Þjóðviljinn - 20.02.1944, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 20.02.1944, Blaðsíða 2
2 ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 20. febrúar 1944. um BORÐ í SKÐTU 30. marz 1913, var skútan okkar (ca. 30 rúmlestir að stærð, stödd út á Barðagrynni (Efragrynni, sem þá var svo kallað). „Við lágum á fiski.“ Undangengna tvo daga hafði fiskur verið nægur og veður sæmilegt, en virtist nú líkleg- ur til uppblásturs. Við, á skipstjóravaktinni, áttum „hundinnlí á dekki.Enda þótt allir hefðu. staðið á „frí- vakt“ á meðan birtan entist, var svefntími nokkur, þar sem nóttin var dimm, of dimm til þess að sá guli „gæfi sig til‘. Kl. 12 á miðnætti, vorum við allir á skipstjóravaktinni, 6 að tölu, komnir upp. Skipstjóri stóð í káetugatinu og rýndi í myrkrið. „Það er bezt að gera að þess um kvikindum“- sagði hann um leið og hann seig niður um gatið og hvarf. Aðgerðin byrjaði. — Haus- unarmaðurinn fyrst, síðan 2 flatningsmenn, þá sá sem „vaskaði“#og síðastur saltarinn, hann fór í lestina. Eg átti að vaska, enda var ég byrjandi sjómaður. Eg greip til „pusunnar“, lét hana falla í sjóinn á hvolf og hélt fast í kaðalinn, sem í henni var. Svo halaði ég hana inn og þannig koll af kolli, þar til stampurinn var fullur. olíufat sagað í miðju. Nú var komin all-væn kös á dekkið hjá mér af flöttum fiski, því allir höm- uðust, ekki sízt flatningsmenn- irnir. Eg notaði aðallega vetl- inginn til að þvo með, vösku- kústurinn flaut venjulega of- an á balanum, þó greip ég hann stundum til að skrúbba með „dálkinn", ef blóðið var mikið og storkið. Hver þveginn fiskur var látinn síga niður um op á lestinni, og ef fullrar varúðar var gætt, gat borið við að hann lenti á höfði eða herð um saltarans, en slík óvarkárni var venjulega endurgoldin með völdum skömmum,' ívöfðum formælingum og uppnefnum. „Geyið mitt, vaskaðu vel“, sagði heimspekingurinn og brýndi flatningshnífinn. Eg bætti við einni dálkkreistu, og reyndi að rétta úr hryggn- um á sjálfum mér, sem þó ekki tókst til fulls. „Skiptu oft um vatn“, sagði heimspekingurinn. Eg fór að blanda mjöðinn, bætti nokkrum „pusum‘ af sjó í balann. Nú kom það upp úr kafinu, að það var einmitt ég sem átti kabísuna, ja, mikið bölvað ó- lán. „Þú mátt ekki láta drepast í helvítinu, dreng-djöfull“ sagðí heimspekingurinn ofur góðlát- lega. — Farðu strax íram 1 og athugaðu „meinvættið“, því kaffi vil ég hafa, þegar búið er“. Eg tók af mér skuðuskinn- ið og stakk mér í lúkarinn. — Það var dautt í svíninu. — Þetta var dálaglegt! — Eg dróg að mér spýtur og olíu, og eftir mikið brauk og basl tókst meinvættið lét mér í té af reyk og fýlu. Heimspekingurinn kom nið- ur til að ná sér í tóbak. Við urðum samferða upp og aftur á dekkið. „Hefurðu verið að vaska upp úr þessu“, spurði hann, og einblíndi niður í bal- ann. Eg játti því. — „Mikill guðs vesalingur getur þú verið drengur, þú gerir allan fiskinn nr. 4. — Svona helltu úr hel- vítinu. — , Eg hlýddi. Eg hafði lcks fyllt stampinn og tók til óspilltra málanna að „þvo niður“. ★ ’ Allt í einu voru þeir, heim- spekingurinn og