Þjóðviljinn - 20.02.1944, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 20.02.1944, Blaðsíða 1
LJINN 9. árgangxur. Sunnudagur 20. febr 1944. 41. tölublað. Húsvíkingar vilja hefja : framkvæmdir við hafnargerð Almennur borgarafundur var haldinn í Húsavík 7. febrúar s. L til þess að ræða hafnarmál, rafveitumál og hitaveitumál þorpsins. Samþykktar voru tillögur þess efnis að hrinda öllum þessum málum í framkvæmd jafnóðum og möguleikar væru fyrir hendi. Ennfremur var ákveðið að senda fjögurra manna nefnd fyrir þorpsins hönd nú þegar til Reykjavíkur, til að vinna að því ^ að byrjað verði á hafnar- gerð Húsavíkur strax á næsta vori. Fréttaritari. __m Inníkróadí herínn gersígraður: Rauðí herínn sœkír fram líl Pskoff suður af Umenvafní ____________ í aukatilkynningu frá sovétherstjóminni í gær var skýrt frá því, að 55 þúsund þýzkir hermenn hafi fallið af innikróaða liðinu í Dnéprbugðunni, sem nú hefur verið gersigrað. Átján þúsund Þjóðverjar voru teknir til fanga, þar á meðal Stimmerman hershöfðingi, er falin hafði verið' yfirstjórn hinna 10 þýzku herfylkja er innikróuð voru. Tuttugu þús. þýzkir hermenn féllu af sveitum þeim, sem von Mannstein sendi til að reyna að rjúfa hringinn að utan. Wallace, varaforseti Bandarík'anna seqin Það er hægt að bœta lífsaf- komuna um 501 eftir striðl Hvað skyldi þá vera hægt að bæta hana mikið á íslandi? Vallace, varaforseti Bandaríkjanna, sagði eftirfar- andi í ræðu í San Fransisco 7. febrúar um „Hvemig Ameríkumönnum gæti liðið“: „Eg vil gera ut af við þá þjóðsögu, að hinar miklu stríðsskuldir muni verða þrándur í götu Ameríkumanna til betri lífsafkomu.“ „Vér getum borgað vexti af þessum skuldum og búið við lífsafkomu (standard at living) að minnsta kosti 50% betri en á áratugnum 1930—40.“ Rússar tóku mikið herfang, þar á meðal 40 flugvélar, á annað hundrað skriðdreka, 600 fallbyssur og farartæki þúa- undum saman. í hernaðartilkynningu sovét- herstjórnarinnar á miðnætti segir að rauði herinn hafi sótt fram suðvestur og suður af Lúga og tekið 30 bæi, þar á meðal járnbrautarstöð, sem er 45 km. suðvestur af Lúga. Suður af Ilmenvatni verður rauða hernum einnig vel á- gengt, tók' í gær 100 bæj og þorp, þar á meðal járnbrautar- stöð 20 km. vestur af Staraja Rússa. Sovétflugsveitir gerðu í gær harða loftárás á járnbrautarbæ- inn Pskoff, en þangað sækja nú sovéthersveitir úr tveimur áttum. FisMið helzt óbreytt Þjóðviljanum barst í gær svohljóðandi tilkynning frá samninganefnd utanríkisvið- skipta: Samningur m\lli Banda- ríkjanna, Bretlands og ís- lands um sölu á þessa árs fiskframleiðslu var undir- ritaður í dag og ér verðið óbreytt frá því, sem gilti síðastliðið ár. Samtímis var undirritaður samningur um sölu á úti- flutningskjöti af framleiðslu ársins 1943 og er verðið sama og framleiðsla ársins 1942 var seld fyrir. Samningarnir voru undir- ritaðir fyrir hönd Bandaríkj- anna af R. H. Fiedler for- stjóra fiskideildar Foreign Economic Administration, fyrir hönd Bretlands af F. S. Anderson forstjóra fiski- deildar Brezka Matvælaráðu- neytisins og fyrir hönd ís- lands af Magnúsi Sigurðs- syni, bankastjóra. — Þjóðviljinn mun rœða þetta mál nánar