Þjóðviljinn - 28.04.1944, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 28.04.1944, Qupperneq 3
Föstudagur 28. apríl 1944. ÞJÓÐVILJINN 3 „Nú er vetur úr bæ“ Það er ekki óeðlilegt þó við íslendingar fögnum sumri al- veg sérstaklega, enda er svo komið allvíða hér, að sumardagurinn fyrsti er ýmist alger eða að nokkru leyti frídagur. Þó er það nú svo, að á þessu sem öðru hefur orðið hér nokkur breyting, sérstaklega hjá fólki í kaupstöðum. Fólkið, sem ef til vill á að nokkru leyti lífsafkomu sína undir mildi vetrar, eða hörku, breytir sennilega ekki um; þráir ekki mikla snjóa sem seint taki upp. Það var orðið hér fast orðtak á sumrin: „Notið sjóinn og sólskinið“ og er að vísu enn, en annað nýtt orðtak hefur bætzt við, sem er líkt að meiningu og orðalagi, og er það svona: „Notið snjóinn og sólskinið“. Hvort tveggja er áskorun til fólksins að nota þá heilsubrunna sem í skauti náttúrunnar eru. Árangurinn hefur líka orðið sá að fjöldi fólks, jafnvel þúsundir manna á öllum aldri sækja snjóinn og sólskinið í faðm hvítra fjalla. Þetta fólk má næstúm þekkja úr hvar sem maður sér það; útlit þess er hraustlegra, framkoma þess djarflegri óg hressilegri. Þó fjöl- menni sæki fjöllin og snjóin með skíði sín, þá er það fyrst og fremst til hressingar og skemmtunar. Úr fjöldanum koma svo afreksmennirnir og þá höfum við fengið marga og þessi síðasti vetur gefur fullkomin loforð um að við hér í Reykjavík og Hafnarfirði erum á hraðri framfara- braut. Reykjavíkurmótið, — svigkeppnin og stökkið, sanna okk- ur þetta. Leiknin í sviginu er hraðvaxandi og fjöldinn allur af ung- um mönnum, hafa mikla le.ikni þótt þeir séu ekki komnir í keppnina. Það má einnig kalla það merkisviðburð í skíðasögu okkar hér í Reykjavík, að stokkið var af stærsta stökkpalli landsins, sem aldrei hefur verið gert áður á móti, en það er stökkpallur í. R- við Kolviðarhól. Ferð skíðamannanna á landsmótið og árangur þeirra þar er líka góður, miðað við fyrri mót og aðstöðu til æfinga. Við verðum líka að gera okkur ljóst að Norðlendingar eru engin lömb að leika sér við, og síður en svo að um afturför sé að ræða hjá þeim. Eg hef það fyrir satt, að áhugi og framfarir séu þar miklar. Og þó við fögnum sumri, getum við líka glaðzt yfir vetr- inum og því, sem áunnizt hefur í skíðaíþróttinni. Handknattleikurinn hefur orðið að gjalda afhroð vegna húsnæðisleysis, en þrátt fyrir það er hann í framför hvað kunn- áttu snertir. Fjöldi manns kemst þar ekki að, og það keppnis- fyrirkomulag sem hér er, er óhæft, og má þar ef til vill nokkuð um kenna húsnæðisvandræðunum. Eftir því sem sendikennarar úti um land herma, er þar stöðugt vaxandi áhugi fyrir hand- knattleik, og knattspyrna iðkuð þar mikið að vetrinum, bæði inni og úti. Þá er vert að minnast á glímuna. Hér í bæ hefur sjaldan eða aldrei verið eins mikill áhugi og jafnmikið um glímur, enda eru öll þrjú stóru félögin komin með hana sem keppnisíþrótt, og gera má ráð fyrir að Íslandsglíman í ár verði merkileg og sögu- leg glíma. Sama er út um land. Sendikennarar bera þaðan sömu sögu og margar beiðnir um glímukennara liggja fyrir. Beiðnaf jöldinn um kennara út um landið, í knattspyrnu, hand- knattleik, frjálsum íþróttum og sundi, talar skýru máli um gró- andann í íþróttalífi landsmanna. En eins og er, erum við ekki menn til að mæta honum, til þess er íþróttamönnum of þröngur stakkur skorinn fjárhagslega. í öðru lagi byggjum við ekki þann- ig upp félagslífið — fjárhagslega að félögin geti að verulegu leiti mætt kostnaði við kennara- Ef félögin gerðu það og það opinbera