afhausarinn. komnir í háværa deilu út af helvíti, hvort það væri til eða ekki til, skildist mér, og fór að hlusta. Heimspekingurinn taldi, að tilvera helvítis væri ekki síður nauðsynleg en til- vera himnaríkis, og gersigraði afhausarann, að mér fannst, að lokum, með svo sterkum mér að kveik'ja eldinn, en ó- sviknar voru þær strokur, er rökum, að hausarinn varð að játa sig fávísann, og auk þess taka á móti óhrekjandi full- yrðingum heimspekingsins um að hausarinn sjálfur mundi þangað fara eftir líkamsdauð- ann, samkvæmt kenningum kristindómsins, ef hann ekki viðurkenndi friðþægingartil- boð „meistarans frá Nazaret11. Skeggi gamli, hinn flatnings maðurinn, hafði ekki lagt til málanna, en var broshýr og bar vott um að lítið færi fram hjá honum. Hreingerningunni var lokið. Skeggi gamli tróð vettlingana sína af miklum móði. Hann notaði fiskigall fyrir sápu, og „kuttarnir“ hans voru hvítir eins og lín. Eg átti eftir nokkra fiska ó- þvegna, en fékk lausn, þar sem ég var embættismaður. — Kaffið varð þó að vera tilbúið i í tæka tíð. j Þegar í lúkarinn kom, sauð i vatnið, og innan stundar var þetta fína ketilkaffi drukkið með beztu lyst, en þó datt sum um í hug að kalla það eitur- bras. — En svona er heimur- inn. Loks var komið „porr“. Eg skjögraði með kaffið „aft- ur í“. Skipstjóri færði dagbók skipsins. Um leið og ég lagði könnuna frá mér á borðið, leit ég yfir bókina og las: „N. A. strekkingur, reitingsfiskur. — „Pumpan lens“. Það leit svo út að alltaf væri skráð þetta sama: Vindáttin, fiskur eða fiskleysi, og svo þetta með pumpuna. Skipstjóri lagði bókina frá sér og tók til könnunnar. Það er „porrað“ söng ég inn í stýri mannskojuna með nokkurri hófværð. — „Er fiskur“, spurði hann, hvolfdi sér til hálfs og nuddaði augun. — Það hefur enginn rennt, það er farið að storma, sagði ég og lagði 1 hraðferð til lúkarins. Eg var í miðri tröppu þegar ég öskraði af öllum kröftum: „Það er porr að“. Einn stakk þegar fótum út úr kojunni, ók sér og klór- aði, með aftur augun, fálmaði til snaga á þiljunni, og byrjaði að klæða sig. Hinir rumskuðu ekki. Eg gekk á röðina, þreif allgrimmd arlega til þeirra og æpti: Porr- að! Porrað! Nógur fiskur! Stendur á hverju bandi! — Guð hjálpi mér! sagði aflakóngurinn bljúgur, og brauzt fram úr, rak hausinn 1 bita, strauk flumósa yfir högg- staðinn og þreif til stígvélanna því allt annað var „á honum“. Ertu að segja satt? — Þú lýgur? — Hann lagði við hlust- ir. — Ekkert skakhljóð. — Allt í einu glennti hann upp augun og glápti á „hosilógarbekkinn11 þar sem einn dekkvaktarmað- urinn „pokaði“ ennþá. „Þú lýgur helvítið þitt, — það er enginn að renna. — Er siglt eða hvað? Nei. Af hverju er legið á þessu helvíti í vitlausu veðri? Hann linaðist upp við að fara í seinna stígvélið, og strauk um höfuðið í þrá eftir lengri hvíld. Eruð þið búnir að gera hreint? Spurði einn uppvakn- ingurinn, og brá fyrir lífi í röddinni, — hvað var mikið í lest? 570, sagði ég. — Við höf- um það þá enn þá, muldraði í honum um leið og hann stakk sér í bekkinn eftir „fantinum“. Maðurinn var ekki laus við „vaktaríg“. Þegar á „glasi“ voru allir komnir upp, nema aflakóngur- inn. Hann sat með fantinn á milli hnjánna og smurði þykkt með „gríni“. Á honum kjaftaði hver tuska, eins og vant var, þegar hann var ekki við lín- una. Umræðuefnið, kvenfólk, slagsmál, aflabrögð eða mann- drápshrynur. Nú kom einhver á gatið og kallaði: „Gera hreint“. Afla kónginum brá hvergj/ Hann skaut augum'á skakk upp um gatið og hrópaði skrækur: — Já, blessarið slítið þið úr þess- um kvikindum hrygginn, það hæfir ykkur, sem aldrei fáið bein úr sjó. Við, sem hristum þessi kóð inn fyrir, eigum að eiga frí. — Nú dillaði í hon- um hláturinn eins og trillur í bassanótum. Loks, er hann hafði lokið við brauðið og skák að fantinum í bekkinn, þreif hann skuðuskinnið og smokk- Hver á þennan bæ? Það mundi víst þykja býsna fávíslega spurt, ef maður kæmi ofan úr sveit, liti yfir Reykjavík, með öllum hennar húsum, götum og götuleiðslum o. s. frv. og segði: Hver á þennan bæ? En spurningin er nú samt sem áður ekki svo fávísleg. Hverjir ráða atvinnulífinu í bæn um? Örfáir menn, menn sem teljast eigendur framleiðslutækjanna. Und ir þeirra ákvörðunum er það komið hvort atvinna bæjarbúa er mikil eða lítil á hverjum tíma, og þar með ráða þeir yfir kjörum og lífsafkomu Reykvíkinga almennt. Þessir sömu menn eiga einnig beint eða óbeint megin þorra hús- anna i Reykjavík, óbeint með þeim hætti að þeir eiga lánsfé, sem á húsunum hvílir, og þegar þrengist í ári, þegar atvinna þverr, þá eru húsin ófá-sem falla í hendur hinna raunverulegu eigenda, mannanna sem lánuðu féð, sem þau voru byggð fyrir. Líku máli gegnir um hin stóru fyrirtæki bæjarins. Þær nær fimm- tíu milljónir sem á þeim hvíla eru eign nokkurra stór atvinnurekenda og með þeim hætti soga þeir til sín milljónir króna af því fé sem við borgum fyrir rafmagn, heitt vatn o. S. frv. Það er því vissulega staðreynd, að nokkrir stóratvinnurekendur ,,eiga“ Reykjavík raunveralega enda ráða þeir’ þar lögum og lof- um. En bæjarstjórnin? Bæjarstjórnin er þó fulltrúi þess fjölda sem bæinn byggir, munu menn segja. Síðasti fundur bæjarstjórnar sýndi ljóslega hvernig því er hátt- að. Meiri hluti bæjarstjórnarinnar tók þar sömu afstöðu sem atvinnu- veitendur hafa til þeirrar launa- deilu sem nú er háð. Þessi meiri- hluti starfar í umboði og fyrir stór atvinnurekendurna, sem eiga Reykjavík. aði bandinu yfir höfuð sér. Síðan dróg hann stykilinn úr buxnavasanum, og stakk hon- um að öxlum í nasirnar á víxl, einu sinni, tvisvar og þrisvar, | með miklum sogum, snörli og blæstri. Lét hann á sama stað, í hægri vasann, batt skuðu- skinnið að baki sér, og þaut svo upp tröppuna. Mér virtist að titringur færi um vöðvana undir samfestingnum, sem í upphafi var blár, en *nú hvít- skjöldóttur af saltsteini. Við, á skipstjóravaktinni, hröðuðum okkur í kojurnar. Aldrei hef ég notið þess jafn unaðslega að leggjast til hvíld ar, eins og til sjós, enda þótt ég, færi oftast á mis við þá þægilegu kennd, sem hrein rúmföt og gott rúm gefa. Þegax við höfðum lagzt fyr- ir, heyrðum við, að fokkan var dregin upp. Það átti að láta „hala upp