Þjóðviljinn - 05.02.1944, Side 5
ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 5. febrúar 1944.
Laugardagur 5. febrúar 1944. — ÞJÓÐVILJINN
þlÓÐVIUINN
Ótgefandi: Sameiningarflokkur alþýdu — Súsialistaflokkurinn.
Kitstjóri: Sigurðut Guðmwndsson.
Stjórnmálaritstjórar: Einar Olgeirsson, Sigfús Sigurhjartarson.
Kitstjórnarskrifstofa: Austurstræti 18, sími 8870.
Afgreiðsla og augiýsingar: Skólavörðustiy 19, sími SlSl^.
Prentsmiðja: Víkingsprent h.f., Garðastrceti 17.
Áskriftarverð: í Reykjavik og nágrenni: Kr. 6,00 á máauði. -
Óti á landi: Kr. 6,00 á mánuði.
S
„Engángs -- skatten“
,,En nú kom drengurinn, sem átti gullastokkinn, og tók legg-
inn og batt um Kann rauðan þráð og reið honum um pallinn, og
seinast tók hann látúnsbólu og rak í endann á honum. Það var
ekki mjög ljótt að sjá skína á bóluna, þegar leggnum var riðið".
Jónas Hallgrímsson: Leggur og skel.
Það var við síðustu kosningar til Alþingis í október 1942.
Alþýðuflokkurinn vildi sýna alþýðu manna, hve langt hann stæði
öðrum flokkum framrar í róttækum umbótum og baráttu gegn stríðs-
gróðavaldinu. Stefán litli Jóhann leitaði nú vel í gullastokknum sínum,
fann þar hinn fallegasta legg, batt við hann hárauðan þráð og reið hon-
um allt hvað af tók um kosningapallinn. læggurinn var kallaður eigna-
aukaskattur — og þetta var svo sem ekki bara leikfang. Þetta var fúl-
asta alvara: Eignaaukaskatturinn var höfuðmál Alþýðuflokksins við
síðustu kosningar. Samkvæmt honum skyldi tekið af mönnum allt upp
í 75% af því, sem þeir höfðu eignast sem stríðsgróða.
Þessi eignaaukaskattur átti'svo sem ekki að vera neitt „kommún-
istiskt eignarán“, — nei, það var nú eitthvað annað. Ilann átti að vera
óskiip finn lýðræðislegur og þingræðislegur skattur — og til þess að
taka af öll tvímæli um að ekkert væri út á hann að setja var honum í
öllum skýringum Alþýðuflokksforingjanna valið sænskt nafn: „engángs-
skatten“. — Þá þurfti svo sem ekki framar vitnanna við. Þetta var nú
heldur ekki skattur, sem Alþýðuflokkurinn gat verið þekktur fyrir að vera
með. Embættisinnsiglið og allt var í lagi, skatturinn var vígður með há-
tíðlegum kosningaloforðum, — meira að segja sænska nafnið rekið ofan
á í þokkabót eins og látúnsbólan í endann á þráðarleggnum, og ,.]>að var
ekki mjög ljótt að sjá skína á bóluna, þegar leggnum var riðið“.
Svo kom þingið — eftir kosningarnar.
Svo kom að efndunum — eftir kosningarnar.
Svo kom að eignaskattinum, „engángsskatten“.
Nú reyndi á alvöruna. /
Eignaaukaskatturinn með fína, sænska nafninu og innsiglinu frá
Alþýðuflokknum, kom til atkvæðagreiðslu í efri dcild. Bara fyrsta um-
ræða. Bara rétt að lofa honum að komast þó til nefndar, — og til ]>ess
þurfti ekki meir en rétt að Iátast þó vera með honum.
En hvað gerðist?
