Þjóðviljinn - 31.10.1943, Side 4
þJÓÐVIUINN
Or borglnnt
Næturlæknir er í Læknavarðstöð
Reykjavík, sími 5030.
Næturvörður i Reykjavíkurapót
Ljósatími bifreiða ocr bifhjóla er
frá kl. 4.50 síðd. til kl. 7.30 að
morgni.
Hjónaband. í gær voru gefin sam-
an í hjónaband ungfrú Sigurlaug
Ottesen og Bjöm Þorgeirsson, starfs
maður hjá heildverzl. Eddu. Heim-
ili ungu hjónanna verður á Hring-
braut 184.
Oddur Sigurgeirsson varð 64 ára
29. þ. mán. Vinir Odds óska hon-
um hjartanlega til hamingju með
afmælið.
Helgidagslæknir: Ólafur Jóhanns-
son, Freyjugötu 40, sími 4119.
Aðalfundur 11. deildar verður
haldinn mánudaginn 1. nóv. á Rauð-
arárstíg 32. Fjölbreytt dagskrá. Fé-
lagar fjölmennið.
Opnið aldrei þá bílhurðina, sem
snýr að umferðinni. Dyr sem allt
í einu eru opnaðar, eru mjög hættu-
legar þeim, sem framhjá fara.
Samtíðin, 9. hefti 10. árg., er ný-
komið út. Knútur Arngrímsson skrif
ar Viðhorf dagsins: Frá sjónarmiði
gagnfræðaskólakennarans. Bjöm
Sigfússon skrifar: Nokkur kvenna-
nöfn — tráheiti. Þá er framhald
greinar eftir André Maurois: List-
in að vinna. Risaríkið í Afríku heit-
ir grein eftir Attilio Gatti. Enn-
fremur er í heftinu ritdómur um
fslandsklukkuna eftir Laxness, skop
sögur úr sögum Hans Klaufa og
margt smágreina.
Útvarpið í dag:
14.15—-16.00 Miðdegistónleikar
plötur): Óperan „Óthelló“ eft-
ir Verdi. (Scala-óperan í Mil-
ano. Sungin á ítölsku).
18.40 Barnatími (Vilhj. S. Vilhjálms
son, Þorst. Ö. Stephensen,
Ámi Bjömsson, Ragnar Jó-
hannesson).
19.25 Hljómplötur: „Rómeo og Júl-
ía“, forleikur eftir Tchaikow-
sky.
20.20 Einleikur á píanó (Fritz Weis-
shappel): Sónata í d-moll eft-
ir Weber.
20.35 Erindi: „Fórnfæring dýranna"
. (Guðm. Friðjónsson skáld á
Sandi — Knútur Arngrímsson
kennari flytur).
20.55 Hljómplötur: Norðurlanda-
söngvarar.
21.10 Upplestur: Kvæði eftir Guð-
mund Friðjónsson o. fl. (Sig-
urður Skúlason magister.)
21.30 Hljómplötur: Menúettar úr
symfóníum.
21.50 Fréttir.
22.00 Danslög.
23.00 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
18.30 íslenzkukennsla, 1. flokkur.
19.00 Þýzkukennsla, 2. flokkur.
19.25 Þingfréttir.
.20.30 Erindi: Upphaf þilskipaútgerð-
ar á íslandi II. (Gils Guð-
mundsson kennari).
20.55 Hljómplötur: Lög leikin á
rússneskan gítar.
21.00 Um daginn og veginn (Vil-
hjálmur Þ. Gislason).
21.20 Útvarpshljómsveitin: Þýzk al-
þýðulög. — Einsöngur (ung-
frú Olga Hjartardóttir): a)
Blærinn í laufi eftir Stephan
Foster. b) Heimþrá eftir sama.
c) Ég lít í anda liðna tíð eftir
Sigvalda Kaldalóns. d) Þú ert
— eftir Þórarinn Guðmunds-
son.
21.50 Fréttir. /
Dagskrárlok.
ŒpÞ NÝJA Rl& 4flH E3Þ wifiM&Mmté
„Tígris" flugsveitin fiýssa fil lei$u
Flying Tigers). Stórmynd með: JOHN WAYNE, ANNA LEE, JOHN CARROLL. Börn fá ekki aðgang. Sýnd kl. 5, 7 og 9. (This Gun for Hire) Amerísk lögreglumynd VERONICA LAKE ROBERT PRESTON ALAN LADD Bönnuð fyrir börn innan 16 ára Aukamynd: Norskt fréttablað (m. a. frá Akureyri)
Máníon lídur (The Moon is Down) Sýning kl. 3, 5, 7 og 9. Sala aðgöngumiða hefst klukkan 11.