yki allverulega framlög sín til íþróttakennslu, mundi vakna hér veruleg blómaöld íþróttanna. Öld, sem mundi vekja þær þúsundir sem virðast sofa á verðinum fyrir sínu eigin heil- brigði og þjóðarvelfarnaði. Og þeim þúsundum sem vantar aðbúnað en ekki áhuga yrðu sköpuð skilyrði til íþróttaiðkana. Þetta allt er að miklu leyti undir íþróttamönnunum sjálfum komið. Séu þeir haldnir ein- staklingshyggju um of fer illa. Sé félagshyggjan sett öllu ofar, fer á sömu lund. Ef félagskritur, auglýsingaskrum, stigagræðgi og mannaveiðar leggjast niður, hefur mikið áunnizt. Eg vona að á þessu nýbyrjaða sumri verði gróandi, ekki aðeins í afrekum, heldur og ekki síður í heilbrigðu félagslífi, auknum skilningi á tilgangi íþróttanna bæði meðal íþróttamannanna sjálfra og hinna. í trausti þess að svo megi verða, óskar Íþróttasíðan öllum lesendum sínum gleðilegs sumars. IÞRÖTTIR RITSTJÓRI: FRÍMANN HELGASON Sfefán Jónsson Sendikennarar I.S.I Stefán varði á nýafstöðnu sund- meistaramóti í fjórða sinn sund- meistaratitil sinn í 100 m. frjálsri aðferð, eða síðan okkar ósigrandi Jónas Halldórsson hætti keppni í einstaklingssundunum. A síðasta K. R.-sundmóti vann Stefán bikar I til eignar, eftir að hafa unnið hann þrjú ár í röð. Einu sinni hefur hann unnið 50 m. sundið, þar sem keppt var um hraðsundsbikarinn. í sundknattleiksliði Árpianns hefur Stefán verið frá 1936, og orð- ið 5 sinnum íslandsmeistari og 4 sinnum Reykjavíkurmeistari, eða síðan sú keppni var tekin upp, en Ármann hefur, sem kunnugt er, unnið það mót alltaf. ÍÞRÓTTAMENN! Sendið Íþróttasíðunni u?n áhugamál ylckar. grcinar Tveir af sendikennurum í. S. í. hafa nýlega verið hér á ferð og hefur Íþróttasíðan hitt þá að máli og spurt þá tíðinda af ferðum þeirra um landið. En þeir halda ekki lengi kyrru fyrir, til þess eru beiðnir um þá of margar, svo að hvergi nærri er hægt að fullnægja, sérstaklega knattspyrnukennara að vorinu til. Kennarar þessir eru Kjartan Bergmann og Axel Andrésson. Kjartan lætur vel yfir ferð sinni um Vestfirði, en námskeið hafði hann að Núpi, ísafirði og Bolung- arvík. Var alstaðar á þessum stöð- um mjög mikill áhugi fyrir glím- unni. Tóku yfir 300 manns þátt í námskeiðunum. T. d. um áhug- ann sagði Kjartan, að aflahæsti formaðurinn í Bolungarvík hefði alltaf mætt þegar hann gat og skjaldarhafinn á staðnum hefði stundum jafnvel keypt menn til að vinna fyrir sig svo hann gæti mætt. Ilúsakost til æfinga telur Kjart- an alveg sæmilegan, en víða vanti böð eða séu slæm, en böð eru sem kunnugt er alveg bráðnauðsynleg og alstaðar komið fyrir við þau hús sem góð eru talin, og ekki fullkomin hús nema þau séu. Yfirleitt endar Kjartan nám- skcið sín með glímusýningum, og vekja þsér jafnan mikla athygli. Nú hefur verið ákveðið að byrja aftur að glíma Vestfjarðaglímuna, scm legið hefur niðri í 10 ár, og hefði verið gert rneðan Kjartan var fyrir vestan, en beltishafinn var þar ekki þá en kemur vestur bráðlega til að verja það. Knattspyrnan að hefjast Knattspyrnuráðið hefur fyrir nokkru raðað uiður mótunum í sumar og birtizt það hér i blað- inu fyrir nokkru. Eins og sjá má hefjast mótin 7. maí, svo það eru 9 dagar þangað til fyrsti meist- araflokksleikurinn hefst í Túliní- usarmótinu eða afmælismótinu, en ágóða af þessu móti og umsjá þess hefur Víkingur, í tilefni af 35 ára afrnæli sínu. K. R. R. hefur tekið rétta stefnu í því að láta mcistaraflokkskeppn- ina fara frarn fyrst. Þá er fyllilega úr því skorið hverjir eru meist- araflokksmcnn, en þessu hefur verið haldið frarn hér á íþrótta- síðunni um langt skeið. Ég liélt