Þjóðviljinn - 04.01.1944, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 04.01.1944, Blaðsíða 5
ÞJÓÐVILJINN. — Þriðjudagur 4. janúar 1944. f------------------------------------------------------- | 01ÓÐV1L1INN Útgefandi: Sameiningarflolckur ulþýðu — Sósíalixtaflokkurinn. Ritstjóri: Sigurður Guðmundsson. Stjórnmálaritstjórar: Einar Olgeirsson, Sigfús Sigurhjartarson. Ritstjórnarskrifstoía: Austurstrœti 1H, simi 2270. Afgreiðsla og auglýsingar: Skólavörðustíg 19, sími 2181i. Prentsmiðja: Víkingsprent h.f., Garðastrœti 17. Askriftarverð: I Reykjavík og nágrenni: Iír. 6,00 á mánuði. Úti á landi: Kr. 5,00 á mánuði. Ár hins nýja heims 1944 er hafið, — árið, þegar nazisminn verður endanlcga að vclli lagður, — árið, þegar tugir kúgaðra þjóða heimta aftur frelsi sitt, — árið, þegar íslendingar skapa lýðveldi sitt 680 árum eftir missi sjálfstæðisins, — árið, sem verður prófsteinn á vilja og gctu mannanna til þess að leggja slíkan grundvöll að mannfélagsskipan sinni, að framtíð heimilanna, að samvinnu þjóðanna, að mannkynið búi við frið og vaxandi farsæld héðan af. Endalok styrjaldarinnar og byrjun friðartímabilsins verður fyrir oss íslendinga samskonar prófsteinn og stríðið sjálft hefur verið fyrir flest- ar aðrar þjóðir. Þær þjóðir, sém sjálfar hafa orðið að þola hinar þungu búsifjar fas- ismans, hafa í þeim skelfingum skírst slikri eldskírn, að aðra eins getur ekki. Slíkar þjóðir hafa lært það, seint eða snemma, að standa saman, að setja frelsi sitt ofar öllu öðru, að þurrka burtu allt, sem reyndist spillt og fúið, — og þessar þjóðir verða í stríðslök reiðubúnar til þess að viima að því sem einn maður, að skapa betra, öruggara og réttlátara þjóðfélag en vér áður höfðum. Þær verða reiðubúnar til þess að fórna miklu, til þess að geta skipu- lagt þá samvinnu innan þjóðarheildarinnar og milli þjóðanna, sem þarf til þess að tryggja frið og farsæld meðal mannanna. Þær verða samhentar í þessu starfi. Þær vita nú hvað sundrungin þýðir — og hvað það kostar, að Iiver höndin sé upp á móti annarri, þegar mest liggur við. Og þær verða hiklausar og djarfar í framkvæmdum sínum. Þær þekkja af dýrkeyptri reynslu, hvað það þýðir, að hlífa spillingunni, láta óreiðu og kúgun haldast við. t Vér íslendingar höfum lifað vel óg sloppið við mestallar þær þján- ingar, sem þessar þjóðir hafa orðið að þola. Þeir íslendingar, — sjó- mennirnir okkar, — sem hafa orðið að þola svipaðar áhættur og hörm- ungar og aði'ir, sem í höggi hafa átt við fasismann, — hafa þá lengst af verið svo fjarri ættjörðinni, að oss bárust aðeins sagnirnar af hryðju- verkunum, en sáum sjaldnast vegsummerkin. Það er ætíð erfitt fyrir mennina að læra af öðru en reynslu sjálfra sín. Það mun því reyna á oss Islendinga, — á söguþjóðina,»— hvort hún getur lært af sögu annarra og breytt eins og sú reynsla býður henni. • Það þarf að skapa nýjan heim, — heini, þar sem hver maður er ör- uggur um frelsi sitt, um góða afkomu sína, um trygga atvinnu. Til þess að ísland verði hluti úr slíkúm heimi, þarf meirihluti ís- lendinga nú þegar á þessu ári að taka höndum saman um að breyta svo til um atvinnuhætti vora, þjóðfélagsskipan, fjármálastjórn, að grund- völiur verði einnig hér lagður að því öryggi, sem verður einkenni þess lieims, sem rís upp eftir ragnarökkur harðstjórnarinnar