Ilelmingurinn af Alþýðuflokknum í efri deild fæst ekki til að grciða
atkvæði með eignaaukaskattinum, — „engángs“-skattinum sínum — til
2. umræðu. Guðmundur I„ Guðmundsson, sem er hálfur Alþýðuflokkur-
inn í efri deild, situr inni í hliðarherbcrgi á Alþingi, þegar greiða á at-
kvæði. Ilann veit að ]iað veltur á hans atkvæði. „Engángs“-skatturinn
Alþýðuflokksins hrópar til hans —; á sænksu, svo hann skilji. En Guð-
immdur fæst ekki inn í salinn.
Forseti, sem er sósíalisti, frestar alkvæðagreiðslu, til tið reyna að
bjarga málinu. Atkvæðagreiðslan er ákvcðin annan dag. Auglýst á ís-
len/ku. Vafalaust þýdd á sænsku fyrir Guðmund, svo allur Alþýðuflokk-
urinn í efri deild skilji, livað um sé að vera.
Atkvæðagreiðslustundin er runnin upp. Hálfan Alþýðuflokkinn
vantar, Guðmundur I. Guðmundsson kemur ekki.
Eignaaukaskatturinn fellur með jöfnum atkvæðum. Óskabarn Al-
þýðuflokksins frá síðustu kosningum, er skírt hafði verið með sænsku
nafni; svo enginn efaðist um ætternið og skírlífi foreldranna, var drepið
við 1. umræðu í efri deild — af Alþýðuflokknum sjálfum!
Nú var engu um stjórnarábyrgð Alþýðuflokksins til að dreifa. Nú
þurfti ekki að drepa þennan skatt til að forða fólkinu frá einhverju, sem
verra var. Nú reyndi bara á hvort Alþýðuflokkurinn meinti citthvað með
því, sem hann sagði. — Og það sýndi sig að hann meinti ekki neitt.
Og með þessum mönnum átti Sósíalistaflokkurinn að hlaupa í stjórn,
án þess að hafa samið um hvert einasta atriði áður. A Guðmundi I.
Guðmundssyni, sem lét sig vanta, og Jónasi frá Hriflu, sem auðvitað
gekk í lið með íhaldinu, átti að byggja „róttæka umbótastjórn“!
Látúnsbólan er dottin úr endanum á þráðarleggnum. Rauði þráður-
inn, sém bundinn var um kosninga-legg Alþýðuflokksins í síðustu kosn-
ingum er slitnaður. Iívaða barnagulli ætlar Stefán Jóhann að leika sér
að næst?
Dagsbrún leggur fram uppkast
að nýjum samningum
Hækkun á kaupi og samræming á kjðrum verkamenna brýn nauðsyn
09
ið ábueða að
Verkamannafélagið Dagsbrún afhenti í gær stjóm
Vinnuveitendafélags íslands uppkast að nýjum samn-
ingi um kaup og kjör.
Samkvæmt uppkasti þessu eru helztu breytingar frá
núgildandi samningi þessar:
Grunnkaup í allri almennri vinnu hækki upp í kr.
2.50 úr kr. 2.10.
Sérstakt lágmarkskaup verði fyrir skipa- og pakk-
húsvinnu og tunnuvinnu á olíustöðvum eða kr. 2.70.
Lágmarksgrunnkaup verði kr. 2.90 í kolavinnu* salt-
vinnu, saltfisksvinnu, sementsvinnu, lýsisvinnu, hand-
löngun hjá múrurum, tjöruvinnu, bifreiðastjórn, vél-
gæzlu (vegheflar, þjapparar, hrærivélar o. s. frv.),
hjálparvinnu í vélsmiðjum, ísvinnu (útskipun), vél-
gæzlu í togurum í höfn, allri slippvinnu, kantlagn-
ingu og fagvinnu, er ófaglærðir verkamenn stunda.
Grunnkaup í boxa og katlavinnu haldist óbreytt,
en undir það kaup falli ryðhreinsun með rafmagns
verkfærum, öll vinna við botnhreinsun innanborðs í
skipum (botntankar, undir vél o. s. frv.), bifreiðastjórn
hjá kolaverzlunum. Grunnkaup í boxa og katlavinnu
er nú kr. 3.60.
