Þjóðviljinn - 04.01.1944, Qupperneq 2
2
Þiiðjudagur, 4. janúar 1944
Þ J C
■ú v: ,'jji
íslenzk vsrklýðshreyfing 1943
Vér óskum árs og friðar
Bæjarpósturinn óskar öllum lcsendum
sínum og viðskiptavinum, svo og öllum
landslýð og öllu mannkyni, :irs og friðar.
Hún er undur fögur þessi æva forna ís-
lenzka kveðja; með þremur orðum tjáir
hún dýpstu þrá hins starfandi og stríðandi
mannkyns, á öllum öldum og í öllum lönd-
um. Friður og góðæri, friður og hagsæld,
er það ekki þetta, sem mannkynið Iiefur
leitað að, er það ekki þetta, sem það hefur
harizt fyrir, er það ekki þetta, sem það hef-
ur háð stríð fyrir, i»ld eftir öld, er ekki öll
vor viðleitni, í smáu sem stóru, fálm eftir
friði og hagsæld, samfelld ósk, árs og
friðar?
Skyldi nokkur tunga, sem töluð er á
jarðríki geta brugðið upp eins stórfeng-
legum myndtim í örfáum orðum, eins og
lunga l'eðra vorra, íslenzkan? A nokkur
þjóð svo fagra kveðju, sem hina íslenzku
ósk, árs og friðar?
Illa leitað
Einn mesti vitringur meðal mannanna
sagði: „Leitið og þér munuð finna", og
flestir munu sammála um, að þessi orð
fela í sér mikinn sannleika. En sé það nú
hinsvegar rétt, að mannkynið hafi frá ó-
munatíð leitað árs og friðar, verður ekki
annað sagt, en að 'J& Jíúíi tiPÍCjájtzt um
leitina, i»ví fundið hefur- mannkvnið strið
og skort, en ekki /rið og hagsæld. Er það
]>á rai^gt. að'sá linni, sem leitar? Vissulega
ekki. En mannkynið hefur Jeitað illa. þess
vegna hefur það ekki fundið. Einn hefur
leitað hagsældar á annars kostnað, einn
hefur leitað friðarins í annars fjötrum, —
mannkynið hefur aldrei leitað sem heild,
heldur hafa mennirnir leitað sem einstakl-
ingar og þjóðir; þeir hafa leitað friðar og
liagsældar, en fundið ófrið og skort, af því
þeir leituðu illa.
Vér munum finna
Síðustu tímar hafa kennt milljónum
manna, að allir verða að hafa sama rétt lil
lífsins og gæða þess; hagsæld skapast aldrei
meðan viðskiptum manna er svo háttað,
að eins gróði er frá öðrum tekinn, og friður
helzt aldrei, meðan eine er herra og annar
þræll, og það þótt þrælahaldið sé fram-
kvæmt í hinum mjúku formutn nútímans.
Ef mannkynið tileinkar sér hugsjón bræðra-
lagsins á raunhæfan hátt, ef það breytir
skipulagsháttum sínum, í samræmi við þá
hngsjón, mun það finna frið og hagsæld.
Þetta þurfum vér allir að gera oss ljóst,
og vér megum ekki hika við að gera þann
sannleika kunnan, öllum þeim, sem vér eig-
um samskipti við, að hver þjóð verður að
starfa sem samvirk heild, og ]»jóðirnar verða
að starfa saman, sem samvirkt mannkyn,
skipulag bræðralags og jafnréttis verður að
komast á, ef þráin eftir friði og hagsæld
á að verða að veruleika.
Sigraðir og sigurvegarar
Mikil von er bundin við lok þessa stríðs,
sem nú geisar. Þess er vænzt, að því Ijúki
á ]»essu ári, að minnsta kosti hvað Evrópu
snertir, og milljónirnar vona, að á eftir
komi friður og hagsæid.
Öll stríð liðinna alda hafa endað með ]»\-í
að skipta þeim, sem hildina háðu i sigraða
og sigurvegara, og hefur rétlur hins sigr-
aða löngum verið smár, en ofríki sigurveg-
arans mikið. Endi þetta stríð með sama
hætti, skulum vér ekki vænta varanlegs
friðar og' liagsældar að því loknu. Verði
hatrið til þess, sem halloka fer i vopnavið-
skiptum ráðandi við friðarborðið, er friður-
inn tapaður, og næstu ár verða stutt stund
milli stríða.