og öryggisleysis mannanna. Það þarf sterkan skilning á nauðsyn samheldni þjóðarinnar, djúpa virðingu fyrir réttindum hvers einasta einstaklings, mikla tilhliðrunar- semi af hálfu þeirra, er setið hafa svo að segja einir að auði og völdurn, — ef framkvæma á þátttöku íslands í myndun slíks nýs heims, án ])ess að lil mikilla og hættulegra árekstra komi. © En framtíð Islands er undir því komin, að vér einmitt nú skiljum hln verk vort til hlítar, hefjum af fullum krafti þátttöku vora í alþjóð- legu samstarfi um framleiðslu- og stjórnrnál og reisum hér á landi voi'ii þjóofélag, sem sé boðlegt börnum þessarar ])jóðar, — en ekki það hrófa- tildur atvinnuleysis, kreppna og fátæktar, sem vér áður urðum að þola. Þessi grein er framhald greinanna Leyniheimsveld- ið, er birtist í Þjóðviljanum milli hátíðanna. Þær eru eft- ir enska blaðamanninn Gordon Schaffer, og birtust í málgagni brezkra samvinnumanna, „Reynolds News“. — Greinar þessar hafa vakið mikla og verðskuldaða athygli. ÍÐNAÐARMÁTTUR SOVÉT- RÍKJANNA Sama árið, sem Ilitler kona til. valda, gaf skipulagsnefnd Sovét- ríkjanna út opinbera skýrslu um yrstu fimmára-áætlunina. — Þcgar maður les þessa skýrslu núna, eftir að maður er búimrað kynna sér „hina snjöllu ráðagerð“ Hitlers, er eftirtektarverðast að sjá, að iðnað- arþróun og landvarnaundirbúning- ur Sovétríkjanna var grundvallað- ur á nákvæmlega sömu nýju efnun- um, sem Þýzkaland birgði sig upp af, cn svifti vestrænu lýðræðis- ríkin. „Sovétríkin hafa“, scgir í skýrsl- unni, „skapað sína eigin framleiðslu á sérstaklega hörðum málmblönd- um, og er ]>að iðnaður, sem hefur hina mestu þýðingu fyrir aukin af- kiist véltækja. Auk málmblöndu, sem byggist á lungsten, og cr lík hinni þýzku málmblöndu, hafa margar aðrar málmblöndur verið framleiddar, sem þarfnast ekki fá- gætra eða dýrra hrácfna“, Skýrslan sagði einnig frá upp- finningu nýrra járnblendinga og aukningu aluminium framleiðslunn ar. Hún sagði, að með þeim útbún- aði, sem væri fyrir hendi, væri ekki til sú vél, sem ekki væri hægt að framleiða í Sovétríkjunum. Hún skýrði frá því, hvernig Rússland, sem á tímum keisaranna hefði þurft að flytja inn kemisk efni, hefði nú komið sér upp nýtízku iðnaði á þessu sviði. í upphafi fimmára-áætlunarinn- ar var þar engin gúmíframleiðsla, en áætlunin hafði komið á fót fram- leiðslu á gerfigúmí og náttúrugúmí, sem nam 6 milljónum hjólbarða og þúsundum smálesta af öðrum gúnií vörum á ári. Var það nokkur furða i>ó að naz- istavinirnir í alþjóðahringnum og nazistarnir á stjórnmálasmðinu vœru einhuga í hatri sínu gegn þessu eina ríki sósialismans, sem ógnaði sjálfri undirsiöðu heimsveld. is þeirra? Felst ekki í þessiú skýringin á þeim afrekum, sem Churchill lýsli í ræðu sinni 9. nóvember síðast lið- inn, þegar hann sagði: „Það var ekki til í heiminum slíkt hernaðarskipulág, né hefði ver ið hægt að skapa það á mörgum árum, sem hefði nokkurn tírna get- að unnið slíka sigra sem Sovétríkin hafa unnið, né þolað slíkt tjón, sem þau hafa beðið“. VlÐA POTTUR BROTINN Saga sú, sem ég hef sagt hér ágrip af, snertir áhrif hringanna á stríðs- reksturinn. Öll sagan er miklu víð- tækari. Hún sncrtir líf hundraða milljóna manna um allan hcim. — Fyrir stríð var nóg kurinugt um athafnir hinna alþjóðlegu vopna- hringa til að sanna, að