Þjóðviljinn - 01.02.1944, Page 8
NÝJA bíú
TJáSNál BIÓ
Orborginni
Næturlæknir er í Læknavaröstöð
Reykjavíkur í Austurbæjarskólan-
um, sími 5030.
Ljósatími ötcutœkja er frá kl. 4.25 að
degl til kl. 8.55 að morgni.
Útvarpið í dag:
18.30 Dönskukennsla, 2. flokkur.
lð.00 Enskukennsla, 1. flokkur.
19.25 Þingfréttir.
19.30 Erindi Fiskifélagsins: Um lýs-
isvinnslu fyrr og nú (dr. í>órð-
ur Þorbjamarson).
20.20 Fjörutíu ára afmæli innlendr-
ar ráðherrastjómar (1. febr.
1904).
Samfelld dagskrá:
a) Erindi: Upphaf innlendrar
, stjómar og þingræðis (Ein
ar Amórsson dómsmála-
ráðherra).
c) Tónleikar og upplestur.
d) Erindi: (V. í>. G.).
e) Upplestur og tónleikar.
Karlakór iðnaðarmanna heldur
samsöng í Gamla Bíó í dag kl. 11.30
e. h. og fimmtudaginn 3. febr. kl.
11.30 e. h. Aðgöngumiðar seldir í
Bókaverzlun Sigfúsar Eymundsson-
ar og í Hljóðfæraverzlun Sigríðar
Helgadóttur. — Útselt á samsönginn
í kvöld.
Hlutavelta Kvennad. Slysavarna-
félagsins byrjar á morgun kl. 3 e.
h. í Listamannaskálanum. Óvenju-
góðir munir verða á hlutaveltu þess
ari og alir vilja styrkja hið góða
málefni.
Knattspymufél. Valur heldur
skemmtifund í Tjamarcafé annað
kvöld kl. 8V2- Skemmtiatriði og
dans.
Leikfélag Reykjavíkur sýnir Óla
smaladreng kl. 5 í dag. Aðgöngu-
miðasala hefst kl. 2. — Vopn guð-
anna verður sýnt annað kvöld og
hefst aðgöngumiðasala kl. 4.
Flokkurínn
Sósíalistafélag Reykja-
víkur
heldui- aðalfund sinn í dag kl. 8.30
e. h. á Skólavörðustíg 19.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundar-
störf. — 2. Lýðveldismálið, Fram-
sögumaður: Einar Olgeirsson.
Kvenfélag
Sósíalistaflokksins
heldur aðalfund fimmtudaginn 3.
febr. kl. 8.30 e. h. á Skólavörðustíg
19. Nánar auglýst síðar.
Stefán Þorvarðarson
Framh. af 1. síöu.
starfi í utanríkisráðuneytinu og
gengdi því til ársins 1938, en
11. júní það ár var hann gerður
skrifstofustjóri í utanríkisráðu-
neytinu og hefur gengt því
starfi síðan.
Stefán Þorvarðarson hefur á
þessum árum tekið þátt í mörg-
um samningagerðum fyrir ís-
lands hönd og átti sæti 1 samn-
inganefnd ríkisins í viðskipta-
málum síðastliðið ár.
Frá iNórðfirði
Framhald af 1. síðu.
3 þeirra til Suðurlands, en hinir
fara til Hornafjarðar.
Axel Andésson íþróttakennari
heldur nú námskeið á Norðfirði
í knattspyrnu og handknattleik
og er þátttaka mjög góð. Áður
en hann kom til Norðfjarðar
hélt hann námskeið á Seyðis-
firði.
iJOÐVILIIN
LEIKFELAG REYKJAVIKUR
„Óli smaladrengur “
SÝNING KL. 5 í DAG
Aðgöngumiðar seldir frá kl, 2 í dmg.
LEEKFELAG REYKJAVÍKUR.
-VOPN GUÐANNA“
Sýning aunað kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðasalan er opin frá kl. 4 til 7 í dag.
IKltít Mllr í DIM -
i naiir dnttiar
Síðasfliðinn laugardag hvolfdi vélbát á Djúpavogi.
