 750 smál. að stærð fái enduraýjuð eins fljótt og
hægt er eftir 1. júní 1943, ferðaskírteini þau, sem um
ræðir í tilkynningu ríkisstjómarinnar, dags. 7. marz
1941.
Skírteini þessi verða afgreidd sem hér segir:
í Reykjavík hjá brezka aðalkonsúlnum, á Akur-
eyri hjá brezka vice-konsúlnum, á Seyðisfirði hjá
brezku flotastjóminni og í Vestmannaeyjum hjá
brezka vice-konsúlnum.
Atvinnu- og' samgöngumálaráðuneytið, 27. maí 1943.
íbúðir
i bæprhúsnnnm
Samkvæmt ákvörðun bæjarstjómar verða íbúðir
í nýbyggingum bæjarins við Hringbraut 137—147 seld-
ar fyrir kostnaðarverð.
Útborgun við samninga 25% af verðinu.
Eftirstöðvar greiðast þannig, með 4%% ársvöxtum:
Lán með 1. veðrétti á 40 ámm: 33%% af verðinu.
— — 2. — - 60 — 20% - —
— — 3. — - 8 — 21%% - —
Kaupendur íbúða myndi með sér sameignar eða
samvinnufélög um húsin, með lögum og starfsreglum
er bæjarráð samþykki.
Nánari upplýsingar, og umsóknareyðublöð, fást í
skrifstofu borgarstjóra, sem tekur við umsóknum til
12. júní næstkomandi.
Þeir, sem áður hafa óskað eftir íbúð í húsunuin,
verða að gera það á ný, og hafa umsóknareyðublöð
verið send þeim, sem tilgreindu heimilisfang í um-
sókninni.
Reykjavík- 27. maí 1943.
BORGARSTJÓRINN.
Nij wum i
Saltað:
120 kg. tunna ........... ....
60 — tunna ................ — 164.00
í lausri vikt pr. kg........ — 3.20
Frosið:
í heilum og hálfum skrokkum kr. 3.75 pr. kg.
í smábitum, frampartar. — 3.20-----
Reykt:
í heilum og hálfum skrokkum kr. 4.00 pr. kg.
í smábitum, frampartar . — 4.35----
Notið þetta einstaka tækifæri,
sem aðeins gefst í örfáa daga.
KRON
Vesturgötu 16, gamla kjötbúðin.
Símanúmer okko.r er
1195
PRENTMYNDASTOFAN
H LITROF
BfihamapKafluplnn
á Laugavegi 12
Nokkur bókaforlög hér 1 bæn
um. hafa þessa daga útsölu á
fjölda eldri bóka er þau hafa
gefið út. Gefst bókamönnum
þar kostur á hagkvæmum kaup-
um, en margar bækur sem þar
eru nú á boðstólum eru að verða
uppseldar.
Engin leið er að telja upp all-
ar þær bækur sem þarna eru til
sölu, en minna má á að þarna
fást margar bækur þessara rit-
höfunda: Halldór Kiljan Lax-
ness, Gunnar Gunnarsson, Þór-
bergur Þórðarson, Jóhannes úr
Kötlum, Steinn Steinarr o. fl.
Þarna eru m. a. 10 rit Einars H.
Kvaran, 3 bækur Jóns Trausta,
bækur Þorsteins Gíslasonar,
Huldu o. fl.
Eins og á öðru hefur verð á
bókum að undanförnu farið ört
hækkandi, en lfestar bækur sem
þarna fást eru seldar fyrir neð-
an hálfvirði.
Mikil aðsókn hefur verið að
bókamarkaðinum og ættu bóka-
menn ekki að draga að líta á úr-
valið, því vafalaust munu þeir
allir finna eitthvað sem þá vant-
ar. Á morgun er síðasti dagur
bókamarkaðsins, en í kvöld er
opið til kl. 8.
Adv.
Dnsaaajaaaannö
MIPAUTCERÐ
1-1 I
r
Armann
Vörumóttaka til Stykkishólms,
Búðardals og Flateyjar fram til
hádegis í dag.
xxxxxxxxxxxxxxxx>«.
DAGLEGA
nýsoðin svið. Ný egg,
soðin og hrá.
Kaf f isalan
Hafnarstíæti 16.
ooooooooooooooooo
TI ARNARBÍÓ
Undir gunnfána
eftír Noel Coward
Tjarnarbíó sýnir um þessar
mundir enska kvikmynd um
brezka flotann og hefur Noel
Coward samið söguna, stjóm-
að leiknum og leikur sjálfur
höfuðhlutverkið.
Efnið er saga herskips úr
brezka flotanum frá því að
þaö er smiöað og þar til það
sekkur í orustunni um Krít,
saga skipshafnar þess, að
nokkru leyti, — og sagan af
fjölskyldum sjóliðanna heima
fyrh. Auðvitað er kvikmyndin
áróöur, en svo vel gerður aö
sem flestir þyrftu að sjá þessa
mynd.