einkafram- leiðsla vopna var framkvæmd án tillits til nokkurs annars en gróða, Olíuhringarnir drottnuðu í heim- inum fyrir stríðið. Þeir vildu held- ur, að Mexiko seldi olíu sína fyrstu stríðsárin til Ítalíu og um Ítalíu til Þýzkalands en viðurkenna rétt mexikósku þjóðarinnar til að ráða yfir sínum eigin olíulindum. Á árunum fyrir stríðið fundust auðugar olíulindir nálægt Dauða- hafinu í Gyðingalandi. Mundi sú olía liafa orðið hverjum Banda- manna ómetanleg í þessu stríði. En allri námalöggjöf Gyðingalands var þá breytt til að tryggja, að sérhver hagnýting olíulindanna yrði „sam- kvæmt stefnu og fyrirmælum Olíu- félags Iraks“. Árangurinn varð sá, að olíulindirnar voru aldrei hag- nýftar. Feikileg járðlög af potash- og magnesium-söltum fundust í ná- grenni Dauðahafsins. Þau voru ekki heldur hágnýtt, og með til- liti til hinnar alkunnu stefnu I. G. Farben og hinna alþjóðlegu sam- herja þess, mun óhætt að gera ráð fyrir, að þessar hráefnalindir hafi verið látnar óhreifðar, af því að hagnýtipg þeirra hefði komið í bága við áætlun nlþjóðahringanna. Auðhringar þeir, sem hafa sér- staklega hagsmuna að gæta í brezka heimsveldinu, hafa opinber- lega um 12500 milljóna króna höf- uðstól. Unilever’s félagið, sem hefur op- inberlega 3525 milljóna króna höf- uðstól og á mikinn fjölda viðbótar- fyrirtækja, ræður yfir sölu og vinnslu á vörum úr jurtafeiti, á- samt framleiðslu og dreifingu sápu og matarolía allt frá söfnun hrá- efnanna tii dreifingu smasalanna. Það ræður yfir 80% af sápufram- leiðslu brezka heimsveldisins. Sani- einaða Afríkufélagið, en Unilever á 80% áf fjármagni þess, ræður yfir mörkuðum. brezku Vestur-Afríku, frönsku Vestur-Afríku, Líberíu, portugölsku og spænsku Gíneu, Austur-Afríku og Marokkó. Eftir að stríðið hófst hefur það fœrt út kvíarnar til írak, Mesopota míu og Persíu (Iran). Jafnvel i stríði gegn fasisma hafa auðhring- arnir fylgt í kjölfar herja frelsisins. Imperial kemiski iðnhringurinn með 2375 milljóna króna höfuðstól, sem hefur mikilla hagsmuna að gæta í framleiðslu sprengiefna, til- búins áburðar, litunarefna, málma annarra en járns, lyfja, gerfisilki og demanta, Jiafði fyrir stríð deild- ir í Japan, Ástralíu, Nýja Sjálandi, Suður-Afríku, Chile, Kína, Egipta- landi, Indlandi, Perú, Tyrklandi og Kanada. Courtaulds félagið (opinberlega með 800 milljóna króna höfuðstól) á margar verksmiðjur í Bretlandi og ýmis fyrirtæki í Kanada. Hin amerísku fyrirtæki þess voru af- hent ríkisstjórninni árið 1941. Fyr- ir stríð hafði það samband við Vereinigte-GIanzstoff félögin í Þýzkalandi og Frakklandi. Dunlop gúmífélagið (opinberlega með 500 milljóna króna liöfuðstól) hefur deildir í öllum álfum heims- ins, í 23 ríkjum. Ensk-íranska olíufélagið (höfuð- stóll 825 milljónir króna), átti deild ir í Ástralíu, Indlandi. Þýzkalandi, Danmörku, Austurríki, Svíþjóð, Noregi og Frakklandi, og auk Jiess hlut í Olíufélagi íraks. Brezki cldspýtnahringurinn (höf uðstóll 212 millj. og 500 þúsundir króna) er í sambandi við alþjóð- lega cldspýtnahringinn, og eiga þeir hagsmuna að gæta í næstum öllum löndum heims. Amalgamated Metal liringuyinn (höfuðstóll 140 milljónir króna) á alveg British Metal félagið, sem ræður yfir félaginu Brametta, sem skrásett er í Svisslandi. Hann á líka hluti í Henry Gardner & Co., sem