Nýtt atriði er, að þeir verka-
menn skuli hafa forgangsrétt
til vinnu á hverjum vinnustað,
er hafa starfað þar lengst.
Sömuleiðis er nákvæmara á-
kvæði um, hvað skuli teljast
kvaðning til vinnu.
Sömuleiðis, að verkamönnum
sé heimilt að vinna af sér laug-
ardagseftirmiðdag allt árið um
kring.
Sömuleiðis, að sé nýr maður
tekinn í vinnuflokk, skuli hann
framvísa skuldlausu félagsskír-
teini við trúnaðarmann Dags-
brúnar.
Sömuleiðis, að slasist verka-
maður við vinnu, skal hann fá
kaup í tólf virka daga í stað
sex, og skal hvert slys rann-
sakað þegar í stað af verk-
stjóra og trúnaðarmanni og
skýrsla sendast til stjórnar
Dagsbrúnar og viðkomandi fyr-
irtækis.
Sömuleiðis, að veikist verka-
maður, sem unnið hefur sam-
anlagt einn mánuð hjá sama
vinnuveitanda, skal hann halda
óskertu dagkaupi í minnst sex
daga, en í 14 daga, hafi hann
unnið þrjá mánuði.
Reykjavíkurbæ verður í dag
afhent samningsuppkast Dags-
brúnar.
BRÉF DAGSBRÚNAR TIL
STJÓRNAR VINNUVEIT-
ENDAFÉLAGS ÍSLANDS
Ásamt uppkastinu að hinum
nýju samningum sendi Dags-
brún stjórn Vinnuveitendaifé-
lags íslands svohljóðandi bréf:
„3. febrúar 1944. ,
Stjórn Vinnuveitendafélags
íslands, Reykjavík.
í framhaldi af uppsögn vorri
á núgildandi samningi dags. 22.
ág. 1942 milli Vmf. Dagsbrún og
Vinnuveitendafélags íslands,
leyfum vér oss að senda yður
uppkast að nýjum samningl.
Eins og sjá má af uppkasti
þessu felur það aðallega í sér
leiðréttingu og samræmingu |
grunnkaups vegna þeirra breyt
inga sem orðið hafa á sviði
verðlags og vísitölu síðan er
nefndur samningur var gerður.
Samkvæmt samningi vor-
um hækkaði dagkaup verka-
manna um lff af hundraði.
Af þessu má sjá, að litlar
breytingar í óhagstæða átt
máttu verða til þess, að grunn-
kaupshækkun verkamanna sam-
kvæmt samningi þessum yrði
skert verulega eða að engu ger.
En einmitt á þann veg hefur
þróunin gengið.
Þegar núgildandi samningur
vor var gerður, var út frá því
gengið, að dýrtíðarvísitalan vrði
endurskoðuð og leiðrétt, þannig
að tryggt yrði, að verkamenn
bæru ekki skarðan hlut frá
borði.
Ríkisstjórnin hefur nú, eins
og yður er kunnugt látið gera
nokkrar athuganir á grundvelli
vísitölunnar, án þess þó að til
neinnar leiðréttingar hafi enrr
komið.
Þessar athuganir hafa leitt í
ljós, að grundvölur vísitölunnar
er verkamönnum óhagstæður í
verulegum atriðum.
Nægir því til sönnunar að
nefna þátt húsaleigunnar í vísi
tölunni, og ennfremur þá stað-
reynd, að í grundvöll hennar
hafa alls ekki verið færðir veiga
miklir útgj aldaliðir.
Þá má ennfremur benda á þá
mikilvægu staðreynd, að mat-
vöruvísitalan er mjög há (var
síðustu þrjá mánuði ársins þ943
326 stig að meðaltali) en í heild
arútgjöldum verkamanna er
þessi liður, matvaran, hlutfalls
lega meiri en hjá þeim stéttum,
sem eru betur efnum búnar.
