Þjóðviljinn - 21.05.1944, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 21.05.1944, Blaðsíða 1
Greídið allír atkvaeðí í dag með sambandsslítum og stofnun lýðveldís á Islandí — Setjíð X víð bæði jáín á kíörseðlinum I * 11 ítrsppar hafa lokið kosningu með 100 °|0 þátttöku Innrásin nálgast Leiðbeiningar til her- humt'u þióðsnna Háttsettur brezkur hershöfé- ingi flutti í gær útvarpsávarp til hemumdu þjóðanna á meg- inlandinu, og gaf þeim nákvæm ar leiðbeiningar um það, á hvem hátt þær gætu bezt orðið innrásarherjum Bandamanna að liði. Jafnframt var boðað að fleiri sl|kar leiðbeiningar yrðu gefn- ar næstu daga. Bandamenn sígursælir á ftaliu Bandamananherimir á ítaliu vinna stöðugt á, og hafa þegar brotizt inn í vamarvirkjabeltt Adolf Hitlerslínunnar. i Atkvæðagreiðslan um sambandsslitin og lýðveldis- stjómarskrána hófst í Reykjavík kl. 10 árdegis í gær, <og stóð til kl. 10 í gærkvöld. Alls greiddu rúm 12 þús. atkvæði, og em það 44% þeirra Reykvíkinga sem á kjör- skrá eru. En mikið vantar á viðunandi kjörsókn. Reyk- víkingar munu í dag sýna þann metnað, að þeir ætli ekki að láta hlut höfuðhorgarinnar eftir liggja þessa ör- lagaríku daga. Að gefnu tilefni þykir ástæða að minna á þá stað- reynd að atkvæðagreiðslan um stjórnarskrána er ein- göngu um það, að afnema skuli hið erlenda konungs- vald og stofna lýðveldi á íslandi, og það er því heimsku- leg firra, sem einstaka menn halda fram, að atkvæða- .greiðslan snúist um önnur efnisatriði stjórnarskrárinn- ar, hér er um að ræða sömu stjórnarskrána og við bú- um nú við, með þeim einum breytingum, sem leiða af stofnun lýðveldis á íslandi í stað konungsdæmisins. í»eir sem láta tilleiðast að segja nei við stjórnarskránni, greiða því atkvæði gegn því að lýðveldið verði stofnað Á íslandi, og með því að hér verði danskur kóngur á- fram við völd um ófyrirsjáanlegan tíma. Á öðrum stað eru birt nöfn þeirra hreppa, sem þegar fyrsta kjördaginn hafa lokið kosningu með 100% þátttöku. Hér fara á ■eftir kosningatölur þær, sem vitað var um í gærkvöld, sam- kvæmt upplýsingum landsnefnd ar lýðveldiskosninganna. Yestur-ísafjarðarsýsla 559 af 1207 kjósendum (46.3 %) hafa greitt atkvæða. ísafjarðarkaúpstaður Um 1100 af 1560 kjósendum <ca. 70%) hafa greitt atkvæði. Siglufjarðarkaupstaður 1098 af 1649 kjósendum (66,7 %) hafa greitt atkvæði. Akureyrarkaupstaður 1447 af 3506 kjósendum (41,3 %) hafa gritt atkvæði. Seyðisfjarðarkaupstaður 320 af 494 kjósendum (64,8%) hafa kosið. Suður-Múlasýsla 1105 af 2896 (38,2%) hafa kos- ið. Vestmannaeyjakaupstaður 1163 eða 58.4% hafa kosið. Hafnarfjarðarkaupstaður 1084 af 2330 kjósendum (46,5 %) hafa kosið. Vestur-Skaftafellssýsla Þar var í gærkvöld búið að loka öllum kjördeildum nema einni (í Hvammshreppi) og hafði þátttakan í öllum hinum verið nærri 100%. Á Sauðárkróki höfðu 95% kosið í gærkvöld. Lán til greiðslu ríkisskulda Eftirfarandi tilkynningu hef- ur blaðið fengið frá fjármála- ráðuneytinu: „Samkvæmt lögum frá 15. des ember 1943 var ríkisstjórninm heimilað að taka lán handa rík- issjóði, allt að 10 milljónum króna til greiðslu á erlendum skuldum ríkissjóðs. Heimild þessi hefur nú verið notuð að fullu með því að ráð- stafað hefur verið sölu á skulda bréfum ríkissjóðs fyrir 10 millj- ónir króna og eru ársvextir 3y2%, en tímalengd bréfanna er sem hér segir: Kr. 4.000.000 til 7 ára — 3.000.000 - 10 - — 3.000.000 - 20 - Sjö ára skuldabréfin voru öll seld með opinberu útboði, en hin bréfin hafa verið seld án útboðs. Öll bréfin voru seld á nafnverð.