Sýnd kl. 3. Síðasta sinn. Börn fá ekki aðgang. Aðgm. seldir frá kl. 11 f. h ÁsKriftarsfmi Þjöðviijans er 2184
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR.
„LÉNHARÐUR FÓGETP
eftir Einar H. Kvaran.
Sýnmg í kvöld kl. 8.
UPPSELT.
Vandamál mann-
legs lífs
Ný bók eftir Ágúst H.
Bjarnason.
Vandamál mannlegs lífs heit-
ir ný bók eftir próf. Ágnst H.
Bjamason. Er bókin fylgirit við
Árbók Háskólans 1937—’38.
f inngangsorðum segir höf-
undur, að bókin sé runnin upp
úr erindum, er hann hafi hald-
ið nýlega við háskólann. í bók-
inni er rætt um erfðir, uppeldi,
siðgæði og siðmenningu, og seg-
ir höf., að hún sé eins konar
niðurlag á bók hans Siðfræði,
er kom út 1924 og 1926.
Ennfremur segir í inngangs-
orðum, að rit þetta skiptist í
tvo þætti: „Fyrri þátturinn ræð-
ir um erfðir og uppeldi; en hinn
síðari, sem verður öllu lengri,
um siðmenning og siðgæði.
Höfðín^leg gjöf
Blindravinafélagi íslands
voru nýlega afhentar að gjöf
kr. 5.000,00 frá ónefndum hjón-
um hér í bænum.
Upphæðin rennur óskert í
Blindraheimilissjóð félagsins.
Stjórn félagsins færir hjón-
unum sínar innilegustu þakkir
og óskar þeim allrar blessunar.
Kaup og sala á Alþingi.
Fraxnh. af 1. síðu.
drepa rannsóknartillöguna á
olíufélögin, en íhaldið svíki
Reykvíkinga í mjólkurmálinu
og drepi breytingatiiiögu Sósí-
alistaflokksins við mjólkurlög-
in.
Það er bezt fyrir menn að
fylgjast vel með framferði þess-
ara flokka á næstunni.
| Tekjur og gjöld ríkis-
sjóðs tll september-
loka 1943
Þjóðviijanum hefur borizt yf-
irlit fjármálaráðuneytisins yfir
tekjur og gjöld ríkissjóðs frá
áramótum til septemberloka.
Samkvæmt því hafa tekjur
ríkissjóðs á þessu tímabili num-
ið 47,5 milij., en gjöld 50,9 millj.
króna.
Á sama tíma 1 fyrra námu
tekjurnar 39,2 millj. og gjöldin
30,6 milljónum.
Af einstökum tekjuliðum má
nefna: Verðtollur 23,2 millj.;
vörumagnstollur 7,1 millj.;
manntalsbókargjald 7,4 millj.:
útflutningsgjald 2,2 millj.; bif-
reiða- og benzínskattur 1,2 millj.
og stimpilgjald 1,2 millj. kr.
Ólafur Björnsson hagfræðing-
ur hefur verið skipaður í við-
skiptaráð þegar það fjallar um
verðlagsmál, í stað Klemenzar
Tryggvasonar, sem lætur af
störfum, samkvæmt eigin ósk.
Tölur,
Hnappar,
Kragar,
Belti og
Pallíettur
í miklu úrvali.
Verzlun H. Toft
Skólavörðustíg 5
Sími 1035
MUNIÐ
Kaffisöluna
Hafnarstræti 16
18
NINI KOLL ANKEK:
ELÍ OG ROAR
Og gluggarnir höfðu verið tæmdir. Á blómaborðinu var
úrval af skárstu inniblómum, en yrði varla þar heldur til
lángframa. Elí hafði orðið vör við að Ingrid var dálítið
skelkuð við breytingarnar. Henni hafði skilizt hve lítt
þroskuð stúlkan var, það varð að kenna henni að sjá: Liti,
form, fegurð. Hún gat varla setið á sér með allt það sem
hún ætlaði að gefa Ingrid og drengnum hlutdeild í, en lík-
lega var réttara að bíða svolítið.