Loks má benda á hina mjög
svo óhagstæðu aðferð, sem við-
höfð hefur verið við útreikn-
ing vísitölunnar. Glöggt dæmi
þess er sú staðreynd, t. d. að
síðastliðið haust var kjöt lækk-
að í verði með framlögum úr
ríkissjóði eftir að almenningur
hafði yfirleitt keypt vetrarforða
sinn af þessari vörutegund, enda
hafa niðurgreiðslur ríkissjóðs á
landbúnaðarafurðum á innlend
um markaði yfirleitt haft mjög
neikvæð áhrif á fjárhagsaf-
k
komu verkamanna.
Af öllu þessu og öðrum hlið
stæðum staðreyndum verður því
séð, að gildi þeirrar kauphækk-
unar, er verkamenn fengu með
samningi vorum 22. ágúst 1942,
hefur jafnt og þétt rýrnað svo
að til vandræða horfir nú fyr-
ir verkamenn.
En auk þessa vildum vér
mega benda yður á, að lágmarks
kaup í almennri verkamanna-
vinnu hefur síðastliðið hálft
annað ár verið hlutfallslega
mun lægra en kaup faglærðra
verkamanna hér í bæ, miðað við
gildandi hlutfall fyrir stríð.
Hinsvegar svara kr. 2,50 hér um
bil til þess, að því sama hlut-
falli yrði aftur náð.
Þá er og þess að gæta, að
víða út um land hefur kaup-
gjald verkamanna undanfarið
verið jafnhátt eða hærra en hjá
verkamönnum, 1 Reykjavík,
enda þótt framfærslukostnaður
í Reykjavík sé hærri en í nokkr
um öðrum bæ á landinu.
Eins og yður mun kunnugt,
hefur verkamönnum veizt auð-
veldara undanfarin ár að mæta
vaxandi dýrtíð sökum þess, að
þeir hafa unnið óhóflega langan
vinnutíma fram yfir venjulega
dagvinnu.
En á síðasta ári hefur þetta
breytzt mjög í það horf, að
unnin væri einungis dagvinna
eða 1-2 tímar í eftirvinnu að
jafnaði.
Það er því augljóst, að heild-
artekjur verkamanna minnka að
mun af þessari orsök einni og
gerir leiðréttingu á grunnkaupi
enn þá óhjákvæmilegri.
Þar að auki neyðurhst vér til
þess að horfast í augu við þá
staðreynd, að atvinnuvegir lands
ins reynast ekki færir um að
sjá öllum verkamönnum fyrir
stöðugri vinnu, og að með nýju
atvinnuleysi vex áhæfta verka-
manna mjög. Vér lítum því al-
varlegar á framtíðina með tilliti
til atvinnuleysis, þar sem oss, er
ekki kunnugt um, að neinar
veigamiklar ráðstafanir hafi
verið gerðar til þess að tryggja
verkamenn gegn atvinnuleysi
né til þess að tryggja það, að
atvinnuvegir landsins sjái öll-
um verkamönnum fyrir vinnu
að staðaldri.
Með tilliti til þess, að verka-
menn geta ekki sætt sig við
þá miklu áhættu, er atvinnu-
leysi fylgir, munum vér því
við væntanlegar samningaum-
leitanir áskilja oss rétt til að
gera þá kröfu til þeirra með-
lima félags yðar, er hafa verka-
menn að staðaldri í þjónustu
sinni, að þeir tryggi ákveðnum
fjölda þeirra verkamanna, er
lengst hafa starfað hjá viðkom
andi fyrirtæki stöðuga atvinnu
með umsömdum uppsagnar-
fresti.
Vér áskiljum oss þennan rétt
því fremur, þar sem ráðstafamr
til atvinnuöryggis jafnhliða
leiðréttingu á grunnkaupi verka
mana eru aðalatriðin í viðhorfi
þeirra til nýrra samninga.
Af öllu því, sem að framan
hefur verið sagt, væntum vér
þess, að þér fallizt á uppkast
vort að nýjum samningi, en á-
skiljum oss þó rétt til að bera
fram frekari tillögur til breyt-
inga á núgildandi samningi, er
til væntanlegra samningaum-
leitana kemur.