fyrir stríð hafði hagsmuna að gæta í Metalgesellschaft í Frankfurt í Þýzkalandi. Melalgescllschaft á mikinn hlut í þýzkum og öðrpm námafélögum og á ásamt llio Tin- to félaginu á Spáni alla hluti í ev- rópska Pyrites félaginu. Fram að stríðsbyrjun var Oliver Littelton, núverandi framleiðslumálaráðherra Bretlands, framkvæmdastjóri Bri- tisn Metal félagsins og mcðlimur í stjórn Metalgesellschafts. Sagan af því, hvernig hringarnir snerta líf og afkomu milljóna af heimilum, er í stuttu máli svona: Skóladrengir hjóla á hjólbörðum frá hringunum. Eldri piltarnir aka á vélhjólum, sem nota benzín og smurnirigsolíur frá hringunum. — stúlkurnar eru í kjólum, sokkum og með höfuðklúta úr gerfisilki frá hringunum. Þegar þær giftast, gefa þær börnunum sínum mat búinn til af hringunum og sömuleiðis fjör- efni frá hringunum. Eigirimenn- irnir fylla pípu sína tóbaki frá hringunum og kveikja í því með eldspýtum úr sama stað, á meðan þcjr hlusta á útvárpstæki, frani- leitt af hringunum. Heimilisfólkið allt borðar brauð úr korni, möluðu af hringunum og smyr það með smjörlíki frá hringunum. Ef ein- hverjir fara til útlanda, láta þeir fólkið heima vita af sér með því að senda símskeyti frá símstöðvum, sem hringarnir reka. ANDÓF SAMVINNUHREIF- INGARINNAR Hringarnir hafa ckki náð fullum tÖkum á framleiðslu neyzluvöru í Bretlandi. Ástæðan er sú, að alveg eins og Sovétríkin liafa á hinu al- þjóðlega sviði fylgt stefnu, sem er algjörlega andsnúin takmörkunum hringanna, þannig hefur samvinnu- þreifingin ein liér innan lands veitt hringunum viðnám. Brezka sam- vinnuhreifingin er aðalkeppinautur hringanna með tilliti til mjölvöru, sápu, smjörlíkis, tóbaks, lyfja og margra annarra vörutegunda. Þegar grammofóna- og útvarps- viðtækjahringurinn reyndi að setja Samvinnufélögunum þau skilyrði, að þau mættu ekki leggja dreifing- arkostnað á vörur hans, hófu Sam- vinriufélögin sjálf framleiðslu á út- varpsviðtækjum. í Svisslandi háðu samvinnufélög baráttu við þýzka potash-hringinn. Sænska samvinnu hreifingin er í stöðugri baráttu við hringana. Þau komast að því, að gúmíhringurinri hélt skóhlífum í háu verði, svo að þau komu sér upp skóhlífnaverksmiðjum og fóru seinna að framleiða aðrar vörur úr gúmí. Á sama liátt knúðu þau fram verðlækkun á smjörlíki og ljósa- perum. Ljósaperaliringurinn hóf málsókn á hendur þeim fyrir brot á einkaleyfum, og neyddi þau t.il að eyða niiklu fé í málaferlum. Samvinnuhreifingin í Bandaríkj- unum bauð olíu-hringunum byrg- inn, fyrst með því að setja upp sín- aí eigin benzíndælur og loks ineð því að komast yfir olíulindir og reisa olíuhreinsunarstöðvar. Alþýðan á því eitt öflugt vopn gegn auðhringunum, en það verð- ur ekki aðeiiis að heyja baráttuna á sviði efnahagslegi-ar samvinnu. I fyrsta lagi verður almenningur að krefjast opinberrar rannsóknar á athöfnum auðhringanna fyrir stríð ið og á stríðsárunum. Dalton ráð- herra sagði neðri deild þingsins þ. 9. nóvember, að allt samband milli brezkra fyrirtækja og fyrirtækja óvinanna hefði verið bannað frá upphafi stríðsins og öllum samn- ingum milli þeirra sagt upp. Hann sagði, að deildir þær úr I. G. Far- ben, sem rækju viðskipti í hlut- lausum löndum, hefðu snemma í ófriðnum verið sett á svartan lista, sem óvinafyrirtæki. — Áður hafði Dalton lýst því yfir, að