Þjóðviljinn - 19.04.1944, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 19.04.1944, Blaðsíða 8
I Næturlæknir er í læknavarðstof- unni, Austurbæjarskólanum, sími 5030. Blfrsiðastjóri Tarðlæknis er Guna u Ólafsson, Frakkastic ( B. Síad SSðl. Ljósatími ökutækja er frá kl. 8,40 að kvöldi til kl. 4.20 að morgni. Nœturvörður er í Ingólfsapóteki Næturakstur: Hreyfill, sími 1633. Útvarpið í dag: 20.20 Kvöldvaka háskólastúdenta: a) Ávarp: Páll S. Pálsson, stud. jur., form. stúdenta- ráðs. c) Stúdentakórinn (Þorvald- ur Ágústsson, stud. med., stjómar). c) Erindi: Bárður Daníelsson, stud. polyt. d) Upplestur:.Kvæði: Eiríkur Hreinn Finnbogason, stud. mag. e) Háskólaþáttur: Helgi J. Halldórsson, stud. mag. f) Kórsöngur. g) Leikrit: ,Misskilningurinn‘ eftir Kristján Jónsson, 2. og 4. þáttur. Pétur Gautur verður sýndur í kvöld og er uppselt á þá sýningu, en næsta sýning verður á föstudags kvöld og hefst sala aðgöngumiða að þeirri sýningu kl. 4 í dag. Bamadagsblaðið verður selt á göt unum í dag (miðvikudag) og verð- ur afgreitt til sölubama í bamaskól unum og Grænuborg frá kl. 9 ár- degis. Sólskin, hin árlega bamabók Sum argjafar, verður seld á morgun (sumardaginn fyrsta). Ingimar Jó- hannesson kennari hefur séð um „Sólskin“ að þessu sinni. Kvennasíðan kemur í blaðinu á morgun, því hana langaði til að sjá framan í sumarið. Skíðafélag Reykjavíkur ráðgerir að fara skíðaför á sumardaginn fyrsta. Lagt á stað frá Austurvelli kl. 9 árdegis. Farmiðar seldir hjá L. H. Muller, til félagsmanna til kl. 4 í dag, en frá 4 til 6 til utanfélags- manna, ef afgangs er. ÆSKULÝÐSFYLKINGIN í Reykja- vík heldur skemmtifund að Skóla- vörðustíg 19 n.k. föstudag kl. 9.30 h. Dagskráin verður mjög fjölbreytt. Allir meðlimir fylkingarinnar og gestir þeirra eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. STJÓRNIN. Ameríska myndlistasýningin Framhald af 1. síðu. Forleikur að „Skuggasveini“ eft- ir Kárl Ó. Itunólfsson er meðal þeirra tónverka sem lúðrasveitin mun leika, en auk þess eru einnig á dagskránni tónverk eftir Hump- erdinck, Drigo, Ippolito-Iwanow og Halvorser. Corporal Wolf mun syngðja tvo lagaflokka, hinn fyrri „Ombra mai fu“ úr „Xerxes“ eft- ir Handel og „Der Erlkonig,f eftir Schubert. En í síðari flokknum er „Requiem du Coeur“ eftir Passard og „CIorinda“ eftir Morgan. Tónleikar þessir hefjast klukk- an hálf tíu. Loftírásir á Balkan Framhald af 1. síðu pol) í Búlgaríu. Um hanaMiggur járnbrautin milli Sofia og Iztam- bul. Einnig var ráðist á Sofia. Mótspyrna í lofti var lítil. Skotn ar voru niður 25 þýzkar flugvél- ar, en Bretar misstu aðeins 6 af 800 alls. Er það minnsta tjón í loftárásum á Balkan hingaðtil. Siglingar á Dóná eru nú mikl- um erfiðleikum bundnar sökum tundurdufla Bandamanna. þlÓÐVLIINN Eru tvisvar tveir fimm, Jón Axel? Fnmh. af 6. dðu. því að framlengja samninga s. 1. sumar og hoppar inn á hina heimskulegu útreikninga Alþýðu- blaðsins um fjártjón það, er verka menn hafi beðið af þeim sökum. Eg hefi þá tillögu, að Jón Axel og Alþýðublaðið séu ekki með neina hálfvelgju, heldur reikni út, hve miklu verklýðsfélögin á öllu landinu hafa „tapað“ í öll þau skipti, sem þau hafa ekki sagt upp samningum. Jón gæti svo látið fylgja með aukareikning yfir það, hvað hin fræga yfirlýsing Stefáns Jóhanns á Alþingi . haustið 1941 kostaði verkalýðinn, þegar hann tilkynnti með yfirlæti, að verklýðssamtökin hefðu „engan áhuga“ fyrir grunn- kaupshækkun. Jón Axel og Alþýðublaðið græðá ekki vitund á sögnum um fram- lengingu samninga s. 1. sumar, því að sú ákvörðun studdist við svo sterkar stoðir, að þeim þýðir þar ekkert að segja. Eg laét mér nægja að færa fram þrjár staðreyndir: í fyrsta lagi talaði enginn Al- þýðuflokksmaður í Dagsbrún með uppsögn samninga. í félaginu vildu nokkrir menn