í nœsta blaði. Munið námskvöldið annað kvöld I Þriðja námskvöldið á náms- skeiði Fræðslunefndar Sósíal- istaoflokksins verður annað kvöld (mánudag) í salnum á Skólavörðustíg 19. Ásgeir Blöndal Magnússon flytur annað erindi sitt um Marxismann. Áki Jokobsson, alþingismað- ur, flytur erindi um Sjálfstæð- isflokkinn. Alls 73 hafa sótt um þátt- töku í námskeiðinu, og er ekki hægt að taka fleiri vegna ó- nógs húsrýmis. Útgerðarmenn ganga að kröfum sjómanna í Vestmannaeyjum Sig. Stefánsson, form. Jötuns Sjómannafélagið Jötunn í Vestmannaeyjum fór nýlega fram á kjarabætur fyrir sjó- menn á ísfiskflutningaskipun- um. Fréttaritari Þjóðviljans í Vestmannaeyjum simaði að samningar hefðu tekizt í fyrra- dag við eigendur þriggja þess- ara skipa, og hefðu sjómenn fengið öllum kröfum sínum framgengt. Ósamið var þá aðeins við eig- anda Sæfells. Sjómannafélagið hafði enga Framhald á 8. síðu. Bréf Alþýðusafnbandsíns fíl félaga sambandsíns Allt útlit er fyrir að á þriðjudaginn kemur verði skollið á verkfall hér í ReykjaVík, vegna þess að nokk- ! urir stríðsgróðamenn og milljónamæringar vilja ekki verða við hóflegum og sanngjörnum kröfum verka- manna. En Dagsbrúnarmenn munu ekki standa einir í þessum átökum. Öll verklýðshreyfing landsins mun veita þeim stufflning í átökunum við stríðsgróðaliðið. Stjórn Alþýðusambandsins sendi sambandsféliigun- um fyrir nokkru síðan bréf það er hér fer á eftir: „Það er aðeins ein aðferð, sem hægt er að hafa við stríðs- skuldimar, — og það er að muna að vér getum auðveld- lega borið þær, ef við getum allir unnið mikið og notað þjóð arauðlindir vorar og mannvit til hins ýtrasta“. Hann kvað það verða prófsteininn á stjórn vizku eftir stríðið, að geta hald ið áfram að nota allt vinnuafl, sem til væri, til gagnlegra framkvæmda. Svona hugsar varaforseti Bandarikjanna. Allir vita hve miklu betri af- koma Bandaríkjamanna var en íslendinga fyrir stríð. Ef nú af- koma Bandaríkjamanna getur batnað una a. m. k. 50% eftir stríð, þrátt fyrir það að þeir hafa safnað stórskuldum, — hve miklu betur getur þá ekki afkoma Islendinga orðið, sem hafa losnað úr skuldum erlend- ir í stríði þessu og eignast inni- Wallace varaforseti eignir — ef hér er ekki kom- ið á yfirráðum harðvítugustu auðjarla til að rýra afkomu fólksins? „Heiðruðu félagar! Þann 21. þ. m. renna út kjara samningar Verkamannafélags- ins Dagsbrún við atvinnurek- endur. Þótt hafnar séu samningaum leitanir af hálfu aðilja verða stéttasamtök að búa sig undir það, að veita Dagsbrún allar, þann stuðning, er þau geta í té látið og nauðsynlegur yrði, til að tryggja henni sigur, ef til verkfalls kæmi 22. febr. n.k. Stjórn Alþýðusambands ís- lands, — sem og allur almenn- Framhald á 8. síðu DAGUR Á VINNUSTAÐ „Gamall sjómaður “ hlaut verðlaunin Verðlaun þessarar viku hlaut „Gamall sjóma.ður“, sem óskar að nafns síns verði ekki getið, og vildi ritstjórnin ekki missa af þessari skemmtilegu skútu- grein, þó að hún þyrfti að birt- ast nafnlaus. Samkeppnin heldur áfram, og koma til greina í hvert skipti allar bær greinar sem blaðinu hefur borizt og enn ekki fengið verðlaun.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.