ríkisstjórn- in væri að láta rannsaka ástand auðhringanna, og mundi það koma til athugunai' við friðarsamning- ana. Þessi loforð eru ekki nóg. Það verður að rannsaka stefnu þá, sem leyfði mönnunum að baki alþjóða- hringunum að koma lýðræðisríkj- unum í þá aðstöðu, að þau voru næstum orðin leppríki í heimi, stjórnað af nazistum. Ilvað sem tilganginum leið, þá komust hringarnir inn á þessa braut, af því að þcir fylgdu stefnu skortsins. Þeir voru hræddir við allsnægtirnar, sem vísindin buðu mannkyninu. Þeir gripu til allra ráða til að halda í gróða sinn. — Þýzkaland þekkti möguleika þess- ara allsnægta og beitti þeim með kaldri skynsemi að undirbúningi styrjaldar. Það er engin tilviljun, að þeir aðilar, sem nú krefjast þess, að bundinn sé endi á allt eftirlit, sem skerði „einstaklingsfrclsið', er ná- Framhald af 2. síðu. SJÓMANNARÁÐSTEFNAN MARKAÐI TÍMAMÓT Sjómannaráðstefnan, sern Al- þýðusambandið gekkst fyrir í nóvember s. 1. hér í Reykja- vík, er einnig viðburður, er telja má hinn merkasta í alla staði. í fyrsta skipti þá mæta full- trúar sjómanna og fiskimanna úr flestöllum helztu veiðistöðv- um landsins, til að brjóta til mergjar vandamál sín. — Þessi ráðstefna tók eigi aðeins til með ferðar merkustu hagsmunamál sjómanna, svo sem kaupgjalds- mál, öryggismál, skipulagsmál o. s. frv., hún tók einmg fvrir dýrtíðina og vandamál smáút- vegsins og samþykkti í báð- um þessum málum gagnmerkar ályktanir, sem kunnar eru Its- endum flestra dagblaðanna og sýna ótvírætt vaxandi skilning sjómannanna á þýðingu bess, að samstarf geti tekizt með þeim og smáframleiðendum við sjáv- arsíðuna um sameiginleg hags- munamál. kvœmlega þeir sömu, sem verja og hafa alltaf varið rétt hringanna til að skipuleggja hin óháðu heims- veldi sín. Lýðræðisríkin geta notað alls- nægtirnar i stríði, en þáu hafa ekki uppgötvað neina leið til að nota sér allsnægtirnar á friðartímum. — Stefna hringanna, scm svifti lýð- ræðisríkin nauðsynlegum liernað- arsyörum, var arinar þátturinn í þesssari sömu stefnu, sem lokaði skipasmíðastöðvum Bretlands og skar niður framleiðslu á áríðandi vörutegundum, af því að á friðar- tímurn var þeim ekki tryggður gróði af sölu þeirra. í Bandaríkjunum hefur ríkis- stjórnin gert nokkra tilraun til að fást við þetta vandamál. í Bret- landi hefur ekkert verið gert. — Hringarnir í Bretlandi eru sterkari núna en í upphafi stríðsins. í öllu hinu víðtæka eftirlitskerfi ríkis- stjórnarinnar eru menn úr hringun- um látnir skipa. flestar áhrifastöð- úr. Sérréttindi til ýmissa fram- kvæmda eftir stríð hafa næstum eingöngu verið vcitt hringunum. Til að hervæða þjóðina í stríðinu gegn fasismanum voru vélsmiðir fengnir til að fór'na iðnréttindum sínum, verklýðsfélögin afsöluðu sér verkfallsréttindum. En hringarnir hafa ekki látið neitt af hendi af völdum sínum. Það er engin tilviljun, áð maí'gir af þcim mönnum, sem hreifðu eng- um mótmælum, þcgar afturhalds- öflin vop'núðu og styrktu Ilitler, og þegar hringirnir skiptu npp lieim- inum með Þýzkaland nazista sem drottnandi aðila, krefjast nú, að Þýzkaland sé afmáð. Þá langar til að útrýma þýzku þjóðinni, sem jafnt og þjóðir vest- rænu lýðræðisríkjanna var fórnar- lamb alþjóðahringanna. Þeir vilja mola Þýzkaland sem iðnaðarkeppi- naut, jafnvel þó að þýzka þjóðin taki iðnaðinn í sínar