“ Svar forsætisráðherra birt I Danmö ku Sendiráð felands í Danmörku hefur lagt svar forsætiráðherra, dagsett 11. þ. m., fyrir konung, og hefur svarið verið birt op- inberlega, að því er segir í fréttatilkynningu frá utanríkis- ráðuneytinu, dagsettri 20. maí 1944. Hvltasunnuferðin Hvítasunnufcrð Æ.F.R. og Sósialista- félagsins. Farmiðar seldir i skrifstofunni Skólavörðustíg 19 kl. 4—7 í dag og á morgun. Áríðandi að tryggja sér miða strax. Mm ItFeipar Hafa pltað eifn s Þessir hreppar hafa ritað nafn sitt í íslands- söguna með 100% þátttöku í lýðveldiskosningun- um, — hver einasti atkvæðisbær maður hefur kosið fyrsta kjördaginn. Öngulstaðahreppur, Eyjafjarðarsýslu, Grafningshreppur, Ámessýsiu, Sandvíkurhreppur, Árnessýslu, Klofningshreppur, Dalasýslu, Hörðudalshreppur, Dalasýslu, Haukadalshreppur, Dalasýslu, Hvammshreppur, Dalasýslu, Svalbarðsstrandarhreppur, Suður-Þingeyjarsýslu, Ljósavatnshreppur, Suður-Þingeyjarsýslu, Tjörneshreppur, Suður-Þingeyjarsýslu, Fjallahreppur, Norður-Þingeyjarsýslu. Alþýðusambandið afneitar „Skutli" Á fundi miðstjómar Alþýðusambands tslands, er haldinn var 19. mai s.l., var eftirfarandi ályktun samþykkt: „Að gefnu tilefni skal því hér með lýst yfir, að Alþýðusamhandi íslands og sambandsfélögum þess er blaðið „Skutull“ og stefna þess í lýðveldismálinu, með öllu óviðkomandi. Vér viljum jafnframt skora á alla góða íslend- inga að stuðla að einingu þjóðar vorrar á örlaga- stundu, með því að fylkja sér einhuga um sam- bandsslitin og samþykkt lýðveldisstjórnarskrárinn- ar.“ Alþýðusamband íslands. Hanníbal setur met: Lýdveidísoienfi í hardvítu$fi feosn- ítigabaráffu á Isafirdi og Alsureyri víd Aiþýdufíofehiníni Á tveimur stöðum á landinu hafa þeir hörmuíegu atburðir gerzt, að málgögn Alþýðuflokksins halda uppi heiftarlegum áróðri gegn lýðveldisstofnxminni. „Skutull“ á ísafirði og „Alþýðumað- urinn“, Akureyri, komu út í gær með áskoranir um að segja nei við stjómarskránni. i grein Hannibals Valdimarssonar, sem kafli er birtur úr hér á eftir, er áreiðanlega sett met í bjálfa- hætti og ábyrgðarleysi gagnvart viðkvæmustu málum islendinga. Á ísafirði hefur verið um raun- j verulega kosningabaráttu að ræða. I ,,Baldur“ blað Sósíalistaflokksins, gaf í gær út fregnmiða með ávarpi . Theodóru Thoroddsen, og í gær birtu „Baldur“ og „Vesturland“ sameiginlega fregnmiða mcð yfir- lýsingu Alþýðusambandsins varð- andi „Skutul“. Þá kom einnig ; fregnmiði frá Guðmundi Hagalín 1 gefinn út af lýðveldisnefndinni ' samkvæmt ósk höfundar, þar sem | I hann tekur eindre'gna afstöðu með ' lýðveldisstjórnarskránni. Aukablað af Alþýðumanninum. sem út kom í tilefni af deginum birti eina grein Hannibals og skor- aði á kjósendur að fella hina „sví- virðilegu“ stjórnarskrá. í ritstjómargrein i „Skutli“ frá í gær um rás viðb'iirðanna í sögu íslands á næstu vikum segir m. a.: „Þegar hinni blinduðu þjóð hef- ur tekizt að samþykkja stjórnar- skrárnefnuna, kemur Alþingi sam- an. Þess fyrsta verk hlýtur að verða yfirlýsing um að Kristján konungur tíundi sé settur af. Þá fer fram forsetakjör. Þfir sem ekki hefur tekizt að fá algert samkomu- lag um.neinn ncma Svein Björns- son sem forseta, nær hann kosn- ingu, ein,kum sökum þess, að íhald- inu er kunnugt um að hann ster.d- ur í þeim sjx>rum að hann getur ekki tekið \ ið kosningu nú undir þessum kringumstæðum. Sveinn Björnsson hlýtur því að afþakka heiðurinn og rætist J)á sá draumur íhalds og kommúnista að koma Einari Arnórssyni í forsetastólir.n. Framh. á 5 síÖ«i.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.