Vér erum reiðubúnir til þess
að hefja viðræður við yður.
Virðingarfullst“.
(Undirskrift)
Stjómir Alþýðusambands íslands og Farmanna- og
fiskimannasambandsins hafa tekið upp samvinnu sín
á milli og var í fyrradag undirritaður samningur þar
að lútandi.
Unnið sé að aukinni samvinnu milli einstakra félaga
beggja sambandanna, og skulu félög ýmissa starfs-
greina á sjó sjálfráð um, í hvoru sambandinu þau eru,
en samböndin ákveða að vinna framvegis sameigin-
lega að samræmingu launakjara sjómanna almennt.
Ennfremur skal vera um gagnkvæman stuðning að
ræða í vinnudeilum.
Samningur sambandanna fer hér á eftir.
Nefndakosningar
í bæjarstjórn
Á fundi sínum í fyrradag kaus
bæjarstjórn þessa menn í hafn-
arstjórn og heilbrigðisnefnd.
HAFNARSTJÓRN
Kjósa bar þrjá úr hópi bæjar-
fulltrúa og komu fram tveir
listar. Sameiginlegur listi Sós-
íalista og Alþýðuflokksins og
voru á honum Björn Bjarnason
og Haraldur Guðmundsson.
Á lista sjálfstæðismanna voru
Valtýr Stefánsson og Gunnar
Þorsteinsson.
Báðir listarnir fengu 7 at-
kvæði og réði því hlutkesti milli
Haraldar og Gunnars. Hlutur
Gunnars kom upp.
í hafnarstjórn eiga því sæti
þessir bæjarfulltrúar:
Björn Bjarnason
Gunnar Þorsteinsson
Valtýr Stefánsson
Tveir eru kosnir í hafnar-
stjórn utan bæjarstjórnar með
sérstakri kosningu. Kosningu
hlutu:
Hafsteinn Bergþórsson
Sigurður Ólafsson
Hafnarstjóri er formaður hafn
arstjórnar.
HEILBRIGÐISNEFND
Kjósa ber einn mann úr bæj-
arráði, verkfræðing í þjónustu
bæjarins og einn mann ó-
bundnri kosningu. Nefndin er
þannig skipuð:
Guðmundur Ásbjörnsson
Valgeir Björnsson
Guðrún Jónasson
„SAMNINGUR
milli Alþýðusambands íslands
annarsvegar og Farmanna- og
fiskimannasambands íslands
hinsvegar.
1. gr. Samböndin viðurkenna
hvort annað sem aðilja í launa-
og kjaramálum fyrir meðlimi
sína.
2. gr. Samböndin vinna sam-
eiginlega að öllum almennum
réttinda- og menningarmálum
og öryggismálum sjómannastétt
arinnar sem heildar.
3. gr. Starfssvið hvors sam-
bands fyrir sig verði afmörkuð,
með samkomulagi milli sam-
bandanna og ákveða stjórnir
þeirra hér með, að hefja þegar
sameiginlega undirbúning að til
lögum í þesu efni, og hafa þær
tilbúnar fyrir lok maí-mánaðar
n. k.
Tillögur þessar séu ræddar
eíns og við verður komið í fé-
lögum eða íélagsstjórnum sam-
bandanna og leggist undir úr-
Skurð sambandanna á næsta
hausti.
4. gr. Félög ýmissa starfs-
greina á sjó, innan Alþýðusam-
bandsins og Farmannasam-
bandsins, skulu sjálfráð um
hvoru sambandinu þau tilheyra,
en þau skulu starfa að kjara-
málum sínum í samráði við
stjórnir beggja sambandanna.
Leyfilegt er og einstakling-
um að tilheyra félögum beggja
sambandanna, en þó er þeim
skylt að lúta töxtum, samþykkt-
um og settum reglum viðkom-
andi stéttarfélags sem vinnandi
menn á starfssvæði þess, hvoru
sambandinu sem það kynni að
tilheyra.