Samt gat hún ekki stillt sig um að stanza í miðju verki
og útskýra eitt og annað fyrir Ingrid, hvers vegna þetta er
fallegt og hitt ósnoturt. Hvers vegna rauði liturinn á legu-
bekknum og stólunum ætti ekki við gult veggfóðrið, hvers-
vegna stóra skipamyndin eftir einhvern klessumálara gat
gert mann þunglyndan.
Finnst þér ramminn heldur ekki fallegur? spurði Ing-
rid.
Þá hló Elí og lofaði að nota rammann ef þau fengju al-
mennilegt málverk 1 hann.
Verst gekk þó með blómin. Elí rauk í þau kvöld eitt
þegar Ingrid var í saumaklúbb. Allar ljótu blaðplönturnar
með loðnu andlitin hafði hún gefið Bernhardínu. En ekki
einu sinni hún vildi eiga þær. Nei, þær urðu þá að fleygja
þeim.
Burknann og annað ljósgrænt setti hún á blómaborðið
og ýtti öllu draslinu út í horn með hjálp vinnukonunnar.
Sólskinið átti ólíkt greiðari leið í stofuna á eftir.
En þegar Ingrid kom heim, stanzaði hún á þröskuldinum
eins og hún væri orðin að saltstólpa. Og Elí hafði orðið að
útskýra það fyrir henni á ný, að það væri ekki verandi í
sama húsi og þessi vesalings fangablóm í svona ljótum
leirpottum. Manni hlyti að koma í hug litlir krypplingar
sem stæðu upp við flatan ljósvegg, hungraðir eftir útilofti
og sólskini. Svolitlar skrípamyndir af því sem þeim var
ætlað að verða í hlýrra loftslagi.
En rósirnar voru að blómgast, sagði Ingrid. Þær gætu
ekki breitt úr sér þarna í myrkrinu.
Reyndar, þegar Elí gáði betur að, voru litlir blómhnapp-
ar komnir á rósirnar.
En rósir eiga að vera stórar og dökkar af sólskini, Ing-
rid!
Þær ilma líka þó þær verði ekki stórar, — en þér þyk-
ir kannski ekki vænt um blóm?
Þá gat Elí ekki stillt sig að hlæja, — hún sem elskaði
blóm, var vön að fylla stofuna heim af blómum! En það
voru falleg blóm, og mörg! og litskrúð!
En samt, hún hafði tekið eftir einhverju í svip stúlk-
unnar, — vissi ekki vel hvað það var — þrjóska — eða
reiði. Þó lét hún undan. — Ef þér er það svo mikilsvert,
skulum við ýta borðinu dálítið fram, hafði hún sagt.
Þær hjálpuðust að því. Ingrid fékk að nostra við blóm
sín framvegis. Þangað til henni batnaði í augunum og
gæti byrjað á einhverju.
Laugardagskvöld seint í apríl sat Ingrid inni í nýja her-
berginu sínu við hliðina á stofunni. Dyrnar voru opnar.
Elí kom inn með fangið fullt af hvítu efni, nýju glugga-
tjöldin; nú skyldu þau komast upp og þar með var stofan i
lagi. Raulandi lagði hún frá sér þessa léttu byrði og leit
inn um opnu dyrnar.
Stúlkan sat uppi í legubekknum og las. Við birtuna frá
glugganum á herbergisgaflinum sást vangamyndin eins
og teiknuð ... Hún var niðursokkinn í lesturinn, varirnar
bærðust hægt eins og í miðilssvefni. En það sem hún var
að lesa var skemmtisíðan í vikublaði.
EIí hafði tekið eftir því áður, að Ingrid virtist gleyma
sér ef hún næði í þetta blað.
Þegar hún nálgaðist dyrnar, leit Ingrid upp , alvarleg og
annars hugar.
Hvað ertu að lesa svona hrífandi, spurði Elí.
Óviðbúin og undrandi leit stúlkan aftur niður á lit'
myndirnar.
Binni og Pinni, svaraði hún.
En þér stekkur ekki bros, Ingrid.
Eins og ég þurfi endilega að hlæja. Hún lagði blaðið
frá sér.
Jú, það finnst mér. Þetta er gert til þess að menn hlæi1
að því.
Ingrid setti á sig stút.
Eins og ég megi ekki hafa það hvernig sem ég vil.
Jú, auðvitað, Ingrid.
Á litla borðinu við gluggann lá bókin sem hún hafð*