Sigur mannkynsins
Það er mannkynið sjálft, scm þarf að
bera sigur úr bítum í þessu striði, það eru
þjóðirnar, sem hin stríðandi lönd byggja,
sem þurfa að sigra, það eru þjóðirnar, sem
byggja sléttur Rússlands, eyjar Breta, fjöll
og láglendi Þýzkalands, breiðar byggðir
Ameriku. sólbakaðar sléttur Kínaveldis og
fjöllóttar eyjar Japana, og allar ]»ær þjóðir,
sem jörðina byggja, sem eiga að taka hönd-
um saman sem sigurvegarar að stríðinu
loknu, sigurvegarar, sem liafa sigrað fals-
kenningar samkeppni og baráttu, og úrelta
skipulagshætti auðvaldsins. Verði þetta, er
friðurinn unninn, aldir árs og friðar upp-
runnar.
Snjór á fjöllum
Fjöllin okkar hafa faldað hvítu um ]»essi
áramót, og eflaust laðað til sín mikinn her
æskulýðs, sem þráir hreint loft, víðerni
fjallanna og hinn undurfagra hreinleik ís-
Icnzka veðursins. Gott er ]>etta og blessað.
En málið hefur aðra hlið
En þeir eru ekki fáir, sem þuría yfir fjöll
og heiðar dag hvern, þurfa að komast milli
byggða, nauðsynlegra erinda. Vetrarskraut
fjallanna er þeim ósjaldan þrándur i götu.
Þannig var nú um áramótin.
Hellisheiði var ófær bilum, en brotizt var
vfir Mosfellsheiði með herkjubrögðum. A
annan dag nýárs voru venjulegir fólksbílar
nær 7 tima frá Þingvöllum til Reykjavík-
ur, þó vörubílar og stórir rútubílar kæmust
]>essa leið hindrunarlítið. Þetta er seinlegt
ferðalag, og ekki er víst, að allir, sem í það
lögðu, hafi haft góðan tíma til að eyða
Jæssum degi á Mosfellsheiði, þó fagurt væri
á snjóbreiðum hennar.
Þetta þurfti ekki að vera
svona
Ekki hefði það kostað nema stutta stund,
að fara með snjóplóg um Mosfellsheiði
þennan dag og ryðja öllum hindrunum úr
vegi. En þetta var ekki gerl, og verður slíkt
að teljast mjög vítavert skeytingárleysi
]>eirra, sem vegamálin annast. A hinum
fjölförnu leiðum, sem tengja Suðurlands-
undirlendið og Reykjavík, ber að hafa sí-
felldar gætur, og talarlaust ber að ryðja
hindrunum úr vegi, ef það er hægt, þessar
leiðir eiga ekki að vera torfærar fyrir hirðu-
leysi eitt. Vegamálastjóri ætti að hugleiða
þetta, ef hann er ]>á ekki orðinn svo vana-
bundinn skrifslofumaður, að hann sér hætt-
ur að skilja nauðsyn líðandi slundar, en ef
svo er, á hann að hætta starfi sínu, og í það
að koma lifandi og starfandi maður, sem
sér um að alfaraleiðum sé lialdið opnum
meðan hægt er.
Greiðviknir Ameríku-
menn
Þeir, sem lengi dags börðust við ófærð á
Mosfellsheiði 2. janúar 1944, hittu þar fyrir
greiðvikna og hjálpfúsa menn, svo af bar.
Það voru Ameríkumenn, sem ]>ar voru
staddir með \oldug tæki til að Iyfta bíl
upp á veginn, sem keyrl hafði út af nótt-
ina áður. Bíllinn, sem út af keyrði, var
amerískur. Það er skemmst af því að segja,
að Ameríkanarnir liðsinntu öllum þeim bíl-
um, sem þarna voru tepplir, og hættu ekki
fyrr en þeir höfðu hjálpað þeim öllum yfir
torleiðið. Ymsir þeirra, sem þessa greið-
vikui sýndu, höfðu þó vakað næturlangt
án matar, en ]>að hindraði ]>á ekki að leggja
á sig margra klukkustunda erfiði fyrir nauð-
stadda ferðamenn. Án þessarar hjálpar Am-
eríkananna hefðu sumir hinir islenzku bilar
ekki kornizt til byggða 2. janúar. Þökk sé
Ameríkönunum — ]>eirra framkoma var lil
fyrirmyndar.