því fram í fyrra, að Tuliniusarkeppnin ætti ekki að vera útsláttarkeppni, heldur léki einn við alla og allir við einn, en leikirnir stuttir, svo tveir leikir færu fram á dag, og fara þá jafn- margir sunnudagar i það. Ég legg því eindregið til að reglugerðinni verði brcytt í það liorf. Lítið hefur rætzt úr vallarskil- yrðunum í vetur, enda lítil von til þess. Það virðist ekki að vallar- stjórn hafi miklar áhyggjur af því ástandi, sem ríkir í þessum mál- um. Ef svo hefði verið, hefði hún hafizt handa um það að koma vellinum strax i lag og frost var farið úr honum og birtan var nægi- lcg til æfinga. Æfingatíminn er nógu stuttur hér þó ekki sé gerður leikur að því að stytta hann. Þetta er raunar ekki ný bóla, svo að segja á hverju vori er byrjað mörg- um dögum of seint að lagfæra völlinn. Þetta er ekki öll sagan. Ef menn kyntu sér þá aðstöðu, sem hundr- uðum drengja frá 10—15 ára er ætluð, mundu menn fyrst fyllast undrun. Þeim er ætiaður rúmur helmingur af gamla vellinum. En þetta má laga ef vilji og fram- kværnd væri sýnd. Þarna má fá góðan völl fyrir drengina ef aðeins er rótað ofan í hálfsamanfallinn Frh. 4 ö. bíBh. Má ugglaust þakka þessa end- urvakningu glímunnar, dvöl Kjartans á Vestfjörðum. Nú er Kjartan farinn norður í Þingeyjarsýslu til félagsins Þing- eyingur, en að því loknu mun hann kenna á námskeiði er U. M. F. R. gengst fyrir í maí. Axel Andrésson hefur haldið mikið til á Austfjörðum í vetur á vegum þeirra-í 1. S. A., en þar er áhugi mikill bæði hjá forráða- mönnum sambandsins þar, og eins nemendunum. Skipti fólkið þar mörgum hundruðum sem sótti námskeiðin hjá Axel, og hef ég séð bréf um starfsemi Axels sem gefa glögga lýsingu á árangri hans og þeim tökum sem hann nær á kennslunni og nemendunum. Mun það sumpart að þakka þeirri kennsluaðferð sem hann hef- ur (kerfið) og hiuu, að hann leiðir fólkið með munnlegum tímum inn í leyndardóma leikreglnanna, sem svo margir aldrei fara, og fá því aldrei skilning eða, vissu um það hvað má og hvað ekki má, en sú vissa gerir manninn áhugasam- ari fyrir leiknum og hindrar oft óþæglega árekstra, í beinum og ó- beinum skilningi. Síðast var Axel í Reykholti og endaði sú vera þar, með reglulegri íþróttahátíð, eins og hann komst að orði, að Hvanneyri. Ilalda skólarnir þessar hátíðir sitt árið hvor, og að þessu sinni var hún að Hvanneyri. Fór þar fram hinn árlegi knattspyrnuleik- ur rnilli skólanna, sem endaði með sigri Hvanneyringa 2:1. Annars voru liðin svipuð. Keppt var um nýjan grip sem er stytta af knatt- spyrnumanni, sem hinn gamli K. R.-ingur, Haraldur Á. Sigurðsson leikari. bóndi og fleira gott, gaf, en listamaðurinn Ágúst Sigurmunds- son skar út. Þá fór þarna fram taflkeppni og sigruðu Ilvanneyr- ingar einnig þar. Kórar skólanna skiptust á söngvum og var gerð- ur að því góður rómur. Leikrit voru flutt og margt fleira var til skemtunar. Þá gat Axel þess, að knatt- spyrnuflokkur frá íþróttaráði Akraness hefði komið í heimsókn á annan dag páska og keppt við Reykhyltinga í knattspyrnu og handknattleik inni. Lauk þeirri viðureign svo, að Reykhyltingar unnu knattspyrnuna með 2:0, eft- ir nokkuð góðan leik og hand- knattlcikinn líka mcð 29 mörk- um gegn 19. Var ekkx laust við að Axel væri ánægður með þessa nýju nemendur sína, þó lionum væru nú báðar hendur við xixlir fastar, þar sem gestirnir voru gamlir nemendur hans, en hann huggaði sig við það, að upp úr miðjum maí færi hann til Akra- ness og yrði þar um skeið, og gæti hann þá ef til vill jafnað sakirnar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.