Voru 11 menn á bátnum og drukknaði 1 þeirra, Ari
Höskuldsson, að nafni.
Báturinn var að flytja póst
og farþega í strandferðaskip,
m. a. tók hann póst, sem fara
átti til Hornafjarðar.
Þegar báturinn var að beygja
inn á voginn hvolfdi honum og
fóru flestir mannanna í sjóinn.
— Af þessum 11 mönnum voru
9 ósyndir.
Ungur maður, sem var að
reyna vélþát þar skammt frá
brá við og tókst að bjarga flest-
um mönnunum. Aðrir bátar
fóru einnig á vettvang, m. a.
Sæfinnur frá Norðfirði og tókst
honum að lyfta bátnum það
hátt upp að hægt var að ná
manni sem var í barka hans.
Ari Höskuldsson var 23 eða
24 ára, ókvæntur, en átti aldr-
aða foreldra. Slætt var eftir líki
hans og fannst það um kl. 3 í
fyrradag.
(
Balttr sMar I
Boiamsilrði
Losnaði aftur — skemmd-
ist lítið.
Vélbáturmn Baldur frá Stykk
ishólmí, sem verið hefur í för-
um inn á Hvammsfjörð,
strandaði s.l. föstudag á Svörtu
skerjum, sem eru nokkuð und-
an Staðarfelli.
Skerið var ekki stærra en svo,
að báturinn stóð út af því til
þeggja enda. Vélþáturinn Grett-
ir fór á vettvang til þess að
reyna að ná Baldri af skerinu,
en varð frá að hverfa vegna
þess hve mikið var fjarað út.
Sólarhring síðar losnaði bátur-
inn sjálfkrafa á flóðinu og lá
í íshroða inn við ströndrna unz
hann var sóttur þangað. Reynd-
ist hann að mestu leyti ó-
skemmdur.
Sæbjörg dregur Haf-
þór til hafnar
í fyrrakvöid bilaði vél vélbáts
ins Hafþórs, G.K. 210 og bað
báturimi um aðstoð. Var hann
þá staddnr 6—8 sjómílur vestur
af Garðskaga.
Björgunarskútan Sæbjörg fór
bátnum til aðstoðar og fór með
hann til Keflavíkur og kom
þangað með hann í gærmorgun.
Hoore talar við Franco
Brezki sendiherrann á Spáni
sir Samúel Hoare, átti tal við
Franco í gær. Ekki er kunnugt
um efni viðræðnanna, en talið
er að Bretar leggi nú fast að
Franco að draga úr aðstoð sinni
við Þjóðverja og hóti honum
ýmsum gagnráðstöfunum.
Bandaríkjastjórn hefur nú
loks látið undan þrálátum kröf-
um almennings þar í landi og
bannað útflutning á olíu til
Spánar. Hafa spænsk blöð ekki
minnzt á það bann ennþá.
Þjóðverjar virðast nú óttast
að afleiðingarnar af umræðum
Hoares og Francos verði m. a.
þær, að Spánverjar taki fyrir
wolfram- (túngstengrýti) -út-
flutning sinn til þeirra.
Verkföll og hópgöngur
á Norður-Ítalíu
Verkamenn í Genúa og fleiri
borgum á Norður-Ítalíu gerðu
verkföll og fóru í hópgöngur,
er fréttist um landgöngu Banda
manna fyrir norðan viglínuna.
Leynisamtök ítala hafa gefið
út ávarp og skorað á almenning
að sýna rósemi.
I
:
Sögur frá Manhattan !
(Tales of Manhattan)
Charles Boyer,
Rita Hayworth,
Ginger Rogers,
Henry Fonda,
Charles Laughton,
Paul Robeson,
Edward G. Robinsxm. j
og 46 aðrir þekktir leikarar. j
Stórfengleg mynd.
Sýnd kl. 9.
!
GRAFINN LIFANDI j
(The Man who would ’t Die)
Spennandi leynilögreglu-
mynd.
LLOYD NOLAN,
MARJORIE WEAVER.
Bönnuð börnum yngxi ea
12 ára.
Sýnd kl. 5 og 7.
