Þjóðviljinn - 15.07.1943, Qupperneq 1
Á fjórða hundrað
manns hlustuðu á ræðu
Einars Olgeirssonar
í gærkveldi
Fundur Sósíalistaflokksins
í gærkveldi var vel sóttur.
Mættu á fjórða hundrað
manns.
Einar Olgeirsson flutti ræöu
sína um sjálfstæðismál íslend-
inga og talaöi í hálfa aðra
klukkustund. Var ræðimni
tekið með dynjandi lófataki.
Ræðan mun veröa birt,
En krefsf þess ad vísifðluátreikníngurínn verðí endurskoðaður
Martinique undir yfir-
ráðum frönsku þjóð-
frelsisnefndarinnar
Trúnaðarráð Dagsbrúnar hélt fund í gærkvöld til þess að
ræða um það, hvort segja skyldi upp kaupsamningum við at-
vinnurekendur að þessu sinni.
Samþykkti fundurinn að leggja fyrir félagsfund, sem vænt-
anlega verðiu- haldinn næstu daga svohljóðandi ályktun um
þessi mál:
„Verkamannafélagið Dagsbrún ákveður að segja ekki upp
samningum sínum við atvinnurekendur að þessu sinni, þar
sem félagið telur að önnur meira aðkallandi verkefni liggi fyr-
ir eins og sakir standa, svo sem endurskoðun vísitöluútreikn-
ingsins eins og lofað var, þegar samningar voru gerðir, en sem
ekki hefur verið efnt, en félagið telur að vísitalan gefi ranga
hugmynd um raunverulegan vöxt dýrtíðarinnar.
Ennfremur vill félagið beita sér af alefli fyrir því, að tollar
skattaframtals verði hækkaður a. m. k. í samræmi við aukna
dýrtíð og að séð verði fyrir nægilegum og hagnýtum verkefn-
um fyrir verkamenn næsta vetur, svo að komið verði i veg fyr-
ir atvinnuleysi.
Trúnaðarráöiö ræddi enn-
fremur stofnun bandalags al-
þýðusamtakanna, en Dags-
brún hefur haft frumkvæöi
að stofnun slíks bandalags.
Er nú mál þetta komið þaö
áleiðis að Alþyðusambandið
hefur samþykkt aö hefjast
handa um myndun banda-
lagsins og verður væntanlega
hægt aö skýra frá ákvöröun-
um Alþýðusambandsstjómar-
innar um þetta mál innan
fárra daga.
Fundur trúnaöarráösins
samþykkti um stofnun banda-
lags alþýöusamtakanna svo-
fellda ályktim í einu hljóöi:
„Trúnaöarráð Dagsbrúnar
lýsir ánægju sinni yfir því, aö
stjórn Alþýðusambands ís-
lands hefur hqfist handa um
myndun allsherjarbandalags
alþýðusamtakanna og lýsir
fylgi sínu við þá stefnuskrá,
sem Alþýðusambandið hefur
samþykkt að leggja til grund-
vallar fyrir starfsemi þvílíks
bandalags. Ennfremur felur
Trúnaðarráðið fulltrúum Dags
brúnar í Fulltrúaráði verka-
lýðsfélaganna að beita sér fyr-
ir því, að fulltrúaráðið komi |
upp hér í Reykjavík slíkri
samtakaheild með öllum þeim
aðilum, sem starfa vilja á
^grundvelli stefnuskrárinnar
og myndi hún einskonar deild
hér í Reykjavík innan alls-
herj arbandalagsins“.
Á fundinum flutti Þorsteinn
Pétursson langt og ítarlegt
erindi um vísitölu og verðlag,
en hann á sem kunnugt er
sem fulltrúi AlþýÖusambands-
ins sæti í sex manna nefnd
þeirri sem hefur þaö verkefni
aö finna grunnverð og vísi-
tölu fyrir landbúnaöarafuröir.
BRETAR GERA
HARÐA LOFTÁRÁS
Á AACHEN
í fyrrinótt gerðu brezkar
sprengjuflugvélar ákafa árás á
þýzku iðnaðarborgina Aachen,
sem einnig er mikil samgöngu-
miðstöð.
Var varpað niður miklu af
þungum sprengjum og komu
upp eldar víðsvegar um borgina.
Tuttugu flugvélanna fórust.
Brezkar flugvélar réðust í gær
á flugvelli og flugvélaverk-
smiðjur í nágrenni Parísar og í
Norður-Frakklandi.
Stanislaw Mikolajczyk, pólski
Vichystjórnarinnar á Martini-
que hefur lagt niður völd, og
fulltrúi frönsku þjóðfrelsis-
nefndarinnar tekið við.
Hinn nýi landstjóri var áður
hermálafulltrúi Frakka í Was-
hington. Hefur hann lýst þvi
yfir, að frönsku herskipin á
Martinique mun eins fljótt og
unnt er taka þátt í hernaðarað-
gerðum ásamt flota Banda-
manna.