liendur úr höndum hringanna. Jafnvel þó að Þýzkaland væri þurrkað út, mundu hringarnir vera neyddir til af sjálfu eðli sínu að GAGNKVÆMUR SKILNING- UR OG GOTT SAMKOMULAG MILLI ALÞÝÐUSAMBANDS- INS OG F. F. S. í. — Varð ágreiningur um kaup- taxta milli Alþýðusambands- ins og F. F. S. 1? — Úr því minnst er á taxta þá er ýms sjómanna og verka- lýðsfélög hafa auglýst í blöðun- um og yfirlýsingar stjórnar Far- manna- og fiskimannasambands íslands í því sambandi, vil ég upplýsa það, segir Jón, að taxt- ar þessir eru, að efni til, í fullu samræmi við ályktanir fyrr- nefndrar sjómannaráðstefnu þar sem mættir voru fulltrúar fé- lagsbundinna háseta, mótorvél- stjóra, stýrimanna, skipstjóra og fleiri starfsgreina á sjónum, auk tveggja fulltrúa frá Farmanna- og fiskimannasambandinu og eins fulltrúa frá Mótorvélstjóra- félagi Islands, með málfrelsi og tillögurétt í öllum málum ráð- stefnunnar, einnig þessum. Yfirlýsingar F. F. S. í. um af- stöðu sína gegn þessum töxtum takmarka framleiðsluna vegna gróðahagsmuna sinna. Á meðal vissra hluta af verk- lýðshreifingunni er nú hættuleg t.il-. hneiging til að sætta sig við ástand, þar sem hún mundi verða minni- háttar hluthafi í gróða hringanna, — eins konar Mond-Turnerismi (stefna sem fylgdi iðnaðarsam- vinnu fyrir stríð) á alþjóðlegum mælikvarða. Það er leið til glöt- unar. Eina stefnan, sem getur borið gtiðan árangur eftir stríðið, er sú stefna, sem tekin var á ráþstefn- unni í Hot Springs. Samkvæmt henni á ekki gróðavon að ráða fram Ieiðslunni í heiminum, lieldur þarf- ir néytenda. En það er engin von um, að 'þessu marki verði náð, á meðan alþjóðahringirnir eru til. Atlantshafssáttmálinn, sem lof- ar útrýmingu skorts, og Moskvu- sáttmálinn, sem slær föstum rétti allra ])jóða Lil að skapa sér örlög sín, geta ekki verið við lýði ásamt einkaheimsveldum auðhringanna. Jón Þórarinsson farinn til tónlistanáms í Ameriku Jón Þórarinsson, fréttamaöur ríkisútvarpsins, er farinn til Ameríku og ætlar að dvelja í 2 ár við Yalé-háskólann við tón- listarnám. Fékk hann tvegg'ja ára leyfi frá störfum hjá ríkisútvarpinu og fór a. n. leyti á vegum þess vestur, þar sem hann er ráðinn hjá tónlistardeild útvarpsins, þegar hann kemur heim aftur. Kennari hans við Yale-háskól- ann verður þekktur þýzkur tón listarprófessor, sem mun vera einn þeirra er urðu að flýja land sitt áf völdum nazista. Jón byrjaði ungur að fást við' tónlist og semja lög. Hafa nokk- ur af lögum hans verið leikin og sungin í útvarpið. Ill 19« verkalýðs- og sjómannafélaga Alþýðusambandsins fyrir með- limi sína, kom því bæði mér og fleirum á óvart, svo maður sleppi fyrirsögninni „Marklausir taxtar“, sem Mogga þóknaðist að krýna þessa yfirlýsingu. Sannleikurinn mun verða sá, að fjöldi manna og ef til vill einhver félög sömu starfsgreina munu vera í báðum þessum samböndum. — Hin gömlu fé- lög Alþýðusambandsins fjalla hér um mál, sem þau hafa haft með höndum í mörg ár fyrii» meðlimi sína. — Hins vegar hafa ýms ný stéttarfélög stýri- manna og skipstjóra á smærri fiskiskipum risið upp á vegum Farmannasambandsins nú á síðustu tímum, án þess að segja til sín, að því er snertir starfs- svið og afskipti af kjaramálum. Hér virðist sannarlega vera um að ræða nokkur mistök, sem ekki hefðu þurft að koma fyrir, mistök, sem félög