Viðtal við Jón Rafnsson erindreka Alþýðusambands íslands
Árið sem var að líða mun verða talið eitt af hinum merkustu í sögu
verklýðssamtakanna. — Þjóðviljinn sneri sér til Jóns Rafnssonar, erind-
relca Alþýðusambands íslands, og bað hann að segja frá því helzta, er
gcrzt hefði á árinu á sviði verklýðsmála.
Rer frásögn Jóns Rafnssonar liér á eftvr:
VIÐBURÐARÍKT ÁR í SÖGU
VERKLÝÐSSAMTAKANNA
Árið, sem var að líða, er án
efa eitt hið viðburðaríkasta, er
getur í sögu íslenzkra verka-
lýðssamtaka. — Að minni
hyggju er það nær einstætt,
bæði að því er snertir margskon
ar árangur í baráttu alþýðunn-
ar og dýrmæta lærdóma,
byggða á reynslu. Árið 1942 má
þó að engu vanmeta, því að
einmitt það ár undirbyggði svo
vel sem á varð kosið þau sögu-
legu skilyrði, er atburðir s. 1.
árs eru vaxnir upp úr.
Dýrmætasti arfur ársins 1942
var, sem kunnugt er, hin skipu-
lagslega eining verkalýðssam-
takanna og 17. þing Alþýðusam-
bands íslands þá seint á árinu.
— í íramhaldi af því sem þá
gerðist, hafa á síðastliðnu ári
unnizt hinir merkustu sigrar fyr
ir íslenzka alþýðu, bæði á fag-
legu og pólitísku sviði. Og skulu
hér taldir nokkrir þeirra.
SAMEINING VERKALÝÐSINS
Á AKUREYRI
Snemma á árinu tókst stjórn
Alþýðusambandsins, eins og
fþ^gtl é'i’ örðið, að vinna síðasta
ígulvirki hinnar stéttarlegu
sundrungar í íslenzkum verka-
lýðssamtökum, með sameiningu
verkalýðsins á Akureyri.
Að þessu sama ári liðnu eru
nú raunverulega öll starfandi
verkalýðsfélög landsins komin
undir merki Alþýðusambandsins
og öll verkalýðsfélög, sem stofn-
uð hafa verið á landinu á þessu
tímabili, gengin 1 það.
ALÞÝÐUSAMBAND AUSTUR-
LANDS STOFNAÐ — KAUP
OG KJÖR SAMRÆMT
Alþýðusamband Austurlands
hefur einnig verið stofnað á s. 1.
ári, og má það tvímælalaust
telja skipulagslegan sigur fyrir
framtíðina, þótt enn hafi það
ekki látið til sín taka sem heild.
Á árinu hafa að vísu ekki ver-
ið háðar meiriháttar kaupdeil-
ur. En eigi að síður hefur Al-
þýðusambandinu miðað vel á-
fram í þá átt að fá hækkað
kaup og bætt kjör víðsvegar
um landið, þar sem kaup og
kjör voru lélegust. — Þessari
samræmingarbaráttu hefur
vegnað það vel, að óvíða á land-
inu er nú dagvinnukaup lægra
en kr. 1,90 um klukkutímann.
Reykjavíkurtaxti gildandi um
allt Suðurland, í öllum stærri
kauptúnum landsins og sum-
staðar jafnvel þar yíir og 8
stunda vinnudagur samnings-
bundinn svo að segja um allt
land.
Jón Rafnsson
VEGAVINNUSAMNINGARN-
IR — 8 STUNDA VINNUDAG-
URINN
Á sviði kaupgjalds- og kjara-
baráttu, má hiklaust telja vega-
vinnusamningana 2. maí í fyrra,
í fremstu röð. Ekki aðeins vegna
þess, að með þeim fékkst fram
geisileg kauphækkun víða í
dreifbýlinu, heldur einnig vegna
þess, að með þeim náði 8 stunda
vinnudagurinn líka til sveit-
anna. — Hitt er annað mál,
hvort allir í dreiíbýlinu hafa
þegar í stað kunnað að meta
að verðleikum þann mikla á-
vinning, sem fólst í 8 stunda
vinnudeginum, en að því skal
vikið síðar. —
ALÞÝÐUSAMBANDIÐ Á
VERÐI
í baráttu launþegastéttanna
gegn ýmiskonar árásum auð-
stétta og stjórnarvalda, hefur
Alþýðusambandið að vonum
staðið í fararbroddi.