Við íslendingar fáum, að
sjómönnunum okkar undan-
teknum, til allrar hamingju,
svo lítið að kynnast skelfing-
um stríðsins af eigin raun, að
okkur er það nauðsynlegt, ef
viö ætlum sem þjóð að skilja
þá hugarfarsbreytihgu, sem
verðui’ með stríðsþjóðunum
nú, að kynna okkur sem bezt
hvað það er, sem fólkið í þess
um löndum verður að þola.
Sjómennirnir í gúmmíbátun-
um konumar heima 1 loftár-
ásunum á London — það em
nokkrar myndir frá upphfuö-
um atburöum, sem milljónir
manna og kvenna aldrei
gleyma, atburöuni sem um-
bylt hafa hugsunarhætti fjöld
ans og viðhorfi til þjóöfélags-
ins og lífsins. — Það er gott
að sem flestir reyni að setja
sig í spor þessa fólks, og þessi
mynd hjálpar mönnum til
þess, þó að hún hihsvegar
ekki boði neitt um lausn þess-
ara vandamála.
íslands Fata Morgana
íslands Fata Morgana heit-
ir bók, sem nýkomin er út eft-
ir Eggert Stefánsson söngv-
ara. í bók þessa hefur höf-
undurinn safnað nokkrum rit-
gerðum eftir sig á íslenzku
og erlendmn málum. Meðal
ritgerða þessara má nefna:
Quo vadis? — Djúpir eru ís-
lands álar — Prologus —
Salgerður Valgeröur Jónsdótt-
ir — að ógleymdri II Paradiso
auk margi’a annari’a.
Bók þessi mun verða mikið
fagnaðarefni öllum listunn-
endum, öllum þeiin, er kunna
að meta sanna menningu.
Frágangur allur á bókinni er
með ágætum, svo að óvenju-
legt er hér á landi.
œjaz/póyt>ut/inn
Glæsilegir í'oringjar
glæsilegra flokka.
Stefán Jóhann Stefánsson birtir
þessa dagana greinaflokk í Alþýðu-
blaðinu, sem hann kallar „Alþýðu-
hreyfing Norðurlanda á örlagatím-
um. Greinarnar eru til þess skráðar,
að gera Alþýðuflokkana dýrlega.
Stefáni ferst verkið úr höndum að
vonum. Hér eru sýnishorn.
Ofsóttur foringi
óáreittur ölbruggari.
Um foringja Alþýðuflokksins
danska segir Stefán:
„En ekki þótti þýzku nazistunum,
er gista Danmörku, þetta þó nægi-
legt. Hinn ágæti formaður danska
Alþýðuflokksins, Hedtoft Hansen,
sem mörgum er kunnur hér á landi
frá heimsókn sinni sumarið 1939, var
hrakinn frá formennskunni og út úr
stjórnmálalífinu að mestu leyti. Hef-
ur þar vafalaust mestu um valdið,
að hann hafði mjög mikil sambönd
við og greiddi fyrir þýzkum flótta-
mönnum, er leitað höfðu hælis í
Danmörku, og voru margir þeirra
þekktir og þrautreyndir jafnaðar-
menn. Hann hafði og heldur ekki
farið dult með andúð sína á nazist-
um og fyrirlitningu á framferði
þeirra. Varð Hedtoft Hansen að lát^
af opinberri þjónustu við flokk sinn,
og má nærri geta, að það hafi verið
bæði honum og félögum hans mikil
vonbrigði og flokknum tilfinnanlegt
tjón. Hann er nú forstjóri fyrir Al-
þýðuölgerðinni Stjaman, og mun
hann eftir sem áður vera tengdur
sterkum leyniþráðum við alla flokks
starfsemina. Að minnsta kosti kvart
ar danska nazistablaðið Fædreland-
et, sem styrkt er ríflega af Þjóðverj
um, undan leynilegum afskiptum
Hedtoft Hansen af stjómmálum.
Burtflæming Hedtoft Hansen er
táknrænt dæmi um andstöðu nazista
gegn dönsku alþýðuhreyfingunni.
En þrátt fyrir þetta og margar aðrar
þessu líkar ofsóknir, heldur danski
Alþýðuflokkurinn ótrauður áfram
starfi sínu, þó að öll vinnuskilyrði
séu hin verstu.“
Deyfðar eggjar í baráttunni gegtt
nazistum.
Um Tanner hinn finnska segir
Stefán:
„En þrátt fyrir allt þetta hefur
finnski Alþýðuflokkurinn starfað og.
barizt af áhuga eins og áður fyrr.
Hann hefur beitt áhrifum sínum til
þess að hindra ágengni íhaldsafl-
anna utan frá og innan og alltaf með
einurð og festu látið í ljós tryggð
sína við lýðræðið og samstarf við
hinar norrænu þjóðirnar, þegar þess
væri nokkur kostur vegna aðstæðna
allra. Það skal játað, að rótgróin og
ekki ástæðulaus tortryggni í garð
Rússa hefur eitthvað deyft eggjar í
baráttu þeirra gegn þýzku nazistun-
um, sem í landinu dvelja.“
KAUPIÐ
ÞIÓÐVILJANN
AUGLÝSIÐ í ÞJÓÐVILJANUM