Alþýðusam- bandsins verða ekki réttilega sökuð um, eins og sýnt hefur verið fram á. — Hins vegar er hér, að mínum dómi ekkert skeð, sem ekki er hægt að leið- rétta með hægu móti — til sárra vonbrigða fyrir þá, sem óska innbyrðisárekstra meðal sjómanna. BARÁTTAN VIÐ AFTUR- HALDSÖFLIN Það verður ekki annað séð, en að bezta samkomulag og gagnkvæmur skilningur hafi ríkt milli Alþýðusambandsins og Farmannasambandsins. — Og það mun eiga eftir að sannast einnig í þessu máli. í þessu spjalli mínu hef ég einkum dvalið við einstök at- riði, sem telja má til ávinnings fyrir alþýðuna og samtök henn- ar. En árinu sem var að líða er einnig tengt ýmislegt, sem boðar vinnandi stéttum erfið- leika og hættur, sem krefjast fullkominnar árvekni af sam- tökum þeirra. Vinnandi stéttir og launþegar hafa allt síðast liðið ár verið umsetnar stöðugri áreitni, sem miðað hefur að því að rýra laun þeirra og draga úr höndum þeirra það sem unnizt hefur á í kaupgjalds- og kjaramálum undangengin ár. Allt s. 1. sumar hafa verka- lýðssamtökin átt mjög í vök að verjast gegn því, að fyrrnefndir vegavinnusamningar yrðu að litlu hafðir í dreifbýlinu, af hálfu viðkomandi vinnukaup- anda, og í framhaldi af þessu liggur nú til úrlausnar á Al- þingi frumvarp þess efnis, að reyna að fá 8 stunda vinnu- daginn afnuminn í vega- og brúargerðinni. — Þetta er vissu- lega ekkert annað en byrjuð árás á 8 stunda vinnudaginn al- mennt. Verkalýður og launþegastétt- ir hafa einnig orðið að kenna mjög á klækjum stjórnarvald- anna í dýrtíðarmálunum. — All- ir kannast við það hversu verð- lagsstjóra hefur verið beitt gegn ýmsum félögum launþega eins Þriðjudagui’ Hlýð kalli Framh. af 3. síðu. þess hina miklu, sem nú fer fram? Ef ekki, verður þér kastað sem gagnslausu, slitnu fati á haug gleymskunnar, og þjóðirnar, hvorki þín né aðr- ar, hafa þín nokkurs not. Lif- irðu hluttakandi í lífi þjóö- anna, leggurðu aö þér aö skynja og skilja hina nýju verðandi, eða ertu svo heimsk- ur og sljór aö draga fram líf- ið á gömlum hugmyndum, eða jafnvel svo aumur, að þú tilbiðiir enn í hjarta þínu guði auðvalds, fasisma og kúgunar? Ef svo er, máttu vita, að þú vaknar einn dag, fyrr en varir, og tekur eftir, að nafn þitt er hvergi kallaö upp, þín er hvergi saknað og þú munt litla ánægju hafa af og t. d. Múrarafélagi Reyk'ja- víkur s. 1. sumar. — Þá eru og alþekktar hinar „kúnstugu“ verðlækkanir landbúnaðaraf- urða á vissum tímum, til að fá út vísitölu launþegum í óhag. — Og efndir stjórnarvaldanna á loforðum þeim, sem Verka- mannafélaginu Dagsbrún voru gefin, um endurskoðun vísitölu- útreikningsins, tala of skýru máli til þess, að nokkur heilvita maður láti sér detta í hug að um sinnaskipti sé að ræða hjá þeim herrum er ráðið hafa til þessa stéfnunni í dýrtíðarmál- unum. Síðast en ekki sízt bera gerð- ir síðasta Alþingis þess ljósan vott, að hin skammarlega og skaðlega niðurgreiðslustefna á kostnað launþega, er hvergi nærri úr sögunni og að aftur- haldsöflin, sem um tíma höfðu reynt að sitja á strák sínum á Alþingi, eru nú risin upp við dogg. ALÞÝÐU S AMT AK ANN A BÍÐA STÆRRI VERKEFNI EN NOKKRU SINNI FYRR Hótanir Hriflu-Jónasar í Degi annarra ófyrirleitnustu aftur- haldsseggja landsins í Bóndan- j um og víðar, um stofnun lappó- j mannahreyfingar, boða m. a. j þjóðinni hvað koma skal, ef