Svo sem kunnugt er var það
eitt fyrsta verk núverandi rík-
isstjórnar, að bera fram á Al-
þingi í fyrra frumvarp, sem'
fól í sér allmikla skerðingu á
kaupi launþega miðað við dýr-
tíðina. — Gegn þessu svokall-
aða dýrtíðarfrumvarpi ríkis-
stjórnarinnar reisti Alþýðusam-
bandið svo sterka mótmælaöldu
um land allt, að árásaröflin urðu
að láta undan síga í þessu máli.
•
STARF 6 MANNANEFNDAR-
INNAR VAR SIGUR BEGGJA,
BÆNDA OG NEYTENDA
Þegar rætt er um hina stétta-
pólitísku baráttu s. 1. árs, er
erfitt að ganga framhjá hinni
alkunnu og margumræddu 6
mannanefnd og starfi hennar.
— Svo sem kunnugt er hefur
6 mannanefndin fengið marga
og misjafna dóma, og í röðum
alþýðunnar við sjóinn hefur því
sumstaðar verið á lofti hald-
ið, að starf hennar hafi verið
neikvætt fyrir launþega, að
hinn pólitíski sigur sem unn-
izt hafi með því að tengja sam-
an hagsmuni verkamanna og
vinnandi bænda, svari eigi þeim
kostnaði, sem launþegar verði að
bera af því verði landbúnaðar-
afurða sem bændum var tryggt
með niðurstöðum nefndarinnar.
Eg fyrir mitt leyti hef frá fyrstu
litið svo á, að þeir, sem hafa
í fullri einlægni gagnrýnt störf
6 mannanefndarinnar á þennan
hátt, fyrir munn launþega og
neytenda, hafi ekki metið eins
og vera ber þann pólitíska sig-
ur beggja, sem fólst í samkomu-
lagi þeirra um að tengja saman
hagsmuni sína og þar með varpa
fyrir borð þrætuepli, sem báð-
ir hafa tapað á, en enginn
grætt á nema andstæð-
ingar beggja. M. ö. o. þessir
heiðarlegu gagnrýnendur koma
ekki nægilega vel auga á hinn
hagsmunalega ávinning í hin-
um pólitíska sigri, sem þeir þó
viðurkenndu.
Fyrst eftir að 6 mannanefndin
hafði birt niðurstöður sínar, eft-
ir tiltölulega nauman starfstíma
með mjög takmörkuð gögn til
að vinna úr, var ekki nema eðli-
legt að sú skoðun kæmi víða
fram, að í niðurstöðum hennar
væri bændum áætlaður stærri
hlutur en þeim bæri, ef byggja
skyldi á raunverulegum kostn-
aði á meðalbúi í sveit, en á
hinn bóginn væri meðalkaup
launþega við sjóinn reiknað of
hátt, neytendum til óhagnaðar.
Flestir munu vera þeirrar skoð-
unar að nokkuð muni vera hæft
í þessu, enda upplýst að full-
trúar neytenda í 6 mannanefnd-
inni hafi slakað nokkuð til fyr-
ir fulltrúum bænda, í þessu efni,
til að ná samkomulagi innan
nefndarinnar.
ÞAÐ, SEM ORÐIÐ HEFÐI,
EF 6 MANNANEFNDARINN-
ARINNAR HEFÐI EKKI NOT-
IÐ VIÐ
Það er nú þegar sannað með
útreikningum hafstofunnar, að
ef niðurstöður 6 mannanefndar-
innar hefðu gilt árið 1942, þá
hefði verð á kjöti til neytenda
orðið minnst 36% lægra en
raun varð á, og ennfremur liggja
fyrir skýlausar viðurkenningar
frá svo þekktum áhrifamönnum
um kjötverðlagsmálin eins og
t. d. Ingólfi frá Hellu, að kjöt-
verðið á árinu 1943 hefði orðið
um eða yfir kr. 10,00 pr. kg.,
ef samkomulags 6 mannanefnd-
arinnar hefði ekki notið við í
stað kr. 6,50.
Það má því telja fullsannað,
að alþýða jafnt til sveita sem
sjávar hafi ekki aðeins unnið
stórpólitískan sigur með sam-
komulaginu í 6 mannanefnd-
inni, heldur einnig að neytend-
um hafi beinlínis verið sparað-
ar milljónir króna á þessu árí
í lægra kjötverði en ella hefði
orðið.
Frh. á 5. síðu.