um“. Skipið stilltist þegar það fékk ganginn. Við vorum þegar á valdi svefnsins. Um sex leytið, þegar sá gamli (kokkurinn) var byrjað- ur að kitla „meinvættið“ með Frawb. á 5. sidw. „Og þú líka barnið mitt Brútus“ Einu sinni fengu „Sjálfstæðis- menn“ völd í Dagsbrún, umboðs- menn atvinnurekendanna réðu þá lögum og lofum í stærsta verka- lýðsfélagi landsins. Það var furðulegt. Einn þeirra uppeldissona Dags- brúnar, sem íhaldið þá beitti fyr- ir sig, hét Gísli Guðnason. Því mun hafa þótt hann gefast vel, og þeg- ar það gekk til bæjarstjórnarkosn- inga setti það hann á lista sinn og sagði verkamönnum að kjósa með sér því þarna væri hann Gísli Guðnason verkamaður fyrrverandí stjórnarmeðlimur úr Dagsbrún. Eitthvað af verkamönnum mun hafa hlítt þessu kalli og kosið með ihaldinu. Á síðasta fundi bæj- arstjórnar sáu verkamenn árangur- inn; Gísli greiddi atkvæði gegn því að bærinn féllist á að greiða verka mönnum kr. 2,50 í grunnlaun um klst., hann greiddi atkvæði með því að bærinn tæki sömu afstöðu til vinnudeilunnar sem Claessen. „Þú líka barnið mitt, Brútus“, sagði Júlíus Cæsar þegar hann sá uppeldisson sinn í hópi .morðingja sinna. Verkamennirnir, sem kusu Gísla í bæjarstjórn. hafa áreiðanlega hugsað líkt og Cæsar þegar þeir sáu þennan fósturson Dagsbi'únar myrða hagsmunamál félagsins og vinnandi manna í Reykjavík, með atkvæði sínu. En aí þessu ættu þeir að geta lært að hver sá verkamaður sem ljær íhaldinu at- kvæði, er að fela Claessen umboð sitt í vinnudeilum. Þeir hafa ekki oft gengið lengra Ekki hefur það ol't borið við að Vísir, Morgunblaðið, flumósa í- haldsmenn og brjálaðir Framsókn- armenn, hafi gengið lengra í ó- sómanum, en i sambandi við eftirlits menn þá sem Dagsbrún hefur skip- að til að tryggja að verkfallið, ef til þess keinur, geti farið friðsam- lega fram. Skrílsleg æsingaskrif þessara blaða og ræður brjálæð- ingsins frá Hriflu, um sama efni, er eitt það allra auðvirðilegasta og svívirðilegasta sem heyrzt hef- ur á síðari tímum. Hin rólega rödd skynsem- 'i innar Það var skemmtileg tilbreytni að heyra hina rólegu rödd Einars Arnórssonar dómsmálaráðherra, er hann svaraði brjálæðishjali Jónasar á Alþingi um þetta eftirlitslið, sem Jónas kallaði her Alþýðusambands ins, og taldi að helði verið þjálf- aður af erlendum manni. Dóms- málaráðherra talaði þar sem vitur og raunsær maður. Efni ræðu hans var þetta: í öllum skipulögðum verkföllum bæði hér og erlendis, koma verka- lýðsfélögin sér upp eftirlitsliði, til að tryggja að verkfallsbrjótar vinni ekki, og að verkfallið fari sem skipulegast fram. Hér er því ekki um neitt nýtt fyrirbæri að ræða. Þetta er nú gert opinbert og lög- reglunni boðið samstarf til að halda uppi röð og reglu og koma í veg fyrir lögbrot. Við þetta kvaðst ráðherrann ekki sjá neitt athuga- vert. Þannig mæla allir þeir, sena láta stjórnast af rökum heilbrigðr ar skynsemi. Berum það saman Tið ummæli Vísis, ummæli Sigurðar Bjarnasonar í Morgunblaðinu og ummæli Hriflumanna. Eííir IflAWWWWVWbWAVaW GAMLAN SJÖMANN í

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.