Harðfaxl
(THE BIG SHOT). |
| HUMPHREY BOGART. \
IRENE MANNING.
J Sýnd kþ 5, 7 og 9.
5 Bönmtð fyrir böm innan 16 •
ára. j
••••••••••••••••^•••••••••••••••••••••S
'••••••••«••«••••••••••••••••••••••••••
Kauputn fuskur
HÚSGAGNAVINNUSTOFAN
Baldursgötu 39
Gerist áskrifendur »8
ÞJÓÐVILJANUM
Árshátíð
Daðsbrúnarmanna
Arshátíð Verkamannafélags-
ins Dagsbrún fór fram s.I. laug-
ardag í Iðnó og Alþýðuhúsinu
við Hverfisgötn.
Zophonías Jónsson formaður
undirbúningsnefndirnar setti
árshátíðina í Iðnó með stuttu
ávarpi. Jón Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Alþýðusambands
ins, flutti ræðu. Sýnd var kvik-
mynd frá lífi Vestur-íslending-
anna gömlu. Friðfinnur Guð-
jónsson leikari las upp, og
yerkamaður af eyrinni söng
gamanvísur og las upp.
í Alþýðuhúsinu við Hverfis-
götu flutti Jón Rafnsson, erind-
reki Alþýðusambandsins, ræðu.
Kjartan Ólafssop, einn af stofn-
endum Dagsbrúnar, flutti stutta
ræðu. Friðfinnur Guðjónsson
leikari skemmti. Sýnd var sama
kvikmynd og í Iðnó og Sigurjón
Gunnarsson verkamaður las
kvæði.
Að lokum var dansað af miklu
fjöri. Troðfullt hús var á báðum
stöðunum og fór árshátíðin hið
bezta fram.
Hellisheiði ófær næst-
um vikutíma
Hellisheiði hefur verið ófær
bifreiðum síðan á miðvikudag-
inn í s.l. viku. Hafa 3 mjólkur-
bílar setið fastir á heiðinni síð-
an.
Samkvæmt viðtali, sem Þjóð-
viljinn átti við vegamálaskrif-
stofuna í gær er nú óvenjumik-
ill snjór á báðum austurleiðun-
um. Var unnið af kappi að því
í gær að moka báðar leiðimar,
en talið vonlítið að fært yrði
austur yfir fyrr en í dag og
myndi sennilega auðveldara að
halda Þingvallaleiðinni opinni.
Gjöf til Félags ísl.
myndlistarmanna
Aðalfundi Félags ísl. mynd-
listamanna, sem haldinn var
fyrir skömmu barst bréf frá
Guðmundi Einarssyni frá Mið-
dal, þar sem hann tilkynnir fé-
laginu að hann gefi því lista-
mannalaun þau er honum eru
veitt á þessu ári.
í bréfi þessu lagði hann svo
fyrir, að upphæð þessari, 1200
kr. ásamt verðlagsuppbót, skuli
varið til greiðslu uppdráttar að
framtíðarsýningarskála félags-
ins. Ennfremur hvatti hann
aðra listamenn og listunnendur
til þess að leggja eitthvað af
mörkum í þessu skyni.
Á aðalfundinum bætti Sveinn
Þórarinsson við þessa gjöf, —
ættu listunnendur að leggja
sinn skerf í þennan sjóð.
Sýningarskáli listamanna er
engin framtíðarbygging, þótt
hann sé góð og mikil bót frá
því sem áður var, enda, hefur
félagið ekki leyfi fyrir honum
þama lengur en til 6 ára. Það
mun því kosta mikinn undir-
búning og fé , að koma upp
framtiðarsýningarskála fyrir
listamenn.
wuiiinmnmiminiiuimHiiiiiinRniiinmumiHiHinnuimmuKig*
Hringið í síma
2184 og gerizt á-
skrifendur'
RÉTTAR
MimnMiuiiiiitmuiumiiHiHioiiiiuimtnmininiiiDHinuiiiiK*
DAGLEGA
NY EGG, soðín og hrá
Kaíf isalan
Hafnarstræti 16.
KAUPIÐ ÞJOÐVILJANN
I