al- þýða til lands og sjávar sofnar á verðinum. I stuttu máli: Hið liðna ár hefur verið ríkt af ávinningum fyrir alþýðuna og samtök hennar, en jafnframt lagt fyrir stéttasamtök hennar fjölþættari og stærri verkefni en nokkru sinni fyrr. j Meðal viðfangsefna alþýðunn- ar á þessu ári tel ég vera þessi: 1. Að treysta svo sem auðið er þá stéttarlegu einingu inn- byrðis, sem ríkt hefur innan verkalýðsfélaganna síðan á 17. þingi Alþýðusambandsins, svo að þau, hvert fyrir sig og sem sameiginleg heild, geti ekki að- éins endurheimt það, sem af launþegunum hefur verið tekið með dýrtíðarstefnu stjórnarvald anna, heldur einnig til að hefja gagnsókn gegn yfirvofandi árás um, hvort sem um yrði að ræða beina árás á kaupgjald, áfram- haldandi rángsleitni í dýrtíðar- 4. janúar 1944. — ÞJÓÐVIL.IINN tímans lifi þínu og lítið skilja og í fáu fylgjast með og þér mun finnast þú frekar dauður en lifandi. * íslenzki alþýðumáður! Til þín beini ég fyrst og fremst þeirri kröfu: Rís af svefni, því að stund þín nálgast. Stund verkamannsins um alla jörð fer í hönd. Þitt ríki er í mót- un í eldi þessarar styrjaldar. Þitt er að skynja til botns þá tíma, sem nú eru. Þitt er að undirbúa hug þinn og hjarta, herða og meitla félagssamtök þín, stæla þáð afl, sem á að skapa nýtt ríki, þitt ríki, þinn frið á þessari jörð. Kr. E. A. málunum, árás á 8 stunda vinnudaginn, í sveit eða við sjó eða annað af þessu tagi. — Þetta gildir fyrir allan verkalýð til sjós og lands, og er ekki ástæða til annars, af reynslu síðasta árs, en að treysta honum til hins bezta í þessu efni. 2. Reynsla alþýðusamtakanna á hinu liðna ári hefur og sann- að betur en nokkru sinni fyrr, að hin faglega barátta launþeg- anna er með öllu ófullhægjandi, til að sjá hag þeirra borgið, og að illa mundi nú horfa um hag alþýðu, ef landssamtök hennar hefðu, á seinni tímum, einskorðað sig við form launa- baráttunnar. Af þessu verður dreginn sá lærdómur, að á þessu ári verða alþýðusamtökin að útvíkka enn starfsvið sitt, reka fjölþættari og markvissari stéttarpólitík en1 nokkru sinni áður, gegn stéttar- pólitík andstæðinganna. Eitt stórpólitískasta málið, sem bú- ast má við að stéttaátök verði um á þessu ári, eru atvinnu- málin. — Átök stéttanna koma til með að snúast beinlínis um það, hvort draugur atvinnuleys- isins skuli ríða húsum alþýð- unnar, eins og fyrir stríð, nokkr- um auðdrottnurum í atvinnulíf- inu til hagræðis og þjónkunar, eða hvort atvinnu- og fram- leiðsugetu landsins skuli beitt til heilla og hagsældar fyrir al- þjóð. Baráttan um þetta er bar- áttan um völd. I þessari baráttu sem og í öllum helztu hagsmunamálum alþýðunnar, hefur yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar sameig- inglegra hagsmuna að gæta, jafnt hinn vinnandi bóndi í sveitinni sem hinn vinnandi framleiðandi við sjóinn, starfs- maðurinn á skrifstofunni og í verzluninni, ménntamaðurinn og sá sem framleiðir andleg verðmæti, listamaðurinn. Samtök alþýðunnar munu því, með Alþýðusamband íslands í fararbroddi, kosta kapps um að efla sem bezt samstarf sitt við millistéttir landsins um sameig- inleg hagsmuna- og velferðar- mál, og taka til óspilltra mál- anna þar sem frá var horfið á liðna árinu, um sköpun banda- lags vinnandi stétta. /

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.