5. gr. Meðlimir annars sam-
bandsins hafa ekki leyfi til að
taka upp vinnu, sem meðlimir
hins hafa lagt niður vegna kjara
deilu, né stuðla að því að hún
verði tekin upp, enda styðji
samböndin hvort annað eftir
föngum í hagsmunamálum sjó-
manna og stjórnir þeirra láti
hvor aðra fylgjast með undir-
búningi allra meiriháttar kjara-
og skipulagsmála sjómannastétt-
arinnar. Ennfremur verði að
því unnið, að hin einstöku fé-
lög beggja sambandanna hafi
sem bezta samvinnu sín á milli.
6. gr. Stjórnir sambandanna
ákveða hér með að vinna fram
vegis sameiginlega að samræm-
kjara yfir- og undirmanna á sjó
um allt land.
7. gr. í samræmi við það,
sem um getur í 5. gr. skulu Al-
þýðusambandið og Farmanna-
sambandið (A.S.Í. og F.F.S.Í.)
leysa með samkomulagi og
samstarfi ágreiningsatriði þau,
sem risið hafa út af töxtum
þeim, er ýms félög Alþýðusam-
bandsins auglýstu í desember
s. 1. fyrir skipsstjórnar- og véla-
menn og samningi þeim, er full-
trúar skipstjóra- og stýrimanna-
félagsins „Grótta“ gerði við út-
gerðarmenn 20. jan. s. 1.
8. gr. Samningur þessi gildir
frá og með undirskrift 'hans og
er uppsegjanlegur með minnst
6 mánaða fyrirvara, nema þing
annars sambandsins taki ákvörð
\
un um uppsögnina, annars fram
lengist hann frá ári til árs og
miðast ávallt við áramót, einn-
ig þótt sambandsþing segi hon-
um upp.
Reykjavík, 3. febrúar 1944.
F. h. Farmanna- ogfiskimanna-
samband íslands.
(undirskrift)
F. h. Alþýðusambands íslands.
(undirskrift)
Bærinn ekki skaða-
bótaskylður vegna
erfiðleika í að koma
frárennsli frá húsum
Nýlega var kveðinn upp dóm
ur af borgarfógeta í máli, sem
Jón Fannberg höfðaði gegn bæn
um, vegna þess að hann varð
að grafa fyrir frárennsli frá
húsi sínu, Garðastræti 2, alla
leið niður í Tryggvagötu, en
skólpleiðslan í Vesturgötu lá of
hátt til að hægt væri að koma
frárennslinu í hana.
Fannberg krafðist að bærinn
borgaði sér 7474,44 kr. ásamt
6% vöxtum frá 31. des. 1942,
og er sú upphæð miðuð við
þanri aukna kostnað, sem Fann-
berg telur sig hafa orðið að
greiða vegna þess að skolpræsi
Vesturgötunnar gat ekki tekið
við frárennsli frá Garðastræti
2. Bærinn var sýknaður af kröf-
ingu launakjara sjómanna al- um Fannbergs. Árni Tryggva-
mennt og þá einkum að því, að
komið verði á ákveðnu og sam-
ræmdu hlutfalli milli launa-
son borgarfógeti kvað dóminn
upp.
Dóminum verður áfrýjað.
Skipun rannsðknar-
nefndar í mjólkur
málum
Atvinnumálaráðherra hefur
skrifað borgarstjóra og óskað að
bæjarstjórn kjósi tvo bæjarfull-
trúa til að taka sæti 1 nefnd,
sem á að „athuga og gera til-
lögur um skiþun mjólkurmála“
samkvæmt ályktun frá síðasta
þingi.
Nefndin skal skipuð sex mönn
um, yfirdýralækni ríkisins (Sig.
E. Hlíðar), tveimur mönnum úr
bæjarstjórn Reykjavíkur og
kosnum af henni, einum úr bæj
arstjórn Hafnarfjarðar skipuð-
um af henni, einum mjólkur-
fræðing, er Búnaðarfélag ís-
lands skipar og einum manni,
er stjórn mjólkursamsölunnar
skipar.