segja samningum upp, en enginn þeirra, var Alþýðu- flokksmaður. í öðru lagi var Alþýðuflokks- maðurinn, Helgi Guðmundsson, sem Alþýðublaðið þagði um í tvö ár, að væri í stjórn Dagsbrúnar, einn helzti hvetjandi þess, að samn ingum yrði ekki sagt upp á þeim tima. í þriðja lagi taldi framkvæmda- stjóri Alþýðusambandsins, Al- þýðuflokksmaðurinn Jón Sigurðs- son, óhyggilegt að segja þá samn- ingum upp, og vita allir menn, að hann hefur margfalda reynslu í verkalýðsmálum á við Jón Axel. Afstöðu sína til þessa máls stað- festi Jón Sigurðsson síðar á félags- fundi Dagsbrúnar. Eg vona, að Jón Axei skemmti lesendum Alþýðublaðsins einnig með því að leysa þetta dæmi. Annars þarf ekki annað til að sannprófa afstöðu Alþýðublaðsins til Dagsbrúnar en minnast þess, að það var „hlutlaust“, þegar Dags- brún sagði samningum upp. Dag eftir dag, í margar vikur, biðu fylgjendur Alþýðublaðsins eftir því, að það tæki einhverja afstöðu, að það hvetti til sam- heldni og yrði öflugur málsvari samtakanna . En þeir biðu án árangurs. Fyrst eftir samningagerð þókn- aðist ritstjóranum að tala í mál- inu. Það er sennilega þetta sem Jón Axel nefnir að vaka á verðinum. Loks heldur Jón því fram, og finnst hlaUpa á snærið hjá sér, að Dagsbrúnarstjórnin hafi „gleymt“ að segja upp samningum við Rík- isskip, en sá samningur var á þá lund að Ríkisskip skuldbatt sig til að fylgja ákvæðum þágildandi samningi Dagsbrúnar við Vinnu- veitendafélagið. Það er rætið mishermi, að „gleymst“ hafi að segja þessum samningi upp. Hann var athugað- ur eins og állir aðrir samningar félagsins, en komizt að þeirri nið- urstöðu, að ónauðsynlegt væri, að segja honum upp, þar sem álitið var, að hann félli sjálfkrafa úr gildi með samningum við Vinnu- veitendafélagið. En auðvitað hefði það getað komið fyrir, að við hefðum hrein- lega gleymt einhverjum aukasamn ingi. Eg lít á ummæli Jóns Axels í þessu atriði sem eitthvert það lúa- legasta óþokkabragð, sem nokkur maður innan verklýðssamtakanna hefur gert sig sekan um, og jafnvel þó að „gleymst“ hefði að segja samningum upp, hefði það í engu réttlætt framkomu Jóns Axels. Árásin á Dagsbrún er skipulegt skemmdarstarf fylgissnauðra æv- intýramanna kringum Alþýðublað ið. Þá svíður undan sigrum félags- ins. Þeir unna því ekki sannmælis, af því að hvorki Dagsbrún né samtökin í heild eru hneppt í handjárn þeirra. Skemmdarstarfið gengur svo langt, að þeir hika ekki við að fórna hagsmunum verkamanna, eins og Jón Axel með tillögu sinni um kr. 2,31, né leika tveim skjöld- um.á örlagastund eins og Alþýðu- blaðið með „hlutleysi" sínu. Með hinu afyatnaða slagorði um „kommúnista“ reyna þeir að sundra röðum verkamanna, ein- mitt þegar verkafólkið er að leit- ast við að treysta samtök sín án tillits til stjórnmálaskoðana. Draugur sundrungarinnar fylgir þeim hvar sem þeir fara. Þeir hafa kosið að ganga á orð og eiða og ómerkja eigin undirskriftir. Þeir hóta sí og æ klofningi, hóta sí og æ að sprengja Alþýðusam- bandið og félög þess, jafnvel þótt um smávægileg ágreiningsmál sé að ræða. Milli þeirra og verkamanna í Alþýðuflokknum er óbrúandi djúp sem þegar er farið að segja til sín innan flokksins. í Dagsbrún og öðrum verkalýðs- félögum starfa Alþýðuflokksmenn bróðurlega með öðrum verkamönn um, eins og vera ber, ekki sem flokksmenn, heldur sem Dags- brúnarmenn. Alþýðublaðið og Jón Axel geta reitt sig á, að verkamennirnir í Alþýðuflokknum lesa níðgreinar A1 þýðublaðsins um Dagsbrún og stjórn Sigurðar Guðnasonar án nokkurrar hrifningar, af því að þessi níðskrif eru öllum verka- mönnum framandi. Fyrir Jón Axel ætti það að vera ærið nóg verkefni, að fara að taka saman vörnina sína i eignamálinu, ekki mun af veita. Dagsbrún kemst af án Jóns Ax- els. Verkamenn Reykjavíkur hafa einu sinni reist félag sitt við með sameinuðum kröftum sínum, og þeir stefna hiklausir áfram á þeirri einingarbraut, sem þeir liafa mark að sér sjálfir. E. Þ. f&gggf* TMHWAJB BtO ^QQ (Fröken Kyrkrátta). Bráðskemmtileg sænsk gamanmynd. Marguerite Viby. Edvin Adophson. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Vordagar við Klettafjöll (Springtime in the Rockies) Betty Grable. John Payne. Carmen Miranda. Sýnd kl. 9. KEPPINAUTAR Á LEIKVELLI („It Happened in Flat- bush“) Carolie Landis. Lloyd Nolan. Sýnd kl. 5 og 7. Tónliatarfélaglð og Leikfélaf ReykjaYÍkur. Pétur Gautur Leikstjóri: frú GERD GRIEG. Sýning í kvöld kl. 8. UPPSELT. Næsta sýning er á föstudagskvöld. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4 til 7 í dag. Mill Ml ranosdbnar á Dimohin ðlfrelflaiDiBniis Fylgjandi lýðveldisstofnun 17. jðni — VIII málshðfðun ðt af sölu á eignum verkalýösfélaganna Á fundi Bifreiðastjórafélagsins Hreyfill, sem haldinn •var H. þ. m. var samþykkt að senda fjármálaráðherra hréf varðandi slcort á bifreiða- gúmmí og áskorun til ráðherra um að greiða fyrir innflutningi á því, ög að atvinnubifreiðastjórar fengju það bifreiðagúmmí, sem nú er til 'í landinu. _ . ry.v ÁfelÉlllÍS Vegna úthlutunar á bifreiða- gúmmí var samþykkt eftirfarandi tillaga: „Þar sem sterkur grunur leikur á því, að úthlutun á bifreiða- gúmmí fari eigi fram eftir þeim reglum, sem um hana hafa verið settar, þá samþykkir fundur í Bif- reiðastjórafélaginu Hreyfill, hald- inn 14. apríl 1944, að fela stjórn félagsins að hlutast til um, að þeg- ar í stað verði hafin rannsókn á úthlutun á bifreiðagúmmí á síð- astliðnu ári og þar til úthlutun hefst næst. Ennfremur að Bifreiða- stjórafélagið Hreyfill fái fulltrúa í væntanlegri rannsóknarnefnd“. Formaður félagsins, Bergsteinn Guðjónsson, var kosinn í væntan- lega nefnd. I sjálfstæðismálinu var sam- þykkt eftirfarandi tillaga: „Um leið og félagið lýsir ánægju sinni yfir þeirri lausn, sem sjálf- stæðismál þjóðarinnar fékk á Al- þingi, vill Bifreiðastjórafélagið Hreyfill skora á meðlimi sína að neyta atkvæðisréttar síns við þjóð aratkvæðagreiðslu þá, sem nú fer í hönd. Jafnframt því sem félagið lýsir því yfir sem eindregnum vilja sín- um, að lýðveldið verði stofnsett eigi síðar en 17. júní 1944, skor- ar félagið á alþýðu manna að standa sem einn maður um endur- heimt frelsis vors og sjálfstæðis, svo að eigi þurfi til þess að koma, að vér þurfum framar að berjast fyrir því að endurheimta það sjálf stæði, sem vér nú höfum fengið“. Vegna liins óviðunandi ástands, sem nú ríkir um alla umferð í bænum og nágrenni hans, var sam- þykkt svohljóðandi tillaga: Þar sem götur bæjarins og vegir utanbæjar eru með 'öllu óviðun- andi í því ástandi sem þeir eru nú, þá felur fundurinn stjórn félags- ins að beita sér fyrir því við ríki og bæ, að viðgerð verði hafin nú þegar“. Þá var samþykkt uppkast að fána fyrir félagið, sem formaður þess hafði gert. Loks var samþykkt að fara þess á leit við Fulltrúaráð verklýðsfé- laganna, að það höfðaði mál til riftunar á sölu eigna verklýðsfé- laganna frá árinu 1940. Allar samþykktir fundarins voru gerðar með samhljóða atkvæðum. .Plytjum saman, byggjum bæi( Framh. af 5. síðu. að mér hafi dottið það í hug og vera má að ég láti verða af því. —- Þú býrð ennþá? — Já, að nafninu til. Ég hef lán- að fátækum manni mestan hluta jarðarinnar og bý á litlum hluta hennar sjálfur. Ég er orðinn einn. — Það ætti að vera svo, að eftir strit óslitið ævilangt þyrftu menn ekki að hafa áhyggjur af ellinni, en engin höfum við eftirlaunin. Löggjöfin um ellilaun er eitt af því sem þarf að breyta og bæta. Að endingu hvet' ég Björn til þess að láta verða af því að skrifa ævisögu sína, þakka honum fyrir skemmtilegar viðræður og kveð. J. B.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.