Ný pólsk sf jörn
Stanislaw Mikolajczyk, pólski
Bændaflokksleiðtoginn, til-
kynnti í gær, að hann hefði lok-
ið nýmyndun pólsku stjórnar-
innar í London.
Utanríkisráðherra stjórnarinn
ar er Romer, fyrrverandi sendi-
herra ' Sikorskistjórnarinnar í
Moskva.
Fram vinnur úrvals-
liðið á Akureyri 6:0
Fram keppti við úrvalslií
á Akureyri í gærkvöld, vann
Fram með 6:0. Fyrri hálfleikur
endaði 0:0.
Fram keppir aftur við úrvals
liðið á föstudag. Leiðangurs-
mönnunum líður öllum vel. Þeir
koma heim á sunnudag.
Borgin Modica og Comisoflugvðllurinn á
valdi Bandamanna
Á allri víglínunni á Sikiley sækja herir Bandamanna fram,
og í Alsírfregnum segir að fasistaherirnir hafi hvergi gert al-
varlega tilraun að stöðva sóknina enn sem komið er.
Kanadískar hersveitir tóku í gær bæinn Modica og er það
stærsti bær, sem Bandamenn hafa tekið til þessa (íbúar um 50
þúsund). Bandamenn náðu einnig þorpinu Comiso, skammt frá
Ragusa, og flugvellinum sem við það er kenndur, en það er
stærsti flugvöllur á suðurhluta Sikileyjar.
Sveitir úr Áttunda hemum brezka sækja norður með strönd-
inni frá Syracusa í átt til Catania. Bandaríkjaher hefur tekið
bæinn Naro, sem er um 20 km. inn í landi, norðvestur af Licata.
Þjóðverjar segja að rigningaveður dragi úr
hernaðaraðgerðum
Rauði herinn gerði í gær áköf gagnáhlaup á Bjelgorod-
svæðinu og tókst að hrekja Þjóðverja úr nokkrum stöðvum í
fleygnum, sem þeir hafa rekið inn í varnarsvæði Rússa.
Hafði sovétherstjórnin sent öflugar skriðdrekasveitir fram
til árása, og er talið, að þær hafi verið nýkomnar til þessara
vígstöðva.
Á Orel-Kúrsksvæðunum hafa Þjóðverjar ekki gert nein-
ar verulegar árásir síðastliðinn sólarhring, og segja að rigninga-
veður hindri hemaðaraðgerðir.
Kluge hershöfðingi, er stjórn-
ar þýzka hernum á miðví^stöðv-
unum, er að endurskipuleggja
lið sitt, eftir níu daga ægilegar
orustur, sem hafa kostað Þjóð-
verja mikið tjón á mannslífum
og hergögnum, segir í fregn frá
Moskva.
Gera Rússar ráð fyrir að
Þjóðverjar hefji stórárásir að
nýju strax næstu daga.
í þýzkum fregnum er skýrt
frá mjög hörðum árásum rauða
hersins austur og norður af Orel
en ekki hefur verið minnzt á
þær enn í sovétfregnum.
Samkvæmt fregnum í gær-
kvöld er Bandamannaherinn
kominn lengst um 50 km, inn
í landið, en hvergi skemur en
10 km. frá strandlengjunni
sem innrásin nær yfir.
Flugher Bandamanna hef-
ur alger yfirráð í lofti, og
heldur uppi látlausum árás-
um á herstöövar fasista um
alla Sikiley.
Voru 42 fasistaflugvéalr
skótnar niður í loftbardögum í
gær, en Bandamenn misstu sjö.
Orustan um Stalíngrad
Tjarnarbíó byrjár í dag aö
sýna rússnesku stórmyndina
um orustuna um Stalingrad.
Er þetta mesta styrjaldar-
myndin sem hér hefur ver-
ið sýnd og verður aðsóknin
vafalaust mjög mikil.
Franska varnarráðið, sem stjórnar baráttunni gegn fasism-
anum heima í Frakklandi, kom saman síðustu dagana í júní,
og tók ákvarðanir um hvað aðhafast skyldi þegar Bandamenn
gera innrás 1 Frakkland, segir í útvarpsfregn frá Alsír.
Ákvarðanirnar hafa verið lagðar fyrir herstjórn Banda-
manna í London. Varnarráðið hefur gert ráðstafanir til að
hjálpa innrásarherjum Bandamanna, hvar sem þeir kimna að
lenda.
Ávarpi þessu var komið frá
Frakklandi meö leynd, og
mælzt til aö því yröi útvarp-
að frá löndum Bandamanna
í útvarpssendingum á franskri
tungu.
Frá frönsku útvarpsstööinni
í Alsír hefur veriö flutt hvatn-
ing til franskra járnbrautar-
verkamana aö fremja eins
mikil skemmdarverk og hægt
sé á jámbrautunum og trufla
flutninga Þjóðverja.