YFIRLf SINS
Svohljóðandi yfirlýsingu hefur
Stúdentaráð beðið Þjóðviljann að
birta:
„Vegna ræðu þeirrar, er Guð-
mundur Sveinsson guðfræðinemi
flutti í útvarpið 30. f. m. um síð-
asta áramótadansleik stúdenta,
vill Stúdentaráð taka fram eftirfar-
andi:
Á siðasta áramótadarisleik stú-
denta, er haldinn var eins og að
undanförnu, í anddyri háskólans,
voru um 700 manns. Vínveitingar
voru þar sem á öðrum stærri
skemmtunum bæjarins þetta kvöld
og var öllum háskólastúdentum
fyrirfram um það kunnugt, ræðu-
manni sem öðrum. Þeir, sem gættu
dyra og. önnuðust eftirlit á sam-
komunni alla nóttina. og að sjálf-
sögðu ncyttu ekki víns, kveða
dansleikinn hafa farið vel fram,
og með ágætum, sc tillit tckið til
þess live margt fólk var þarna
samankomið. Ein barsmíð, framin
af manni, er ekki vaf stúdent og
laumast hafði inn á dansleikinn
eftir óþekktum leiðum," vildi til
þessa nótt.
Sögusagnir ræðumanns um borð-
veltur og ósjálfbjarga menn hér og
þar í húsinu, er uppspuni einn. Má
einnig í þessu sambandi getá þess,
að umsjónarmaður háskólans kveð-
ur engin spjöll hafa orðið á liúsi
eða lnismunum um nóttina og er
slíkt einsdæmi í jafn miklum
þrengslum.
Vísar Stúdentaráð á bug þeirn
kviksögum, er ræðumaður sagði og
sagðar kunna að vera af áramóta-
dansleik stúdenta, en vísar þeim,
er vilja fá glöggar upplýsingár um
mélið, að leita umsagnar lögregl-
urinar, — en þrír lögregluþjónar
höfðu á hendi dyravörzlu og gæzlu
á dansleiknum, — og munu þeir
geta hlutlaust greint frá atvikum.
Telur stúdentaráð það illa farið,
er maður vir liópi háskólastúdenta
gengur fram fyrir skjöldu í því,
að rýra hciður háskólans og sverta
skólafélaga sína í augum lands-
manna, að ástæðulausu1'.
SUdrsla dtftlHlonarnefndar Rialuada-
lílais tslaads mi sMnot l skdlda
oi rltldfunda i ðrioo hm
Úthlutunarnefnd rithöfundalauna hefur nú lokið út-
hlutun sinni.
Hefur nefndin tekið upp þá nýbreytni, að úthluta í
tveim flokkum: A-flokki, og ætlast hún til, að höfund-
arnir í þeim flokki njóti sama öryggis og 18. gr. fjárlag-
anna var talin veita áður, og í B-flokki, fyrir einstök
verk.
Fer hér á eftir úthlutunarskrá nefndarinnar.
A.
Davíð Stefánsson, skáld, Akureyri ........ kr. 4000.00
Elínborg Lárusdóttir, rithöf., Reykjavík . — 1500.00
Friðrik Brekkan, rithöf., Reykjavík ....... — 1800.00
Guðfinna Jónsdóttir, skáld, Húsavík........ — 1200.00
Guðmundur Böðvarsson, skáld, Kirkjubóli.... — 2400.00
Guðmundur Daníelsson, rithöf., Eyrarbakka — 2400.00
Guðmundur Friðjónsson, skáld, Sandi ....... — 4000.00
Guðmundur G. Hagalín, rithöf., ísafirði ... — 4000.00
Guðmundur Kamban, rithöf., Kaupmannah. — 3600.00
Gunnar Benediktsson, rithöf., Hveragerði.... — 1500.00
Halldór Helgason, skáld, Ásbjarnarstöðum.... — 600.00
Halldór Kiljan Laxness, rithöf., Reykjavík — 4000.00
Jakob Thorarensen, skáld, Reykjavík ....... — 2400.00
Jóhannes úr Kötlum, skáld, Hveragerði ..... — 3600.00
Jón Magnússon, skáld, Reykjavík ........... — 1500.00
Jón Þorsteinsson, skáld, Arnarvatni ....... — 600.00
Kristín Sigfúsdóttir, rithöf., Akureyri ... — 1200.00
Kristmann Guðmundsson, rithöf., Hveragerði — 4000.00
Magnús Ásgeirsson, skáld, Hafnarfirði ..... — 3600.00
Ólafur Jóh. Sigurðsson,rithöf., Reykjavík.... — 2400.00
Sigurður Jónsson, skáld, * Arnarvtani ..... — 1200.00
Steinn Steinarr, skáld, Reykjavík ......... — 3000.00
Theódór Friðriksson, rithöf., Reykjavík ... — 1800.00
Tómas Guðmundsson, skáld, Reykjavík ....... — 4000.00
Unnur Bjarklind, skáld, Reykjavík ......... — 1800.00
Þórbergur Þórðarson, rithöf., Reykjavík ... — 4000.00
Þórunn Magnúsdóttir, rithöf., Reykjavík .... — 1500.00
B.
Halldór Kiljan Laxness, rithöf., Reykjavík,
fyrir „íslandsklukkuna“ '.............. — 2500.00
Halldór Stefánsson, rithöf., Reykjavík, fyrir
smásagnagerð ........................... — 2500.00
Þorsteinn Jónsson (Þórir Bergsson), rithöf.,
Reykjavík, fyrir smásagnagerð ............ — 2500.00
Kolbeinn Högnason, skáld, Reykjavík fyrir *
nýútkomin ljóðasöfn .....................1— 1200.00
Steindór Sigurðsson, rithöf., Kristnesshæli,
fyrir söguna „Laun dyggðarinnar ........... — 1200.00
GREIN ARGERÐ
Nefndinni þykir rétt að fylgja
úthlutunarskránni úr hlaði með
stuttri greinargerð að þessu sinni.
þar sem hún hefur nú tekið npp
nokkra nýbreytni um skiptingu
ríkisfjár til ritstarfa.
Áður en vikið er að úthlutun-
inni sjálfri, þykir ]>ó hlýða að geta
þess, að nokkru eftir að nefndin
tók til starfa barst henni svohljóð-
andi bréf frá Gunnari Gunnars-
syni rithöfundi að Skriðuklaustri:
„Þar sem mér cr ekki ljósb, hverS
konar peningur það er. sem að mér
fornspurðum hefur verið stefnt til
mín af ýmsum aðilum á síðastliðn-
um árum, fyrir hönd íslenzka rikis-
ins, en þykir sýnt af reynslu undr
anfarinna ára, að ekki geti verið
um neins konar særnd að ræða i
því sanibandi, hvorki fyrir veit-
anda né þiggjanda. leyfi ég mér að
mælast til að Úthlritunarnefnd Rit-
höfundafélagsins hlífi mér við hlut-
deild í þessu vafafé.
Reykjavík, 12. janúar 1944
Gunnar Gunnarsson
Tit úthlutunarnefndar Rit.höf-
undafélágsins“.
Nefndin tók þessi tilmæli Gunn-
ars Gunnarssonar til greina, svo
sem úthlutunarskráin ber með sér.
Hins vegar munu þeir tveir
nefndarmenn, sem sæti eiga á Al-
þingi, beita sér fyrir því þar, að
svo verði búið að þessum höfundi,
að hann megi telja sig við una, og
hafa þeir þegar lagt fram þingsá-
lyktunartillögu þess efnis.
Rithöfundafélagi íslands hefur
nú verið falin úthlutun ríkisfjár
til skálda og rithöfunda í annað
sinn, og því hefur nefndin talið
sig liafa nokkurn rétt til þcss að
Framh.af 3. síðu